Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1985, Blaðsíða 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR14. MAI1985.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
i'^Q
WOOLS-HOSIERY&
READYMADE 6ARMENTS
■
Woc-> WmL
Eftir sprangjuherferfl sikka um helgina á Indlandi mœtti mönnum oft sams konar sjón og eftir blóðbaðifl i október og nóvember þegar Indira Gandhi
Warmyrt' DV-mynd ÞóG.
Sikkar í Bandaríkjunum:
ÆTLUÐU AÐ MYRDA GANDHI
OG BYLTAINDLANDSSTJÓRN
Bandaríska alríkislögreglan segist
hafa komið upp um áætlanir um að
myrða Rajiv Gandhi, forsætisráðherra
Indlands, þegar hann kemur til Banda-
ríkjanna i júni.
FBI-lögreglan segir að sikkar hafi
ætlað að myrða Gandhi i Washington
og síðan að bylta stjóm hans í Nýju
Delhí með áframhaldandi sprengju-
herferð í höfuðborginni.
Um helgina fórust 86 manns vegna
sprengjugildra sikka á Indiandi. Móðir
Nautið íáhorf-
endahlutverkinu
Tveir helstu nautabanar Spán-
verja hneyksiuðu áhorfendur í Val-
encia með því að ganga í skrokk
hvor á öðrum í stað þess að etja
kappiviðtuddana.
„ElSoro” (Vicente Ruiz) og Jose
Manzanares tóku til við að berja
hvor á öðrum á leikvanginum
frammi fyrir fullum áhorfendapöll-
um.
E1 Soro hafði af hestbaki att
kappi viö eitt nautið þegar Manzan-
ares, fótgangandi, blandaði sér í
leikinn. Sté E1 Soro af baki og
gengu síðan pústramir á milli en
nautið stóð álengdar og horfði á þá
í forundran.
Lögreglan skakkaöi leikinn og
leiddi E1 Soro burt við mikinn fögn-
uö áhorfenda en Manzanares tók til
við nautið.
Rajivs, Indira Gandhi, féll fyrir kúlum
öfgasinnaðra sikka i október á síðasta
ári.
FBI-lögreglan sagði að fimm sikkar
hefðu verið handteknir um helgina
vegna málsins. Hún leitar enn að
tveimur öðrum.
Lögreglan mun hafa náð að koma
lögreglumönnum inn í sikkahópinn á
meðan þeir voru að æfa sig í notkun
vopna og sprengja.
I New York sagði saksóknari að
hann hefði myndbönd af sikkum ræða
um morð Gandhis við dúlbúinn lög-
reglumann. Þeir ræddu einnig um leið-
ir til að skapa ólgu i Indlandi með því
að sprengja upp kjarnorkuver og
stjórnarbyggingar. Hann sagði að
sikkamir hefðu sagt lögreglumannin-
um að þeir vildu bylta Indlandsstjórn.
Sikkamir fimm voru handteknir í
New Orleans. Aætlun þeirra var einnig
að myrða Bhajan Lal, aðalráðherra
Haryana-fylkis á Indlandi, sem núna
erí Bandaríkjunum í læknismeðferð.
Saksóknarínn sagði einnig aö sikk-
amir þrír sem komu fram á mynd-
bandinu hefðu viljað kaupa nægjanlegt
magn af sprengiefni til að sprengja
upp stóra brú og 36 híeða byggingu.
Sikkamir vildu fá dulbúna lögreglu-
manninn til að þjálfa lítinn skæruliða-
hóp í notkun sprengiefna, efnavopna,
hriöskotabyssa og aðferðum borgar-
skæruliða.
Pymá
móti
Thatcher
Thatcher, forsætisráðherra Bret-
lands, er í vanda stödd. Oánægðir
íhaldsmenn hafa myndaö hóp innan
þingliðs íhaldsmanna gegn henni. For-
maður þessa hóps er Sir Francis Pym,
sem sækir stuðning sinn til bænda-
ihalds og yfirstéttarinnar. Þessi þing-
mannahópur hyggst greiða atkvæði
saman gegn frumvörpum stjómarinn-
ar þegar honum þykir til hlýða.
Að auki hafa ef nahagsáform Thatch-
ers staðist illa. Atvinnuleysi eykst enn.
Verkamannaflokkurinn kemur nú bet-
ur út í skoöanakönnunum en Ihalds-
flokkurinn.
Pym segir Thatcher allt of íhalds-
sama og ekki nógu djúphyggna.
Deilur
harðna
Deilur hafa brotist út í Iran vegna
ásakana um að fýrrverandi forsætis-
ráðherra klerkastjómarinnar, Mehdi
Bazargan, sem sagði af sér tveim dög-
um eftir töku bandariska sendiráðsins,
hafi samþykkt að keisarinn, Reza
Pahlavi, færi til Bandaríkjanna til aö
leita læknishjálpar.
Það var forseti þingsins, Hashemi
Rafsanjani, semkommeðásökunina.
Bazargan hefur hótað að höfða mál
gegn Rafsanjani taki hann ekki ásak-
anir sínar til baka í bænum sinum á
föstudag.
Vændis-
konur
herja
Allt lögregluliðið, sem skipað var
að hindra að hryðjuverkamenn
kæmust inn á leiötogafundinn i
Bonn á dögunum, hafði meira að
gera en nákvæmlega þaö. Eitt
stærsta hlutverk þess var einnig að
hindra innrás vændiskvenna í höf-
uðborg V estur-Þýskalands.
Breskt blað telur að um 2.000
vændiskonur hafi þyrpst í bæinn í
von um ríka viðskiptavini.
Gandhi lofar
hertum aðgerðum
Eftir að upp komst um morðtilræðið
gegn Rajiv Gandhi, forsætisráðherra
Indlands, fyrirskipaði hann hertar að-
gerðir gegn hryðjuverkamönnum
sikka. Hann skýrði frá þessu á þinginu
í Nýju Delhí en gaf ekki upp nein smá-
atriði.
I gær hófust réttarhöldin gegn Sat-
want Singh, eftirlifandi morðingja
móður Rajivs, Indiru Gandhi. Tveir
aðrir sikkar eru líka ákærðir um hlut-
deild í samsjerinu.
Gandhi sagöi i gær að erlendir aöilar
hefðu haft hönd í bagga með þeim
hermdarverkamönnum sem hafa kom-
ið fyrir fleiri en 30 sprengjum í höfuð-
borginni og víðar og hafa drepið 86
manns. Þar er líklegt að hann hafi átt
við Pakistan.
Indvensk dagblöð segja að leyniþjón-
ustur telji að allt aö 150 öfgasikkar,
sem hafi hlotið þjálfun í Pakistan, hafi
laumast inn í Indland vikumar fyrir
sprengjuherferðimar.
Rajiv Gandhi ætlar afl fara til
Bandarikjanna 12.—15. júni, þrátt
fyrir afl upp hafi komist samsæri
um afl myrfla hann þar.