Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1985, Síða 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR14. MAl 1985.
11,
„SIGTRYGGUR VANN”
Sigtryggur Sigurðsson er iands-
þekktur afreksmaður i mörgum
íþróttagreinum, nú nýverið nýbakaður
Islandsmeistari i tvimenningskeppni í
bridge.
Sigtryggur starfar sem húsamólari
og er meistari i faginu. „Þetta snýst
um mólningu og sport,” sagöi Sig-
tryggur aðspurður um starfið og
óhugamólin.
„Það var að ég held 1975 að ég varð
Islandsmeistari í glímu, bridge, lyft-
ingum og kraftlyftingum, en síðan þó
hef ég nú heldur dregið úr allri þessari
sportmennsku, er til dæmis alveg hætt-
ur afskiptum af lyftingum, fyigist þó
með því sem efst er ó baugi ó þeim
vettvangi en alveg hættur þótttöku,”
sagði Sigtryggur. „Var i þessu ó órun-
um 1969—75 og læt það nægja.”
Sigtryggur var einn okkar allra
bestu glímumanna hér óður fyrr og er
enn ó kafi i mólefnum glímumanna,
hefur starfað sem glimuþjólf ari og læt-
ur mikið til sin taka i félagsmólum
glímumanna, m.a. ritstjóri timaritsins
Glíma, mólgagns glímusambandsins.
Er ekki tímafrekt að taka þótt i öllu
þessu sporti?
„Ekki fyrir mig persónuiega, er
svona einstaka sinnum i þessu. Þaö er
auðvitað misjafnt hvað menn gefa af
tíma, það getur tekið tima fyrir suma,
gildir þaö auövitað um aiit sport, ef
menn eru dellukarlar er alveg sama
hvað menn taka sér fyrir hendur, þeir
eyða öllum sinum fritima í þaö.” Ert
þú deilukarl? „Nei, það held ég nú
ekki, enginn rosalegur dellukarl, en
tek þó alltaf alvarlega þó hiuti sem ég
tek mér fyrir hendur,” sagði Sigtrygg-
urSigurösson.
Sigtryggur taldi glimuna hina góöu,
gömlu þjóöaríþrótt Islendinga, alls
ekki vera að deyja út, töluverð gróska
vseri i iþróttinni, og mætti t.d. minnast
ó hópa innan KR og Héraðssambands
Þingeyinga, HSÞ, sem væru einna
voldugastir. „Islandsglíman fór fram
að Laugum i Reykjadal fyrir stuttu og
tóku þar þótt fjölmargir keppendur
viös vegar af landinu.
Það mó annars segja að framtiö
glímunnar ó Islandi sé hóð voðalega
fóum mönnum og mó kannski ekki of
mikið út af bregða til að óhuginn og
skipulögð keppni snarminnki,” sagði
Sigtryggur og var auöheyrt að honum
er mjög umhugað um þessa gömlu sér-
íslensku iþróttagrein. Sigurvegari i
siðustu Islandsglímu var einmitt einn
nemenda Sigtryggs úr KR, Olafur
Haukur Olafsson. „Það er nokkuð góð
þótttaka ó glimuæfingum hjó okkur í
KR, ætli það sé ekki svona 40 manna
hópur er stunda æfingar nokkuð reglu-
lega.”
Nýbakaður íslandsmeist-
ariíbridge
Islandsmót bridgemanna var haldið
nýlega. Sigtryggur gerði sér þar lítiö
fyrir og vann sinn þriðja Islandsmeist-
aratitil i bridge. „Það vildi nú svo
skemmtilega til að ég spilaði til sigurs
ó móti manni sem ég hef aldrei spilað ó
móti óður, Póll Valdimarssyni. Hvað
olli þessu veit ég nú ekki, menn verða
ekki Islandsmeistarar i bridge fyrir
neinar tilviljanir, það sem þarf í góöa
spilamennsku er aö menn séu jarö-
bundnir og gefi hluta af sjólfum sér,”
sagði Sigtryggur af mikilli innlifun,
„öðruvísi getur samvinna tveggja
manna í tvímenningi aldrei borið telj-
andi órangur.
Sigtryggur kvaðst ekki stunda neitt
annað sport en þegar heföi verið
minnst ó, enda kannski með ærið nóg ó
sinni könnu. Ekki kvaðst bridgemeist-
Sigtryggur Sigurðsson, glimu-,
bridge- og lyftingakappi.
DV-mynd GVA.
arinn t.d. vera mikill skíðamaður.
„Hef aðeins farið i eitt skiðaferðalag ó
ævinni og það er alveg nóg. Þó var ég
neyddur sem krakki i skóla til að fara í
skiðaferöalag meö skólanum, ég fór
þarna upp ó einhvern helvítis hól, þar
var skólastjórinn og ætlaði að sýna
mönnum hvemig ætti að renna sér og
renndi sér á andlitinu niður. Þó fór ég
af skiðunum og labbaði niður. Síöan
hef ég ekki sést ó skíðum. ” hhei.
SEM BREYTTIST
Á EINNINÓTTU
Þú getur skemmt þér
stórkostlega í Glasgow, borg-
inni sem breyttist á einni nóttu.
Þótt þér dauðleiðist
sekkjapípumúsík,
finnist skotapils hallærisleg og gamlir kastalar óspennandi, þá
er fjölmargt annað í Glasgow sem gæti heillað þig upp úr
skónum og gert þig að aldavini skoskrar menningar og
lífshátta.
Glasgow er nútímaborg á gömlum grunni. Þangað er aðeins
um 2 klukkustunda flug með Flugleiðum frá íslandi. Þessi
nágrannaborg okkar á sér vaxandi aödáendahóp hérlendis. Þökk
sé viömóti Skotanna, kránum, veitingahúsunum, næturklúbbunum,
diskótekunum, verslununum, ágætum söfnum og skemmtilegri
menningu.
- Skoski ballettinn, Skoska óperan, Skoska sinfónían og Skoska
þjóðleikhúsið hafa aðsetur í Glasgow!
- í Glasgov^ eru 16 fyrsta flokks diskótek, og auðvitað tugir af verri
gerðinni!
- Glasgow státar af 36 veitingahúsum, þar sem matur og þjónusta
eru í hæsta gæðaflokki!
- Glasgow er draumastaður sælkera og lífsnautnamanna. (
borginni eru hvorki fleiri né færri en 80 vínstúkur, ölkrár og litlir
matsölustaðir sem hægt er að mæla sérstaklega með. En þá
eru ótaldir staðir sem heiðarlegir Skotar geta ekki mælt með!
Þú átt varla kost á ódýrara sumarleyfi en ef þú flýgur með
Flugleiðum til Glasgow. Þar býðst gisting á vönduðum hótelum fyrir
hlægilegt verð og í verslunum borgarinnar eru vörurnar á mun
lægra verði en í London.
Gleymdu öllu sem þú hélst að þú vissir um Glasgow! Skemmtileg borg meó lágan aógangseyri
GLASGOW
LEITIÐ FREKARI UPPLÝSINGA
A SÖLUSKRIFSTOFUM FLUGLEIÐA,
HJÁ UMBOÐSMÖNNUM OG FERÐA-
SKRIFSTOFUM.
o