Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1985, Qupperneq 13
13
DV. ÞRIÐJUDAGUH14. MAl 1985.
ÓVÆGIN ÁRÓÐURSHERFERÐ
Eitt af þvi sem stöðugt er haldið að
fólki, þegar minnst er á málefni
sveitarstjóma á höfuðborgarsvæð-
inu, er að i Kópavogi séu langþyngst-
ar álögur af öllum bæjum á höfuð-
borgarsvæðinu.
Þetta styðja menn með tilvitnun-
um i ýmsar álagningarprósentur
sem bent er á að séu lægrí ýmist i
Reykjavík eða á Seltjarnamesi, sem
oftast er nú vitnað til, Garðabæ og
einstaka sinnum i Hafnarfjörð. Við i
Kópavogi erum einfaldlega kallaðir
skattpiningarmenn aijörlega án til-
lits til allra aðstæðna og án tillits til
þess að eitt er að ákveða álagningar-
prósentur og annað hvað kemur út úr
álagningunni. Það er ekki litið til
þess hve mikla byrði gjaldendur
þurfa að bera i heild né þess hve
miklar tekjur sveitarfélögin fá á
hvemíbúa.
Skattpíning hér
ogþar
I þessari meðfylgjandi töflu, sem
félagsmálaráðuneytið gaf út og
birtist í 1. hefti Sveitarstjórnarmála
1985, sést hvaða álagning er notuð og
hvaða tekjur hún gefur á ibúa. Þarna
er álagning útsvara lægri i Kópavogi
en Reykjavík, aðeins hærri fast-
eignagjöldá ibúðarhúsnæði en lægri
á atvinnuhúsnæði þar sem Reykja-
vik notar álagningarheimildir að
fullu. Náttúrlega vegna þess hve
mikiö er af opinbem og hálfopinbem
húsnæði í borginni.
Utkoman úr þessari töflu, heildar-
tekjur á ibúa, segir okkur meira um
skattpíningu heldur en álagningar-
prósentur. En hún segir fleira.
Athugið að ef Reykjavíkurborg hefði
haft tekjur Kópavogskaupstaöar á
íbúa 1984 væm það 333 milljónum
minni tekjur en varð. Og ef Kópa-
vogskaupstaður hefði haft tekjur
Reykjavikurborgar á fbúa væru það
53 milljónum meira tekjur en Kópa-
vogskaupstaöur hafði árið 1984.
Hvaö verður
af tekjunum?
Þessi samanburður segir hversu
erfiður áróöurínn gegn Kópavogi er
meirihlutanum hér þar sem borin
eru saman útsvör og f asteignagjöld á
ibúðarhúsnæði en ekki tekjustofnar
eins og aðstöðugjöld og fasteigna-
skattar af atvinnuhúsnæöL Þrátt
fýrír þessar miklu tekjur leggur
borgin á útsvör og fasteignagjöld á
ibúöarhúsnæði í svipuðum mæli og
viðíKópavogi.
Þessar vangaveltur vekja hjá
manni spurningar um hvernig
Reykjavik og Kópavogi nýtast sinar
tekjur eöa hvað kemur út úr þessum
tekjum i framkvæmdum og rekstrí.
Það má einnlg spyr ja hversu há út-
svör og fasteignagjöld á ibúðar-
húsnæöi borgin þyrfti aö leggja á til
þess að hafa svipaðar tekjur og hfn
hefur ef álögur ó atvinnurekstur og
atvinnuhúsnæði væm þar sama hlut-
faU og er i Kópavogi af tekjum
bæjarins.
Ósamræmi í tekjum
og gjöldum
Það er mikið gumað af lágum
gjöldum á Seltjarnamesi þar sem
einn flokkur ræður öllu. I leiðara DV
var sagt að þar séu fyrst ákveðin
gjöld og þar meö tekjur bæjaríns og
siðan hvaö skuli gert fyrír tekjurnar.
Þetta á aö vera hægt vegna þess aö
þar ræður einn flokkur og í honum er
svo ljómandi gott samkomulag. Eitt-
hvaö annað en í meirihlutanum i
Kópavogi þar sem þrír flokkar
stjórna.
1 grein sem ég skrifaði í DV fyrir
Kjallarinn
SKÚLI SIGUR-
GRÍMSSON*
BÆJARFULLTRÚI FYRIR
FRAMSÓKNARFLOKKINN
IKÓPAVOGI
skömmu bar ég saman lausafjár-
stöðu sveitarfélaganna á höfuð-
borgaravæðinu i árslok 1983. Þar
kam i ljós aö á þeim tíma voru
ógreiddir reikningar og yflrdráttar-
skuldir um 24% af heildartekjum
Kópavogs, um 48% á Seltjamarnesi
og 52% i Garðabæ. Eg hefi fregnir af
þvi að hlutfallið sé svipaö i Kópavogi
i lok siðasta árs en hafi heidur
veranað á Seltjarnamesi en það ligg-
urekkifyrir.
Þessar tölur segja dálitið aðra
sögu en áróöurínn vill vera láta. Eða
hvers vegna er eytt svona miklu á
Seltjamarnesi og Garðabæ umfram
tekjur og velt á undan sér i ógreidd-
um reikningum og yfirdráttarskuld-
um. Hvaöa samhengi er i þeirri póli-
tik aö halda álögum niðri en fram-
kvæmdum uppi sem skuldimar
segja til um. Þaö segir manni að þaö
sé ekki samkomulag um að eyða
aðeins þvi sem aflaö er þótt einn
f lokkur ráöL
óarðbær nauðung
Það er sagt að þaö sé léttara að
búa á Seltjarnamesi en í Kópavogi
vegna þess að þar séu álögur lægrí.
Er það öll sagan? Ef bera skal
saman aðstöðu fólks i þessum bæjar-
félögum þarf að hyggja að fleiru en
prósentutölu bæjargjalda. Þaö skipt-
ir máli hvaö það kostar að koma yfir
slghúsL
Hér i Kópavogi hefur bærinn inn-
leyst til sin lönd og erfðaleiguréttindi
og úthlutað húsbyggjendum leigulóö-
um og tekið fyrir svipuð gatna-
gerðargjöld og gerist annars staðar.
Þetta hefur að vísu breyst á allra
siöustu árum aö viö höfum iagt á lóð-
ir svokailað upptökugjald sem er
kostnaöur bæjarins við að innleysa
til sin löndin en það nær engan veg-
inn markaðsverði lóða á Seltjarnar-
nesi, er sennilega um fimmtungur af
því.
Hins vegar þarf fólk að kaupa lóðir
á frjálsum markaði á Seltjarnamesi
vilji það byggja þar. Þær munu vera
falar hjá fasteignasölum á allt að 950
þús. króna. Þegar lóðin er fengin
þurfa menn siöan að borga til
bæjarins svipuð gatnagerðarg jöld og
gerist annars staðar. Af þessu leiðir
að húseigandi á Seltjarnamesi þarf
að reikna sér vexti (tapaða) af lóðar-
verðinu til viðbótar við bæjargjöldin
sin og síðan vexti árlega um alla
framtiö af þessari óaröbæru stofn-
upphæð sem hann er þvingaður til aö
leggja út fyrir lóðinni.
Þessa peninga, sem húsbyggjandi
á Seltjamarnesi borgaði fyrír lóðina,
fær hann ekki til baka. Þeir koma
ekki einu sinni til baka við sölu húss-
ins þvi verðmunur á sambærilegum
húseignum á Seltjarnamesi og Kópa-
vogi er hverfandi. Þessi aöferð
bæjaryfirvalda á Seltjarnamesi er
eflaust létt og ljúf, hún sigtar úr
þjóðfélaginu hátekjufólk sem lætur
sig ekki muna um þennan umfram-
kostnaö og skilar meirí tekjum í
bæjarkassann þrátt fyrir lægri
álagningu. Þaö gerír einnig mun
minni kröfur um félagslega þjónustu
frá bæjarfélaginu.
I Kópavogi, þar sem félagshyggj-
an hefur mótað stefnu bæjarfélags-
ins um langan tima, er lífsbaráttan
mun léttari en hjá sambærilegum
gjaldanda á Seitjamarnesi þar sem
einkaframtakið ræöur f erðinni.
Skúli Sigurgrímsson.
Alagning og tekjur sveitarfélaga A íbúa.
Kaupstadir
Ibuafioldi
01.12.
1984
Tala
g/aia-
enda
Utsvor
F/arhæd Nytmg
þus kr
Kr pr
ibua
Fasteignaskattur
F/arhæö Nytmg
pus kr a-lið b-lid
Kr pr
ibua
Adstoðugiald
Tala F/arhæd
g/ald þus kr
enda
Kr pr
ibua
Samtals
F/arhæd Kr pr
þus kr ibua
01 Reyk|avik
02 Grindavik
Keflavik
Njarðvik
Hafnarfjordur
Garöabær
07 Kópavogur
08 Selt|arnarnes
03
04
05
06
87309
2021
6886
2208
12683
5764
14443
3598
55956
1233
4483
1347
7635
3827
7635
. 2223
1184 393
26 375
98 935
31.040
157 243
82.705
192.752
52.978
11.0
110
10.8
11.0
10.5
10.4
10.8
10.5
13.566
13 050
14.368
14 055
12.397
14.348
13.355
14.716
380 332
9210
15 090
6 721
36 659
15 456
48049
9.309
0.421-
0.5
0.45
0.475
0.4
0.375
0.45
0.375
1.25
1.0
09
1.0
1.0
0.75
1.15
1.0
4 356
4 559
2 191
3044
2 890
2681
3 330
2 386
7 412
203
468
168
865
286
901
129
441 581
6034
13513
14 083
22.062
7043
35 725
1626
5 058
2.985
1 962
6 382
1 739
1.221
2 475
451
2 006 307
41.620
127 539
51 846
215 964
105205
276 527
63 914
22 980
20 594
18 520
23 481
17 026
18 250
19 160
17 753
„Útkoman úr þessari töflu, heildartekjur é ibúa, segir okkur meira um skattpiningu heldur en álagningar-
prósentur."
Gjaldþrot heillar kynslóðar
Islendingar hafa talið sér það til
tekna, þegar þeir hafa borið sig
saman viö aörar þjóðir, aö hér væri
ekki til staðar sú stéttaskipting sem í
öðrum löndum er gamalgróin. Sitt-
hvaö má um þessa fullyröingu segja,
en almennt séð er hún kjaftæði.
Hér hefur frá aldaöðÚ ríkt stétta-
skipting þótt með öðm sniði væri en
viðast annars staðar.
Það sem öðm fremur skildi
hafrana frá sauðunum hér á landi
var hvort fólk hafði í sig og átti visa
gistingu.
Annarri goðsögn hafa Islendingar
og þá sér í lagi islenskir stjórnmála-
menn veriö duglegir að hampa, en
þaö er sú fullyrðing aö á þessu kalda
landi ættu allir kost á þvi að búa i
eigin húsnæði.
Því er líkt faríö með þessa goðsögn
og þá fyrri aö hún hefur aöeins að
takmörkuðu leyti átt við rök að styðj-
ast. Og nú er svo komið að hún hefur
fyrir funt og allt verið kveðin í kút-
inn, þvi hafi þessi draumur nokkum.
tima átt sér von þá er hún úr
sögunni.
Sú kynslóð sem í dag stjómar land-
inu og peningamáium þess, og hefur
m.a. afrekað það aö ræna mestum
hiuta sparif jár þess fóiks sem i dag
er að ljúka störfum til þess aö steypa
upp glæsihallir, þessi kynslóö hefur
séö til þess að i dag getur enginn
venjulegur iaunaþræll byggt sitt
eigið húsnæöi. Það er síðan dæmi um
hagsýni núverandi valdastétta að
leiguhúsnæði, sem undantekningar-
laust er byggt upp af þeim sem rænt
hafa sparifé eldrí borgara landsins,
er verðlagt á þann hátt að þeir sem
lenda einu sinni i vítahring húsa-
leiguokursins eiga tæpast þaðan
afturkvæmt.
Lánlaus
félagsmálaráðherra
Ekki vantar það að þeir sem i dag
HRAFNKELL A.
JÓNSSON
FORMAÐUR
VERKALÝÐSFÉL.
Arvakurs, ESKIFIRÐI
verma stóla alþingis hafa haft uppi.
stór orð um hina dæmalausu og dýrð-
legu sjálfseignarstefiiu sem þeir og
flokkar þeirra fylgja. Afraksturínn
megum við aumir húsbyggjendur sjá
þessar vikumar. GjaÚþrot heiliar
kynslóöar blasir við á meðan lands-
feðumir með lánlausan og vitlausan
félagsmálaráðherrann i broddi fylk-
ingar mala um marklausar aðgeröir
i sölum alþingis. Undir forystu hins
málglaöa félagsmálaráðherra hafa
þessi mál verið leyst reglulega einu
sinni i mánuði siðan um áramót,
fyrst með reglum sem meðal annars
gerðu kröfu til þess að þeir sem
aðstoðar mættu njóta væru i stórfelld-
um vanskilum, þeir sem voru svo
vitlausir að klóra á einhvem veg í
bakkann og standa við skuldbinding-
ar, þeir þyrftu ekki aðstoð.
Alexander er bibliufróður og veit
aö í þeirri visu bók stendur að heil-
brígöir þurfi ekki læknis við.
Næsti stórleikur ráöherrans var að
senda út af örkinni brjóstgott fólk
sem þerraöi tárin af þeim sem voru
nógu vitlausir til að trúa þvi að veita
ætti einhverja aðstoö.
Eg var einn af þeim sem ekki
fattaði kfmnigáfu kerfisins og mætti
i viðtal hjá elskulegum og gæskurik-
um fulltrúa hinnar virðulegu
Húsnæðisstofnunar. Ekki vantaði
skilning, samúð og hluttekningu, og
út fór ég fullviss þess að yfirvöld
myndu af náö leysa minn vanda eins
og annarra i sömu sporum.
Siðan er langt um liðið, að minnsta
kosti í augum þess sem aðaUega les
rukkanir og afsagöa vixla. Af fram-
hleypni hringdi ég i Húsnæðisstofnun
fyrir fáum dögum og náði tali af
„huggaranum”, af sömu elskusem-
inni og áöur sagði hann mér að þaö
kæmi að mér, jú, seinna. En hvenær?
Fyrir mér var útskýrt föðurlega, að
það tefði bara fyrir aö vera aö spyrj-
ast fyrír um máliö, þegar ég síðan
með hálfum huga spuröi hvort ég
ætti von á einhverri úrlausn þá fékk
ég það svar að það gæti enginn sagt
mér þvi það væri nefnd sem ætti að
f jaUa um máliö og hún myndi gera
þaðseinna.
Blekkingar
Sjálfstæðisflokksins
Þótt félagsmáiaráðherrann sé
löngu oröinn frægur aö endemum
vegna afskipta sinna af húsnæðis-
málum þá er það þó hátíð hjá því
sem kallast stefna hjá Sjálfstæðs-
flokknum, en er auðvitað engin
stefna, nema þá ef menn vUja nota
svo hátíðlegt orð yfir hagsmuna-
gæslu fyrir örfámennan hóp gæðinga
sem lifa á þvi aö byggja yfir aðra og
græða á þvi að leigja út húsnæöi með
okurkjörum.
I siðustu alþingiskosningum
blekkti Sjálfstæðisflokkurinn fjölda
ungs fóUcs til fylgis við sig meö þvi aö
lofa stórfeUdum úrbótum i húsnæðis-
málum.
Þetta hefur verið svikið eins ræki-
lega og hægt hefur verið, sjálfs-
eignarstefnan sem flokkurinn hefur
taliö sig berjast fyrir er i útfærslu
orðin á þann veg að sífellt færri eign-
ast sifeUt stærra húsnæöi, en hópur
þeirra sem ekkert eiga stækkar að
sama skapi.
Þorstein Pálsson langar tfl þess
að verða ráðherra og við sjálfstæðis-
menn ætlumst til þess að hann verði
það. Ráöherraembættiö biður þin,
Þorsteinn, fáðu Steingrim til að
senda Alexander vestur á Nes, taktu
sjálfur viö embætti félagsmálaráö-
herra, sýndu síðan að þú sért veröur
þess trausts sem þér var sýnt með
því að velja þig sem formann Sjálf-
stæðisflokksins.
Sýndu i verki að þú sért fulltrúi
allra sjálfstæðismanna, einnig
þeirra sem þurfa að vinna fyrir sér
og byggja yfir sig. Sýndu í verki að
Sjálfstæöisflokkurinn sé i raun flokk-
ur aUra stétta.
Þessir reikningar verða geröir
upp við fyrsta mögulegt tækifærí og
það er öruggt aö hafi þér ekki tekist
að snúa viö þeirri þróun sem við
blasir í dag, þannig aö íslensk alþýða
njóti sömu kjara og þiö broddborg-
aramir teljið ykkur bera þá verður
ykkur einfaldlega hent á dyr og
ráönir til starfa menn sem vita sín
takmörk, fóik sem verður tilbúið að
deila kjörum með þeim sem borga
þeimlaunin.
Goðsögnin um stéttlaust þjóðfélag
verður ekki endurvakin, enda litil
ástæðatilþess.
Ekkerthefst
ánbaráttu
Hins vegar verður haldið hátt á
ktfU kröfunni um að hver einstakling-
ur eigi rétt á því að fá að éta án þess
að krjúpa og fái húsaskjól án þess að
skríða.
Húsbyggjendur: Við erum mörg
sem eigum við sama vanda að gUma.
Launafólk: Þiö eruð samherjar okk-
ar, við erum f jölmenn, miklu fleiri en
þeir sem maka krókinn á vandræö-
um okkar.
Verum- þess minnug að ef við
stöndum saman þá skriöa afætumar
í skjól i skúmaskotin og koma ekki
út fyrr en samstöðuna brestur hjá
okkur.
Eflum þess vegna samtök okkar,
stöndum saman þannig að þeir sem
betur eru settir styðji og styrki hina,
verum þess minnug að réttlæti fæst
ekkiánbaráttu.
Við höfum ÖU skilyröi tfi þess að
byggja á Islandi ríki frelsis, jafnrétt-
is og bræðralags, þaö skulum við
gera hvort sem stjómmálamönnum
og flokkum þeirra Ukar betur eða
verr.
HrafnkeU A. Jónsson.
a ,,Þótt félagsmálaráðherra sé
^ löngu orðinn frægur að endemum
vegna afskipta sinna af húsnæðismál-
um þá er það þó hátíð hjá því sem kall-
ast stefna hjá Sjálfstæðisflokknum.”