Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1985, Page 21
DV. ÞRIÐJUDAGUR14. MAl 1985.
21
þróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Markakóngurinn Dixon
og tveir f rá Everton
— nýliðar í enska landsliðshópnum íknattspyrnu
Enski landsllöseinvaldurlnn í knatt-
spyrnunni, Bobby Robson, valdi þrjá
nýliöa í landsliðshóp slnn fyrir HM-
leikinn viö Finna 22. maí í Helsinki og
vináttuleik við Skota 25. maí, þá Kerry
Dixon, Chelsea, og Everton-leikmenn-
ina Peter Reld og Paul Bracewell. Þeir
hafa ekki leikið landsleik fyrir Eng-
land.
Dixon er valinn í stað Paul Mariner,
Arsenal. Hann er 23 ára og hefur skor-
aö 36 mörk á leiktímabilinu. Reid er 29
ára — Bracewell 22 og hafa verið mjög
í sviðsljósinu á leiktímabilinu vegna
frábærs árangurs Everton. Tveir aðrir
Everton-leikmenn eru í landsliðshópn-
um, Trevor Steven og bakvörðurinn
Gary Stevens. Þeir Reid og Bracewell
hafa leikið í enska landsliöinu, leik-
menn 21 árs eða yngri, Bracewell nú-
verandi Evrópumeistari í þeim aldurs-
flokki. Reid lék 6 leiki á árunum 1977—
1979.
I landsliðshópnum eru þessir leik-
menn: Markverðir Peter Shilton,
Southampton, Gary Bailey, Man. Utd.
og Chris Woods, Norwich. Varnar-
menn: Viv Anderson og Kenny San-
som, Arsenal, Gary Stevens, Everton,
Terry Butcher, Ipswich, Mark Wright,
Southampton, Terry Fenwick, QPR, og
Dave Watson, Norwich.
Framverðir: Bryan Robson, Man.
Utd., fyrirliði, Ray Wilkins, AC Mil-
ano, Trevor Steven, Peter Reid og Paul
Bracewell, Everton, Glenn Hoddle,
Tottenham. Framherjar: Mark Hate-
ley, AC Milano, Chris Waddle, New-
castle, Gary Lineker, Leicester, John
Barnes, Watford, Trevor Francis,
Sampdoria og Kerry Dixon, Chelsea.
Auk þeirra tveggja leikja sem áður
eru nefndir leikur enska iandsliöið við
Italíu, Mexíkó og V-Þýskaland í Mexí-
kó 6,—12. júní og við Bandaríkin í Los
Angeles 16. júní. hsím.
Watford ætlar ekkl að gera það enda-
sleppt uú við Iok keppnistimabilsins í
Englandi. A laugardaginn kafsigldu
þeir Tottenham, 5—1, á útivelli og í
gærkvöldi fékk ekki ófrægara lið sömu
útreið á heimavelli Watford. 1 þetta
sinn Manchester United, sem á
„stóra” leikinn framundan, bikarúr-
slitaleikinn við Everton á Wembley á
laugardaginn.
Nigel Callaghan skoraði tvö af mörk-
um Watford, Colin West, Kenny Jack-
ett og Luther Blissett sáu um hin mörk-
in áður en Kevin Moran tókst að skora
mark United á síðustu mínútu leiksins.
Þá fór síöasti leikur 2. deiidarinnar
fram í gærkvöldi, Huddersf’eld og
Sheffield United skildu jöfn, 2—2. _{ros
,,Vöxtur fyrirtækisins hefur verið skjótur
síðustu árin.
66
Kristinn: „Og það væri ógerlegt að reka fyrirtækið án tölvunnar mið-
að við núverandi umsvif. Tökum útflutninginn sem dæmi. Allur út-
flutningurinn fer í gegnum tölvuna. Við notum IBM PC sem skjástöð
og einnig notum við Lotus 1,2,3 töflureikni. Hámarksskilvirkni náum
við með fjarvinnsluskjástöð og símasambandi, fasttengdri línu. Nú
erum við að skoða þess háttar samband við útlönd.“
,,Eins og margir aðrir útflytjendur eigum
við allt okkar undir því að veita góða þjón-
ustu.“
„Réttar vörur á réttum tíma eru lykilorðin,“ segir Kristinn og heldur
áfram: „Það er geysilega mikilvægt að geta séð fyrir að þetta sé unnt,
geta síðan fylgt þessu eftir og séð hvort hægt sé að standa við þetta.
IBM PC tölvurnar okkar eru notaðar til að fylgjast með tölfræðileg-
um upplýsingum um sölu erlendis þ.e. hvaða vörur seljast best (gerðir,
litir, stærðir) á hvaða tíma selst best, hvernig breytast hlutföll á stærð-
arskiptingu eftir svæðum og milli ára. Þessar upplýsingar eru sífellt
sendar fram og til baka, milli verslana erlendis og aðalskrifstofunnar
okkar. Og þessar nákvæmu upplýsingar, sem IBM tölvukerfið flytur
og vinnur úr, tengjast beint framtíðarsölu okkar.“
Helmingur starfsliðs Hildu vinnur nú við
IBM tölvurnar. Svo er IBM skólanum fyrir
að þakka.
Hilda hefur sent flest starfsfólkið á námskeið og IBM skólinn hefur
borgað sig vel í vinnu. Þetta var bráðnauðsynlegt til að flýta því að
tölvan kæmist í gagnið. Flestir fóru á almenna námskeiðið, á tölvu-
kynningu. Þeir sem vinna við tölvuna sjálfa fóru á námskeið í stjórn-
kerfum, vélstjórn og notkun á tölvuverkefnum.
Kemur þú auga á fimm
meginástæður þess
að Hilda hf valdi IBM?
\) Reynslan af IBM var góð almennt. B) IBM er þekkt fyrir að veita
góða viðhaldsþjónustu. C) Hilda hf. hafði keypt 4 skjástöðvar og 3
prentara frá IBM. D) IBM tölvur voru þekktar fyrir að hafa hæst
endursölugildi allra ef nauðsyn krefði. E) Hilda leitaði eftir sam-
vinnu við þekkt og traust fyrirtæki. F) Hilda hf. hafði ágæta reynslu
af S/34 og S/38 úr fjarvinnslunni. G) öll fjarvinnsla með IBM hafði
gengið vel. H) Hilda hf. gat reitt sig á tölvuuppbyggingu með IBM
í framtíðinni. I) IBM vörur eru ávallt í hæsta gæðaflokki. j)Upp-
lýsingastreymi frá IBM hafði gefið góða raun — allt frá sviði hugbún-
aðar til vélbúnaðar. K) Allar framleiðsluvörur IBM eru aðhæfðar
notandanum — vinnuhollar og auðveldar í notkun jafnvel þótt unnið
sé lengi í einu.
Veikomin:
r~ ~ . — — — — — — — —|
" Já takk. Mig langar til að vita meira um IBM leiðina til að betur 1
vinnist með líðan starfsfólks að leiðarljósi. Vinsamlegast
--- hafið samband við mig vegna sýnikennslu
___ sendið mér upplýsingar um:
— IBM PC __ IBM S/36 __ IBM S/38
--- IBM PC AT ____ IBM 4300 __ IBM skólann
Nafn og starfsheiti: ______________________
Fyrirtæki:__________________________________
Heimilisfang:
Sími:.
• B jarni Sigurðsson.
BJARNISIG.
ER BESTUR
— hjá norska Dagblaðinu
Bjarni Sigurðsson, ísienski
iandsliðsmarkvörðurinn í knatt-
spyrnunni, er stjörnumeistari hjá
norska Dagbiaðinu. Eftir fyrstu
umferðlrnar í 1. deildinni norsku
hefur Bjarni fengið f jórar stjörnur
hjá blaðinu. Hann leikur sem
kunnugt er með Björgvinariiðinu
Brann. t öðru sæti er Jan Masden,
Bryne, með 3 stjörnur. 12 Ieik-
menn hafa fengið tvær stjörnur
hjá blaðinu, 32 eina stjörnu.
hsím.
Porto
meistari
— og Gomes stefnir á
markakóngstitilinn
Markakóngurinn Fernando Gomes
skoraði þrennu þegar Porto tryggði sér
portúgalska meistaratitilinn í knatt-
spymu með 5—1 sigri á Belenenses.
Áttundi meistaratltiU Portó — félagið
sigraði síðast 1979. Porto hefur aðeins
tapað einum ieik á keppnistímabilinu
og allt bendir nú til þess að Gomes
bljóti „guilskó Adidas og France Foot-
bail” sem markakóngur Evrópu. Hann
hefur nú skorað 37 mörk í 27 leikjum.
Þremur umferðum er ólokið í Portúgal
og Porto hefur sjö stiga forustu á
Sporting Lissabon. Tvö af mörkum
Gomes á sunnudag voru úr vítaspym-
um.
hsím.
ÍSLENSK ÞEKKING - ALÞJÓÐLEG TÆKNl L&!ÍS' 'LTí
Forsala
— á HM-leik íslands og
Skotlands hófst í gær
Það er elns gott að fara að tryggja
sér aðgöngumiða á HM-leik tslands og
Skotlands á Laugardalsvelli 28. mai —
glfuriegur áhugi á leiknum og knatt-
spyrausambandinu berast stöðugt
fyrirspumir erlendis frá sem og innan-
iands. Skotar f jölmenna mjög til leiks-
ins.
Forsala aðgöngumiða hófst í gær í
versluninni Bonaparte við Lækjartorg.
Sala þar daglega kl. 11.30—18. Einnig í
versluninni ððni á Akranesi og Sport-
vík í Keflavík. Flugieiðir bjóða feröir
frá öllum áfangastöðum sinum i
sambandi við landslelkinn. Ferðir frá
27.—30. maí með 30% afslætti.
Auk HM-leiksins 28. mai verða tveir
aðrir leikir við Skota í Evrópukeppni.
tsland—Skotland, lelkmenn 18 ára eða
yngri, ieBta í Laugardalnum, Fögm-
völlum, og tsland -Skotland, leik-
menn 21 árs eða yngri, á Kópavogs-
velli. Báöir leikirnir 27. maí kl. 14 og
16.30. Landsliðsmenn Skota í öllum
þremur landsliðunum koma hingaö að
kvöldl 25. maí - HM-liðið nær beint úr
landsleik við Englendinga.
-hsím.