Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1985, Blaðsíða 40
FRETTASKOTIÐ
(68) • (78) *(58)
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
síma 68-78-58. Fyrir'.
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið í
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1985.
Bjórumræðan
ígærkvöldi:
Krefja Ólaf
umsannanir
„Eg skora á Ólaf Þóröarson að færa
sönnur á aðdróttanir sínar um mútu-
þægni og umboðslaun einstakra flutn-
ingsmanna frumvarpsins. Ella er hann
ómerkur orða sinna, slúðurberi af
verstu gerð,” sagði Ellert B. Schram á
alþingi í gærkvöldi.
Umræöur um bjórinn héldu áfram í
gærkvöldi og stóðu fram yfir miðnætti.
Ellert, Kristín Halldórsdóttir, Eggert
Haukdal, Karvel Pálmason og Hjör-
leifur Guttormsson lýstu yfir stuðningi
við frumvarpið með ýmsum fyrirvör-
um þó. Stefán Valgeirsson og Svavar
Gestsson lýstu sig andvíga.
Enn eru allmargir á mælendaskrá,
meðal annarra Olafur Þ. Þórðarson.
Umræðunni mun fram haldið i dag.
-ÞG.
Lögfræðingur BSRB:
Auðuseðl-
arnirgreidd
atkvæði
— líkur aukast á að KÍ
verði áfram í BSRB
Kennarasamband Islands hefur
fengið álit frá lögfræðingi BSRB um að
hann telji að auðir seðlar séu greidd at-
kvæði í allsherjaratkvæðagreiöslu
kennara um úrsögn úr BSRB. Þar með
aukast líkurnar á að kennarar verði
áframíBSRB.
Kjörstjóm kemur saman í dag og þá
mun endanleg talning atkvæöa liggja
fyrir. Eftir er aö telja 150—200 at-
kvæði. Af þeim atkvæðum, sem búið er
að telja, hafa 1484 kennarar greitt at-
kvæði meö því að Kl segi sig úr BSRB.
673 kennarar vilja vera áfram í BSRB
en 143 skiluðu auðum seðlum. Sam-
kvæmt lögum BSRB þarf 2/3 hluta
greiddra atkvæða til að Kl gangi úr
BSRB. -SOS
Qúotm
glansskol frá
Meiramagn, betriending.
^^H»ild»olubirgOir^
LOKI
Komdu og skoöaðu
kassana mína...
Væringar íbæjarkerfinu á Selfossi:
Bókhald hjá veitu-
stofnunum í ólestri
bæjarstjórinn hefur sagt upp störfum
„Þetta eru forkastanleg vinnu-
brögð. Af einhverjum ástæðum vill
veitustjórinn halda sínu bókhaldi að-
skildu þrátt fyrir samþykki bæjar-
stjórnar og bæjarstjóra um að setja
allt opinbert bókhald Selfoss undir
einn hatt,” sagði Guömundur Kr.
Jónsson, bæjarfulltrúi framsóknar-
manna á Selfossi, í samtali við DV.
Á fundi bæjarstjómar Selfoss
fyrir helgi ótti að leggja fram allt
opinbert bókhald kaupstaðarins.
Ekki stóð á bókhaldi bæjarstjóra og
stofnunum hans en þegar kom að
veitustofnunum bæjarins, það er að
segja rafveitu, hitaveitu og vatns-
veitu Selfoss, kom I ljós að allt þaö
bókhald var ófært.
„Það hefur komið fram mikil
óánægja með störf veitustjórans,”
sagði Guðmundur. „Það var keypt
hingað í bæinn tölva og átti aö setja
allt bókhald bæjarins undir einn hatt.
Veitustjórinn hefur ekki viljað fara
með sitt bókhald þangað þrátt fyrir
ítrekaðar óskir bæjarstjórans þar að
lútandi. Hann hefur ekki staðið við
það sem hann hefur lofað. Þá hafa
ýmis rekstrarleg atriði ekki verið
sem skyldi, til dæmis hefur ekki ver-
ið lesið af flestum mælum hér í bæ í
heilt ár. Undir venjulegum kringum-
stæðum er það gert þrisvar til
fjórum sinnum ó ári. Hann hunsar
alla samvinnu og samband við
bæjarstjórann og af þeim sökum hef-
ur sá síðarnefndi sagt upp starfi
sínu.”
— Er talið, að um einhverja óreiðu
séaöræðaþarna?
„Ekki veit ég það en bókhaldið
hefur að minnsta kosti ekki verið
fært.”
— Verður veitustjórinn látinn
víkja vegna þessa?
„Þetta eru náttúrlega ófær vinnu-
brögð og auðvitað ætti hann ekki að
fó að sitja lengur. Eg veit þó ekki
hvemig þetta mál fer. Það verður
aukafundur um móliö hjá bæjar-
stjóminni í næstu viku. Annars er
hér um að ræða væringar milli veitu-
stjórans og bæjarstjórnarinnar, sem
er skipt í þessu máli, er hafa verið að
grafa um sig nokkuð lengi. Það hefði
verið hægt að leysa þetta mál eða
hluta af því í haust hefði vilji bæjar-
stjómar verið fýrir hendi,” sagði
Guðmundur Kr. Jónsson.
-KÞ
; ' / i s, . já
Þafl kennir ýmissa grasa i kössunum fré Kjarval. Ólafur Jónsson, Gunnar Kvaran og Mjflll Snæsdóttir
DV-mynd KAE.
skoða innvolsið.
Sinubruni
við Mývatn
„Það var engin hætta, varptíminn er
seinni partinn í júni og það var komin
þaö mikil sina úti í ey junum að það var
gott að losna við hana,” sagði Einar Is-
feldsson, bóndi á Kálfaströnd, í morg-
un.
Einar fór út í Hrútey og kveikti þar í
sinu, mikinn reyk lagði frá henni. „Ég
fékk leyfi hjá hreppsstjóranum áður,
það þarf þess eftir f yrsta maí. ’ ’
Fleiri bændur en Einar á Kálfa-
strönd hafa kveikt í sinu aö undan-
förnu, bóndinn á Skútustöðum kveiktií
sinu í Mikley í gær.
— En hvers vegna ekki fyrr, Einar?
„Það er svo mikill raki að það er ein-
faldlega ekki hægt að kveikja í sinu í
eyjunumfyrr.”
Einar sagði að fjolskrúðugt fuglalíf
væri í Hrútey, húsöndin væri þama, og
allt í allt væm um 14 andategundir í
eyjunni ósamt öðrum f uglategundum.
„Húsöndin heldur sig mest núna úti
á Laxá, það er svo lítið að hafa úti á
vatninu. Hún lifir á mývargslirfunni,
mývargurinn kviknar í Laxá og hús-
öndinlifirálirfumývargsins.” -JGH
Farið að opna á annað hundrað kassa Kjarvals:
Leggir, kjammar og
uppköst að málverkum
„Hér kennir ýmissa grasa, má
þar nefna áhöld er Kjarval hefur not-
að viö vinnu sína, smáhluti er hann
hefur skreytt húsakynni sín meö og
allt þar á milli,” sagði Olafur Jóns-
son, listfræðingur á Kjarvalsstöö-
um,ísamtali við DV.
Um þessar mundir er verið opna
153 kassa sem Jóhannes Kjarval
pakkaði eigum sínum í skömmu fyrir
andlótið. Kassa þessa ánafnaði lista-
maðurinn Reykjavíkurborg og voru
þeir innsiglaðir. Síðan hafa þeir ver-
ið i geymslu í kjallara Korpúlfsstaða
þartilnú.
Það er ekki ofsögum sagt að það
kenni ýmissa grasa í kössunum. Þar
má finna litaspjöld, pensla og lita-
túpur listamannsins, leggi, kjamma
og bein alls konar. Einnig eru þar
trélíkneski, lampar, skeifur, sjúkra-
kassi, steinar af öllum litum og gerð-
um, ígulker og skeljar, bækur, tin-
öskjur og skrúfur, svo eitthvað sé
nefnt. Þó eru ótaldar allmargar
skissur og uppdrættir, sem að sögn
listfræðinga hafa verið uppkast að
ýmsum málverkum meistarans.
„Astæðan fyrir því að kassamir
hafa ekki verið opnaðir fyrr en nú er
sú að viö höfum hreinlega ekki vitaö
hvar og hvernig við ættum að koma
þessu fyrir,” sagði Olafur Jónsson.
„Nú er hins vegar tækifærið komið
því senn líður að aldarafmæli
Kjarvals. Afmælissýning verður hér
á Kjarvalsstöðum i haust og þá er
meiningin að þessir hlutir verði not-
aðir til að endurbyggja lifshlaup
Kjarvals, ef svo má aö orði komast.' ’
KÞ
í
I
/