Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1985, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1985, Qupperneq 3
DV. LAUGARDAGUR13. JULI1985. 3 Stórhækkun á verði svínakjöts, kjúklinga og eggja vegna kjarnf óðurgjaidsins: VERIÐ AÐ HENGJA OKKUR Á EINU BRETT1 — segir formaður Svínaræktarfélags íslands „Markaðurinn tekur alls ekki við þessari hækkun. Eg sé ekki betur en verið sé aö hengja á einu bretti þá sem eru í þessari grein,” sagði Halldór Kristinsson, svínabóndi og formaöur Svínaræktarfélags Islands, í samtali við DV. Mikil ólga er nú meðal svína- bænda vegna hækkunar kjarnfóður- gjalds í 130% en þessi hækkun tók gildi um síðustu mánaöamót. Halldór Kristinsson rekur næst- stærsta svínabú landsins, skammt frá Akureyri. Hann sagöi að fóöur væri um 60% af framleiöslukostnaði og með þessari hækkun gæti hvert tonn kjarn- fóðurs hækkað um 11—12 þúsund og fóðurkostnaöur farið upp í milljón á mánuöi. „Eg veit ekki hve mikil hækkunin verður á svínakjöti en tel að hún verði aldrei undir 20—25%. Við svínabændur erum vægast sagt óhressir, það er hrikalegt að vera undir þetta seldur. En við ráðum engu, við neyðumst til að hækka verðið. Ráðherra er með ein- ræðisvald í þessu máli og hann virðist bera hag sauðkindarinnar fyrir brjósti Lax, lax, lax. Fjör viö kistuna í Kollafjarðarstöðinni i fyrradag. Um 400 laxar voru komnir inn i stöðina seinnipartinn i gærdag. DV-mynd VHV. Pólarlax: LAXINN FARINN AÐ GANGAINN — líflegt í Kollaf irði og Vogum Hann er farinn að ganga inn, laxinn, hjá Pólarlaxi í Straumsvík. Það gerðist í fyrra dag og alls eru um 80 laxar gengnir upp í stöðina og fyrir ut- an eru hundruð laxar í nokkrum torfum. Um 400 laxar voru komnir inn í gær- dag í Laxeldisstöðinni í Kollafirði. Lætur nærri aö 100 laxar hafi gengið inn á sólarhring síðustu þrjá daga svo að þar hefur verið mjög líflegt. Laxinn gengur inn í kistuna innan við þjóðveg- inn í enda Kollaf jarðar. I hafbeitarstöðina í Vogum höfðu um 450 laxar gengið inn seinnipartinn í gærdag. Laxinn er tekinn í gildru fyrir framan laxastiga sem þar er. Enn hefur enginn lax í Vogum farið upp í stöðina á eðlilegan hátt — heldur er hann gómaður við stigann. „Það eru einhver hundruð hér fyrir utan,” sagði Guðlaugur Guðmundsson, starfs- maður stöðvarinnar, í gær. — Hvaö má laxinn vera lengi fyrir utan án þess aö hann yfirgefi , ,æskustöðvarnar ” ? „Það veit enginn en það er ekki mjög langur tími. Það er eins og hann flakki á milli hafbeitarstöðvanna líði nokkur tími. Þeir hjá Pólarlaxi fengu til dæmis fisk frá okkur í fyrra,” sagði Guölaugur. -JGH. Laxadauöinn óútskýrður: Sýnin úr Elliða- ánum voru of gömul „Við fengum sýnin á mánudag og settum í bakteríuræktun en því miður kom ekkert út úr því vegna þess að sýnin voru orðin of gömul,” sagði Eva Benediktsdóttir örverufræðingur við DV í gær. „Ef laxadauöinn heldur áfram munum við reyna að nálgast sýni eftir helgina. En það var ekkert sem benti til ákveðins sjúkdóms í þessum sýnum semviðfengum.” Sem kunnugt er af fréttum fann össur Skarphéðinsson, ritstjóri og fisk- eldisfræðingur, dauða laxa í Elliöa- ánum sl. sunnudag. Þeim var komið í ræktun á Keldum og er niöurstaöan sú sem að ofan greinir. umfram annaö,” sagði Halldór. Að sögn hans liggur ekki ljóst fyrir hvernig verður með endurgreiðslu á hluta gjaldsins, 80%, en það rennur til framleiðnisjóðs,sem áður hét kjarn- fóðursjóður, samkvæmt nýjum lögum. Endanlegt fóðurverð og framleiðslu- kostnaður er því ekki orðinn ljós. -pá Jón Jóhannsson kjúklingabóndi, Ásmundarstöðum: Misnota valdið „Hér er verið að skattleggja mjög ranglátlega. Menn eru að misnota valdið til að bjarga sjálfum sér,” sagði Jón Jóhannsson, bóndi á Ásmundar- stöðum í Rangárvallasýslu, í samtali við DV um hækkun kjarnfóðurgjalds- ins. Ásamt Gunnari bróöur sinum rekur Jón stórt kjúklingabú að Ásmundarstöðum. Tonnið af innfluttu kjúklingafóöri mun hækka um 9000 krónur, eða 70% og því er gert ráð fyrir að kílóverö á kjúklingum hækki um a.m.k. 15%. „Við erum í Félagi fuglabænda en megum okkar einskis í kerfinu. Við stöndum undir 70% af framleiðslu hænsnaafurða í landinu. Það er alveg ljóst að kjarnfóðrið hefur verið hag- kvæmasti þátturinn í framleiðslu land- búnaðarafurða en nú vilja þeir skatt- leggja hann bara til þess aö ná fjár- munum frá okkur. Þessir menn sjá bara kjarnfóður- gjaldið og þeim virðist vera þaö þyrnir í auga hvað okkur hefur gengið vel. En þeir svífast einskis og okkur er hætt að lítast á þetta,” sagði Jón. Hann bætti því við að þeim 80%, sem ættu aö koma til endurgreiðslu, ætlaði Framleiðsluráðið nú sýnilega að út- deila að eigin geðþótta, til þess hefði þaðheimild. -pá ULTRA ■LOSS Eina raunhæfa nýjungin í bílabóni Útsölustaðir: Bensinafgreiðslur Jssoj CHÍufétagiá hf ÞÚ BÓNAR TIL REYNSLU ULTRA GLOSS er svo frábært bón, að þú verður að hafa reynt það til þess að trúa því. Kauptu þér brúsa og gerðu tilraun, smáa eða stóra. VIÐ ENDURGREIÐUM ónotaðar eftirstöðvar ef þú ert ekki fyllilega ánægður með árangurinn. • Auðvelt í notkun • Hreinsar • Margföld ending • Gefur glæsilega áferð • Stöðvar veðrun (oxyderingu) • Vernd gegn upplitun Það sem gerir ULTRA GLOSS svo frábrugðið er, að það inniheldur engin þau efni, sem annars er að finna í hefðbundnum bóntegundum, svo sem harpeis, vax, plast eða polymer efni. Grunnefnið i ULTRA GLOSS eru glerkristallar, auk bindiefna og herða. Þegar bónað er með ULTRA GLOSS, þá myndast þunnt glerungslag á yfirborði lakksins, sem bæði styrkir það og kemur i veg fyrir að óhreinindi nái að bita sig föst við lakkið. Varnarskelin er það góö. að sé bónið borið á ál eða silfur þá fellur ekki á málminn. Með öðrum orðum, veðrun (oxydering) á sér ekki stað. Framleiðendur benda auk þess á, að ULTRA GLOSS endist langt umfram hefðbundnar bónteg- undir. Þetta þarf engum að koma á óvart, því ef borin er saman ending á vax- eða plasthúð annars vegar og glerhúð hins vegar, þá er nokkuð augljóst hvaða efni endist lengst. En ULTRA GLOSS hefur fleiri kosti, því eins og kunnugt er þá dregur gler úr virkni útfjólublárra geisla, en þeir eru höfuðorsök þess að lakk á bilum upplitast. Erlendar umsagnir: General Motors Engineering Staff GM GM Dessert Proving Ground We have tested your product in various departments and divisiohs. Your product seems to be superior in every way compared to other product of similar nature. We are thoroughly satisfied with your product. . Si9n- C'JustrpQL Cl.ester R. Yðmcy ‘‘urchasing Departméht Ford * 15505 Roscoe Bouleward Sepulveda, Cal. 91343 We believe ULTRA GLOSS is exceptionally fine product and would enthusiastically recommend.inoany dealer. Si9n' GALPIN MOTORS> INC.' Bert Boeckmann Owner-President Einkaumboð á islandi Háberg hf. Skeifunni 5a.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.