Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1985, Síða 5
DV. LAUGARDAGUR13. JÚLl 1985.
5
Magnús Árnason, fulltrúi bæjarfógata, gefur þau Lenu og Johan saman.
Sænskt par lét pússa sig saman í íslandsferð:
„Þessi athöfn mun
lifa í minningunni
allt lífið”
Sá óvenjulegi atburður átti sér stað
fyrir nokkru í garðinum að Grænatúni
14 í Kópavogi í blíðskaparveðri að
sænskt par var gefiö saman af f ulltrúa
bæjarfógetans.
En hvað kemur Svíum til að fara til
Islands og gifta sig. Skýringin felst í
því að þau Lena Gudbrandsen og
Johan Snögren eru miklir vinir hennar
Gerðar Guðmundsdóttur sem býr hjá
foreldrum sínum í Kópavogi, þeim
Guðmundi Helgasyni og Jóhönnu
Markúsdóttur. Gerður, Johan og Lena
stunduöu nám saman i Svíþjóð. Þau
eru nú öll fullnuma æskulýðsfulltrúar.
„Okkur hefur lengi langað að koma
til Islands og þess vegna langaöi okkur
einnig að gera ferðina eftirminnilega,”
segja Lena og Johan. Þessi hugmynd
um að gifta sig hér á Islandi er reyndar
engin skyndihugmynd. Þau voru þegar
byrjuð að skipuleggja þetta sl. haust.
„Eg fékk reyndar ekki að vita af
þessu fyrr en fyrir hálfum mánuði,”
segir Gerður, vinkona brúðhjónanna
og einnig svaramaður Johans.
Það var hátíðleg stund þegar
Magnús Árnason, fulltrúi bæjarfógeta,
gaf þau Lenu og Johan saman. Honum
fórst verkið vel úr hendi og las upp til-
heyrandi texta á þeirra máli.
„Þessi athöfn mun lifa í minningunni
allt lífið,” segja brúðhjónin að lokinni
athöfninni og allir eru i sólskinsskapi.
Segja má að þau hafi slegið tvær
flugur i einu höggi. Með því að gifta sig
á Islandi voru þau um leið komin í
brúðkaupsferð.
„Það má segja að við höfum gift
okkur í brúðkaupsferðinni,” segir
Lena.
Eftir brúökaupið stendur reyndar til
að fara i ferðalag um iandið. Fyrst á að
byrja á Snæfellsnesinu.
Þegar DV kveður þessa sérstæðu
samkomu eru gestir í þann mund að
fara að setjast að borðum. Búið er að
leggja á borð í garðhúsinu. Á mat-
seðlinum er ekta íslenskur matur,
nánar tiltekið grillað hvalkjöt. Fyrir
utan garðhúsiö rennur heitt vatn í stór-
an garðpott. Gerður segir að ekki sé
óhugsandi að gestimir fari í heita pott-
inn þegar líða tekur á kvöld.
Þaö er ekki hægt að ljúka þessari
frásögn án þess aö fjalla aöeins um
garðinn aö Grænatúni 14. Séö frá
götunni er húsið fallegt og með falleg-
an garð. Sú fegurð verður þó ekki
raunveruleg fyrr en komið er í
garðinn. Þar er mikil gróska og
greinilegt að mikil vinna hefur verið
lögð i að rækta garðinn.
„Það er konan mín sem á heiðurinn
af þessu,” segir Guðmundur Helga-
son, faðir Gerðar.
En það er ekki bara gróðursældin
sem blasir við þama. Þegar betur er
að gáð kemur í ljós stórt garðhús og
stór heitur pottur. Garöurinn er í fáum
orðum sagt vin í Kópavogi.
-APH.
Kampavinstappar i loftið og skálað: húrra, húrra, húrra, húrra og lengi lifi
brúðhjónin.
DV-myndlr VHV.
til að hafa svo allt eins og það á að vera kysstust hin nýbökuðu brúðhjón rembingskossi er athöfninni var lok-
Opiðí dag 1—4
Hefur þig ekki alltaf langaö
aö eignast torfærubíl ...
en ekki lagt í þaö vegna verösins?
JM
hefur okkur tekist aö
i*m
veröiö úr 420.000 í aöeins
Standardútgáfa
af Lödu Sport
meö ryövörn
P.S.:
Við bjóðum
að auki
okkar rómuöu
greiöslukjör.
< BIFREIÐAR OG LANDBUNAÐARVELAR HF.
Vit^wN SUÐURLANDSBRAUT 14 S.: 38600 S. SOLUDEILD: 31236