Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1985, Qupperneq 15
DV. LAUGARDAGUR13. JUU1985.
15
Flugmenn Landhelgisgæslunnar þökkuðu fyrir heimsóknina með lágflugi
yfir strandgæsluskipið.
Myndir JKH.
er gegnir störfum sendiherra Breta á
Islandi í fjarveru David Thomas, er
mikill áhugi á því aö stuðla aö
kurteisisheimsókn íslensks varðskips til
Bretlands. Sagði Lonsdale aö áhafn Leeds
Castle hefði verið mjög ánægð með aiiar
móttökur á Islandi og sérstaklega með
velvild starfsbræöra hennar í íslensku
landhelgisgæsiunni.
Kvaðst Lonsdale auðvitað skiija það
að „úthafsfloti” islensku landhelgis-
gæslunnar væri ekki beint daglegur
gestur í erlendum höfnum en kvað
mikinn áhuga á því að fá fulltrúa
íslensku landhelgisgæslunnar í kurt-
eisisheimsókn til Bretlands til að kynna
sér starfsemi bresku strandgæslunnar.
hhai/JKH.
Mark Tasker, starfsmaður breska náttúruverndarróðsins.
Telur sjofugla sex
mánuði á ári
Mestalla leiðina milli Reykja-
víkur og Keflavíkur stóö kappklædd-
ur maður undir beru lofti á stjóm-
borða og skimaði út í loftið. Stöku
sinnum skrifaði hann einhverjar
tölur í möppu hjá sér en leit jafn-
óðum upp aftur og skimaði betur.
Þegar að var gáð kom i ljós að
maðurinn hét Mark Tasker og er
starfsmaður breska náttúruvemd-
arráösins. Hefur hann þann starfa
með höndum að telja sjófugla. „Eg
hef starfað við þetta nú í sex ár og
dvalið nær hélming þess tima á sjó.
Hinn helminginn er ég i landi og
vinn úr niðurstöðum.
Mark kvaðst ekki geta upplýst um
fjölda fuglanna enda er talning hans
hlutfallskönnun. Hann getur vitað á
hvaða svæðum fuglalíf er fjölskrúð-
ugast og eins hvemig f jöldinn skipt-
ist eftir tegundum. Koma þessar
kannanir að miklu gagni við
ákvarðanir um náttúruvemd, til
dæmis ef mengunar verður vart. Þá
sjá menn í hendi sér hve áríðandi er
að grípa til aðgerða.
Mark sagði að þetta væri í fyrsta
skipti sem hann kæmi til Islands og
að það væri ágætis tilbreyting að
skoða fuglana hér í stað þess aö vera á
ferðinni í Norðursjónum, enþarer hann
venjulega. Hér sæi hann tegundir eins
og lunda sem em mjög sjaldgæfir í
Norðursjónum.
I
Langar til
að verða
skip-
stjóri
á kafbáti
„Eg hyggst gera þetta að ævi-
starfi,” sagði hið tuttugu og eins árs
gamla foringjaefni, P.D. Tattersall,
þegar hann var spurður um þjónust-
una í flota hennar hátignar. „Eg
verð á Leeds Castle fram í miðjan
ágúst, þá fer ég í þriggja vikna leyfi
en síðan lýk ég þjálfun minni á stórri
freigátu. Markmiðiö er að komast
svo á kafbát í f ramtíðinni. ’ ’
Tattersall sagði að lifið um borð
væri töluvert strembið en andinn væri
góður. „Menn verða að leggja það
hart aö sér við vinnuna þannig að
það er nauösynlegt að áhöfnin sé
samstillt.” Þegar hann var spurður
hvort hann kviði því ekkert að fjöl-
skyldulif hermanns í flotanum yrði
óreglulegt sagðist hann nú ekki vera
á biðilsbuxum þessa dagana, en
þetta hefði kosti og galla i för með
sér. Það væri alltaf von til þess að
hjón yrðu síður leið hvort á öðru ef þau
sæjust sjaldnar. Samskipti þeirra yrðu
bara innilegri fyrir bragðið. JKH
P.D. Tattersal foringjaefni, teinróttur um borð.
Brita
barna-
bflstóll,
Það er mikilvægt að barnið sitji í öruggu og þægilegu sæti, verði bíllinn fyrir
hnjaski. Þegar bremsað er skyndilega er barnið öruggara. Ef þægilega fer
um barnið er það rólegra — og þar með ökumaðurinn.
Britax bílstólar fyrir börn eru öruggir og
þægilegir í notkun. Með einu handtaki er
barnið fest — og losað. Biðjið um Britax
bílstóla á bensínstöðvum Shell.
BENSINSTOÐVAR
SKELJUNGS