Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1985, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1985, Síða 19
DV. LAUGARDAGUR13. JULI1985. 19 Jóhann Briem Myndir: Vladimir Sichov wc< ■ ■ mn j vhl. '‘Ílt .. Æi\s Arnar Jónsson, Þórhildur Þorleifsdóttir og börn þeirra fimm. „Ég kynntist Tómasi Holton fyrir þremur árum þegar ég tók myndir af honum fyrir grein í People Magazine. Hann stakk upp á því að ég tæki myndir í þessa bók. Þaö var mér mikil ánægja því að það var einstætt verkefni að taka myndir í bók um listamenn í hinum aöskiljanlegustu greinum.” Það er Vladimir Sichov, hinn þekkti rússneski ljósmyndari sem tekið hefur myndir af íslenskum lista- mönnum fyrir bók um íslenska menn- ingu og listir sem Sigurður A. Magnússon hefur skrifað, sem hefur orðið. Vladmir Sichov mætti á ritstjórn- arskrifstofur DV á dögunum og fyrr en varði hafði hann gabbaö blaða- mann í skák. Á meðan viö tefldum greindi Sichov frá sjálfum sér og þessu íslenska verkefni. Vill hafa tækifæri til að fara heim Sichov er sjálfur mikill listunnandi og því enn betur í stakk búinn til að ljósmynda listamenn. En leyfum hon- um að fá oröið: „Það eru orðin sex ár frá því að ég fór frá Sovétríkjunum. Eg fór fyrst til Vínar. Eina löglega leiðin út úr Sovét- ríkjunum var að sækja um vegabréfs- áritun til Israels. Eg haföi ekki áhuga á að flýja því að ég vil hafa tækifæri til að fara aftur heim. Eg er ekki of svartsýnn á að ég fái það. Þú veist að eftir byltinguna 1917 ríkti borgarastríö milli hvítliöa og rauða hersins og í kjölfar þess flýðu margir, en meira að segja þetta fólk fékk um síöir sakaruppgjöf og fékk að snúa heim. Frá 1970 til 1979 fóru rúm- lega 300.000 manns frá Sovétríkjunum til Israels. Og þrátt fyrir allt er þetta mikill fjöldi. Á hinn bóginn má nefna dæmi frá öðrum austantjaldslöndum. Roman Polanski, sem ég kannast við, hefur verið 20 ár vestanhafs og hann hefur alltaf haldiö pólskum passa, meira að segja er herlögin voru sett. Eg vona að málin þróist á þann veg í Sovétríkjunum að slíkt veröi hægt. Götulífsmyndir I Sovétrikjunum tók ég mikið af götulífsmyndum en fékk þær ekki birtar þar. Þær voru birtar seinna vestantjalds en til aö afla mér lifi- brauðs fékkst ég við myndatökur fyrir auglýsingar og ýmiss konar skreytingar. Svo gerði ég plötualbúm og veggspjöld fyrir vini mína í popp- hljómsveitum. Eftir að ég kom til Vesturlanda, seint á árinu 1979, fékk ég strax mikið að gera. Um tíma voru ekki birtar eins margar myndir eftir nokkurn ljósmyndara og mig. Ég vann fyrir Paris Match (götumyndirnar), Life, Stern og Vouge. Eg hef tekið meira en 200 tískuljósmyndir fyrir það blað og er enn aö.” — Hvernær byrjaðir þú að taka myndirnar af íslensku listamönnun- um? „Eg tók megnið sumarið 1983 og vann við þaö í tvo mánuði.” Við blöðum í gegnum bókina á milli þess sem skákmennirnir eru færðir til á borðinu. — Eru andlits- myndir kannski sérgrein þín? „Nei, enda eru það yfirleitt ekki klassískar andlitsljósmyndir sem eru í bókinni. Ég reyndi að ljósmynda listamennina í eðlilegu umhverfi þeirra, á vinnustað eða heimili. Eg tók myndir af sumum úti. Ég reyndi í öllum tilfellum aö hafa eitthvað örlítiö meira en bara manneskjumar sjálfar. Einn hluti af heimilinu, ein- kennilegt fjall í baksýn, eitthvað til aö bæta við. Sumir hafa spurt mig hvort ég hafi ekki liöiö fyrir hversu litill tími gafst til verksins. Mér finnst það asnaleg afsökun. Maður tekur aldrei tvær myndir á tveimur ólíkum augnablik- um. íslendingar og Rússar líkir Landslag Islands er undarlegt og framandi. Ég hef ferðast mjög víöa í Evrópu, Ameríku, Afríku og Asíu. Ég hef ekki kynnst neinni þjóð sem er eins lík Rússum og Islending- ar. . . og samt er umhverfið svo gjörólíkt. Ég veit ekki til þess að það geti gerst annars staöar er. á Islandi og í Rússlandi aö tvær manneskjur hittist úti á götu og fari að ræða um alheim- inn og guödóminn upp úr þurru. Það býr í okkur einhver innri þörf til and- legra iðkana. Eg held að menntun eöa menning hafi hér ekki úrslitaáhrif. Eg held að fólk hreinlega fæðist svona. Manneskjan hefur persónu- leika þegar hún fæöist og ég held að engin leið sé til að breyta henni al- gjörlega. Sverrir á hóteli Eg tók myndir af á að giska 170 íslenskum listamönnum. Það var reyndar dálítið leiðinlegt aö nokkrir þeirra vildu ekki fá mynd af sér í bókina. Eg ferðaöist með Magnúsi Magnússyni um landið til að taka landslagsmyndir af söguslóðum Islendingasagna (birtist á næsta ári) og sá þá hreint frábæra mynd á hóteli sem við dvöldum á. Ég vildi endilega hitta málarann Sverri Haraldsson, bæöi sem ljósmyndari og listáhuga- maður, en því miður var mér tjáð að hann væri veikur og vildi ekki hitta fólk. Mér auðnaðist aldrei að hitta hann því að hann er nú látinn.” Sigurður A. Magnússon er nú kom- inn á vettvang og við skoðum saman bókina. Hann segist halda mikið upp á ljósmynd Sichovs af Jóhanni Briem. „Já, og Briem er frábær málari! Það er ósanngjarnt að hann skuli ekki vera heimsfrægur. Ég man eftir því að ég sá gamalt verk eftir hann heima hjá honum, frá þriðja áratugn- um held ég, sem sannfærði mig um að þar væri kominn stórkostlegur málari. Áhrifamikið að hitta Jakobínu Eiginlega varð ég fyrir mestum áhrifum af Jakobínu Sigurðardóttur og ég var spenntur að hitta hana því hún er mjög þekkt sem rithöfundur í Sovétríkjunum. Islenskar bókmenntir eru nokkuð mikið lesnar þar, Laxness auðvitað er þekktur. Jú, jú, ég hafði lesið íslensk verk áður en ég fór vestur. Og þessar stórkostlegu bók- menntir sýna að Islendingar eru mikil þjóð. .. ” Skákin er að fjara út. Mér sýnist Sichov vera að ná undirtökunum, enda kóngsvængurinn í uppnámi hjá mér. Sigurður A. segir að ég megi telja mig góðan ef ég nái jafntefli. Eina leiðin út úr óförunum er að láta Sichov gleyma skákinni. Það tekst. Hann rekur augun í mynd af Spassky sem hangir uppi á vegg. „Nei, ég þekki ekki Spassky, en mig langar til að kynnast honum og reyndar búum við í sömu borg, París.” Aðdráttarafl Parísar Af hverju ákvaöst þú að setjast aö þar? „París er auðvitað ekki sama miðstööin og hún var, sérstaklega ekki í málaralistinni en mér finnst hún vera enn miðpunktur Evrópu. Ég sótti um landvistarleyfi í Bandaríkj- unum fyrst eftir að ég kom vestur en hætti svo við þaö eftir að hafa farið nokkrum sinnum þangað vegna starfa minna fyrir Life. París hentar mér vel sem dvalarstaður vegna vinnu minnar.” Umræðurnar snúast brátt um ýmsa rússneska listamenn og hvers vegna París hafi alltaf haft slíkt aö- dráttarafl bæði fyrir og eftir byltingu. Sichov segist ekki hitta mikið landa sína í París, að minnsta kosti ekki vegna þess að þeir séu landar. Okkur verður rætt um kvikmynda- leikstjórann Kontchalovsky. Eg minni á að hann starfar vestantjalds en heldur sovéskum passa. Það er kannski ekki furöa því aö Sichov upp- lýsir mig um að faðir hans sitji í mið- stjórn kommúnistaflokksins og hafi samið sovéska þjóðsönginn. „En hann flúði á sinn hátt, bróðir hans er besti kvikmyndagerðarmaður Sovétríkj- anna og hann vildi ekki lifa í skugga hans.” Dreymir um íslenska listsýningu í Paris Sichov segir mér að frá því hann hafi farið vestur hafi þrír vinir hans dáiö í Gulaginu og hann gagnrýnir suma andófsmenn sem hafi með starfsemi sinni leitt aðra í fangelsi en verið óáreittir sjálfir vegna frægðar erlendis. En hér er ekki rúm fyrir spjall um Sovétríkin. Sichov og Sigurður eru tímabundnir og ég búinn að ná jafn- tefli í skákinni — á óheiðarlegan hátt. „Mig langar til aö halda áfram að taka myndir af listamönnum eins og eru í þessari bók. Eg væri meira en til í að taka Vestur-Berlín fyrir. . . En að lokum vil ég segja þér að ég á þann draum að koma upp sýningu í París á verkum íslenskra lista- manna.” segir Sichov að lokum. Og Sigurður A. bætir við. „Og hann gerir það örugglega.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.