Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1985, Blaðsíða 37
DV. LAUGARDAGUR13. JOLl 1985.
37
Veiöimenn eru sérstakir, þeir geta
sagt veiðisögur sem veiöimenn trúa
en engir aörir. Vegna þess aö í veiði-
túrum gerist svo margt ótrúlega
ótrúlegt, af þeim stóra sem slapp,
laxinum sem tók agniö á hinum ótrú-
lega veiöistaö, baráttunni viðlaxinn,
sem tapaöi orustunni aö lokum og
margt, margt fleira. Já, veiðisögur
geta veriö mergjaðar, meö öllum
beygjum og sveigjum sem tiiheyra
frásögunni.
Otrúlegasta veiöisagan hefur lík-
lega ekki veriö sögö ennþá. Besta
veiðisagan hefur líklega ekki ennþá
verið sögð heldur. En það kemur að
því.
Ein sú ótrúlegasta veiöisaga, sem
undirritaöur hefur heyrt kemur úr
Stóru-Laxá í Hreppum. Veiðimaöur
einn var aö veiöa uppi í Gljúfrum og
gekk heldur treglega. Veiðimaöurinn
er að klífa og leita að laxi um allt og
sér lítiö af fiski. Vinurinn er aö klifa
á einum staö en hrasar og fellur og
:
■***»
„Já, hann er svona stór, nú eins stór og ég sagði óðan, þetta er bara
efni i heila veiðisögu maður." Við Laxó i Kjós.
telur þetta vera sinn bana. En viti
, menn, aðeins neöar er sylla og vin-
urinn lendir á syllunni og er lítið að
i honum nema hann er dálítið sjokker-
aöur. Skyldi nokkurn undra? Veiði-
félagar mannsins eru töluvert neðar
i og sjá ekkert hvaö hefur gerst. Þeg-
ar vinurinn á syllunni er búinn að
j jafna sig eftir sjokkið fer hann aö líta
j í kringum sig og viti menn, rétt fyrir
neðan sylluna sér hann tvo laxa 5—6
punda og rennir á þá, eitthvað varö
hann að gera við tímann á syllunni.
Honum tókst á 15—20 minútum að
landa báöum löxunum og situr á syll-
unni meö laxana sér viö hliö er veiði-
ifélagarnir koma. Eftir smástund
\ tekst aö ná manninum upp og þótti
kraftaverk aö ekki varö stórslys.
Þegar syllugæinn var spurður um
veruna á syllunni sagöi hann: „Þaö
var erfitt að koma laxinum upp á
sylluna en þaötókst”.
Er menn fóru aö athuga þetta
betur og kanna aöstæður, fannst,
Sjóðu, svona stór var þessi lax og svo tók hann. ... Nei, hann tók allt öðruvisi og takan var ókveðin.
DV-myndir G. Bender
þeim þetta ótrúlegt , ótrúleg syllu-
heppni. G. Bender
veiðimenn rœða malin við Þvera i Borgarfirði nylega og kannski hefur
veiðisaga verið f gangi. Hver veit?
VEIÐIVON
GunnarBender
„Ég trúi þessu ekki, var þetta svona stór fiskur?" „Jó, og þetta var fluga sem hann tók, rauð fransis, og
eftir smóstund losnaði úr honum, 18—20 punda fiskur."
FÉKK TVO LAXA
Á SYLLUNNI
Það ervíðafallegt
„Veiðin hefur verið treg og maður hefur fengið lítið af laxi en þetta
hafa verið fallegar veiðiór sem reynt hefur verið í. Ég keypti mór
myndavól um daginn og hef tekið mikið af myndum. i siðasta veiðitúr
fókk óg ekkert og konan varð œf, enginn lax og maður alltaf f dýrustu
veiðiánum. Ég benti henni á að óg hefði tekið fallegar myndir. „Það er
ekki hœgt að borða þær, maður." „Nei, en það er hægt að sýna þær
manneskja."
Jó, það er viða fallegt við veiðiórnar okkar og þó menn fói ekki alltaf lax
er hægt að skoða sig um, þó ekki só nú verra að fó einnl
Læðst að löxum í
Laxá í Kjós en þeir
vildu ekki taka
agnið.
DV-myndir G.
Norðurá í Borgar-
firði hefur alltaf þótt
falleg veiðiá og
gjöful.
Kíkt eftir fiski í
Laxá á Skógarströnd
en við hana er víða
veiðilegt.