Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1986, Qupperneq 1
Kópavogshæli:
,GET EKKERT SAGT’ með
Y m m “ ■ A slysadeild Borgarspítalans Guðmundur Ryjólfssc
sagðí forstöéumaðurinn
„Allir á deildinni voru fluttir á
slysadeild Borgarspítalans,"
sagði Björn Gestsson, forstöðu-
maður Kópavogshælis, í samtali
við DV í morgun. Snemma í
morgun kom eldur upp á deild 8
á hælinu, þar eru 14 fullorðnir
vistmenn.
„Ég get ekkert sagt um málið í
bili,“ sagði forstöðumaðurinn.
Eldsupptök eru ókunn.
Töluverðar skemmdir urðu á
deildinni þar sem cldurinn kom
upp en annað rými er óskemmt.
Alls eru 165 vistmenn á Kópa-
vogshælinu.
ÞG
Á slysadeild Borgarspítalans
fengust þær upplýsingar í morg-
un að vistmönnunum frá Kópa-
vogshæli hefði verið skipt niður
á sjúkrahúsin þrjú í borginni.
Flestir vistmannanna fengu
reykeitrun en ekki er vitað
hversu alvarlega.
„Reykeitrunin er á misjöfnu
stigi hjá sjúklingunum," sagði
Guðmundur Eyjólfsson, læknir á
Borgarspítalanum, er við náðum
sambandi við hann í morgun.
Hann sagði að sumir sjúkling-
anna væru „slakir" en aðrir í
hópnum hressir.
Sjö vistmenn voru lagðir inn á
Borgarspítalann, fjórir á Land-
spítalann og þrír á Landakots-
spítalann. - ÞG
Slökkviliðsmenn náðu að slökkva eldinn fljótt. Samhliða því að slökkva eldinn unnu þeir við björgun-
arstörf. Hér á myndinni sjást þeir að störfum. DV-mynd S.
Kalt var í veðri í morgun. Hér á myndinni sést slökkviliðsmaður
koma með teppi fyrir vistmennina sem bjargað var út úr reyknum.
DV-mynd S.
Einn vistmaður Kópavogshælisins borinn af slysstað.
DV-myndS.
— s/á einnig frétt og mynd á baksíðu
„Það gekk mjög fljótt fyrir sig
að ná vistmönnunum fjórtán út
sem voru inn i álmunni sem eldur-
inn kom upp í. Við sendum þrjá
reykkafara strax inn sem náðu
fólkinu út. Það hefur tekið okkur
7-8 mín. að ná vistmönnunum út,“
sagði Arnþór Ingólfsson, varðstjóri
hjá Slökk viliði Reykjavíkur, sem
var kallað út kl. rúmlega sex í
morgun þegar eldur kom upp í
einni álmu Kópavogshælisins.
„Eldur kom upp í herbergi við
útidyr. Eldtungur komu út um
glugga herbergisins og upp í þak-
skegg hússins. Það gekk greiðlega
að slökkva eldinn en talsvert af
reyk var í gangi álmunnar," sagði
Arnþór. Slökkviliðið fór með fjóra
slökkvibíla á staðinn og sex sjúkra-
bila.
„Það gekk vel að ná fólkinu út,
það var fáklætt. Á náttfötunum.
Við kölluðum strax starfsfólk hæl-
isins út. Vistmennirnir voru fluttir
á slysadeild Borgarspítalans í ör-
yggisskyni vegna hættu á reyk-
eitrun. Tveir til þrír vistmenn fóru
með hverjum sjúkrabíl," sagði
Arnþór.
Slökkviliðsmenn sýiidu mjög
snögg viðbrögð þegar þeir náðu
vistmönnunum út. Björgunarstarf
gekk greiðlega. Þegar DV fór í
prentun í morgun voru fjórir
slökkviliðsmenn á vakt í Kópa-
vogshælinu.
- sos
RITSTJORN :AUGLÝSINC
41.200 EINTÖK PRENTUÐ í DAG.
\R OG AFGREIÐSLA SlMI 27022
jáilst, óháð dagblað
DAGBLAÐIЗVÍSIR
10. TBL.-76. og 1 2. ÁRG. - MÁNUDAGUR 13. JANUAR 1 986.
Eldur kom upp í Kópavogshælinu í morgun:
Reykkafarar björguðu
fjórtán vistmönnum út