Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1986, Qupperneq 2
2
DV. MÁNUDAGUR13. JANÚAR1986.
Væringar meðal starfsf ólks Granda vegna breytinganna:
„Óþolandi fram-
koma stjórnenda
— segir starfsfólkið
Þessar konur voru ómyrkar í máli í garð stjórnenda Granda hf. „Það var komið aftan að okkur með
þessum uppsögnum,“ sögðu þær. Þessar níu ásamt tveimur til viðbótar hafa auglýst eftir starfí í
dagblöðunum. DV-myndPK
„Hér er allt i hnút. Maður veit
ekki neitt. Okkur finnst hafa verið
komiö aftan að okkur. Maður er
• búinn að þjóna þessu fyrirtæki
lengi samviskusamlega og þetta
eru þakkimar. Ég hélt að ég væri
að vinna mig upp en ekki niður,“
sagði Elín Hallgrimsdóttír, starfs-
maður Granda hf. og varaformaður
Verkakvennafélagsins Framsókn-
ar, í samtali við DV.
Megn óánægja er meðal starfs-
fólksins hjá Granda hf. Er ástæðan
framkoma stjórnenda fyrirtækisins
við starfsfólkið vegna yfirvofandi
breytinga, samkvæmt upplýsingum
DV. Eins og kunnugt er hefur 180
manns verið sagt upp störfum eftir
sameiningu Bæjarútgerðar
Reykjavíkur og ísbjarnarins sem
nú heitir Grandi hf. Sagði Brynjólf-
uv Bjamason, framkvæmdastjóri
Granda, i samtali við DV að helm-
ingur þess fólks yrði endurráðinn.
„Við vitum ekki hverjir verða
endurráðnir. Við höfum spurst
fyrir en fengið þau svör að ekki
verði hægt að segja til um það fyrr
en í lok mánaðarins. Þetta óvissu-
ástand er óþolandi," sagði Elín. 1
framhaldi af því hefur Elín ásamt
10 öðrum stallsystrum sínum hjá
Granda auglýst eftir starfi í dag-
blöðunum.
Margar þessara kvenna, sem DV
ræddi við hjá Granda, eru mjög
uggandi um sinn hag, en flestar
starfa þær við eftirlitsstörf hjá
fyrirtækinu. Þær hafa unnið hjá
ísbirninum eða BÚR frá 5 árum og
upp í 26. Ein þeirra. sem unnið
hefur hvað lengst. sagði að kona á
sínum aldri hlypi ekki í hvaða starf
sem væri. Það væri hræðileg til-
hugsun að missa tekjurnar svona
fyrirvaralaust.
„Við fengum uppsagnarbréf 23.
desember vegna hráefnisskorts.
Við það sættum við okkur enda
stóð til að hefja störf aftur um 10.
janúar en svo kom önnur uppsögn
31. desember, algerlega fyrirvara-
laust,“ sagði Elín.
Konurnar sögðu að þessi ó-
ánægja kæmi mjög niður á vinn-
unni og væri varla unnið með hálf-
um afköstum. Væri pökkunarfólk,
sem þó fékk ekki uppsagnarbréf,
unnvörpum að leita sér að vinnu.
Því líkaði ekki að láta flytja sig
úr frystihúsinu á Grandagarði í
Norðurgarð fyrirvaralaust og að
því forspurðu. - KÞ
Þríríslend-
ingaropna
ferðaskríf-
stofuí
Hamborg
„Þetta hefur verið lengi í at-
hugun. Nú er ákveðið að ríða á
vaðið. Við byrjum í Hamborg,
líklega í mars,“ sagði Böðvar
Valgeirsson, forstjóri Ferðaskrif-
stofunnar Atlantik. Hann, ásamt
Skúla Þorvaldssyni, hótelstjóra
Hótel Holts, og Ómari Bened-
iktssyni, framkvæmdastjóra
Landkynningarskrifstofunnar í
Hamborg, ætla að opna ferða-
skrifstofu þar í borg. Omar er að
láta af störfum hjá Landkynning-
arskrifstofunni, sem líklega flyst
til Frankfurt innan tíðar. Þessa
skrifstofu hafa nokkrir íslenskir
aðilar rekið um tíma. Það eru
Flugleiðir, Arnarflug, Ferða-
málaráð og SVG (Samband veit-
inga og gistihúsa).
„Þýskaland er okkar helsta
markaðssvæði. Þjóðverjar skilja
mest eftir af fjármunum hér. Við
viljum stuðla að því að fá fleiri
Þjóðverja hingað til lands,“
sagði Böðvar.
Þá má geta þess til viðbótar að
Arnarflug mun hefja beint flug
til Hamborgarí sumar. . þG
Skemmdarverk
unnináRöst
Skemmdarverk voru unnin á
félagsheimilinu Röst á Helliss-
andi í fyrrinótt. Brutu skemmd-
arvargarnir rúður í kjallara
hússins. Ekki komust þeir inn í
húsið því rimlar eru fyrir öllum
gluggum. Taldi lögreglan í Ólaf-
svík að þarna hefði skemmdar-
fýsnin ráðið ferðinni fremur en
að næturgestirnir hefðu ætlað
að auðgast á heimsókninni í
Röst.
Talsverð ölvun var í Ólafsvík í
fyrrinótt, engin slys eða óhöpp
urðu þó afþeim sökum. - jss.
Hleypa úr dekkjum og
umkríngja félagana
Allmikil harka er hlaupin í deilur
Steindórsmanna og annarra leigubíl-
stjóra í Reykjavík. Þurfti lögreglan
að hafa afskipti af þeim fimm sinnum
um helgina víðs vegar um borgina.
Leigubílstjórarnir gerðu Stein-
dórsmönnum lífið leitt með ýmsum
hætti. Þeir hleyptu úr dekkjum, eltu
þá uppi, umkringdu og króuðu af,
allt til að vama því að Steindórs-
menn kæmust leiðar sinnar með
farþegasína. .
Aukning á skilnaðarmálum í Reykjavík:
„Aukið sjálfstæði
kvenna hefur haft áhríf
á fjölgun skilnaða”
— segir ÓlafurSkúlason dómprófastur
Mikil aukning hefur orðíð á hjóna-
. skilnaðarmálum sem hafa verið af-
greidd við Borgardómaraembættið.
Alls vora 592 skilnaðarmál afgreidd
hjá embættinu 1985 sem er þó nokkur
aukning frá árinu 1984. Þá voru 518
mál afgreidd. Á sama tíma voru
hjónavígslur 171 á móti 206 árið 1984.
„Erfiðleikar í hjónaböndum hafa
verið miklir enda er ansí mikið los í
þjóðfélaginu. Ástæðurnar fyrir
skilnuðum eru margár. Það er
steypubrestur í fleiru en húsum.
Ungt fólk reisir sér oft hurðarás um
öxl og dæmið gengur síðan ekki upp.
Vonleysið er of yfirþyrmandi, sem
kemur niður á sambúð og tilfinning-
um,“ sagði Ólafur Skúlason dómpró-
fastur þegar við spurðum hann um
aukninguna á hjónaskilnuðum.
„Það hefur verið talið að fullt jafn-
rétti á milli kynjanna og aukið sjálf-
stæði kvenna hafi haft áhrif á íjölgun
skilnaðamála. Konur eru nú fúsari
að taka á sig ábyrgð. Þær hafa aflað
sér menntunar og atvinnu. Eru ekki
eins háðar karlmönnum og áður.
Áhugamál og atvinna karla og
kvenna rekast oftar á en áður. Þann-
ig að það kemur niður á heimilum.
Það er ljóst að karlmenn eru ófúsari
til að hlusta á starf konunnar heldur
en konurnar. Það hefur sín áhrif,"
sagði Ólafur.
Ölafur sagði að hjónavígslum hjé
prestum í Reykjavík hefði farið fjölg-
andi. Hann er ekki búinn að fá tölur
yfir hjónavígslur á sl. ári frá prestum
í Reykjavík. „Hjónabönd, vígslan
sem slík, eru virt. Það þykir ekki
eins sjálfsagt og áður að fólk búi
saman í óvígðri sambúð,“ sagði Ólaf-
ur.
- sos
Seint á laugardagskvöld sló í brýnu milli leigubílstjóranna á Hverfisgötu. Var reynt að króa Steindórs-
menn af og var lögregla kölluð til til að skakka leikinn. DV-mynd S
Raufarhöfn skilaði vel í þ jóðarbúið á nýliðnu ári:
Framleiðsluverðinæti
1,2 milljónir á fítúa
— horfir til stórvandræða í haf narmálum
Frá Arnþóri Pálssyni, frétta-
ritara DV á Raufarhöfn:
Framleiðsluverðmæti sjávaraf-
urða á Raufarhöfn varð um 536
milljónir króna á nýliðnu ári, sem
þýðir 1.235 þúsund krónur á hvern
íbúa staðarins. Er þetta trúlega
með því hæsta sem þekkist á
landinu.
Á síðastliðnu ári var framleiðsla
óvenju mikil á Raufarhöfn. Frysti-
húsið Jökull tók við 3.215 tonnum
af fiski. Togarinn Rauðinúpur
fiskaði 2.570 tonn, þar af landaði
hann erlendis 340 tonnum. Frysti-
húsið vann úr tæpum 1.000 tonnum
frá smábátum og Stakfelli, togara
Útgerðarfélags Norður-Þingey-
inga, sem Raufarhöfn á 40 prósent
aðild að. B'ramleiðsluverðmæti
fisks frá frystihúsinu var 115 millj-
ónir króna.
Síldarverksmiðjur ríkisins tóku á
móti 93 þúsund tonnum af loðnu á
árinu. Framleiðsluverðmæti var
um það bil 390 milljónir króna.
Aðrir framleiðendur voru með um
það bil 30 milljónir króna.'
Um höfnina fóru um það bil 140
þúsund tonn á síðastliðnu ári. Það
mætti því halda að ekki stæði á
eðlilegu viðhaldi og endurnýjun en
því miður er það staðreynd að hér
horfir til stórvandræða í hafnar-
málum. Menn hér á staðnum eru
afskaplega óhressir með skilnings-
leysi stjórnvalda á þessum málum,
sem eru svo þýðingarmikil fyrir
athafnalíf hér. Á íjárlögum fyrir
árið 1986 er ekki ein einasta króna
ætluð til hafnarframkvæmda frek-
ar en árið 1985.
PRÓFKJÖR Á SELFOSSI
Frá Regínu Thorarensen, frétta-
ritara DV á Selfossi:
Ákveðið hefur verið að prófkjör
sjálfstæðismanna á Selfossi vegna
bæjarstjórnarkosninga fari fram
laugardaginn 18. janúar frá kl.10-19
í Sjálfstæðishúsinu, Tryggvagötu 8.
Sjö hafa gefið kost á sér. Þeir eru:
Brynleifur H. Steingrímsson sjúkra-
húslæknir, Bryndís Brynjólfsdóttir
kaupmaður, Björn I. Gíslason hár-
skerameistari, Valdimar Þorsteins-
son vélvirki, Haukur Gíslason ljós-
myndari, Haraldur B. Arngrímsson
verslunarmaður og Guðfinna Ólafs-
dóttir, læknafulltrúi og kennari.