Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1986, Page 6
6
DV. MÁNUDAGUR13. JANÚAR1986.
Neytendur Neytendur__________Neytendur__________Neytendur
Brauð ogkökur:
Miklar hækkanir á brauðum framundan
„ Landssamband bakarameistara
hefur hingað til verið milliliður á
milli Verðlagsstofnunar og bakar-
íanna en við treystum okkur ekki
til að standa lengur undir því hlut-
verki því að okkar mati hefur
Verðlagsstofnun komið svívirði-
lega fram,“ sagði Jóhannes Björns-
son, formaður Landssambands
bakarameistara, er neytendasíðan
hafði samband við hann vegna
álagningar vörugjalds á kökur og
væntanlegrar hækkunar á vísi-
tölubrauðum í kjölfar þess.
Jóhannes sagði að landssam-
bandið væri hætt að skipta sér af
þessum málum og í framtíðinni
yrðu það bakaríin sjálf sem kæmu
til með að taka allar ákvarðanir í
þessu efni.
„Ég geri ráð fyrir að vísitölu-
Brauð eru orðin nokkuð stór hluti af heimilisútgjöldunum,
Mynd Kristján Ari
brauðin komi ellegar til með að
hækka verulega eða bakarameist-
arar hætta einfaldlega að baka
þau. Menn fara ekki að framleiða
vöru sem þeir þurfa sjálfir að borga
með, en hægt hefur verið að kaupa
500 gramma brauð á 20 krónur út
úr bakaríi þar sem hráefnið i það
kostar 14 krónur. Það segir sig
sjálft að slík framleiðsla borgar sig
ekki.“
Jóhannes sagðist jafnvel gera ráð
fyrir frekari hækkunum á brauðum
í kjölfarið á álagningu vörugjalds
á kökur. Eru það slæm tíðindi fyrir
heimilin þar sem brauð eru orðin
fastur liður í neysluvenjum fólks
og má því gera ráð fyrir að þessar
hækkanir komi til með að hafa
veruleg áhrif á heimilisbókhaldið.
-S.Konn.
m u Megrunarkúrinn heldur áfram:
Ofgakenndir kúrar
Fyrstskulum við rifia upp listann
yfirþaðsem MÁ BORÐA.
1. Magurt kjöt
2. Kjúklingaogkalkúna
3. Magran fisk
4. Egg
5. Magrar mjólkurafurðir eins
og kotasælu og skyr
6. Að minnsta kosti 8 glös eða 2
lítra af vatni á dag.
Leyfilegt er að drekka kaffi og
te að vild, án mjólkur og rjóma eða
sykurs. Nota má gervisætuefni og
drekka má sykurlausa gosdrykki.
Nota má salt, pipar og annað líkt
krydd.
Hvertermagnið?
Lesendur hafa hringt og spurt
hve mikið magn af magra kjötinu
má borða. Það er ekki tiltekið í
bókinni, sem við höfum vitneskju
okkar úr, að öðru leyti en að tekið
er fram að langbest sé að borða
ekki meira en til að seðja sárasta
hungrið, í það minnsta fyrst í stað.
Aðalatriðið virðist vera að sleppa
algjörlega allri fitu og drekka vat-
nið.
Vatnsdrykkjan býsna erfið
1 fyrstu virðist ekki ýkja erfitt
að drekka 2 lítra af vatni á dag en
það er svo sannarlega enginn
barnaleikur. Við erum búin að
reyna núna í nokkra daga og varla
hægt að segja að það hafi tekist
eins ogskyldi.
En öruggt er að það er nauðsyn-
legt að halda eins konar „bókhald"
yfir vatnsdrykkjuna. Öðruvísi er
ekki hægt að fylgjast með henni.
Við gerum það á þann hátt að
fylla að morgni 1,5 1 gosdrykkjarfl-
ösku og erum svo að smá súpa á
henni allan vinnudaginn. Þegar
heim kemur tekur önnur gosflaska
við. Enn hefur ekki tekist að ljúka
við „vinnuflöskuna", hvað sem
síðar kann að verða.
Öfgakenndir kúrar
í bókinni góðu er getið um heil-
marga öfgakennda kúra sem falla
sumum mjög vel en tekið er fram
að halda verði ákveðnar reglur
þegar farið er í þá kúra. Nauðsyn-
legt er t.d. að taka daglegt vítamín,
til vonar og vara, þótt það sé e.t.v.
ekki, strangt til tekið, nauðsynlegt
í öllum kúrunum.
Sumir hafa verið á öfgakenndum
kúr allt frá tveim vikum upp í tvo
mánuði. Ef viðkomandi finnur að
kúrinn á ekki við hann, finnur fyrir
óvenjumiklum slappleika, skal
óðara hætt á kúrnum. Þá má
dreypa á appelsínusafa og brjóst-
sykursmoli hjálpar einnig í slíku
tilfelli.
Eftir að hafa borðað meiri mat í
einn eða tvo daga má bregða sér á
öfgakennda kúrinn á nýjan leik.
En enginn sem á við heilsuleysi
að stríða ætti að fara á öfgakennd-
an matarkúr.
Algengt er að fólk losi sig við
allt frá 2,5 kg upp í 7,5 kg á viku.
Á þessum kúrum er leyfilegt að
drekka kaffi og te að vild en eins
og áður án mjólkur eða rjóma og
auðvitað án sykurs. En það má
nota gervisætuefnið, salt og pipar
í hófi. Einnig má drekka sykur-
lausa gosdrykki og hitaeininga-
lausa kjötsoðssúpur. Ekki gleyma
vatninu. Tveir lítrar á dag!
Eingöngu súrmjólk
Þetta er einfaldur kúr, einhver
sá allra einfaldasti. Hann samanst-
endur af 6 glösum af súrmjólk á
íslenska útgáfan af Trivial
„Það er rétt að það víxluðust tvö
kort en Kjartan Jóhannsson tók
þessu mjög vel. Það telst til að það
séu 0,6% villur í kortunum sem
þýðir að þau eru 99% rétt sem er
frábær árangur," sagði Guðmund-
ur Guðveigsson hjá Eskifelli sem
er útgáfufyrirtæki nýjasta fjöl-
skylduleiksins, Trivial Pursuit.
Á spjöldunum sem víxluðust var
spurt um hvaða þjóðhöfðingi hefði
verið myrtur árið 1984 og var svar
gefið Kjartan Jóhannsson. Rétt
svar var Indira Gandhi. Á sama
spjaldi var einnig spurt um ís-
lensku söngkonuna í Cardiff -
svarið Ásmundur Sveinsson og
Ríkharður Jónsson, en átti auðvit-
að að vera Ingibjörg Guðjóns-
dóttir. Og loks var spurt hvaða
Hollendingur hefði verið kjörinn
íþróttamaður heims árið 1974 og
var svarið Sigurður Greipsson.
Rétt svar var hins vegar Johann
Cryuff.
„Þótt okkur þyki þetta auðvitað
leiðinlegt megum vel við una þvi
Danir fengu 60 kort með finnskum
svörum og þeir eru yfirleitt álíka
sleipir í finnskunni og við. I sænsku
og bresku útgáfunni eru villurnar
taldar 7-8%,“ sagði Guðmundur.
Það voru þrír íslenskir náms-
menn í Bandaríkjunum sem unnu
dag - eitt glas á þriggja klst. fresti.
Eins og áður má drekka kaffi og
te svart og sykurlaust, eins og áður
hefur verið tekið fram.
Kotasæla og greip
Hóflegir skammtar af kotasælu
og greipávexti sex sinnum á dag.
Eins og áður má drekka svart og
sykurlaust kaffi og te og sykur-
lausu gosdrykkina sem fyrr.
Ef ykkur sýnist svo má skipta um
ávöxt, borða t.d. melónu einn dag-
inn í staðinn fyrir greipið - og svo
greip hinn daginn. Látum þetta
duga í bili.
Meira síðar. «
Danmörk er heimaland rasp-
eplakökunnar og þaðan kemur
tilbúna raspið.
DV-mynd KAE.
Eplaköku-
raspið
beint úr
pakkanum
Við rákumst á í matvöruverslun
tilbúið eplakökurasp. Það er inn-
flutt frá Danmörku en Danmörk
er heimaland rasp-eplakökunnar.
Við prófuðum raspið og úr varð
prýðis eplakaka alveg eins og
„amma bjó til“ og fyrirhöfnin
nánast engin.
Fyrir utan tilbúna raspið notuð-
um við tilbúinn eplagraut og Ioks
þeyttum við þeytikrem.
Til þess að kakan samlagaðist
nægilega vel brugðum við henni í
ca 3 mín. á lágan hita í örbylgjuofn-
inn.
Eplakökuraspið má einnig nota
út á súrmjólk, í bakstur o.fl. en
leiðbeiningar á íslensku fylgja með
raspinu.
Það er dagstimplað og kostar um
54 kr. útúrbúð. A
Pursuit 99% rétt
spurningarnar fyrir íslensku út-
gáfuna undir stjórn Örnólfs
Thorlacius. Fleiri spurningar eru
væntanlegar en næst kemur bar-
naútgáfan sem er með mun léttari
spumingum en Genus I útgáfan
sem út kom fyrir jólin. Barnaút-
gáfan nýtur gífurlegra vinsælda að
sögn Guðmundar.
Þá koma einnig út viðbótar-
spurningar í öllum flokkunum en
þeir eru sex talsins, þannig að af
nógu er að taka.
Spilatíminn í Trivial Pursuit er
mismunandi, getUr verið allt frá
einum og hálfum tíma upp i fimm
tíma törn. En víst er um það að
landsmenn verða mun fróðari eftir
að vera búnir að fara í gegnum
allar sextíu þúsund spurningarnar
í „ofurmannaflokknum" eða Genus
I spurningunum sem út komu fyrir