Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1986, Qupperneq 9
DV. MÁNUDAGUR13. JANÚAR1986.
9
Þrír Bretar, sem gengu á suður-
pólinn, og 21 manns áhöfn skips, sem
brotnaði í suðurskautsísnumog sökk
á leiðinni til þess að sækja þremenn-
ingana, verða sótt í flugvél í dag eða
á morgun.
Þremenningarnir, sem gengu í slóð
Scotts frá því 1912, komu á suður-
pólinn á laugardag. Skipið sem átti
aðstoðar neinna opinberra aðila.
Vísindamenn á Suðurskautslandinu
hafa fremur lagst gegn einkaleið-
öngrum á Suðurskautslandið.
Fyrsti vélstjóri á „Southern Qu-
est“, sem fórst í ísnum, vildi kenna
vísindamönnunum á ísstöðinni um
að stofna hefði þurft skipinu í hættu.
Þeir hefðu brugðið fæti fyrir tilraun-
ir leiðangursmanna til þess að leigja
flugvél til að sækja þremenningana.
„Þeir vildu helst að það yrði einhver
uppákoma úr þessu svo að þeir gætu
bent á okkur sem víti til varnaðar."
sagði hann.
Ekki hefur verið ákveðið enn hvort
leiðangurinn verður látinn greiða
reikninginn fyrir björgunina.
Þeir Roger Mear, Robert Swan og
Gareth Wood komust á suðurpólinn
eftir 71 dags göngu yfir heimskauta-
isinn. Þræddu þeir sömu leið og Scott
kafteinn fór 1912. Eins og Scott höfðu
þeir engan ijarskiptabúnað.
Scott kom á pólinn 17. janúar 1912,
en komst þá að raun um að Roald
Amundsen hafði orðið á undan hon-
um. Scott og félagar hans fjórir fór-
ust allir á leiðinni af pólnum til
McMurdosunds.
að sækja þá Ienti í ís, sem lagði það
saman, en bandarískar þyrlur frá
ísbrjótnum „Pólstjörnunni“ björ-
guðu áhöfninni og fluttu hana og
þremenningana, Mear, Swan og
Wood, til bandarískrar ísstöðvar við
McMurdosund.
Bretarnir þrir voru á eigin vegum
og lögðu mikið upp úr því fyrir ferð-
ina á suðurpólinn að þeir nytu ekki
Sýrlenskur hermaður við Beir-
út, en Al-Assad Sýrlandsforseti
hefur haft milligöngu um þá
friðarsamninga, sem undirrit-
aðir voru í Líbanon fyrir ára-
mót.
GRÆNFRIÐUNGAR
Á LEIÐINNITIL
Gemayel til Sýrlands
Amin Gemayel, forseti Líbanon,
kemur til Damaskus í dag til við-
ræðna við Al-Assad Sýrlandsforseta
sem hefur haft hönd í bagga með
tilraunum til þess að binda enda á
ellefu ára ófrið í Líbanon.
Gemayel, sem ekki tók neinn þátt
í friðarviðræðunum, tókst þessa ferð
á hendur vegna þrýstings frá bæði
kristnum og múhameðskum baráttu-
hópum í Líbanon. Hann segist ætla
að reyna að telja Al-Assad á að lita
á friðarsamningana sem einfaldlega
þrep til viðræðna innlendra aðila i
Líbanon um varanlegan frið.
Kristnir menn, drúsar og shiita-
múslimar, sem undirrituðu friðar-
samningana 28. desember, vilja að
þeir öðlist gildi þegar í stað. - En
harðlinu kristnir menn, sem
Gemayelættin hefur verið fulltrúi
fyrir, setur sig á móti samningunum,
því að þeir fela i sér að kristni minni-
hlutinn eftirláti hinum múhameðska
meirihluta stærri hlut í völdum
landsins.
HEYRÐU
BANK
ÚR LÍK-
KISTU
Ásgeir Eggertsson, DV,
Miinchen:
Starfsmenn saksóknarans í Vurz-
burg hafa nú fengið óvenjulegt verk-
efni að fást við.
Samkvæmt sögusögnum munu
tveir grafarar hafa heyrt bankað í
líkkistu er átti að fara að moka yfir.
Einnig segjast nokkrir jarðarfarar-
gestir hafa heyrt þessi bankhljóð.
Eftir stutt hlé á mokstrinum og
könnun á dánarvottorðinu héldu
grafararnir áfram vinnu sinni.
Annar þeirra tók sér tveggja vikna
veikindafrí því honum var vægast
sagt um og ó eftir þennan atburð.
Hingað til hefur bankið verið út-
skýrt með því að fugl hafi notað
kistuna í líkhúsinu sem dvalarstað
og hafi ekki tekist að forða sér í
tæka tíð.
Sú kenning hefur nú verið afsönn-
uð því enginn fugl fannst í kistunni.
Fróðir menn segja að ekki megi
útiloka að handföng kistunnar hafi
slegist til er moldin lenti á henni.
Konan er lá í kistunni var 93 ára
gömul og hafði legið í þrjá daga á
líkbörunum við hita undir frost-
marki.
Kistunni var lokað þar skömmu
fyrir j arðarförina.
Á ísstöð Bandaríkjamanna við McMurdosund, en þangað gengu Bretarnir þrír af suðurpólnum, á meðan 21 manns áhöfn af „Southern Qu-
est“ var flogið þangað í þyrlum, eftir að skip þeirra fórst í ísnum.
Misklíð út af björg-
un á suðurskautinu
ÚTSALA
Skóverslun Þórðar Péturssonar
Laugavegi 95, sími 13570 og Kirkjustræti 8, sími 14181
Bonner lögð
á sjúkrahús
Jelena Bonner, eiginkona Sak-
harovs, hefur verið lögð inn á
sjúkrahús í Boston til hjartaað-
gerðar. Gengst hún undir upp-
skurðinn í dag.
Hún hefur dvalið hjá börnum
sínum, sem búa í Boston, en leyfi
til þess að fara frá Sovétríkjunum
fékk hún til þess að leita sér
lækninga. Hún á bæði við augn-
sjúkdóm að stríða og æða-
þrengsli.
UtJönd Utlönd UUönd UUönd
SUÐURSKAUTSINS
Ástralíustjórn sendi • í morgun
skeyti til flaggskips grænfriðunga og
lagði eindregið til að skipið sneri við
á leið sinni til Suðurskautslandsins
eftir slysið um helgina, þegar breska
skipið „Southern Quest“ fórst í ísn-
úm.
Skipsmönnum var bent á að þeir
legðu ekki aðeins sjálfa sig i hættu,
heldur og aðra sem freista mundu
þess að reyna að bjarga þeim ef skip-
ið lenti í háska.
Leiðangursstjórinn, Peter Wilkin-
son, sagði að ferðinni yrði haldið
áfram og að „Grænfriðungur", sem
er uppgerður dráttarbátur. stefndi
áfram i Ross-sjó, þar sem „Southern
Quest“ sökk. Skipið hefur tafist um
viku á leiðinni vegna íss.
Grænfriðungar ætla að setja upp
bækistöð á Suðurskautslandinu og
hefja áróður fyrir því að undirskrift-
arriki suðurskautssáttmálans lýsi
svæðið alheimsverndarsvæði.
iwnifif ’iun,