Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1986, Qupperneq 10
10
DV. MÁNUDAGUR13. JANÚAR1986.
Utlönd UUönd Uttönd Uttönd
Sovésk blöð í nýjum búningi
Tvö sovésk dagblöð hafa verið
gagnrýnd af nýju leiðtogunum í
Kreml. Þessi dagblöð höfðu birt
kvartanir yfir því að hin opinbera
fréttaþjónusta gerði mikið að því
að fela sannleikann eða breiða yfii'
hann.
Gorbachev, hinn nýi leiðtogi
kommúnistaflokksins, hefur lagt
áherslu á að almenningur eigi rétt
á að vita hvað er að gerast í um-
heiminum. Gorbachev segir að það
sé óhætt að treysta almenningi
fyrir meiri upplýsingum og opnari
fréttum en áður hefur tíðkast.
Ný stefna
Sem dæmi um þessa nýju stefnu,
sem Gorbachev segist vilja fylgja,
má nefna áramótaræðu Reagans
sem sjónvarpað var í Sovétríkjun-
um. Annað dæmi um opnari af-
stöðu Gorbachevs í fréttamálum er
að nú fær almenningur að fylgjast
með því þegar erlendir fréttamenn
spyrja hann spjörunum úr um við-
kvæm málefni.
Ekkialliránægðir
Þó að Gorbahcev segist vilja
treysta almenningi til þess að þola
opinn fréttaflutning eru ekki allir
sammála um að slíkur fréttaflutn-
ingur tíðkist að neinu verulegu
leyti. Það hefur ævinlega verið
hlutverk sovésku dagblaðanna að
verja kommúnistaflokkinn og
Risaolíuskipin, sem lögðu undir
sig olíuflutningana í heilan áratug,
stefna nú á vit sömu örlaga og
hinar útdauðu risaeðlur fornaldar.
I skipasmíðastöðvum í Taiwan,
Suður-Kóreu og víðar í Asíu er
verið að rífa sum tilkomumestu
tröllin niður í brotajárn til endur-
brennslu í sömu ofnunum sem
skiluðu þeim í heiminn á sinum
tíma. - Það verða til dæmis endalok
frönsku risanna Batillus og Bell-
amya sem voru i eigu Shell í
Frakklandi.
Aðrir liggja deyfðarlegir við fest-
ar í olíuhöfnum hér og þar um
heiminn. hættir ferðalögum og bíða
einungis „hinstu lausnar". - Það
er til dæmis hlutskipti Seawise
Giant sem er stærst allra risaolíu-
skipa.
Ekki áhugi fyrir risaskipum
lengur
Nú er enginn áhugi lengur fyrir
smíði fleiri þessara trölla. Sam-
kvæmt skýrslum olíuráðs Banda-
ríkjanna voru smíðuð alls 126 risa-
olíuskip á árunum 1976 til 1980.
Það er að segja skip sem gátu flutt
240 þúsund smálestir af hráolíu í
einu eða meira. En á árunum 1981
til 1983 voru ekki smíðuð nema sex
og eftir því sem best er vitað eru
engin í pöntun í dag.
Þetta verðfall á risaolíuskipum
hefur gert mikinn skurk hjá al-
þjóðlegum bönkum sem eiga úti-
standandi í þeim allt að 10 millj-
arða dollara og horfur eru á því
að afskrifa þurfi kannski allt að
40% af því. Mörg skipanna liggja
ónotuð og eigendumir eiga í basli
með afborganimar.
Gorbachev segist bera traust til
almennings í Sovétríkjunum.
styrkja stuðning fólks við ríkið og
flokkipn. Þau dagblöð sem urðu
fyrir gagnrýni leiðtoganna í Kreml
voru ekki ánægð með fréttaþjón-
ustuna sem tíðkast í Sovétríkjun-
um núna.
Slæmu fréttirnar ekki birtar
Annað dagblaðanna sagði að
stjórnvöld yrðu að hafa hugrekki
Norðursjávarolían og Mexíkó
rothögg á risana
Sömu ástæður Iiggja að baki
þessum örlögum risaolíuskipanna
og valdið hafa verðstríði olíufram-
leiðenda, lokað bensínafgreiðslum
víða í Bandaríkjunum og næstum
splundrað olíusamlaginu OPEC.
Það er sem sé olíuflæðið á heims-
markaðnum, verðfallið sem fylgdi
í kjölfarið og síðan tilfærsla á olíu-
flutningum með því að ný olíu-
svæði hafa verið tekin í notkun.
Upp úr olíukreppu áttunda ára-
tugarins reyndu menn mjög að
draga úr olíubrennslu sinni með
sparnaðarráðstöfunum. Síðan
komust í gagnið nýjar olíulindir í
Norðursjó, við Alaska og í Mexíkó.
Þessar nýju olíulindir juku ekki
aðeins framboðið, þær lágu um leið
betur við orkukaupendum á norð-
urhveli. Það var rothöggið á risaol-
íuskipin sem höfðu verið smíðuð
til flutninga á olíu frá Persaflóa
til olíuhreinsistöðva í Evrópu og
Japan. Risaskipin hentuðu á löngu
leiðunum en síður á stuttu leiðun-
um. Norðursjávar- og Mexíkóflutn-
ingarnir flokkuðust undir styttri
siglingar.
Opnun Súezskurðar skipti
sköpum
Aðalforsendan fyrir rekstri risa-
olíuskipanna hafði verið lokun
Súezskurðar þegar siglingaleiðin
færðist suður fyrir Góðrarvonar-
höfða. Þegar Súezskurður opnaðist
aftur varð hagkvæmara að flytja
hráolíu í minni skipum. Og á seinni
árum hafa aukist mjög flutningar
á fullunnum olíuvörum í stað hrá-
olíu. Það kallaði á minni skip og
snarari i snúningum sem betur
til þess að upplýsa almenning um
óvænta neikvæða atburði sem ger-
ast i Sovétríkjunum. Bæði blöðin
eru sammála því að þetta hugrekki
vanti. Þau telja upp ýmis dæmi þar
sem fréttaflutningi er ábótavant. Á
einum stað segir að traustið sem
talað er um að bera til fólks sé
bara i- orði. Raunveruleikinn sé
allur annar og flestum viðkvæmum
hentuðu sibreytilegum markaði.
Það hefur verið fundin upp sér-
stök mælieining til glöggvunar á
olíuumferðinní á höfunum. Hún er
margfeldi af sjómílunum sem olíu-
skipin sigla með farma sína og
smálestafjöldanum sem þau flytja.
1973, rétt fyrir fyrstu verðhækkun-
ina á olíu hjá OPEC, hrönnuðu
olíuskipin upp 10,2 milljarða smá-
lestamílum. í fyrra voru það rúmir
fimm milljarðar, helmingurinn af
umferðinni 1973.
Sáu milljón tonna skip í fram-
tíðinni
Það er þróun sem fáir sáu fyrir
fréttum haldið leyndum.
Fréttir um slys
Meðal þeirra neikvæðu atburða
sem geta gerst og gerast alls staðar
í heiminum eru slys. En í sovéskum
fréttaflutningi gerast flest slys utan
Sovétríkjanna. Oft berast slysaf-
réttir úr heimalandinu gegnum
erlendar útvarpsstöðvar eða sem
1973 þegar skipasmíðastöðvarnar
voru að kafna í pöntunum nýrra
skipa. Árið eftir kom út metsölubók
Noel Mostert, „Súperskip", lýsing
hans á ferð með breska risaolíu-
skipinu Ardshiel frá Bordeaux fyrir
Góðrarvonarhöfða til Persaflóa
með yfir 200 þúsund smálestir af
hráolíu, sem honum reiknaðist til
að gæti fullnægt ársorkuþörf 40
þúsund manna byggðarlags. Ard-
shiel var fjarri því stærsta olíuskip-
ið. Globtik Tokyo var til dæmis
helmingi stærra eða 476.300 tonn.
Frönsku risarnir Batillus og Bell-
amya, sem teknir voru i notkun
1976, voru hvor um sig 553 þúsund
lestir.
orðrómur. Blaðið Sovietskaya
Russiya talar um hina miklu at-
hygli sem jarðskjálftinn í Mexíkó
og eldgosið í Kólumbíu vöktu í
rússneskum fjölmiðlum. Síðan tal-
ar blaðið um að þegar mannskæður
jarðskjálfti varð Sovétmegin í Asíu
var nærri fullkomin þögn um málið
i sovéskum fjölmiðlum.
Nýrfréttaflutningur
En hvað sem öllu líður er ábyggi-
legt að ný tegund fréttaflutnings
er í uppsiglingu í Sovétrikjunum.
Það er líka nýtt að fjörugar um-
ræður séu um það í blöðunum
hvernig fréttir eigi að vera. Hins
vegar er ekki hægt að búast við
því að stefnt sé að hlutleysi í fjöl-
miðlunum. Til dæmis myndu engin
blöð dirfast að fara gagnrýnum
orðum um gjörðir Sovétmanna i
Afganistan.
Vestrænar skoöanir
Vestrænir menn hafa um þetta
mál fjallað og reynt að skilgreina
breytingarnar í sovéskum dagblöð-
um, útvarpi og sjónvarpi. Þeirra
skoðun er sú að verið sé að reyna
að gera sovéska fjölmiðla trúverð-
ugri til þess að halda stuðningi
fólksins. Þeim þykir heldur ótrú-
legt að á nokkurn hátt verði reynt
að stefna að hlutleysi í fréttaflutn-
ingi. Eins og áður mun stuðningur-
inn við flokkinn vera aðalhlutverk
sovéskra fjölmiðla.
En langstærsta tröllið var Sea-
wise Giant sem byggt var fyrir C.Y.
Tung-skipafélagið 1981. Það er
564.739 lestir. - Þegar Mostert
skrifaði metsölubók sína á miðjum
áttunda áratugnum þóttist hann
sjá fyrir að þessir risar ættu eftir
að hverfa í skuggann af enn stærri
eftirfylgjendum. „Japanir og Bret-
ar hafa um hríð dútlað við teikn-
ingar af milljón tonna olíuskipi og
heyrst hefur talað um 1250.000
tonna tankskip," skrifaði hann.
Úrelt áður en þau fóru af
stokkunum
En honum skjátlaðist. Það er
komið í ljós núna að stóru tröllin,
olíuskip sem voru yfir 400 þúsund
lestir, voru strax orðin úrelt um
leið og þeim var hleypt af stokkun-
um. Þau náðu eiginlega aldrei að
þjóna þeim tilgangi sínum sem
þeim hafði verið ætlaður á meðan.
þau voru á teikniborðinu. Sum
þeirra, eins og Seawise Giant, fóru
aldrei nema örfáar ferðir en siðan
var þeim lagt. - í dag þykir óh'klegt
að nokkuð stærra olíuskip en 250
þúsund lestir verði byggt.
Af olíuskipum, sem eru minni en
225 þúsund lestir, eru 11% ekki í
notkun. Af hinum, sem eru yfir 300
þúsund lestir, eru 60% ekki lengur
í siglingum.
Norsk risaolíuskip eins og Veni og Berge Prinse liggja ónotuð, bundin við festar í Stafangri í Noregi.
- Sum risaoliuskipanna fóru ekki nema nokkrar ferðir.
RISARNIR Á HÖFUN-
UM AÐ DEYJA ÚT