Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1986, Side 11
DV. MÁNUDAGUR13. JANÚAR1986.
Fiskmarkaðurinn
n
FRIÁLST FISKVERD?
OPIÐ:
VIRKADAGA 9-18
LAUGARD. 9-12
Fá skip hafa landað eftir áramótin.
Bv. Viðey landaði í Þýskalandi 3.
janúar. Verðið á ýsu var þokkalegt,
fyrir hana fengust kr. 78 á kíló.
Ufsi kr. 62 kg, blálanga kr. 67, karfi
kr. 60, þorskur kr. 55, lúða kr. 179 kg.
Bv. Krossanes landaði í Hull 3.
janúar. Þrátt fyrir að aflinn væri
aðallega í 3. gæðaflokki fékkst
þokkalegt verð fyrir hann. Stór
þorskur kr. 67, millifiskur kr. 57,
smáfiskur kr. 48, ýsa kr. 56, smáýsa
kr. 45, ufsi kr. 34, karfi kr. 25, stein-
bítur kr. 35, lúða kr. 35. Bv. Þorleifur
Jónsson landaði 6. janúar í Grimsby.
Mikið af aflanum fór í 2. gæðaflokk,
aðeins 20% var í 1. gæðaflokki. Stór
þorskur kr. 93 kg, meðalstór þorskur
kr. 67, smáfiskur kr. 60, meðalverð
var kr. 64,17.
Gámafiskur, sem landað var í Hull
2. janúar, var aðallega í 2. og 3.
gæðaflokki. Meðalverð á ýsu var kr.
45, komst hæst í kr. 57,50.
Einn gámur virtist vera með nokk-
uð betra verð, stór þorskur kr. 58,
smáfiskur kr. 48, ýsa kr. 73, smáýsa
kr. 60, langa kr. 34, smálúða kr. 80.
Nýttfiskverð
Nýtt fiskverð á að taka gildi um
næstu mánaðamót. Ekki verður
auðvelt fremur en áður að ákveða
vérðið. Margir hallast nú að því að
gefa eigi verðið frjálst og taka upp
uppboðsmarkað í staðinn. En því er
nú svo varið hér að flest skipanna
tilheyra fiskvinnslufyrirtækjum og
telja þau sér ekki hagnað að því að
þurfa að sæta hæstbjóðanda. Kaupin
ó kvótafiski hafa ýtt rækilega við
þessu máli sem bendir ótvírætt til
þess að frystihúsin verði undir í
kaúpunum með því verði sem þau
segjast geta greitt.
New York
Þrátt fyrir kuldastrekking var fjör-
ugt á fiskmarkaði Fultons 16. des-
ember og var verðið gott. Framboð
á fiski var sæmilegt, nema hvað
laxakaupmenn kvörtuðu yfir því að
framboð væri ekki nóg til þess að
þeir gætu fullnægt óskum viðskipta-
vina sinna. Surimimarkaður er
nokkuð góður og virðist eftirspurn
eftir honum ekki minnka þrátt fyrir
að dollarinn hafi lækkað og nokkur
hækkun hafi orðið hjá neytendum
afþeim sökum.
Fiskurinn var góður þrátt fyrir að
nokkur hluti hans bæri þess merki
að hann hefði verið fluttur um lang-
an veg. Minna framboð var á frystum
flökum frá Kanada en verið hefur í
haust. Á markaðinn bárust í þriðju
viku desember alls 65 tonn af þorski,
34 tonn af ufsa, 34 tonn af norskum
laxi og 12 tonn af hörpuskelfiski.
Rækjuverð var um kr. 300 kílóið og
virðist hreyfast lítið.
Verð á laxi 2 3kgvar kr. 312
Verðalaxið 6kg kr. 446
Porskurpr. kg kr. 116
Ýsa kr. 111
Lúða kr. 440
Karfi kr. 49
Skötuselur kr. 447
Hörpuskolf., 40/60 stk. íkg., kr. 605
Hörpuskelf., ís!.. 40/60 stk. íkg., kr. 370
Hörpuske!f.,ís!.. 60/80 stk.íkg., kr. 340
Evrópa
Ekki virðist mikil hækkun hafa
orðið síðustu daga fyrir jól ó fisk-
mörkuðum í Þýskalandi, Englandi
og Spáni. Á Billinggate markaðinum
var verðið á þorski kr. 116 og er það
svipað og það hefur verið síðustu
mánuði. Sama er á Spáni, verðið á
þorski er um 110 kr.
Suður-Kyrrahaf
Sovésk paradís segir National Fis-
herman í janúarhefti, en það er
dagsett fram í tímann.
Sovétmenn hafa nú undirritað
fyrsta samning sinn við Kiribatieyju
í Suður-Kyrrahafi. Gildir samningur
þessi í eitt ár og borga þeir 1,5 millj-
ónir doflara fyrir leyfið, í íslenskum
krónum talið 63 milljónir. Eyjarnar
í Suður-Kyrrahafi eru óánægðar
með afstöðu Bandaríkjanna til 200
mílna landhelginnar varðandi veiðar
á styrju.
Alaska
Loðnan við Alaska fær að synda
óáreitt vegna þess að fiskimennirnir
vilja heldur veiða aðrar fisktegundir.
að því að Fishing News International
segir. Vel heppnuð athugun fiski-
fræðinga með tilraunaveiðum, fram-
kvæmd í nóvember 1984 nálægt
Togiak, hefur ekki skilað þeim ár-
angri sem búist var við, Bandarísk-
japanskt sameignarfélag hyggst
sækja um veiðileyfi fvrir árið 1986,
en ætla má að National Marine Fis-
heries Service setji sig á móti leyfis-
veitingu.
Noregur
Nýlega var ákveðið verð á vetrar-
síld, en veiðarnar stóð til að heíja
6. janúar.
1-3 stk. í kg kr. 9,23, 3-5 stk. í kg
kr. 07,02, 5-8 stk. í kg kr. 5,27 og 8
stykki og yfir kr. 3.97. Ef sigla þarf
lengri vegalengd en 100 sjómílur
kemur uppbót, kr. 0,39, ó mílu.
Ingólfur Stefánsson.
Kæra Helgu Kress
íJafnréttisráði:
Niðurstaða í
lok mánaðarins
Jafnréttisráð hefur fjallað um kæru
Helgu Kress dósents vegna stöðu-
veitingar lektors í íslenskum bók-
menntum við Háskóla íslands.
Ákveðið var að afla frekari gagna
um málið. Búist er við að niðurstaða
ráðsins liggi fyrir seinni hluta mán-
aðarins.
Helga telur að sér hafi verið mis-
munað vegna kynferðis. Ljóst er að
Helga fær ekki þessa stöðu, sama
hver niðurstaða Jafnréttisráðs verð-
ur. Hins vegar getur hún hugsanlega
farið í mál við menntamálaráðherra
og krafist skaðabóta. Það mál myndi
þá Jafnréttisráð reka fyrir hana.
Gert er ráð fyrir að deildarfundur
í heimspekideild muni fjalla um þetta
mál. Sá fundur verður hins vegar
ekki haldinn fyrr en eftir 2 til 3 vikur.
Ríkissjóður:
BÝÐURUPP
Á NÝ SPARI-
SKÍRTEINI
Ríkissjóðu .* hefur ákveðið að bjóða
út nýjan flokk verðtryggðra spari-
skírteina. Þessi skírteini bera 7 til 9
prósent vexti umfram verðtryggingu.
Binditími þeirra er breytilegur en
lónstími er 14 eða 5 ór.
Sú nýbreytni er nú tekin upp að
boðið er upp á hefðbundin spariskír-
teini með mismunandi binditíma ó
móti hærri vöxtum. Vextir verða
áfram 7 prósent á hefðbundnum skír-
teinum með binditíma til þriggja
ára. Hins vegar ef binditíminn er 4
ár þá bera þau 8,5 prósent vexti og
ef hann er 6 ár bera þau 9 prósent
vexti.
Vextir á svokölluðum vaxtamiða-
skírteinum með binditíma í 4 ár
lækka nú úr 8,16 prósentum vöxtum
niður í 6,71 prósent vexti. Lánstími
er 14 ár. Þá lækka einnig vextir á
SDR-skírteinum úr 9 prósentum í 8,5
prósent. Binditími þeirra er 5 ár og
lánstími einnig 5 ár. . APH
Frá Þorgerði Malmquist, fréttaritara DV á Neskaupstað:
Hér í Neskaupstað er skíðafólk búið að taka frarri skíðin og hefur verið
ágætisaðsókn að skíðalyftunni sem er hér rétt ofan við bæinn. Hún var
opnuð milli jóla og nýárs enda kominn nægur snjór þá. Skíðadeild Þróttar
hefur endurráðið Ingþór Sveinsson skíðaþjálfara og eru æfingar hafnar af
fullum krafti undir hans stjórn.
HÁRGREIÐSLUSTOFA
VITASTÍG18 A
SÍMI147Ó0
Takið eftir
Barokksófasett + 2
aukastólar og sófaborð.
Verð aðeins 65.000
Já allt þetta fyrir
kr. 62.000staðgreitt
EINNIG NÝ SENDING AF RÓKÓKÓ-SÓFASETTUM
VALHÚSGÖGI Ármúla 4, símar 685375 og 82275. 1
Tréberg hf.
Sími 84730.