Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1986, Page 15
DV. MÁNUDAGUR13. JANÚAR1986.
15
Menning Mennii
Menning Mennii
Bach sjálfur við orgelið.
Orthulf Prunner orgelleikari.
Framhald að loknu hléi
íslenskir organleikarar leika verk Jo-
hanns Sebastians Bach i Dómkirkjunni
3. janúar.
Flytjendur: Kjartan Sigurjónsson, Ólafur
Sigurjónsson, Sighvatur Jónasson,
Reynir Jónasson, Friðrik V. Stefánsson,
Glumur Gylfason, Björn Steinar Sól-
bergsson.
Nokkurt hld varð á því að ís-
lenskir organistar flyttu öll orgel-
verk meistara Bachs á ári hans og
tónlistarinnar í Evrópu. Hygg ég
að þar hafi menn beðið hins nýja
orgels í Dómkirkjunni. Finnst mér
sú ráðstöfun orka tvímælis. Að
sjálfsögðu er það virðingarvert að
gefa mönnum tækifæri til að fara
höndum um hinn nýja og vandaða
grip. Kynnin af hljóðfærinu kynnu
að kalla á kröfur um betri grip í
heimakirkjum viðkomandi organ-
ista, sé þess þörf. Um leið hlýtur
það að efla með organistanum vit-
und um að gera meiri kröfur til
sjálfs sín. í annan stað kann það
að vera bjarnargreiði að siga á svo
mikinn grip sem dómkirkjuorgelið
mönnum sem þangað eiga tak-
markað erindi. Það vafðist fyrir
sumum organistanna þetta kvöldið
að registrera. Víst veldur það
hverjum manni óþægindum að fá
út úr hljóðfærinu annað hljóð e.i
til er ætlast og vill þá slakna á
einbeitingu svo að menn ná ekki
að skila sínu besta. Þar að auki
hljómar margt af því sem þetta
kvöldið var spilað ljómandi vel úr
minni orgelum og það vekur upp
þá spurningu hvort ekki hefði verið
rétt að dreifa tónleikaröðinni á enn
fleiri kirkjur - já, og huga þá um
leið að jafnvægi í byggð landsins.
Tónlist
EYJÓLFUR MELSTED
Allmisjafnt
Eins og verða vill þegar margir
eru til kvaddir voru organistarnir
á þessum tónleikum allmisjafnir.
Síst skyldu menn hneykslast á því.
Tilgangurinn með tónleikaröðinni
var að gefa öllum tækifæri á að
leggja sitt af mörkum, ekki að
verða röð stjörnutónleika. Því ber
einnig að meta það framlagið sem
minna var að vöxtum og ekki af
sömu gæðum og það sem skærast
skein. Hinir fyrstu léku lýtalítið
og hefðu ugglaust skilað betri
árangri ef ekki hefðu komið til
erfiðleikar í glímu við ókunnugt
orgel.
Stígandi tll loka
Það varð svo jöfn stígandi i flutn-
ingnum eftir að Reynir Jónasson
lyfti leiknum upp á meðtækilegt
„konsertplan". Á eftir honum kom
sá bráðefnilegi Friðrik Stefánsson
sem lék langa Partítuna i g-moll
yfir Sei gegrusset, Jesu Gutig, af
miklu öryggi og fimi. Svo tók við
sá glúrni spilari, Glúmur Gylfason,
og var skörin heldur tekin að lyft-
ast. Síðasta orðið átti Björn Steinar
Sólbergsson sem er rétt að ljúka
námi erlendis. Hann er reyndar
þegar í þeim flokki organista sem
úthlutað hefur verið heilum tón-
leikum í þessari röð. Það verður
svo sannarlega tilhlökkunarefni að
fá þennan unga organleikara heim
til að taka stöðu í framvarðarsveit
íslenskrar organistastéttar. Þann-
ig verkaði þetta framhald Bach-
tónleikaraðarinnar, eftir nokkurt
hlé, í byrjun ósköp svipað og sumir
fyrri tónleikanna, sem sé eins og
skólatónleikar, en hér varð stíg-
andin með hápunkti sínum í lokin
til að gera þá eftirminnilega.
EM
Mikið afrek
Tónleikar Orthulls Prunner í Dómkirkj-
unni 5. januar.
Efnisskrá: Sex sónötur fyrir orgel eftir
Johann Sebastian Bach.
Tríósónötur Johanns Sebastians
Bach fyrit orgel, sex að tölu, hafa
löngum heillað organista, þá sem á
annað borð hafa einhverjum ár-
angri náð. Eins og Johann Niko-
laus Forkel segir, svo vitnað sé til
þýðingar Árna Kristjánssonar:
„Bach sarndi þær handa syni sínum
Wilhelm Friedman og skyldi hann
æfa þær og búa sig þannig undir
'að verða mikill orgelleikari, sem
hann og síðar varð. Af fegurð
þeirra er aldrei ofsagt. Þær urðu
til eftir að höfundur þeirra var
kominn á efri ár og má telja þær
helsta verk hans sinnar tegundar."
Það er hins vegar afar sjaldgæft
að organistar, þrátt fyrir mikið
dálæti, leggi til atlögu við þær allar
í einu. Ekki er óalgengt að hver
þeirra fyrir sig sé kjarnaverk,
hápunktur efnisskrár og þá sjaldan
tekin fyrir nema ein í einu. Það var
því engin furða að mönnum brygði
Tónlist
EYJÓLFUR MELSTED
þegar út gengu þau boð að Orthulf
Prunner hygðist leika þær allar sex
á einum tónleikum og ekki aðeins
það heldur tvítaka þessa ofurtón-
leikaásamadegi.
Það eitt að Orthulf Prunner
skyldi standast þessa raun og halda
út (undirritaður fór á seinni tón-
leikana) er aðdáunarefni út af fyrir
sig. En hér var reyndar um fleira
að ræða en að halda út.
Vegna frábærs leiks hans veik
aðdáunin á úthaldi og atorku fyrir
hrifningu á góðri og fagurri hend-
ingamótun. Leikurinn var ná-
kvæmur svo að hver hinna þriggja
allsjálfstæðu radda var skýrt að-
greind bæði í útfærslu og skerpt á
í „registrationinni". En allt gekk
það upp í eina órofa heild með sínu
fullkomna innra samræmi og feg-
urð eins og það kemur frá hendi
meistarans.
Það fór ekki hjá, þegar af fréttist,
að manni fyndist tiltæki organist-
ans fremur í ætt við tilraunir til
að setja met. En hér snerist það sem
manni fannst, að minnsta kosti í
aðra röndina mettilraun, upp í
mikið afrek. listrænt afrek af stærri
gerðinni.
EM
B0 JH*
Fjölbreytt námskeid hefjast í janúar fyrir ungar stúlkur, konur á öllum aldri og herra
Hvaða hópur hentar þér???
Nr. 1
Sérfræöingar leiöbeina meö snyrtingu, hárgreiöslu, fataval, hreinlæti, fram-
komu, borösiöi, gestaboö, mannleg samskipti, göngu o.fl. 8 sinnum tvisvar í
viku • Nr.2 I Nr.3 | Nr.4 | Nr.5 | Nr.6
Módelnámskeid
fyrir veröandi sýningar-
fólk.
Dömu og herra.
Fimmtán sinnum tvisvar
sinnum í viku.
Tíu til fimmtán í hóp.
Innritun hefst á mánudag. Upplýsingar daglega frá kl. 2—7 í síma 36141.
Unnur Arngrímsdóttir
f FIMA
Nr.2 Nr.3 Nr.4 Nr.5
Stutt snyrtinámskeiö. Fyrir starfshópa, Fyrir ungar stúlkur Fyrir herra á öllum aldri.
Þrisvar sinnum. saumaklúbba. 14—16 ára. Skólahópa. Sex sinnum
Tvær kl.stundir. Sex sinnum Átta sinnum tvisvar í viku. einusinni íviku.
Handsnyrting. einu sinni í viku. Framkoma — Hreinlæti. Hárgreiösla — Hreinlæti.
Andlitshreinsun. Snyrting. Fatnaður — Snyrting. Fatnaöur.
Dagsnyrting — Framkoma — Borösiöir — Ganga. Snyrting.
Kvöldsnyrting Hárgreiösla. Tíu í hóp. Ræöumennska —
Sex í hóp. Borösiöir. Framkoma.
Átta til tíu í hóp. Tíu til fimmtán í hóp.