Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1986, Qupperneq 16
16
DV. MÁNUDAGUR13. JANÚAR1986.
Spurningin
Hefur þú spilað Trivial
Pursuit?
Sigurjón Ámundason múrari: Ég
hef ekki einu sinni séð það og kann-
ast ekki við að hafa heyrt á það
minnst.
?tessásii
Svavar Magnússon leigubílstjóri:
Nei, ég hef ekki spilað það. Ég kann-
ast bara ekkert við þetta spil.
Sigrún Eiríksdóttir afgreiðslu-
dama: Nei, ég hef ekkert kynnt mér
það en ég kannast vel við það. Samt
þekki ég engan sem hefur spilað það.
Bjarnhéðinn Hallgrímsson deild-
arstjóri: Nei, ég kannast ekki við
þetta spil.
Einar Guðjónsson rafeindavirki:
Nei, það hef ég ekki gert en ég var
að spekúlera í að kaupa það. Það
kom til tals á heimili mínu, dóttir
mín var að tala um þetta spil.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Verkin lýsa
manninum
Guðmundur skrifar:
Það er mikil sorgarsaga hvernig
ráðamönnum þjóðarinnar hefur
tekist að teyma mörg þúsund
húsbyggjendur út í botnlaust
skuldafen. Þar á ég við verð-
tryggðu lánin sem Húsnæðismála-
stofnun hefur veitt til nýbygginga,
önnur eins okurlán þekkjast áreið-
anlega hvergi nokkurs staðar í
heiminum nema hér á landi. Ekki
bætti úr að hlusta á þá féiaga
Jóhannes Nordal og Víglund Þor-
steinsson, þegar rætt var um vexti
og neyð húsbyggjenda. Jóhannes
vill hækka vexti og helst að gefa
þá frjálsa. Víglundur tók í sama
streng og taldi sig vita manna best,
af þeim sem við borðið sátu, hvað
húsbyggjendum kæmi best. Það
væri ekki lækkun vaxta, meiri var
hans útskýring ekki. Það er alveg
stórmerkilegt með Jóhannes Nord-
al, sem stjórnar að miklu leyti
landinu í peningamálum og búinn
að veltast fram og aftur með is-
lenska og erlenda mynt, að hans
skólaganga skuli aldrei hafa skilað
nema bullandi verðbólgu.
Það sem við vitum er að háir
vextir koma sér vel fyrir banka-
kerfið, þeir koma sér vel fyrir líf-
eyrissjóðasvindlið, auðjöfra,
gróðabraskara og sennilega fyrir
Nordal sjálfan í steinmusterinu við
Skúlagötu. Ég mundi nú telja að
Jóhannes væri orðinn fullreyndur
og með fullri yirðingu fyrir mann-
inum, þá sé nú kominn tími til fyrir
hann, samvisku sinnar vegna, að
segja starfinu lausu. Verkin lýsa
manninum. Þessi ríkisstjóm, sem
nú situr, lofaði og taldi sig nokkuð
örugga um að koma verðbólgunni
niður í 15% um áramót, en hún
verður sennilega 35-40% um ára-
mótin. Hún hefur svikið bæði í orði
og verki, hún hefur stutt við bakið
á þeim ríku en skorið litla manninn
við trog. Hún blekkir þá sem ekki
skilja aðgerðir hennar, hinir verða
reiðir, enda eðlilegt, því aldrei
hefur þekkst meiri eymd og eig-
naupptaka. Fólk flýr land, fólk flýr
til kunningja eða ættingja þegar
búið er að sejja allt frá því og það
stendur ráðþrota. Þorsteinn Páls-
son telur húsbyggjendur með
skammtímalán verst setta. Það er
hans dómur en fárra annarra, eða
vill hann heimfæra það? Ég vil
segja að öll verðtryggð lán falli
undir sama hatt, ekki síður lang-
tímalán, og mun ég skýra það ef á
þarf að halda. En hvað um banka-
kerfið? Það segir nei, við afnemum
ekki verðtryggingu, við látum 40%
þjóðarinnar vinna meðan þrælarn-
ir okkar þegja. Og svo er verið að
bjóða húsbyggjendum hjálp. Það
er stofnuð ráðgjafarþjónusta, síðan
varanleg ráðgjafarþjónusta, lán
eru framlengd eða aukin. Allt þetta
gerir ekkert annað en að bæta við
skuldasúpuna og fá frest í snöruna.
Þessir háu herrar, sem fara með
völd, vilja sem sagt ekkert gera sem
að gagni mætti koma. Það getur
aldrei blessast að lán, sem greitt
er af á gjalddögum stórhækki, það
dæmi gengur ekki upp. Þarna er
verið að ræna litla manninn til að
halda bankakerfinu og braskara-
lýðnum gangandi.
Við segjum stopp, hingað og ekki
lengra rneð svindlið. Úr því þessi
ríkisstjóm vill ekkert fyrir okkur
gera þá verður að fara aðrar leiðir,
hvað sem það kostar. Það er nefni-
lega meirihluti þjóðarinnar sem
ræður ef til kastanna kemur, en
ekki nokkrir gullkálfar innan Al-
þingisveggjanna. Þeir geta fyrir-
gert rétti sínum og eru búnir að
gera, Ég vona að þessi ríkisstjórn
reyni samt að sjá að sér og geti
haldið friðinn í landinu, svo ekki
sé meira sagt. Og ég vil beina orð-
um mínum til núverandi ríkis-
stjórnar: Afnemið alla verðtrygg-
ingu strax af öllum verðtryggðum
lánum til húsbyggjenda, og það frá
því lánin voru tekin fyrst. Setjið á
sanngjarna, fasta vexti. Skattaaf-
sláttur yrði einungis svindl og við
yrðum hlunnfarin. Hættið að veita
lán til nýbygginga á núverandi
kjörum, þar sem fyrirfram er vitað
að fæstir geta nokkum tímann
endurgreitt. Reynið fyrst að gera
upp við þá sem hlunnfarnir hafa
verið og em ekki búnir að tapa
eignum sínum, því það er undir
flestum tilfellum ykkar óstjórn að
kenna.
Ónýt
flík
en ekkert
notuð
Kristín Elíasdóttir skrifar:
Fyrír rúmu ári síðan keypti ég
hjá Kápusölunni kápu frá Hlín.
Þetta var dýr og fín kápa sem ég
notaði ekki mikið: fór í henni
nokkrum sinnum í leikhús og þar
með er það talið. En viti menn:
Eftir nokkra mánuði stórsá á
kápunni.
Eg fór um mánaðamótin októb-
er/nóvember og talaði við þá hjá
Hlín út af þessu. Kápan var sett
í rannsókn að Keldum og sagt
var að rannsókn lokinni að fóð-
rið værí slitið og krumpað. En
það eru ósannindi.
Svo ég fer og tala við Neyten-
dasamtökin og eftir það er kápan
send aftur í rannsókn og fæ hana
til baka með þeim upplýsingum
að flfk sem þessa þurfi að með-
höndla á alveg sérstakan hátt.
Ég krefst þess að mér verði bætt
kápan en því er ekki sinnt.
Kápan er mér ónýt og ætla ég
að vara fólk við að lenda ekki í
þvísama og ég.
Jólakort
á flækingi
Sólbjört skrifar:
Ég skrifa þetta bréf í þeirri von
að með því geti gamalt jólakort
komist í réttar hendur. Eg þekki
gamla konu sem fyrir jólin í fyrra ,
fékk jólakort sem hún átti ekki
að fá, heldur „Elsku Lovísa og
Óskar!“. Það er einkum vegna
skemmtilegrar fjölskyldumyndar
sem okkur langar að koma því
til skila. Kortið hefur verið sent
frá Bandaríkjunum og undir-
skriftin er Bagga og Bernie.
Vinnusími minn er 39510.
Þetta heilaga
fullorðna fólk
Ein úr Reykjavík skrifar:
Mig langar að mótmæla harðlega
5270-7684 sem skrifaði í DV föstudag-
inn 3. janúar ’86. Það er alrangt að
æskan hlusti ekki á annað en Duran
Duran og Wham! Það eru margir sem
hlusta á t.d. Tinu Turner, Dire Stra-
its, David Bowie, Bruce Springsteen,
King og fleiri. Endalaust má telja
og það eru heldur ekki einungis
Duran Duran og Wham! sem eiga sök
á því að krakkar eru að skrifa og
biðja um að sýndir verði hljómlistar-
þættir með hinum og þessum hljóm-
sveitum.
Svo langar mig líka til að mótmæla
því að Duran Duran og Wham! ráði
einhverju um það hvernig landinu
verður stjórnað þegar við tökum við;
tónlistin kemur því engan veginn
við. Getur þetta heilaga fullorðna
fólk ekki skilið að við eigum eftir
að þroskast? Ég á bágt með að trúa
því að eitthvert okkar haldi upp á
Duran Duran og Wham! þegar við
verðum orðin 30 til 50 ára. 5270-7684,
hafðu ekki áhyggjur!
Það eru margir unglingar sem hlusta á Dire Straits og alrangt að
æskan hlusti ekki á annað en Duran og Wham! segir ein úr Reykjavík.
Eigingjarn og alvarlega skrítinn
Svava Guðmundsdóttir lyfjafræð-
ingur: Já, ég á það. Ég hef nú ekki
spilað neitt mjög mikið .en það er
mjög skemmtilegt. Það eru margir
alveg æstir í það.
1435-4980 skrifar:
Föstudaginn þann 3. janúar varð
mér á að fletta gegnum DV eins og
endranær. Þá rakst ég á grein eftir
persónu sem kallar sig 5270-7684.
Þessi maður fer með óraunhæfar
röksemdafærslur um að Duran Dur-
an og Wham aðdáendur geti ekki
stjómað landinu, einfaldlega vegna
þess að þeir hlusta á þessar fyrr-
nefndu hljómsveitir.
Það hlýtur hver heilvita maður að
sjá að þessi maður er eitthvað alvar-
lega skrítinn. Hann vill fara að reka
áróður gegn þessum hljómsveitum
einfaldlega vegna þess að honum
finnst þær ekki skemmtilegar. Svona
hugsunarháttur er kallaður eigin-
girni.
En kæri 5270-7684, nú skal ég segja
þér eina góða aðferð. Þessi aðferð
er fólgin í því að í hvert sinn sem
Duran Duran eða Wham heyrist í
útvarpinu, sem skeður mjög sjaldan,
þá getur þú bara einfaldlega skrúfað
niðuríútvarpinu.
í bréfi sínu þann 3. janúar talar
5270-7684 um hina svokölluðu stóru
meistara. Kæri 5270-7684, þú mátt
alveg hlusta á þessa stóru meistara.
Það bannar þér það enginn. En í
staðinn skaltu leyfa okkur hinum að
hafa okkar tónlist í friði.
Svona fólk eins og þessi fyrrnefnda
persóna verður að vera raunsætt og
taka tillit til tónlistarsmekks annars
fólks.
Hann talar um í bréfi sínu að
honum þyki átakanlegt að lesa bréf
eftir krakka sem biðja útvarpsstjóra
um beina útsendingu frá popptón-
leikum. Ef hann er svona viðkvæmur
og getur ekki lesið svona bréf þá
þarf hann ekkert að vera að gera
það.
Þeir lesendur sem lásu greinina
þann 3. janúar hljóta að sjá hvað
5270-7684 er eigingjörn persóna í
raun og veru. Þar að auki heldur
hann því fram að hann sé kominn
til vits og ára en á þessari grein sést
að svo er greinilega ekki. Ég er
enginn sérstakur Duran Duran né
Wham aðdáandi en 5270-7684, leyfðu
krökkunum að hafa sína tónlist í
friði