Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1986, Side 18
18
DV. MÁNUDAGUR13. JANÚAR1986.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Tveirtil
Víkings
Tveir kunnir leikmenn, Elías
Guðmundsson, KR, og Ragnar
Rögnvaldsson, ísafirði, hafa
gengið til liðs við Víking í knatt-
spyrnunni og munu ef að líkum
lætur leika með Hæðargarðslið-
inu næsta sumar. Elías, mjög
leikinn knattspyrnumaður, hefur
leikið með KR undanfarin ár,
áður Akranesi, en meiðsli hafa
talsvert sett strik í reikninginn
hjá honum. Ragnar er „uppal-
inn“ í Víkingi en hefur síðan leik-
ið með Breiðabliki og KA auk
þess sem hann hefur leikið með
Isfirðingum. Ekki þarf að efa að
þessir leikmenn munu styrkja lið
Víkings í 2. deildinni. - hsím
ELIAS GUÐMUNDSSON
Frábær skor
„Þetta er besta skor á móti sem
ég hef tekið þátt i,“ sagði Calvin
Peete eftir að hann sigraði á golf-
móti atvinnumanna í Carlsbad í
Kaliforniu i gær. Lék á 267 högg-
um (68,67,64,68) og var sex högg-
um á undan Mark O’Meara, sem
varð annar á 273 höggum. í þriðja
sæti var einnig Bandaríkjamað-
ur, Phil Blackmar, á 277 höggum.
Síðan komu þrír jafnir á 279 högg-
um, Vestur-Þjóðverjinn kunni,
Bernhard Langer, Danny Ed-
wards og áhugaleikmaðurinn
Scott Verplank. Tom Kite, sem
framan af veitti Peete keppni,
varð í 10. sæti með 283 högg og
næstur honum kom Hale Irwin á
284. Sandy Lyle, Bretlandi, í 13.
sæti á 285 höggum.
- hsim
Daniel Passarella lyftir fagnandi
heimsbikarnum 1978.
Passarella
gaf bónusinn
Fyrirliði argentínska landsliðs-
ins í knattspyrnu, Daniel Passar-
ella, hefur gefið peninga þá sem
hann fékk fyrir þátttöku í liði
Argentínu i forkeppni HM í Mex-
íkó til hjálparstarfs. Lét þá renna
í sjóð sem sendir matarbirgðir til
landa þar sem hungursneyð ríkir.
Upphæðin var 15 þúsund dollarar
eða rúmar 600 þúsund krónur.
Passarella var fyrirliði heims-
meistara Argentínu 1978 og hefur
um langt árabil verið talinn einn
besti miðvörður heims þó lágvax-
inn sé. Hann hefur undanfarin ár
leikið með Fiorentina á Italíu við
góðan orðstír og var einn af lykil-
mönnum argentínska landsliðs-
ins nú, þegar það tryggði sér rétt
í HM. - hsím
VIÐKSÍ
HELD
Liverpool nældi í stigin
sigraði Watford í sjónvarpsleiknum í gær
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni,
fréttamanni DV á Englandi:
Liverpool hlaut stigin þrjú í
leiknum við Watford í l.deildinni
ensku i gær - sigraði 3-2 en leikur-
inn var í Watford og sjónvarpað
beint á Bretlandseyjum. Fjörugur
leikur og fimm mörk.
Watford var mun betra liðið í fyrri
hálfleiknum með sínar löngu send-
ingar og Liverpool var heppið að
vera ekki undir í hálfleik. Kenny
Jackett skoraði fyrir Watford á 19.
mín. með skoti af 20 metra færi.
Watford fékk tækifæri til að auka
muninn, Grobbelaar' varði glæsilega
frá John Barnes og Nigel Callaghan
skaut yfir áður en Paul Walsh skor-
aði fyrir Liverpool á lokamínútu
fyrri hálfleiksins. Skoraði úr þröngu
færi eftir undirbúning Johnston. Ian
Rush fékk tvívegis færi í fyrri hálf-
leiknum sem hann misnotaði.
I þeim síðari beinlínis óð hann í
færum, auk þess sem hann átti lang-
skot á mark Watford, og tókst loks
að skora á 76. mín. Aftur var það
Johnston sem var maðurinn bak við
markið. Walsh skoraði þriðja mark
Liverpool á 78. mín. en mínútu síðar
skoraði Hollendingurinn Jan Loh-
man fyrir Watford. Ekki átti Watford
hins vegar möguleika á að jafna en
Walsh hafði möguleika á að ná
þrennu. Tókst ekki. Liverpool miklu
betra liðið í síðari hálfleik - fékk þá
að leika sinn leik. Caton varði oft
vel frá Rush sem nú hefur skorað 14
mörk á leiktímabilinu, Walsh 16.
Áhorfendur voru 17 þúsund, mesti
áhorfendafjöldi í Watford á leiktíma-
bilinu. Rétt er að geta þess að úrslitin
í leiknum eru ekki færð inn á töfluna
á bls.22.
- hsím
3. deild
Nokkrir leikir voru i 3. deild
karla i handknattleik um helgina.
Af úrslitum má nefna að Þór,
Akureyri, sigraði Selfoss 22-18 og
Hveragerði 27-24. í leik sinum á
Húsavík sigraði Hveragerði hins
vegar V ölsung 27-24.
Paris SG enn með
sex stiga forustu
— eftir leikina á laugardag
Parísar-liðið Sainte Germain Nantes 26 14 8 4 38-19 36
heldur enn sex stiga forustu í 1. Bordcaux 26 14 8 4 38-22 36
deildinni Frakklandi eftir leikina Lens 26 11 8 7 40-30 30
sl. laugardag. Þá hófst knatt- Auxerre 26 li 7 8 31-26 29
spyrnan á ný í Frakklandi eftir Monaco 26 7 14 5 31-29 28
jólaleyfið. Metz 26 9 9 8 36-24 27
Úrslit urðu þessi á laugardag. Nice 26 9 9 8 27-31 27
Toulouse 26 11 4 11 42-37 26
Auxerre-Rennes 1-0 Laval 26 8 10 8 30-31 26
Nice-Nancy 3-1 Le Havre 26 9 7 10 35-34 25
Brest-Paris SG 1-1 Nancy 26 10 4 12 34-38 24
Bastia-Metz 0-0 Rennes 26 8 6 12 25-32 22
Toulouse-Monaco 2-1 Marseilles 25 7 7 11 27-29 21
Lille-Toulon 1-0 Toulon 26 5 11 10 30-35 21
Bordeaux-Strassburg 1-0 Brest 26 7 7 12 30-43 21
Laval-Nantes 0-0 Lille 25 8 5 12 24-37 21
Le Havre-Lens 3-0 Sochaux 25 6 8 11 30-39 20
Bastia 26 5 8 13 22-43 18
Staðan er nú þannig: Strasbourg 26 4 8 14 17^2 16
Paris SG 25 17 8 0 52-18 42 hsím
• „Við ræddum málin og Sigfried Held leit á aðstæður. Um þetta er lítið hægt að segja meira á þessari stundu. Þetta er allt i athugun,“
sagði Ellert B. Schram, formaður Knattspyrnusambands fslands, i samtali við DV í gær.
Eins og kom fram í DV fyrir skömmu var Vestur-Þjóðverjanum Sigfried Held boðið til viðræðna við KSÍ vegna umsóknar hans um að
þjálfa íslenska landsliðið í knattspyrnu. Held þessi var heimsfrægur knattspyrnumaður á sinum tíma og lék fjölda landsleikja með þýska
landsliðinu, meðal annars úrslitaleikinn í heimsmeistarakeppninni 1966 á Wembley gegn Englendingum. Held er einn af mörgum þjálfurum
sem sótt hafa um landsliðsþjálfarastöðuna en umsóknarfrestur rennur út 1. febrúar næstkomandi. Á myndinni hér að ofan er Sigfried Held
lengst til vinstri og stjórnarmennirnir Gylfi Þórðarson, Helgi Þorvaldsson, Sigurður Hannesson, Ellert B. Schram, formaður KSI, og Guðni
Kjartansson. DV-mynd Bjarnleifur-SK
Óþekktur
vann
Lítt þekktur, tvítugur Svíi,
Johann Wallner, sigraði
mjög óvænt í svigi heims-
bikarsins í Berchtesgaden í
V-Þýskalandi í gær. Hann
hefur vakiö litla athygli áður
sem svigmaður en þykir vel
liðtækur í stórsvigi. Síðari
umferðin hjá honum í gær
þótti hreint frábær, náði þá
langbestum tíma og tryggði
sér sigur samanlagt. Hann
fékk tímann 1:43,96 mín. og
var níu hundruðustu úr sek-
úndu á undan Júgóslavan-
um Bojan Krizaj. Júgóslav-
inn var vel fyrstur eftir fyrri
umferðina og fékk saman:
lagðan tíma 1:44,o5 min. í
þriðja sæti var Bandarikja-
maðurinn Daniel McGrath á
1:45,30 mín. Alveg óþekktur
skíðamaður sem þarna vann
sín fyrstu stig í keppninni.
Síðan komu þrír kunnir
kappar, Andreas Wenzel,
Lichtenstein, á 1:45,35, lngc-
mar Stenmark, Svíþjóð,
1:45,50 og Willy Frommelt,
Lichtenstein, 1:45,52 mín.
Marc Girardelli, Luxem-
burg, varð í tíunda sæti.
- hsím
Árnivann
Kínverjann
Guðmundur Adolfsson,
TBR, varð sigurvegari á
badmintonmóti KR á laugar-
dag þegar hann sigraði Árna
Þ. Hallgrímsson, TBR, í úr-
slitum í einliðaleik, 15-10 og
17 14. Hins vegar má þó segja
að Árni Þór, sem aðeins er
17 ára, hafi verið „maður
mótsins“ því i undanúrslit-
um sigraði hann Kínveijann
Wang Jung 15-2 og 15-10. Á
sama móti í fyrra sigraði
Kínverjinn.
í einliðaleik kvenna, úrslit-
um, vann Þórdís Edwald
öruggan sigur á Elisabetu
Þórðardóttur. - hsím
Danskur
meistari
Daninn Gert Bo Jacobsen
varð Evrópumeistari í létt-
vigt í hnefaleikum í Randers
í Danmörku á föstudags-
kvöld, þegar hann sigraði
Vestur-Þjóðveijann Rene
Weller á „tæknilegu rot-
höggi“. Leikurinn var
stöðvaður í 8. lotu vegna
skurðs yfir öðru auga Þjóð-
veijans. Hann var að veija
titil sinn en Daninn var betri
íleiknum. - hsím