Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1986, Page 19
DV. MÁNUDAGUR13. JANÚAR1986.
19
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Dómararnir voru í
aðalhlutverkunum
— í gær þegar Haukar sigruðu KR-inga í úrvalsdeildinni í körf uknattleik
með 88 stigum gegn 79
Það höfðu flestir á tilfinning-
unni, sem lögðu leið sína i
íþróttahús Hagaskólans í gær á
leik KR og Hauka í körfu, að
dómararnir reyndu allt hvað þeir
gætu til þess að vera í aðalhlut-
verkum, dómgæsla þeirra var
nánast. óskiljanleg á köflum, á
þetta sérstaklega við um annan
þeirra, Berg Steingrímsson, sem
virtist stundum ekki vera með á
nótunum í leiknum.
En snúum okkur nánar að leiknum
sjálfum. Haukar lögðu KR-inga að
Sex marka tap FH
Stjarnan vann FH með sex
marka mun í 1. deild íslandsmóts-
ins í kvennahandknattleik.
Stjarnan skoraði 21 mark en FH
15. FH skoraði tvö fyrstu mörkin
en Stjarnan jafnaði, 2-2, og jók
svo jafnt og þétt við forskot sitt
og í leikhléi var staðan 9-6 Stjörn-
unni í vil.
í byrjun siðari hálfleiks tók FH
þær Margréti og Erlu úr umferð
hjá Stjörnunni og raskaði það
töluvert spili þeirra en hafði samt
ekki mikið að segja því Stjarnan
hélt alltaf þriggja til fjögurra
marka forskoti og endaði leikur-
inn 21-15.
Hjá Stjörnunni bar mest á Erlu
og Margréti en einnig átti mark-
vörður liðsins góðan leik. FH-lið-
ið var mjög jafnt í leiknum.
Markahæstar hjá Stjörnunni
voru Erla, sem skoraði 8 mörk(4
víti), Margrét, sem skoraði 5 (2
víti), og Rut sem skoraði 4 mörk
(1 víti).
• Á laugardag léku einnig
Fram og KR og vann Fram með
29 mörkum gegn 24. Staðan í leik-
hléi var 14-9 Fram í vil. Guðríður
Guðjónsdóttir skoraði 9 mörk
fyrir Fram og Sigurbjörg Sigþórs-
dóttir 8.
-ÍMÞ.
velli með 88 stigum gegn 79 eftir að
staðan í leikhléi hafði verið 50-41
Haukum í hag. Það var greinilegt í
byrjun að hvorugt liðið ætlaði að
gefa sitt eftir við að krækja sér í hin
eftirsóttu tvö stig. Það var aðeins
rétt í byrjun leiksins sem KR-ingar
höfðu forystu en eftir það leiddu
Haukar ávallt. Um miðjan fyrri hálf-
leik var staðan 27-19, en skömmu
síðar minnkuðu KR-ingar muninn
niður í fimm stig, 35-30, en eftir það
tóku Haukar góðan kipp og náðu tíu
stiga forskoti. Á þessum tíma hittu
þeir Ólafur og Pálmar sérlega vel.
Þessi munur hélst á liðunum fram
að hálfleik.
I seinni hálfleik komu KR-ingar
mjög ákveðnir til leiks og drógu
talsvert á forskot Haukanna. Til að
mynda um miðjan seinni hálfleik var
forysta Haukanna komin niður í
aðeins tvö stig, 64-62, sérstaklega
fyrir tilstilli Guðna Guðnasonar sem
að nýju er farinn að leika eftir
meiðsli sem háð hafa honum, en
hann skoraði tíu stig í röð. Þess ber
þó að geta að þegar hér var komið
sögu voru bæði liðin komin í þó
Barist um heiður
frekar en stigin
— þegar Njarðvíkingar sigruðu Kef lavík í úrvalsdeildinni
í körf uknattleiknum
nokkur villuvandræði. Talsverð
spenna var nú komin í leikinn og
virtist hún koma dómurum leiksins
í mikinn vanda því eftir það höfðu
þeir engin tök á leiknum. Mistök
þeirra bitnuðu þó jafnt á báðum lið-
um. Við það að vinna upp forskot
Haukanna virtist allur vindur úr
KR-ingum því Haukar sigldu aftur
fram úr og sigruðu nánast örugglega
eins og úrslit leiksins gefa glöggt til
kynna.
Lið Hauka spilaði nokkuð jafnt í
þessum leik, þó Pálmar hafi komið
einna sterkastur út, það sama má
einnig segja um Ólaf Rafnsson.
KR-ingar spiluðu á köflum mjög
vel en þess á milli datt broddurinn
alveg úr leik þeirra, sem kostaði
ósigurinn í leiknum. Páll, Birgir og
Guðni voru bestir í liði KR, sérstak-
lega var einþáttungur Guðna
skemmtilegur um tíma í seinni hálf-
leik.
Getið hefur verið um frammistöðu
dómaranna í leiknum, þeirra Bergs
Steingrímssonar og Kristins Alberts-
sonar. Það hlýtur að vera kominn
tími á Berg í dómarahlutverkinu því
frammistaða hans í deildinni í vetur
hefur verið afar slök, svo ekki sé
meira sagt.
Stigin, Haukar: Pálmar 25, Ólafur
16, Webster 15, Henning 14, ívar 6,
Reynir 6, Kristinn 4, Bogi 2.
Stigin, KR: Póll 22, Birgir 14, Guðni
15, Þorsteinn 8, Garðar 8, Matthías
6, Guðmundur 4, Samúel 2. -JKS
Körfuknattleikur, úrvalsdeild,
UMFN-ÍBK, 77-75 (33-32)
Fjandvinaliðin UMFN og ÍBK
léku í Njarðvíkunum á föstudags-
kvöldið fyrir fullu húsi áhorfenda
sem létu vel í sér heyra, enda
heiður bæjarfélaganna í húfi,
miklu fremur en það sem kallað
er dýrmæt stig á íþróttamáli. Eigi
að siður verður að taka þau með
i dæmið og Njarðvíkingar hefðu
svo sem alveg getað eftirlátið
nágrönnum sínum þau án nokk-
urrar áhættu um að komast í
fjögurra liða úrslitin en fyrir
Keflvíkinga hefði verið gott að fá
stigin og auka þar með möguleik-
ana á áframhaldandi veru í úr-
valsdeildinni. En enginn er ann-
ars bróðir í leik. Njarðvíkingar
sýndu enga miskunn, sigruðu
með 77-75 eftir að staðan í leikhléi
hafðiverið 33-32.
Kannski hefur þessi nauðsynlegi
og skemmtilegi nágrannarígur flækt
taugarnar í leikmönnum beggja liða,
sérstaklega þó ÍBK sem skoraði sín
fyrstu stig eftir heilar fimm mínútur.
Var þar að verki Hreinn Þorkelsson,
þjólfari liðsins. Njarðvíkingarnir
voru ekki eins slappir þennan tíma
þótt handagangur væri mikill í öskj-
unni. Sjö stig voru þeir búnir að
næla sér í, mest fyrir harðfylgi Helga
Rafnssonar. Burst, hugsuðu menn,
en Keflvíkingar voru ekki af baki
dottnir, tóku mikinn fjörkipp og það
var Hreinn sem jafnaði, 12—12, með
þriggja stiga körfu og bætti síðan
tveimur við, 12-14. Mýgrútur mis-
taka fram að hléi skiptist jafnt á liðin
enda var munurinn aðeins eitt stig,
33-32.
Engu var líkara en Keflvíkingar
hefðu fengið sér blund í hléinu því
fyrstu mínúturnar í s.h. voru þeir
eins og svefngenglar - ekkert gekk
upp og UMFN nóði 12 stiga forskoti
á þremur mínútum, 46-34, Isak,
Kristinn, Helgi og Valur voru þar
að verki.
En þá sýndi ÍBK-liðið að því er
ekki alls varnað og töggur eru í
mönnum þegar á móti blæs. Jón Kr.
Gíslason, Guðjón Skúlason og Þor-
steinn Bjarnason, sem skellti sér í
leikinn að nýju, skoruðu grimmt en
drýgstur var þó Sigurður Ingimund-
arson sem hafnaði 67-67, með þriggja
stiga körfu, þegar sex mínútur voru
til loka. Spenningurinn var þá í
algleymingi og allt ætlaði um koll
að keyra þegar Jón Kr. og Guðjón
skoruðu, 68-70, eftir misheppnað
vítaskot Isaks Tómassonar - fjögur
af fimm fóru í súginn. Hins vegar var
það Jóhannes Kristbjörnsson sem
bætti upp fyrri mistök í leiknum með
því að skora sex stig í röð og Valur,
sem einnig hafði verið óhittinn, brást
ekki í lokin þegar mest á reið og
skoraði seinustu körfuna þegar mín-
úta var eftir, 77-73. Jón Kr. Gíslason
minnkaði muninn en tíminn rann út
og sigurinn varheimamanna.
Njarðvíkingarnir sýndu ekki sínar
bestu hliðar í þessum leik - enda
nánast um biðleik að ræða hjá þeim
þar til úrslitakeppnin hefst. ísak
Tómasson var þeirra virkastur ásamt
Helga Rafnssyni en aðrir voru langt
frá sínu besta.
Keflvíkingar voru klaufar að knýja
ekki fram sigur í lokin en liðið er á
uppleið og verður sennilega á réttu
róli hvað ásigkomulag snertir í móks-
lok og þá mega öll liðin vara sig á
þeim. Hreinn Þorkelsson og Sigurð-
ur Ingimundarson voru ásamt Jóni
Kr. Gíslasyni röskastir i liði ÍBK -
og einnig Ólafur Gottskálksson í
vörninni.
Stig UMFN: ísak Tómasson 23,
Valur Ingimundarson 16, Jóhannes
Kristbjörnsson 14, Helgi Rafnsson
10, Kristinn Einarsson 7, Ellert
Magnússon 6, Hreiðar Hreiðarsson
2.
Stig ÍBK: Hreinn Þorkelsson 19,
Sigurður Ingimundarson 16, Guðjón
Skúlason 16, Jón Kr. Gíslason 12,
Þorsteinn Bjarnason 5, Hrannar
Hólm 4, Ólafur Gottskálksson 3.
Dómarar voru Jón Otti Ólafsson
og Jóhann Dagur Björnsson og gerðu
leiknum góð skil. -emm
Valssigur
gegn ÍR
Valsmenn unnu í gærkvöldi
öruggan sigur á ÍR-ingum í leik
liðanna í úrvalsdeild Islands-
mótsins í körfuknattleik. Liðin
!éku i íþróttahúsi Seljaskóla og
lokatölur þær að Valur skoraði
912 stig en ÍR 85. í leikhléi var
staðan þannig að Valur hafði
skorað 43 stig en ÍR 38.
Tómas nokkur Holton var stiga-
hæstur hjá Val, skoraði 26 stig,
en Sturla Örlygsson skoraði 18.
Ragnar Torfason var stigahæstur
hjá ÍR með 24 stig en Björn Leós-
son skoraði 19 stig.
Egill þjálfari TB
í Færeyjum
„Ég vona að ég komist til Fær-
eyja l.febrúar - Ármann hafi þá
tryggt sér sæti í 1. deildinni hér í
handboltanum,“ sagði leikmað-
urinn kunni, Egill Steinþórsson,
Ármanni, þegar DV ræddi við
hann í gær. Egill hefur verið
ráðinn þjálfari TB á Suðurey í
Færeyjum í knattspyrnunni
næsta leiktímabil. Hann mun
einnig leika með liðinu og þá í
einhverri stöðu úti á vellinum.
Mjög Qölhæfur leikmaður sem
leikið hefur nær allar stöður á
vellinum, meðal annars sem
markvörður. Hann hefur verið
einn aðalmarkaskorari liðs Ár-
manns i 2.deild í handboltanum i
vetur. Egill er 27 ára. Færeyska
liðið TB varð í 5. sæti í 1. deildinni
færeysku í fyrrahaust og leik-
menn liðsins hafa hug á því að
standa sig enn betur í sumar.
- hsim
Egill Steinþórsson.
STEFAN EDBERG.
Stefan
Edberg
vann
McEnroe
„Ég held að upphafshögg
mín hafi ekki getað verið
betri og ég vissi að ég varð
að leika mjög vel til að sigra
McEnroe," sagði Stefan
Edberg, 19 ára, eftir að hann
sigraði Bandarikjamanninn
kunna, John McEnroe, á
tennismóti í Atlanta i USA
fyrir helgi. Fyrsti sigur
Svíans, sem varð Ástralíu-
meistari fyrir nokkrum í
vikum, á McEnroe. Tvær
lotur, 6-3 og 7-6. Af öðrum
úrslitum á mótinu má nefna
að Ivan Lendl, Tékkóslóvak-
iu, sigraði Frakkann
Yannick Noah, 6-3, 7-6.
Jimmy Connors, USA, sigr-
aði Andres Gomez, Ekvador,
6-0, 3-6 og 6-1 og Kevin
Curran, USA, vann Anders
Járryd, Svíþjóð, 6-4 og 6-1.
hsím
Man. Utd
fékk
stórpening
— Sharp endurnýjaði
samninginn
Á sama tíma og japanska
ljósmyndafyrirtækið Canon
ákvað að hætta stuðningi
sínum við ensku deildafélög-
in í knattspvrnu í vor end-
urnýjaði japanska hljóm-
tækjafyrirtækið Sharp
samning sinn við Manchest-
er United. Gerði nýjan
þriggja ára samning að verð-
mæti 333 þúsund sterlings-
pund. Það eru rúmar 20
milljónir íslenskar. Nafn
Sharp er á búningum leik-
mannaUnited. - hsim
Breiðablik
aftur í
1. deildina
Breiðablik tryggði sér rétt
til að leika í 1. deild í hand-
knattleik karla á næsta ís-
landsmóti er liðið sigraði Þór
frá Vestmannaeyjum í Digra-
nesi um helgina með 23 mörk-
um gegn 20. Blikar féllu sem
kunnugt er í 2. deild á siðasta
íslandsmóti.
Tveir aðrir leikir voru í 2.
deild um helgina. Haukar,
sem virðast á mikilli sigur-
göngu, sigruðu nú Aftureld-
ingu með 31 marki gegn 29.
Þá töpuðu ÍR-ingar enn einu
sinni, nú fyrir Ármanni, með
23 mörkum gegn 27. Ármenn-
ingar eru með skemmtilegt lið
og stefna ótrauðir á 1. deild-
ina. -SK.