Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1986, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1986, Síða 20
20 DV. MÁNUDAGUR13. JANÚAR1986. Iþróttir • Kristinn Guðmundsson leikur i Svíþjóð næsta sumar. Kristinn til Svíþjóðar ,Það er rétt að ég hef ákveðið að leika í Svíþjóð að minnsta kosti næsta árið,“ sagði knattspyrnu- maðurinn Kristinn Guðmunds- son í samtali við DV í gærkvöldi. Kristinn lék með Fylki síðastliðið sumar og 1. deildar liði Vikings árið þar áður. Kristinn hyggst leika með 4. deildar liðinu GAIK og heldur utan í lok febrúar. Brottför Kristins veikir Fylkislið- ið verulega. Hann er snjall knatt- sjjyrnumaður og skarð hans hjá Arbæjarliðinu verður vandfyllt. -SK. Reynir og Víðir hættir í Haukum Úrvalsdeildarlið Hauka hefur orðið fyrir nokkurri blóðtöku að undanförnu. Tveir leikmenn liðs- ins hafa ákveðið að hætta að leika með því. Þetta eru þeir Viðar Vignisson, sem hættir af persónu- legum ástæðum, og Reynir Kristjánsson en hann sló sem kunnugt er í gegn í Evrópuleik Hauka og Táby Basket í Hafnar- firði fyrr í vetur. Reynir hefur ákveðið að flytjast til Noregs i nám og mun fjarvera þessara tveggja leikmanna að sjálfsögðu veikja Haukaliðið eitthvað en hversu mikið kemur ekki í ljós fyrr en upp verður staðið í vor. -SK. Einar Þ. var f rábær — Spánverjar mjög sterkir um þessar mundir og unnu Rúmena, 21-18 Einar stóð sig frábærlega í markinu, sérstaklega í síðari hálfleik er hann lokaði markinu og varði þijú vítaköst. Þetta var góður sigur hjá okkur og Einar átti mjög mikinn þátt í honum,“ sagði handknattleiksmaðurinn Sigurður Gunnarsson í samtali við DV í gærkvöldi. Um helgina léku Siggi og Einar Þorvarðarson í Tres de Mayo á Spáni gegn San Fost og sigruðu með 27 mörkum gegn 22. Sigurður skoraði 3 mörk í leiknum og átti þokkalegan leik. • Nýafstaðið er á Spáni alþjóð- legt mót Iandsliða í handknattleik og þar komu heimamenn veru- lega á óvart. Þeir sigruðu á mót- inu og i öllum sínum leikjum. Fyrst unnu þeir Frakka með 31-15, þá Rúmena 21-18 og loks Júgóslava með 29-23. Greinilegt að Spánverjar eru í formi um þessr mundir. -SK. Átjándi titill Víkings á síðustu ellefu árur „Við höfum staðið mjög vel saman. Það er höfuðmálið. Við höfum orðið fyrir miklum áföll-' um en það hefur bara þjappað okkur ennþá betur saman. Það var mjög góð samstaða sem gerði út um þetta í lokin,“ sagði Árni Indriðason, þjálfari og leikmaður Víkings, eftir að Víkingar höfðu tryggt sér íslandsmeistaratitilinn í handknattleik í Laugardalshöll í gær með því að sigra KR-inga auðveldlega með tíu marka mun, 34-24. Vikingar hafa náð glæsileg- um árangri á undanförnum árum í handknattleiknum og sigur liðs- ins í gær var átjándi titillinn sem meistaraflokkur karla innbyrðir á síðustu ellefu árum og geri aðrir betur. „Við vorum nokkuð smeykir fyrir leikinn gegn KR. Það voru allir búnir að bóka okkur sigurvegara. í Víkingsliðinu eru margir ungir og efnilegir leikmenn og svona spár Víkingur íslandsmeistari í handknattleik eftir tíu marka sigur gegn KR, 34-24 manna geta haft áhrif á þá þótt þær breyti ekki hugarfari þeirra reynd- ari. Það bar svolítið á þessu í fyrri hálfleik. Ég er yfir mig ánægður með árangurinn," sagði Ámi Indriðason ennfremur, en hann varð í gær Is- landsmeistari í 5. skipti með meist- araflokki Víkings. Ekki þarf að fara mörgum orðum um leik Víkings og KR í gær. Það var aðeins í byrjun sem KR-ingar náðu að velgja_ verðandi meisturum undir uggum. í síðari hálfleik tóku Vikingar öll völd eftir að staðan hafði verið 15-11 þeim í hag i leik- hléi. Guðmundur Guðmundsson, fyr- irliði Víkings, fór svo sannarlega á kostum í gær. Hann skoraði 10 mörk og þar af eitt með stórglæsilegu langskoti sem er nú einu sinni nokk- uð sem hann er ekki þekktastur fyrir. Oft var hrein unun að sjá til Guð- mundar sem með mikilli snerpu sinni og útsjónarsemi spólaði sig lausan úr máttlausum greipum KR-inga og skoraði glæsileg mörk. Guðmundur Albertsson komst einnig vel frá leiknum svo og allt Víkingsliðið sem eins og svo oft áður í vetur lék sem ein órofa heild. Aðall liðsins er skemmtileg blanda af efnilegum leik- mönnum og svo reyndum jöxlum sem aldrei missa einbeitinguna þrátt fyrir að mikið gangi á og enn meira sé í húfi. Hér er sérstaklega átt við þá Árna Indriðason og Pál Björgvinsson sem hafa reynst Víkingum betur en engir i vetur og vonandi að þessir snjöllu leikmenn íhugi ekki að leggja skóna á hilluna. Þessir skemmtilegu leikmenn eiga enn langan veg ófar- inn á handknattleiksvellinum. Það hafa þeir sýnt í vetur svo ekki verður um deilt. Páll Björgvinsson sagði eftir leikinn í gæj þegar hann hafði unnið sinn sjötta íslandsmeistaratitil með Víkingi:,,Ég verð að segja að þessi sigur er einn sá sætasti ef sá fyrsti er undanskilinn. Sér- staklega er gaman að okkur tókst að klekkja á öllum landsliðs- mönnum Vals. Að mínu mati eru Valsmenn með besta mannskap- inn og Stjarnan með efnilegasta • Dóttir Árna Indriðasonar, þjálfara Víkings, var ánægð með lífið og tilveruna í Laugardalshöllinni í gær og tók virkan þátt í fagnaðar- látunum með pabba eins og sjá má á þessari mynd Bjarnleifs. Litlu munaði hjá Stjörnunni Valsmenn hrepptu 2. sætið í 1. deild eftir jafnteflið gegn Stjörnunni, 21-21 Litlu munaði í gær að Stjörn- unni úr Garðabæ tækist að krækja sér í 2. sætið í 1. deild ís- landsmótsins í handknattleik. Liðið lék gegn Val og þurfti að sigra í leiknum. Leiknum lauk hins vegar með jafntefli, 21-21, og Valsmenn hrepptu því 2. sætið að þessu sinni. Svo litlu munaði að brotið var á einum leikmanni Stjörnunnar í dauðafæri einni sekúndu eftir að leiktíminn rann út. Ef Stjörnumenn hefðu skorað úr vítakastinu hefðu þeir lent í 2. sæti en ekki Valur. Leikurinn var mjög jafn nær allan tímann og staðan í leikhléi var jöfn, 11-11, í síðari hálfleik náðu Vals- menn að komast í 17—13 en það dugði þeim ekki til sigurs. Stjörnumenn söxuðu á forskotið jafnt og þétt og náðu að jafna þegar aðeins hálf mínúta var til leiksloka. Rétt áður hafði Ellert Vigfússon, markvörður Vals, varið vítakast. Leikur þessi var nokkuð skemmtilegur á að horfa en engu að síður eyðilögðu mjög slakir dómarar, þeir Þorgeir Pálsson og Guðmundur Kolbeinsson, leikinn að miklu leyti með afar slakri dómgæslu sem bitnaði á báðum liðum. Bjarni slasaðist Valdi í hans stað Bjarni Guðmundsson hand- knattleiksmaður, sem leikur í Vestur-Þýskalandi, meiddist illa í leik með liði sínu um helgina og mun ekki geta leikið með íslenska landsliðinu í handknattleik sem tekur þátt í Baltic Cup mótinu í Danmörku í vikunni. Bjarni slasaðist illa á auga og varð að sauma mörg spor í innan- verða augabrún. Er ljóst að Bjarni mun ekki keppa með ís- lenska landsliðinu í Danmörku og hefur Valsmaðurinn Valdimar Grímsson verið valinn í hans stað. Tobbi Jens með flensu „Ég fer með landsliðinu í fyrra- málið ef ég verð ekki alveg að drepast. Ég er mjög slappur eins og er en vona að þetta lagist,“ sagði Þorbjörn Jensson, þjálfari og leikmaður Vals, í samtali við DV í gær fyrir leik Vals og Stjörn- unnar en hann gat ekkert leikið með félögum sínum í gær vegna flensu sem herjar á hann þessa dagana. Fjarvera Tobba kom ekki að sök fyrir Valsmenn í gær en slæmt er það ef fyrirliði landsliðs- ins verður að sitja heima í þessari mikilvægu keppnisferð landsliðs- ins til Danmerkur. Þorbjörn taldi þó líklegra að hann færi með landsliðinu til Danmerkur en það hélt utan í morgun. -SK íslenska landsliðið hélt til Dan- merkur í morgun og leikur fyrsta leikinn á Baltic Cup annað kvöld gegn A-liði Dana. Á miðvikudag verður leikið gegn Austur-Þjóð- verjum og gegn Sovétmönnum á fimmtudag. A föstudag verður leikið gegn Pólverjum og siðasti leikurinn verður á laugardag gegn B-liði Dana. Ékki er enn ljóst hvernig íslenska liðið verður skipað í leikjum þessum. Spánska handknattleikssambandið hefur ekki enn greint frá því hvort það sé tilbúið til að fresta deildarleik hjá þeim Einari Þorvarðarsyni og Sigurði Gunnarssyni og ekki er talið víst að þeir Átli Hilmarsson og Páll Ólafsson geti leikið þijá fyrstu leikina en hins vegar mun Kristján Arason leika alla leikina. -SK. Mörk Vals: Valdimar 6/1, Júlíus 4/2, Jón Pétur 4/2, Jakob 3, Geir 2, Þorbjörn G. 1 og Ellert mark- vörður skoraði eitt mark yfir endilangan völlinn. Þorbjörn Jénsson lék ekki með Val vegna veikinda(sjá annars staðar á síð- unni). Mörk Stjörnunnar: Hermundur 8/5, Magnús 3, Hannes 3/2, Skúli 2, Sigurjón 2, Gylfi 2, Einar 1. -SK. Lokastaðan íl.deild Úrslitin i lokaleikjunum í 1. deild karla á Islandsmótinu urðu þessi: Þróttur-Fram 19-32 FH-KA 16-25 KR-Víkingur 24-34 Valur-Stjarnan 21-21 Lokastaðan á þannig: Víkingur Valur Stjarnan KA mótinu varð FH Fram KR Þróttur 14 12 14 10 14 8 14 7 14 7 14 5 14 3 14 0 0 350-271 24 326-281 21 346-290 19 300-283 15 336-335 14 8 334-331 11 9 302-343 8 14 273-433 0 Markahæstu leikmenn: Egill Jóhannesson, Fram, 100 Gylfir Birgisson, Stjarnan, 90 Þorgils Ó. Mathiesen, FH, 90 -hsím

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.