Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1986, Side 32
32
DV. MÁNUDAGUR13. JANÚAR1986.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Sumarstarfsmenn óskast á Slökkvistöðina í Reykja-
vík á komandi sumri. Skilyrði er að viðkomandi
sé á aldrinum 20-28 ára og hafi meirapróf.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást
hjá Tryggva Ólafssyni á'"Slökkvistöðinni í Reykja-
vík, sími 22040. Umsóknareyðublöðum þarf að
skilafyrir 1. mars nk.
LAUSARSTOÐURHJA
Wj reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg vill ráða starfsmann til eftirtalins
starfs. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Læknafulltrúi óskast í 50% starf við Heilsugæslustöð
miðbæjar eftir hádegi.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri heilsu-
gæslustöðva í síma 22400 kl. 9.00-10.00 alla
virka daga.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, fyrir kl. 16.00
mánudaginn 20. janúar 1986.
LAUSAR STÖÐUR UJÁ
REYKJAVÍKURBORG
• Fóstrur, þroskaþjálfar eða fólk með uppeldis-
menntun óskast til að aðstoða og örva sein-
þroska börn á dagvistarheimilum í Reykjavík.
Starfið er unnið í samvinnu við fóstrur á viðkom-
andi dagvistarheimili og í samráði við sálfræði-
og sérkennsludeild Dagvistar barna.
Upplýsingar veitir Garðar Viborg sálfræðingur í
síma 27277.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sér-
stökum umsóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir kl.
16.00 mánudaginn 27. janúar 1986.
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin því, að
gjalddagi söluskatts fyrir desembermánuð er 15.
janúar. Ber þá að skila skattinum til innheimtu-
manna ríkissjóðsásamtsöluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið, 10. janúar 1986.
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að
gjalddagi launaskatts fyrir mánuðina nóvember og
desember er 15. janúar nk.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn-
heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og
afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Patreksfirðingar
og Rauðsendingar
Þorrablót verður haldið föstudaginn 24. janúar
1986.
Þeir sem vilja halda sínum föstu miðum en hafa
ekki sótt þá eða látið vita geta gert það 16. janúar
milli kl. 20 og 22 í Domus Medica eða hringt á
kvöldin í Kristínu, s. 78714, Sigrúnu, s. 666532 eða
Arndísi, s. 51641.
Anna Nordal lést 4. janúar sl. Hún
var fædd í Reykjavík 21. nóvember
1897 og tekin í fóstur af hjónunum
Vilhjálmi Bjarnasyni og Sigríði
Þorláksdóttur. Hún giftist Ingólfí
Þorvaldssyni en hann lést árið 1968.
Þeim hjónum varð þriggja sona
auðið. Útför Önnu verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Sigurþóra St. Þorbjörnsdóttir lést
2. janúar sl. Hún fæddist í Mjósundi,
Villingaholtshreppi 17. október 1908.
Foreldrar hennar voru hjónin Þór-
unn Jónsdóttir og Þorbjörn Sigurðs-
son. Sigurþóra giftist Felix Guð-
mundssyni árið 1934, en hann lést
árið 1950. Þau hjónin eignuðust tvö
börn. Síðar bjó hún í tuttugu ár með
Þorvaldi Ólafssyni. Útför hennar
verður gerð frá Neskirkju í dag kl.
15.
Þórunn Oddný Þórðardóttir and-
aðist í Vífilsstaðaspitala fimmtudag-
inn9. janúar.
Ingileifur Jónsson, fyrrv. bóndi á
Svínavatni, er látinn.
Stefán Stefánsson bóksali, Stór-
holti 12 Reykjavík, er látinn. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látr.a.
Ásgerður Guðmundsdóttir,
Fellsmúla 4 Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Langholtskirkju þriðju-
daginn 14. janúar kl. 13.30.
Hekla Sæmundsdóttir, Grettisgötu
45, verður jarðsungin frá Hallgríms-
kirkjuþriðjudaginn 14. janúarkl. 14.
Grétar St. Melstað, Bjarmastíg 2
Akureyri, sem lést þann 6. janúar,
verður jarðsunginn frá Akureyrar-
kirkju þriðjudaginn 14. janúar kl.
13.30.
Andlát
Fundir
JC Breiðholt
heldur sinn 5. félagsfund í dag,
mánudaginn 13. janúar, kl. 20.15 í
Gerðubergi. Gestur fundarins verður
Sigurður Guðmundsson smitsjúk-
dómalæknir og ræðir hann um
ónæmistæringu (Aids). Allir vel-
komnir.
Kvenfélögin í Breiðholti 1, 2 og
3
halda sameiginlegan skemmtifund í
menningarmiðstöðinni við Gerðu-
berg þriðjudaginn 14. janúar kl.
20.30. Kaffiveitingar.
Málfreyjudeildin Kvistur
heldur fúnd í dag, mánudaginn 13.
janúar, kl. 20.30 á Hótel Esju, 2.
hæð. Gestir velkomnir.
Tilkynningar
Sólarmegin og Bardó, ný fyrir-
tæki
Fyrir skömmu opnuðu tvö ný fyrir-
tæki, sólbaðsstofan Sólarmegin og
hárgreiðslustofan Bardó, í stóru
sameiginlegu og nýinnréttuðu hús-
næði að Ármúla 17a, efri hæð. Eig-
endur Sólarmegin eru þau Svavar
Gunnarsson og Margrét Steingríms-
dóttir en eigandi Bardó er Birna
Sigfúsdóttir. Á sólbaðsstofunni eru
eingöngu MA PROFESSIONAL sól-
bekkir. Öll aðstaða fyrir viðskipta-
vininn er eins og best verður á kosið:
4 sturtuklefar, flísalagðir í hólf og
gólf með hitastýrðum blöndunar-
tækjum, 4 aðskilin snyrtiborð, þrek-
hjól og vigtunaraðstaða í lokuðum
klefa, bvíldar- og kaffistofa. Auk þess
er gert ráð fyrir að nuddari hefji störf
hjá stofunni áður en langt um líður.
Rúsínan í pylsuendanum er svo full-
komið vatnsgufubað, sem viðskipta-
vinir fá full afnot af án aukagjalds.
Bardó er nýtískuleg hárgreiðslustofa
sem skartar ein fárra Climozon-
tölvutæki við permanent og litanir.
Climozon-tækið tryggir hámarksár-
angur og góða meðferð hársins.
Einvörðungu er unnið með viður-
kennd efni frá Kadus, Joico og Wella
sem Bardó hefur einnig söluumboð
fyrir en auk áðurgreindra vöru-
merkja hafa Bardó og Sólarmegin
söluumboð fyrir vörur frá Lumene,
Gallery og Jingles. Auk töfratækis-
ins frá Climozon er boðið upp á alla
hefðbundna þjónustu hjá Bardó
ásamt góðu úrvali snyrtivara, Birna
Sigfúsdóttir, eigandi Bardó, lærði á
hárgreiðslustofunni Sóley og lauk
þaðan námi 1982. Birna fékk meist-
araréttindi í júní 1984.
Myndlist
Sýning á Mokka-kaffi
Helgi Órn Helgason hefur nýlega
opnað sýningu á teikningum og
myndum á Mokka-kaffi við Skóla-
vörðustíg.
Ymislegt
Athafnasemi hjá Félagi frjáls-
hyggjumanna
Félag frjálshyggjumanna hefur gefið
tímaritið „Frelsið“ út frá 1980. Rit-
stjóri þess er dr. Hannes H. Giss-
urarson en í „Frelsið" hafa m.a.
skrifað þeir Matthías Johannessen
skáld, ritstjórarnir EUert B. Schram
og Jónas Kristjánsson, fræðimenn
eins og dr. Þór Whitehead prófessor,
dr. Guðmundur Magnússon prófess-
or, dr. Þráinn Eggertsson prófessor,
Árni Vilhjálmsson prófessor og Jón-
as H. Haralz. Hinir útlendu postular
frjálshyggjunar, Hayek og Fried-
man, hafa líka lagt „Frelsinu" til
efni, einkum þá fyrirlestra sem þeir
hafa flutt hér á landi. Félag frjáls-
hyggjumanna hefur gefið út tvær
bækur upp á eigin spýtur, ritgerða-
söfn eftir Ólaf Björnsson prófessor
og Jónas H. Haralz. Ennfremur hefur
það í samvinnu við Almenna bókafé-
lagið gefið út rit eftir Hayek og Fri-
edman. Formaður félagsins er Auð-
unn Svavar Sigurðsson læknir en af
öðrum stjórnarmönnum má nefna
Árna Sigfússon, Hrein Loftsson og
Friðrik F’riðriksson.
FÉLL SEX
METRA
— slasaðist alvarlega
Garðbæingur einn slasaðist alvar-
lega þegar hann féll rúma 6 metra,
af húsþaki niður á steinstétt.
Maðurinn var að vinnu við ný-
byggingu í Garðabæ, verksmiðjuhús,
seinni partinn í gær. Var hann uppi
á þaki. hússins, sem er rúmlega 6
metrar á hæð, að setja sperrur þegar
honum skrikaði fótur með fyrr-
greindum afleiðingum. -KÞ
Hrasaöií
Helgafelli
Ung stúlka, sem var í gönguferð í
gær með föður sínum í Helgafellinu,
hrasaði í miðri hlíð og féll nokkra
metra. Var þyrla Landhelgisgæsl-
unnar send eftir henni.
Slysið varð sunnan til í Helgafelli
og að sögn lögreglunnar í Hafnar-
firði meiddist stúlkan á fótum og í
baki. -KÞ
Þaö er ekki annað að sjá en Davíð Oddsson borgarstjóri beri sig faglega að þar sem hann
leggur hornstein að hinu nýja Borgarleikhúsi. Framkvæmdir við húsið hófust 1976 og sagði
borgarstjóri i ræðu sinni að hann reiknaði með því að byrjað yrði að leika i húsinu í september
1988. Mikið fjölmenni var við lagningu hornsteinsins sem fór fram á stofndag LR en það var
stofnað 11. janúar 1897.