Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1986, Síða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1986, Síða 37
DV. MÁNUDAGUR13. JANÚAR1986. 37 Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Seð yfir salinn á hádegisverðarfundinum. GeirHallgrímsson utanríkisráðherra flytur erindi um líf og starf Jóns Þorlákssonar á kynningarfundi Stofnunar Jóns Þorlákssonar 19. desember Í985. Á myndinni má einnig sjá Jónas H. Haralz bankastjóra og Ólaf Björnsson prófessor sem báðir sitja í rannsóknarráði stofnunarinnar, Pétur Björnsson, forstjóra Vífilfells, og Sigurð Gísla Pálmason sem eru í framkvæmdaráði stofnunarinnar og Völu Thoroddsen, en dr. Gunnar Thoroddsen samdi inngang að ritsafni Jóns Þorlákssonar. Ur Framsókn í frjálshyggju Hádegisverðarfundur Stofnunar Jóns Þorlákssonar Hádegisverðarfundur Stofnunar Jóns Þorlákssonar var haldinn í desember síðastliðnum og var fjöl- sóttur. Margir tóku til máls og ýmsar sögur sagðar. Nokkurt gaman var til dæmis hent að því að þrír kunnustu málsvarar stofn- unarinnar eru allir af framsóknar- ættum. Þórarinn Þórarinsson, fyrrverandi ritstjóri Tímans, rifj- aði í ræðu sinni upp þegar hann var fréttaritari á bæjarstjórnar- fundum í borgarstjóratíð Jóns að þá hefði eini bæjarfulltrúi fram- sóknarmanna verið Aðalbjörg Sig- urðardóttir, móðir Jónasar Haralz. Og Ólafur Björnsson prófessor sagði að faðir hans hefði verið framsóknarmaður og hefði þeim feðgum þótt þau skrif Jónasar frá Hriflu, sem bárust inn á heimilið, ólíkt auðlæsilegri en rit Jóns Þor- lákssonar um peningamál og fjár-' mál. Ólafur lét þess einnig getið að faðir hans hefði verið einn af ötulustu stuðningsmönnum Hann- esar Pálssonar frá Undirfelli, afa dr. Hannesar Gissurarsonar, í Framsóknarflokknum! Höfðu fundarmenn á orði að leiðin væri ekki eins löng og sumir hefðu hald- ið úr Framsóknarflokknum yfir í frjálshyggju. Kvenleggurinn öruggari Jón Þorláksson forsætisráðherra hefur staðið mörgum fyrir hug- skotssjónum sem heldur jarðbund- inn og jafnvel þröngsýnn fjármála- maður. En á kynningarfundi Stofn- unar Jóns Þorlákssonar nú fyrir jólin, þegar ritsafn Jóns kom út, voru sagðar nokkrar sögur af honum sem sýndu þurrlega kímni hans og orðheppni. Ein sagan var um það þegar Jón átti tal við Magnús Torfason sýslu- mann. Þeir voru báðir komnir af Finni biskupi í Skálholti. Magnús stærði sig af því að hann væri kominn af Finni í beinan karllegg og væri sá ættleggur göfugri. Þá sagði Jón: „En minn öruggari.“ Og batt með því enda á umræðurnar. Þegar bylting lukkast Tvær aðrar sögur voru sagðar af Jóni Þorlákssyni til að sýna orð- heppni hans. Önnur var þegar Jón kom þar að er menn voru að skegg- ræða hvenær byltingar væru rétt- mætar. Jón hlustaði um stund á umræðurnar en skar síðan úr mál- inu með einni setningu: „Bylting er lögleg þegar hún lukkast!" Hin sagan gerðist í Alþingis- húsinu. Þórarinn á Hjaltabakka Jónsson var þá að tala norður í land og lá honum nokkuð hátt rómur. Jón heyrir til hans og víkur sér brosandi að Hirti Snorrasyni og segir: „Ég skil ekkert i honum Þórarni að nota ekki símann þegar hann talar norður.“ Gary Grant og Frank Sinatra eru örugglega með það á hreinu hvað amar að Stefaníu því það er ekki hægt að leyna þessa gömlu fjöl- skylduvini Grimaldiættarinnar hvernig ástandið er raunverulega - segja erlendu blöðin um málið. Þegar Liza Minnelli og Stefania hittust veRtu viðstaddir athygli að prinsessan kramdi veskið sitt milli handanna en leikkonan brosti hughreystandi. Enda þekk- ir Liza betur en margir aðrir angistina sem fylgir því að ánetj- ast vímugjöfum. Á Hard Rock Café er engin hætta á að rekast á fjölskylduna og þá er beislinu sleppt hressilega fram afhnakkanum. Höfðingjarnir hósta líka. Diana bað Kalla pent um vasaklút og bar hann upp að nefinu með elegans. Höfðinglegt hóstakjöltur Skilaði svo klútnum aftur með þúsund þökkum og þá tók hans hátign við að sýna landsmönnum hvernig konungbornir nota vasaklúta af hressleika. Drottningarmóðirin fylgist með hverri hreyfingu af athygli en Elísabet Englandsdrottning er greinilega með meiri starfs- þjálfun en svo að hún láti nokkuð trufla athyglina þegar hún kemur fram á opinberum vettvangi. En þetta er meiriháttar mál að jafn- vel hans konunglegu hátignir skuli þurfa að snússa og hnerra því bannsettir ljósmyndararnir eru alltaf á hveiju strái. Allir hafa áhyggjur af Stefaníu Það á ekki af Mónakófamilíunni að ganga á næstunni. Fyrst var það Karólína sem átti erfitt með að falla nægilega vel inn í prinsessuhlut- verkið, giftist heimsins simplasta glaumgosa og skildi við hann skömmu síðar. Varla var hún komin til vits og ára þegar Grace lést í bílslysi og þá fór litla systir af stað svo um munaði. Hún hefur þrætt helstu skemmtistaði heims af miklum dugnaði, flækst inn í hvert hneyksl- ismálið á fætur öðru og nú segja erlend blöð að eiturlyfjaneysla hafi markað sín spor hjá þessari korn- ungu prinsessu. Náin vinkona henn- ar, Pascal Ougier, er nýlátin úr of stórum heróínskammti og margir aðrir úr vinahópnum eru sagðir í hættu vegna vímugjafaneyslu. Ekki hafa Kanarnir síður áhyggjur af umgengni hennar við svonefnda áhættuhópa í AIDSbombunni, of margir kunningjanna eru samkyn- hneigðir til þess að hræðslubanda- laginu í Hollívúdd geti litist á blik- una. Það er orðið vandlifað í henni veröld - ekki síst fyrir þá ríku og frægu - og Rainier pabbi er að vonum áhyggjufullur. Lætur lítið hafa eftir sér um málið en sagði þó á tískusýn- ingu dótturinnar í Mónakó fyrir skömmu að hann teldi sig bara ágætan fóður - og bætti svo við „en ég er alveg hræðileg móðir!“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.