Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1986, Side 40
FRETTASKOTIÐ
(68) ■ (78) ■ (58)
Ritstjóm, auglýsingar, áskriftog dreifing, sími 27022
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
Hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krénur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
MANUDAGUR 1 3. JANUAR 1 986.
Margeir Pétursson, nýbakaður
stórmeistari.
Margeir
sigraði
Sigur og stórmeistaratitill féllu í
hlut Margeirs Péturssonar á skák-
mótinu í Hastings í Englandi. Mót-
inu lauk þannig seint í gærkvöldi að
Margeir varð einn efstur og hlaut
að launum 1.200 ensk pund, um
73.000 krónur, sem eru sigurverðlaun
í meðallagi.
Þannig varð Margeir fimmti ís-
lenski stórmeistarinn í skák og fær
það staðfest á næsta þingi alþjóða
skáksambandsins, í vor. Samkvæmt
gildandi reglum eru stórmeistarar í
skák á föstum kennaralaunum hjá
ríkinu. Þessar reglur munu að vísu
vera til endurskoðunar nú.
Á Hastings-mótinu varð Margeir,
sem fyrr segir, efstur með 9,5 vinn-
inga af 13 en Sovétmaðurinn Tsisin
varð annar með 9 vinninga. Næstir
komu Balasov og Conquest með 8
vinninga hvor. Þar næstir komu þeir
Jóhann Hjartarson, Draga og Green-
feldmeð7,5vinninga. -HERB
Nappaðirmeð
söfnunarbauka
Þrír piltar á aldrinum 12 til 14 ára
voru nappaðir í Hafnarfirði fyrir
helgina, þar sem þeir voru að drýgja
• tekjur sínar með því að ganga í hús
þar í bæ og safna peningum í söfnun-
arbauka Hjálparstofnunar kirkjunn-
ar.
Þótti fólki, sem þetr bönkuðu upp
á hjá, söfnun þessi eitthvað undarleg
og hafði samband við Iögreglu.
-KÞ
HEIMSKERFI TIL
HEIMANOTA
LOKE
Þetta gerir nú út af
við Gaddafi!
Öryggisvarsla marghert á Kef lavíkurf lugvelli:
VÉLBYSSUR OG
SKOTHELD VESTI
„Mann rak í rogastans að sjá
íslenska lögreglumenn nteð hríð-
skotabyssu og í skotheldu vesti,"
sagði farþegi sem kom til Keflavík-
urflugvallar í gær með Flugleiða-
vél frá Osló.
Víkingasveitarmenn íslensku
lögreglunnar á Keflavíkurflug-
velli, vopnaðir vélbyssum, fylgdust
með komu og brottför farþega í
flugstöðinni i gær. Víkingasveitar-
menn Reykjavíkurlögreglunnar
verða einnig í flugstöðinni í dag.
„Þetta er gert samkvæmt fyrir-
mælum varnarmálaskrifstofu ut-
anríkisráðuneytisins,“ sagði Þor-
geir Þorsteinsson, lögreglustjóri á
Keflavíkurflugvelli.
„Þetta er ótimabundið, hvort
þetta verða nokkrir dagar eða
lengri tími liggur ekki fyrir,“ sagði
Sverrir Haukur Gunnlaugsson,
skrifstofustjóri varnarmálaskrif-
stofunnar.
„Þetta er gert i framhaldi af frétt-
um um margherta öryggisvörslu á
flugvöllum á Norðurlöndum og í
Evi ópu með það í huga að allur sé
varinn bestur.
Það hefur engin aðvörun komið
komið til okkar,“ sagði Sverrir
Haukur. -KMU.
Lögreglumenn i flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli í gær. Þeir eru
vopnaðir vélbyssu, klæddir skotheldu vesti og með talstöð tengda
beint í vinstra eyra. DV-myndGVA.
Slökkviliðsmenn að störfum við Kópavogshælið í morgun. Eldvarnir þar eru ekki nógu góðar að sögn
Eldvarnaeftirlitsins. DV-myndS.
Ekkert við-
vörunarkerfi
á hælinu
Brunavarnir eru ekki í nógu góðu
lagi á Kópavogshæli, samkvæmt
upplýsingum Gunnars Ólafssonar
hjá Eldvarnaeftirlitinu. Er ekkert
viðvörunarkerfi í húsinu sem á þó
að vera á stofnunum eins og Kópa-
vogshæli samkvæmt reglugerð frá
1978-79.
Gunnar sagði þó að handslökkvi-
tæki og útgangar væru nægilega
margir eða eins og fyrrnefnd reglu-
gerð mælir fyrir um. Hann sagði að
öll hús, sem byggð væru eftir 79,
uppfylltu kröfurnar um brunavarnir
en treglega hefði gengið að fá í gegn
breytingar á þeim er fyrir hefðu verið
þannig að þau yrðu samkvæmt regl-
KÞ
„Sprengjumaðurinn” í gæsluvarðhaldi:
SÖKUDÓLGURINN
AÐALVITNIDIMALINU
Tvítugur Reykvíkingur hefur
verið úrskurðaður í gæsluvarðhald
eftir að hafa játað að hafa útbúið
og komið eftirlíkingu af sprengju
fyrir við Oddfellowhúsið í Reykja-
vík á fimmtudagskvöld. Er piltur-
inn annar þeirra tveggja sem til-
kynntu um sprengjuna til lögregl-
unnar.
Pilturinn hefur engar skýringar
gefið á þessu háttalagi sínu, sam-
kvæmt upplýsingum Rannsóknar-
lögreglunnar. Hann var handtek-
inn á föstudagskvöld og eftir yfir-
heyrslur játaði hann verknaðinn.
Hann segist hafa hringt til lög-
reglu og tilkynnt um sprengju við
Tjarnargötu 14 eftir að hafa komið
„sprengjunni" fyrir. Síðan hafi
hann farið við annan mann inn á
miðbæjarstöð lögreglunnar og til-
kynnt um sprengju við Oddfellow-
húsið.
Piltur þessi hefur ekki áður
komið við sögu lögreglunnar. Hinn
pilturinn, sem með honum til-
kynnti um „sprengjuna", á engan
hlut að þessu máli, að sögn Rann-
sóknarlögreglunnar. Piltarnir
þekktust ekki fyrir þennan atburð.
-KÞ.
Pilturinn, sem nú situr í gæsluvarðhaldi, á tali við lögreglumann
„sprengjunóttina“. Hann var aðalvitnið í málinu, enda sá sem til-
kynnti um málið. DV-mynd S