Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Side 4
4
DV. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1986.
Fréttir
Fréttir
Fréttir
Fréttir
Skrapdagur hjá Rúnari Þór Konráðssyni, 6 ára, harðduglegum bátasnikkara á Þórshöfn.
DV-mynd JGH
Skrapar Jóa Jóns
Hann Rúnar Þór Konráðsson er orð-
inn bátasnikkari þótt hann sé ekki hár
í loftinu. Hann er aðeins 6 ára snáði
og býr á Þórshöfii. Þessa dagana eru
skrapdagar hjá honum, hann skrapar
trilluna Jóa Jóns fyrir málningu. „Ég
er nú bara að dytta að fyrir hann
pabba, hann ætlar að mála bátinn,“
sagði Rúnar með kíttisspaðann á lofti
og sló ekki slöku við, enda þarf hann
að halda sig við efiúð, eigi Jói Jóns
að komast á flot. „Nei, pabbi fer ekki
oft út á sjó, hann er vélstjóri í ftysti-
húsinu."
-JGH
Akranes:
Fyrstu
umferðarljósin
Frá Haraldi Bjamasyni, fréttaritara
DV á Akranesi:
Fyrstu umferðarljósin á Akranesi
hafa verið tekin í notkun. Ljósin eru
á mótum Kirkjubrautar/Kalmans-
brautar og Stillholts en þau gatnamót
eru ein umferðarmestu gatnamót bæj-
arins cnda fer cll umferð í og úr
bænum um þau. Þama hafa á undan-
fömum árum orðið margir og harðir
árekstrar en með uppsetningu ljó-
sanna er vonast til að bót verði þar á.
Nýju ljósin em tölvustýrð og ræður
umferðarþungi lengd ljóssins hveiju
sinni en skynjarar, sem nema umferö,
em í um 5 metra fjarlægð irá gatna-
mótunum. Þá er einnig rofi fyrir'
gangandi vegfarendur að ýta á og
hafa þeir því sama rétt og öílamir við
þessi ljós.
Hýju imferðarljósin á Akranesi.
Karpað í
svæðis-
útvarpinu
Þeir sem vilja fræðast um sveit-
arstjómarpólitíkina á höfuðborg-
arsvæðinu og í nágrenni þess geta
lagt við hlustir í svæðisútvarpinu
í kvöld. Þá verður fyrsti af átta
kvöldumræðuþáttum vegna kosn-
inganna 31. maí. í kvöld verður
útvarpað frá fundi í Gerðubergi í
Reykjavík sem ætlaður er ungu
fólki. Sá fundur stendur frá klukk-
an 20.30 til klukkan 22.20 og
útvarpað verður á FM 90,1.
Að sögn Sigurðar Helgasonar,
eins umsjónarmanna svæðisút-
varpsins, verður venjulegur
útsendingartími lengdur um 15
mínútur á dag fyrir pólitíkina í
þeim hreppum á svæðinu þar sem
ekki em listakosningar. Verður
tíminn þá frá 17.03 til 18.15. Síðan
verða fyrmefndir átta kvöldþættir.
Strax annað kvöld verða mnræður
fulltrúa lista á Seltjamamesi og í
Grindavík.
Á miðvikudagskvöld verða lík-
lega fulltrúar lista í Hafharfirði
og Sandgerði. Þar á eftir verða
kvöldþættir 20. og 21. maí og loks
26., 27. og 28. maí. Ætlun umsjón-
armanna svæðisútvarpsins er að
efna tál almennra framboðsfunda
í Keflavík og á Akranesi. Sjón-
varpið heldur aftur á móti fundi
fyrir Reykjavík, Kópavog og
Hafnarfjörð.
HERB
Nýr ntstjori
Suðurlands
Frá Regínu Thorarensen, fréttarit-
ara DV á Selfossi:
Jón Daníelsson liefur verið ráðinn
ritstjóri Suðurlands. Hann vann áð-
ur á Alþýðublaðinu og þar úður ú
NT jiann stutta tírna sem jiað Jifði.
Blaðið Suðurland hefur verið rit>
stjóralaust sl. fjóra mánuði en kom
út hálfsmánaðarlega eins og venju-
!ega. Em miklar vonir bundnar við
Jón Daníelsson sem athafhasaman
og réttlátan ritstjóra sem hefur stór-
an sjóndeildarhring.
1 dag mælir Dagfari IdagmælirDagfari i dag mælir Dagfari
Hálfs metra kosning í Firðinum
Hafnfirðingar eiga fleiri hæfileika-
menn til að stjóma bæjarfélaginu en
gengur og gerist í öðrum sveitarfé-
lögum. Að þessu sinni er boðinn
fram hálfs metra breiður listi við
bæjarstjómarkosningamar. Það er
að segja kjörseðillinn er hálfur metri
á breidd. Á þessum hálfa metra em
nöfii á einum 176 Hafiifirðingum sem
telja sig til forystu fallnir og skiptast
þeir í átta fylkingar. Þessar fylkingar
kenna sig við hitt og þetta, til dæmis
alþýðu, sjálfstæði, frjálsræði, óhæði,
manninn og konur.
Nú viH svo til að samkvæmt lögum
frá 1907 mega rifur á kjörkössum
ekki vera yfir 21 sentímetri, enda sá
þá enginn fyrir hvað mimdi gerast í
Hafnarfirði nær áttatíu árum síðar.
Og það sér hver maður, að kjörseð- .
ill, sem er 50 sentimetrar á breidd,
kemst ekki ofan í tuttugu og eins
sentimetra langa rifu þótt brotinn
sé saman í miðju eins og gert er ráð
fyrir í lögum. Það er að segja, allir
venjulegir menn gera sér grein fyrir
þessu en þetta atriði föttuðu Hafii-
firðingar náttúrlega ekki fyrr en of
seint. Kjörstjómin í Firðinum situr
nú á fundum dag og nótt til að finna
lausn á þessu vandamáli þvi ekki
má vöðla svo dýrmætum seðli saman
hvemig sem er og troða honum nið-
ur í kassann. En það era ýmis fleiri
vandamál á ferðinni þegar svo marg-
ir ákveða að bjóða sig fram. Ef
kosningaþátttaka verður góð í Hafii-
arfirði má búast við að geysilegar
biðraðir myndist við kjörklefana.
Kjósendur þama þurfa nefiiilega
meira en nokkrar vikur til að ákveða
hvað þeir ætla að kjósa og því má
reikna með að margir hafi ekki gert
upp hug sinn á kjördag en mæti
samt. Og þama munu þeir hima í
standandi vandræðum í kjörklefan-
um, naga blýantinn og reyna tvístíg-
andi að taka ákvörðun. Enda ekki
nema von að menn raglist í ríminu
og þarf ekki Hafnfirðinga til. Eða
hvaða munur er til dæmis á fram-
boði þeirra sem telja sig vera óháða
og þeirra sem segjast vera frjálsir.
Geta menn verið óháðir en ekki
frjálsir, eða frjálsir án þess að vera
óháðir? Eflaust er þetta bara hægt i
Hafnarfirði.
Þá litur þetta nú einfaldara út fyr-
ir kosningamar í höfuðborginni. Þar
virðist eingöngu ætla að verða kosn-
ing milli Daviðs og hinna flokkanna.
Hvort einhveijir era með á lista Dav-
íðs og ef svo er hveijir það era man
ekki nokkur sála og enginn lætur sig
það nokkra skipta. Samkvæmt öll-
um skoðanakönnunum virðist Davíð
ekki þurfa að kvíða neinu um úrslit-
in og spumingin aðeins hversu stór
sigurinn verður. Framsókn þurrkast
auðvitað út enda algjör timaskekkja
að sá flokkur eigi fulltrúa í borgar-
stjóm. Bryndís og össur verða
væntanlega þau tvö fyrir utan Davið
sem eitthvað mun bera á á næsta
kjörtímabili.
Eitthvað fleira fólk verður víst að
slæðast með til að fylla upp í töluna
en kosning þess skiptir auðvitað
engu máli. En þetta er sem sagt í
Reykjavík. í Hafiiarfiiði vega menn
hver annan af miklum móði, bræður
beijast og skipst er á ábúðarmiklum
yfirlýsingum í Morgunblaðinu um
prófkjör eða ekki prófkjör og hvort
fleiri sjálfstæðismenn geti boðið
fram en hinir einu sönnu Sjálfstæðis-
menn. Ekki er vafi á að kosningabar-
áttan verður fiókin í Firðinum og
ástæða til að vorkenna aðfluttum
Hafnfirðingum sem munu verða fyr-
ir upphringingum og heimsóknum
frá átta flokkum sem bjóða fram á
hálfs metra breiðum kjörseðli. Það
er hins vegar óþarfi að kenna i bijósti
um þá sem era bomir og bamfæddir
á staðnum því þeir era orðnir svo
„verseraðir" í alls konar vitleysum
og halda bara að þetta eigi að vera
svona.
Ekki er nokkur vegur að spá fyrir
um úrslit þessara kosninga, ekki fyr-
ir Dagfara að minnsta kosti. En
kjörseðlar upp á hálfan metra lífga
upp á kosningamar og þá skipta
málefnin ekki svo miklu.
Dagfari