Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Blaðsíða 44
44 DV. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1986. ATVINNUHÚSNÆÐI til leigu í nýju húsi viö Laugaveg (austan Snorrabraut- ar), 500 m2 að stærð, leigist í einu lagi eða í smærri einingum fyrir verslanir, skrifstofur og fleira. Þeir sem hafa áhuga leggi nöfn sín inn á auglýsingadeild DV, sími 27022, merkt H-1022, ásamt upplýsingum um stærðarþörf. Tilkynning til launa- skattsgreiðenda Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að eindagi launaskatts fyrir mánuðina janúar og febrúar er 15. maí nk. Sé launaskattur greiddur eftir eindaga skal greiða dráttarvexti til viðbótar því sem vangreitt er, talið frá og með gjalddaga. Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn- heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og afhenda um feið launaskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið. MIAUSAR STOÐUR HiA 'V_ REYKJAVÍKURBORG Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum. Viðskiptafræðingur Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar óskar að ráða viðskiptafræðing í fjármála- og rekstrardeild. Hér er um að ræða nýja stöðu sem mun hafa að við- fangsefnum innra eftirlit varðandi fjárhagsaðstoð og umsjón með rekstri stofnana í þágu aldraðra ásamt verkefnum á sviði tölvuvæðingar. Þetta er fjölbreytt starf sem gefur góða reynslu og vinnuaðstaða ergóð. Upplýsingargefuryfirmaðurfjár- mála- og rekstrardeildar í síma 25500. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00 þriöjudaginn 20. maí nk. LAUSAR S1ÖÐUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum. Heilsuverndarstöð Reykjavíkur óskar eftir að ráða eftirtalið starfsfólk: Hjúkrunarfræðinga við heimahjúkrun til sumarafleys- inga, á dag-, kvöld- og næturvaktir. Sjúkraliða við heimahjúkrun til sumarafleysinga, á dag-, kvöld- og næturvaktir. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 22400. Deildarmeinatækni i 100% starf, á rannsóknarstofu Heilsuverndarstöðvarinnar. Uþplýsingar gefur framkvæmdastjóri heilsugæslu- stöðva í síma 22400. Umsóknum ber aö skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum umsóknareyðublööuum sem þar fást, fyrir ki. 16.00 þriðjudaginn 20. maí nk. Sumarfrí fyrir börnin Fyrir 6-10 ára böm. Sumarbúða sæluvlst sækja bömin ungu. Þessu stýrir létt af list Linda hér í Tungu. Margt er hér til gamans gert er gleður hjörtun tmgu og öryggió er opinbert á öllu hér í Tungu. (Emmó) Þessar vísur eiga við sumarbúðirnar í Tungu, Svína- dal, sem er ca 80 km frá Reykjavík og ca 200 km frá Akranesi. Við byrjum 24. maí. Þetta er tilvalið tæki- færi fyrir foreldra sem eru t.d. að fara utan. Og einnig sem sumarfrí fyrir börn. Markmið sumarbúðanna er að veita börnum úr þéttbýli tilbreytingu og tækifæri til að komast í kynni við náttúruna; dvelja um tíma í fögru umhverfi og að auka áhuga fyrir íþróttum. Upp- lýsingar í síma 91-54548 Hafnarfirði, 93-2462 Akranesi og 93-3956 Tungu. Sviósljós Sviðsljós Sviðsljós Opinbert aðdráttarafl Þýskarar eru á ýmsan máta íramar öðrum Vesturlandabúum og hérna er enn ein sönnun þessarar staðhæfingar - opinber stofnun með óvenj- umikið aðdráttarafl. Þarna er viðskiptavinum hjálpað upp þrepin á fremur raunsæjan máta og fyrir ferðaglaða skal upplýst að handriðið sérstæða fyrirfinnst í Schwabisch Hall í Vestur-Þýskalandi. Enn eitt æðið hefur gripið um sig í Bretaveldi og nú eru það Fergie og Andrew sem allt húllumhæið snýst um. Myndir af hinum tilvonandi hjónakornum prýða aila mögulega og ómögulega hluti, könnur, slæður, penna, bréfahnífa og svo mætti lengi telja. Elísabet drottning sendi út óskir um að menn héldu sig við ein- hver mörk í þessu efni og sagði það til dæmis smekkleysu að klæðast bolum með turtildúfurnar fyrrnefndu þrykktar á bringuna. En landarnir láta sér ekki segj- ast. Bolirnir renna út eins og heitar lummur. Tilgáta er einnig uppi um að Beta samþykki það sem henni sjálfri gagn- ast, svo sem bolla og krúsir, en bolirnir fari fyrir brjóstið á henni vegna þess að það er ekkert sem hún sjálf myndi nota. Eða hver hefur séð drottninguna íklædda áprentuðum bómullarbol ? Sjónvarpsþátturinn Spitting image bætti Fergie og Andrew snarlega inn í dag- skrána. Þau eru svona i augum þáttagerð- armannanna. Bretaæði hið nýja f Meira að segja á breskum bringum trónar parið, Betu gömlu til mikils hryllings. Sögulegr stund Allar meiriháttar stjörnur í Hollívúdd hafa skilið eftir sig fótaför og handarfar í steypuna fyrir utan Mann’s Chinese Theatre í Hollí. Síðast var það aldna stjarnan Mickey Rooney sem sextíu og fimm ára gamall varð heiðurins aðnjótandi. Meðfylgj- andi myndir sýna hinn merka atburð sem átti sér stað fyrir nokkrum vikum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.