Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Blaðsíða 14
14 DV. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1986. Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóriog útgáfustjóri: HÖRÐUREINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlASSNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÓSSON Auglýsingastjórar: PALLSTEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLT111, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ ÞVERHOLT111 Prentun: ÁRVAKUR H F. - Áskriftarverð á mánuði450kr. Verð í lausasölu virka daga 45 kr. - Helgarblaö 50 kr. Samningsréttur afnuminn Ríkisstjórnin hefur með endurteknum bráðabirgða- lögum og öðrum lögum í reynd afnumið samningsrétt launþega. Bráðabirgðalögin, sem stöðvuðu farmanna- verkfallið, eru ólög. Þau voru sett allt of snemma, áður en þeirra var í reynd þörf. Hið versta er, að samninga- menn atvinnurekenda í þessari deilu gátu alla tíð gefið sér, að bráðabirgðalögin yrðu sett. Auðvitað höfðu þeir því ekki áhuga á samningum. Þetta þýddi, að samninga- tilraunirnar voru bull. Með biðu bara átekta eftir því, að ríkisstjórnin gripi í taumana. Fólk hefur reynslu af þessu í seinni tíð. Verkfall flug- freyja og verkfall mjólkurfræðinga voru stöðvuð með lögum strax í upphafi. Nú er megináherzlan lögð á, að ekkert megi gera, sem spilli þeim lífskjarasáttmála, sem samið hafi verið um milli Alþýðusambands, Vinnuveit- endasambands og ríkisvaldsins. Þessi ríkisstjórn afnam samningsrétt í upphafi ferils síns. Hún hefur svarið og sárt við lagt að gera það ekki aftur. En nú hefur hún í reynd afnumið þennan rétt. Hlut sjónvarpsins í þessu verður að gagnrýna sér- staklega. í upphafi verkfalls voru fréttir sjónvarpsins af deilunni miðaðar við það að knýja fram bráðabirgða- lög. Sjónvarpsmenn lýstu því þá þegar, að engin önnur lausn væri á deilunni en kvöddu sér til fulltingis Hörð Sigurgestsson, forstjóra Eimskipafélgsins, og ekki aðra. Hörður var auðvitað hrifinn af bráðabirgðalögum í þessu efni. Harma verður, þegar sjónvarpið tekur að sér að berjast í fréttatíma, sem á að vera óhlutdrægur, fyr- ir ákveðinni aðferð í slíkum deilum. Þar fer sjónvarpið illa út fyrir sitt svið. Margt er athugavert við bráðabirgðalögin í þessu tilviki. Bráðabirgðalög á í fyrsta lagi aðeins að setja, þegar þjóðarhagur útheimtir sérstaklega. Sannarlega hafa margar ríkisstjórnir misnotað það vald, sem setning bráðabirgðalaga er. Þar hefur verið farið gerræðislega að og nánast stjórnað með tilskipunum, jafnvel þegar- mjög óvíst hefur verið, að meirihluti Alþingis væri bráðabirgðalögum hlynntur. I annan stað er það rétt skoðun, að verkföll séu þátt- ur í lýðræðiskerfi okkar, ákveðnar leikreglur, sem ekki eru sérlga góðar, en betri leikreglur hafa hvergi fundizt. Þetta lét forsætisráðherra sig hafa að segja um far- mannadeiluna, en vel að merkja eftir að ríkisstjórnin hafði samið þá áætlun, að hluti ráðherranna skyldi stöðva verkfallið, næðust samningar ekki að heita má strax. Þetta var því áróður .forsætisráðherra, ómerk orð, eins og hann bezt vissi. Fljótlega eftir þau ummæli stóð þessi ráðherra sjálfur að því, að verkfallið var stöðvað með lögum. Raunin varð sú í farmannadeilunni, að aldrei reyndi á, hvort frjálsir samningar gætu náðst. Ástæðan var afstaða ríkisstjórnarinnar og yfirvofandi lög. Raunin varð einnig, að fjarri fór, að verkfallið, sem hafði staðið stutt, væri nú þegar farið verulega að spilla fyrir okkur, hvað þá eyðileggja markaði, eins og haldið hefur verið fram. Þjóðarnauðsyn bar ekki til setningar bráðabirgðalaga á þeirri stundu, sem þau voru sett. Afleitt var að afnerna samningsrétt launþega, þótt stjórnarherrarnir séu ánægðir með sinn lífskjarasátt- mála við Alþýðusambandið. Haukur Helgason. „Stefna Alþýðubandalagsins er: Að fólk geti tryggt sér húsnæði með útgjöldum sem samsvara 20% af dagvinnukaupi.“ Þrjár leiðir - til að bæta fyrir misgengi launa og lána Það liggur fyrir og er viðurkennt af öllum nema flármálaráðherra landsins að misgengi varð á launum og lánum 1983 og 1984. Það þýðir á mæltu máli að skuldimar hækkuðu þá meira en launin - eftir að kaup- gjaldsvísitalan var tekin úr sam- bandi. Þessari staðreynd hefur fj ármálaráðherra og formaður Sjálf- stæðisflokksins í raun og veru hafiiað þó að hann hafi neyðst til þess eins og aðrir ráðherrar að fall- ast á nokkur atriði í samningum atvinnurekenda og verkalýðshreyf- ingar þar sem ákveðið var að koma til móts við það fólk sem byggði og keypti á árunum eftir 1980 og varð fyrir misgengi launa og lána. Það var siðlaust að taka vísitölu launa úr sambandi en láta vísitölu hækka lánin á sama tíma. Þessu siðleysi bera alþingi og meirihluti þess alla ábyrgð á og þess vegna verður al- þingi að koma til móts við það fólk sem byggt hefur á þessum tíma eða keypt íbúðir. En ekki aðeins þá sem festu kaup á íbúðum á misgengistí- manum heldur líka þá launamenn sem í trausti á loforð stjómvalda festu kaup á íbúðum síðar - en sitja nú með sárt ennið vegna þess að fyrirheit hafa verið svikin. I rauninni er aðeins eitt svar til við þessum vanda og það er að hækka kaupið meira en lánin á komandi misser- um. Það hlýtur þess vegna að verða meginviðfangsefhi næstu kjara- samninga að hækka launin verulega að kaupmætti - taxtakaupið sjálft. önnur leið til þess að koma til móts við þetta fólk er að tryggja því með skipulögðum hætti aðild að hinu nýja húsnæðislánakerfi. í lögunum sem samþykkt vom í vor er opnað fyrir þessa leið með því að þeir sem hafa lent í vemlegum greiðsluerfiðleikum eiga rétt á lán- unum eins og þeir sem hafa byggt eða keypt í fyrsta sinn. Ekki hefúr verið skilgreint hvað verulegir greiðsluerfðleikar era í þessu sam- bandi - en það er ljóst að löggjafinn hefúr með samhljóða atkvæðum opnað þessa leið. Þriðja leiðin er svo sú að grípa til sérstakra ráðstafana vegna þess fólks sem varð fyrir misgenginu. Sennilega verður að reyna að fara allar þessar leiðir á næstunni. Hvar er misgengi - hvenær varð það til? Nokkrar staðreyndir um misgengi launa og lána: 1. Lánskjaravísitala og kaupgjalds- vísitala þróuðust nákvæmlega samhliða á árunum frá 1980 til 1982 og þar var enginn munur á nema á árinu 1981 þegar þróunin var laun- unum heldur í vil. 2. Lánskjaravísitala miðað við 100 1980 var 327,4 í mars 1983 en kaup- Kjallarinn Svavar Gestsson Formaður Alþýöubandalagsins taxtavísitala á sama tíma reiknuð á sama grunni var 329,6 í mars 1983. Misgengið á þessum tíma, frá 1980 til mars 1983, var því 1%. 3. Misgengi launa og lána frá 1982 til 1983 var þannig að lán hækkuðu um 79,4% en laun um aðeins'48,3% á sama tíma. Þama hefst misgengið sem gerist aðallega frá í mars 1983 og stafar af því að vísitölubætur á laun vom bannaðar með lögum 1. júní og 1. september 1983 og svo áfram. Vísitölubætur, sem áttu að koma til greiðslu 1. júní, vom 20%. Þær vom afnumdar en þetta er ná- kvæmlega sama talan og nam misgenginu á árinu 1983 - 20%. 4. Misgengi launa og lána hélt áfram milli áranna 1983 og 1984. Þá hækk- uðu lánin um 33,8% en laun á sama tímabili um 19,8%. Mismunurinn er 11,7%, sem kemur þá til viðbótar við misgengið frá 1983 upp á 20%. Niðurstaðan er: Misgengið verð- ur vegna vísitölubannsins. 1983. En síðan er vert að hafa þetta í huga: 1. Ríkisstjóm Gunnars Thoroddsen, bauð það fram í kjarasamningum að lán breyttust eins og laun. Því er hafnað. 2. Sama ríkisstjóm lagði fram í upp- hafi þings frumvarp um að lán íbúðasjóðanna skyldu breytast eftir launum en ekki lánskjaravísitölu. Það frumvarp var afgreitt sam- hljóða í efri deild en stöðvað af Sjálfstæðisflokknum í neðri deild. Þessar staðreyndir er einnig vert að hafa í huga og ennfremur þetta: Því er haldið fram að flárhagur Byggingasjóðs ríkisins hafi versnað stórkostlega á árunum 1980 til 1983. Nú liggja fyrir tölur um þróunina á núvirði. Þar kemur fram að eignir Byggingarsjóðs ríkisins jukust um 2 mflljarðar 877 mflljónir á árun- um frá 1979 til 1983 eða um 59%. Og ávöxtun fjár Byggingarsjóðs ríkisins var jákvæð öll þessi ár um 1,5 til 2,1% á ári en var nei- kvæð á ríkisstjómarárum Geirs Hallgrimssonar og er neikvæð í tíð ríkisstjómar Steingríms Her- mannssonar. Það sem gera þarf Hér hafa verið raktar nokkrar staðreyndir í sögu húsnæðismál- anna. Það sem nú þarf að gera er þetta: 1. Það verður að laga verkamanna- bústaðakerfið að nýja húsnæðis- lánakerfinu með lögum strax í haust sem taki gildi fyrir áramót. 2. Það verður að koma til móts við „misgengisfólkið" og aðra sem keypt hafa íbúðir á kaupránsárunum síð- ustu með því að: a) hækka kaupið, þ.e. auka kaupmátt kauptaxta b) opna nýja kerfið fyrir þessu fólki líka eftir ákveðnum reglum sem verði mótaðar á síðari hluta þessa árs og c) endurgreiða í einhveiju formi rá- nið frá 1983 og 1984. 3. Það verður að treysta stöðu bygg- ingarsjóðanna þannig að þeir geti í framtíðinni staðið undir mannsæm- andi húsnæðiskerfi. Stefiia Alþýðu- bandalagsins er: Að fólk geti tryggt sér húsnæði með útgjöldum sem samsvara 20% af dagvinnukaupi. Þetta er markmið sem sjálfsagt sýn- ist órafjarri í dag en er þó unnt að ná með breytingum lánakerfisins og samhæfingu þess og skattakerfisins eins og við höfum sýnt fram á. Svavar Gestsson alþingismaður „Það var siðlaust að taka vísitölu launa úr sambandi og láta vísitölu hækka lánin á sama tíma. Þessu siðleysi bera alþingi og meirihluti þess alla ábyrgð á og þess vegna verður alþingi að koma til móts við það fólk sem byggt hefur á þessum tíma eða keypt íbúðir.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.