Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Blaðsíða 42
42 DV. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1986. Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Ólyginn sagði... Björn Borg vakti mikla athygli þegar hann mætti á almannalæri með splunkunýja klippingu. Hinn merki atburður átti sér stað í Stokkhólmi fyrir örskömmu og Sviar velta því fram og aftur fyrir sér hvort þetta sé framfaraspor eður ei. Fréttir af útlitsbreytingu kappans eru jafnvel á útsíðum og hafa því ýtt fjárhagsáhyggjum og öðru dæg- urþrasi yfir á aðrar og ómerkari siður fjölmiðlanna í hinu sænska velferðarríki. Karl hinn breski trúir á fljúgandi diska. Óræka sönnun fyrir tilveru þeirra fyrir- hitti hans konunglega tign á flugi yfir írlandi í febrúarmánuði síð- astliðnum. Kalli var þar innan- borðs i þotu breska hersins þegar fljúgandi diskur sveif framhjá löngu nefi hans hátignar. Frá þeirri stundu hefur fýrinn gefið frá sér yfirlýsingar um einlægan átrúnað á FFH en einstöku fýlu- púkar innan hirðarinnar heimta nú að hátigninni sé haldið endan- lega edrú í flugferðum á komandi árum. Stefanía af Mónakó er búinn að endurnýja í elsk- hugasafninu. Sá allra nýjasti gerir kröfu til að hans nafn verði hvergi nefnt þvi hann þolir ekki tilhugs- unina um að lenda aftarlega i röð gamalla sénsa á eftir fýrum eins og Anthony Delon og Paul Bel- mondo. Sviösljósið hefur ekki lofað nelnu þagnarbindindi og lætur því upplýsingarnar fjúka - nafnið er Christophe Lambert sem annars gengur undir nafninu Tarsan viö hátíölegri tækifæri. David Bowie fær bráðlega nýtt hlutverk. Kanar vilja ólmir að gerð veröi kvikmynd um þeirra ástkæra mafíósó, Frank Sinatra, og að þeirra áliti er eng- inn betur fallinn tii þess að túlka dúlluna á tjaldinu en einmitt David Bowie. Nákvæmlega ekkert komment hefur komið frá væntan- iegri kvikmyndastjörnu um ágæti hugmyndarinnar. Jagger í kvennafansi Rollingurinn marg- frægi, Mickjagger, hefur veriö umkringd- ur alls kyns kvensum frá því að fyrst tóku aö birtast myndir af fírnum ífjölmiðlum. Til skamms tíma voru þetta yndisfagrar ástmeyjar en núna hefur orðið á hressileg breyting - á meðfylgjandi mynd er Mikki með sambýlis- konunni Jerry Hall og dætnmum Karis, Jade og Elizabeth. Til hliðar er bamfóstran með eina son söngvarans - James Jagger. Það er greini- lega af sem áður var - gamli grjóni! Fjórum tugum fagnað Það var þrumustuð á fertugum Verslingum sem hittust til að ri§a upp gamlar minningar frá skólaárunum. Öm Eiðsson var veislustjóri, margir fluttu ræður og í öllum homum var skeggr- ætt og skrafað um nýtt og gamalt veraldarvafstur. í lokin voru uppi raddir um að hittast sem fyrst aftur og þá vonandi fyrir fimmtíu ára afmæli árgangsins. DV-myndir PK. Það var glatt á hjalla hjá hinum fertugu Verslingum - Örnólfur Thorlacius rektor, Rannveig Tryggvadóttir þýöandi, Kristján Flygenring verkfræðingur, Jón Rafn Guð- mundsson framkvæmdastjóri, Hanna Helgadóttir fulitrúi, Guðrún Jónsdóttir húsmóðir og Vilhjálmur Ólafsson útibússtjóri. Frá kvennahorninu - Þórunn Matthíasdóttir skrifstofumaður, Gislína Magnúsdóttir fulltrúi, Sigrún Ólafsdóttir húsmóðir, Ingunn Egilsdóttir verslunarstjóri, Bryndís Guð- mundsdóttir húsmóðir, Margrét Tómasdóttir fulltrúi, Jódís Jónsdóttir fulltrúi og Sigríður Jónsdóttir húsmóðir. Hann var góður þessi! Egill Skúli Ingibergsson verkfræðingur, Kristján Flygenring, Hanna Helgadóttir, Kristín Jóhannsdóttir fulltrúi, Jón Rafn Guömundsson fram- kvæmdastjóri og Örn Eiðsson upplýsingafulltrúi. Hin samrýnda þrenning - Árni Theódórsson vaktmaður, Hjörleifur Guðnason stöðvar- stjóri og Valdis Blöndal leiðsögumaður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.