Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Blaðsíða 38
! 1 38 DV. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1986. Rakarastofan Klapparstíg i Hárgreiðslustofan Klapparstíg Sími 12725 Tímapantanir 13010 i. VIKAN AUGLÝSINGADEILD Þverholti 11, sími 27022 F YRIRTÆKI - ATVINNUREKENDUR! VIKAN selst jafnt og þétt, í dreifbýli og þéttbýli. Þess vegna geta auglýsendur treyst því að auglýs- ing í VIKUNNI skilar sér. VIKAN Síminner 27022 i & VANDINN LEYSTUR Teinamöppur fyrir Úrval Sent í póstkröfu ef óskaó er Handhœg lansn til aó vardi eita hlaöid. Hálfur árgangur í hverja möppu Fást á afgreiöslu l rvals, Þverholti 1 1. sími (1)1) 27022 og h já Bindageröinni. Smidjuvegi 22. símar (91) 77040 oy (91) 35468 Sandkorn Sandkorn Blönduós- tommar Esso-skálinn á Blönduósi hefur tekið til við að selja Tommaborgara. Farið var af stað með Tomma á kynn- ingarverði. Á fyrsta degi seldust 600 Tommar, sem þýðir að annar hver íbúi á Blönduósi fékk sér borgara þennan dag. Slöngu- temjarinn Húsvíkingar héldu 1. maí hátíðlegan eins og aðrir landsmenn. Hátíðahöldin voru innandyra í þetta skiptið. Margir baráttu- söngvar voru kyijaðir. Einn fékk sérstakar bar- áttukveðjur frá afgreiðslu- mönnum bensínstöðva á Húsavik. Það var bílstjór- inn hjá kaupfélaginu. Hann þýkir kvikur í hreyfingum og fasi og bensínmennirnir eru ekki enn búnir að gleyma því þegar hann ók burtu síðasta sumar með bensíndæluslönguna á bólakafi í tanknum. Og fyr- ir það fékk slöngutemjar- inn baráttukveðjur. Rúðan á Raufarhöfn Skagfirskur verktaki vinnur þessa dagana við að smíða brú skammt frá Raufarhöfn. Langt hefur verktakinn þurft að fara eftir sandi í steypuna. Dag einn nýlega var of þungt hlass á vörubílnum. Lögg- an á Raufó stöðvaði bílstjórann. Ekki var hann látinn sturta fáeinum sand- kornum heldur tók pólitíið biilyklana af manninum úti á miðri Melrakkasléttu. Þegar pólitiið skilaði lykl- unum sólarhring síðar var búið að bijóta rúðu i vöru- bílnum. Traust varsla það. Óábyrgir einstaklingar Verkalýðsfélagið á Vopnafirði opnaði fyrir tveimur árum verslun á staðnum. Nú er svo komið að hún blómstrar meðan kaupfélagið er rekið með tapi. Eins hafa trésmiðir og aðrir hirt verk frá tré- smiðju kaupfélagsins. Á fundi nýlega ku einn kaup- félagsmaðurinn hafa kallað keppinautana „ óábyrga einstaklinga". Sumarið 20. ■ # r jum Menn eru ekki á eitt sátt- ir um það hér fyrir norðan hvenær sumarið ætli að láta sjá sig, slík hefur ótíðin verið að undanförnu. Á Sauðárkróki hafa menn þetta hins vegar allt á hreinu. Sumarið kemur 20. júní, sagði bóndi þar við Sandkornið á dögunum. Krókur á móti bragði Á Sauðárkróki rikir nú fjörug kosningabarátta. Vísur fjúka á hveijum degi. Einn frambjóðandinn lof- aði mönnum bót og betrun á sjálfum sér nýlega með þessari vísu: Áður var ég drabbari, drakk úr stauti glaður dögum og árum ég kastaði á glæ. Nú er ég orðinn breyttur, nýr og betri maður, og nú vil ég fá að stjórna þessum bæ. Svart á Hvammstanga Þeir á Hvammstanga ætla að malbika fyrir 15 milljónir í sumar, eða fyrir allt framkvæmdafé bæjar- ins og rúmlega það. Alls eiga um 2200 tonn af biki að fara á göturnar. Eftir þetta verður Hvammstangi nánast aUur malbikaður. Kántríbær Kántribærinn hans HaU- bjöms á Skagaströnd stendur nú auður og yfir- gefinn. Heyrist sagt á Skagaströnd að hreppur- inn, sem á 1. veðrétt í húsinu, taki það í sína vörslu þegar skuldadæmi kúrekans verður gert upp á næstunni. Slíta stjóm- málasam- bandi Ungviðið á Akureyri vill að við íslendingar shtum stjórnmálasambandi við granna okkar á Norður- löndum eftir útreiðina í Eurovision. Auðvitað er það líka út í hött hve fá at- kvæði GLeðibankinn fékk frá frændum vorum. En það er geymt en ekki gleymt. Læstist inni í hraðbanka Það var gott til þess að vita að Hafnfirðingurinn sem læstist inn í hraðbank- anum var ekki í Ufshættu eins og hraðbankastjórinn sagði okkur. Og þá sagði lögreglan í Hafnarfirði að manninum hefði farið að leiðast biðin. Engin furða, tíminn Uður hægt á gervi- hnattaöld í svona gleði- bönkum. Umsjón Jón G. Hauksson Kvikmyndir Kvikmyndir Tónabíó - Salvador irk Fréttamenn era hetjur nútímans! Það er heimur ofbeidis og átaka sem blasir við fréltamanninum Boyle i El Salvador. Myndin Salvador gerir heiðariega tilraun til að sýna okkur þennan heim. Slæmt að ekki skyldi takast betur til. Bandarisk, árgerð 1385. Leikstjóri: Oliver Stone. Aðalhlutverk: James Woods, John Savage og Jim Belushi. Nú um nokkurt skeið hafa myndir um fréttamenn verið tískuefni meðal kvikmyndagerðarmanna. Er það að vonum - margt í lífi nútímafrétta- mannsins er ákaflega ævintýralegt og býður því upp á spennandi kvik- myndaefhi. En hitt er ekki síður mikilvægt að margt í starfi frétta- manna gefur tilefni til athyglisverðr- ar umijöllunar. Siðferðileg vandamál eru sifellt að koma upp - hvemig fréttamaðurinn eigi að vemda hlutlægni sína og komast hjá því að verða persónulega flæktur í atburðarásina. Og síðan hvort það sé yfirleitt hægt eða æskilegt að ná þessari hlutlægni. Margar athyglisverðar myndir hafa verið gerðar um þessi vanda- mál, s.s. Missing, The Killing Fields, Under Fire og síðast en ekki síst, The Year of Living Dangerously sem tekur einna best á vandamálinu. Þrátt fyrir að þetta séu allt hinar ágætustu myndir finnst mér eins og enn eigi eftir að gera virkilega góða mynd um þetta viðfangsefni. Salva- dor breytir þar engu um. Salvador fer hálf furðulega af stað og lengi vel er maður ekki viss um hvað aðstandendur hennar hafa ætl- að sér að gera. Við kynnumst heldur ógæfulegum blaðamanni, Boyle, (Ja- mes Woods), sem virðist vera búinn að brenna allar brýr að baki sér. Hann er atvinnulaus og fær þar að auki hvergi vinnu. Hann á allsér- stæðan kunningja sem Jim Belushi (bróðir Johns heitins) leikur. Saman leggja þeir af stað til E1 Salvador. Er skemmst frá því að segja að þessi persóna, sem Belushi leikur, er eins og viðundur í myndinni. Hann hefúr engan tilgang varðandi framvindu söguþráðarins og virðist hafa hlut- verk trúðsins í myndinni. Þótt hann segi nokkra brandara þá er eins og að hann hafi gengið inn í vitlausa upptöku í kvikmyndaverinu. Eins og áður sagði er myndin ákaf- lega yfirborðsleg framan af og áhorfendur litlu sem engu nær um ástand mála í þessum heimshluta. En það verður að segjast aðstand- endum myndarinnar til hróss að þeir taka sig á. Atburðarásin skerpist og persónur lifha við. Við fáum að fylgj- ast með gangi mála í El Salvador og þeim atburðum sem hvað mikil- vægastir urðu fyiir firamvindu sögunnar þar. Morðið á Romero biskupi og bandarísku nunnunum verða átakanlega lifandi og allt í einu hættir áhorfendum að standa á sama um framvindu myndarinnar. Þótt Boyle sé lítill fréttamaður þá lendir hann í miðri hringiðu átak- anna í E1 Salvador. Persónuleg tengsl hans við innfædda konu eru áberandi í myndinni og eru endalok- in átakanleg. Áhorfendur hafa lært ýmislegt um þann heim sem við lifum í. Hins vegar eru þeir litlu nær um fréttamennsku Boyle. John Savage leikur fréttaljós- myndara sem dreymir um að ná fréttamynd allra tíma. Hann er meira að segja tilbúinn að fóma líf- inu til þess. Lítið og ósannfærandi hlutverk sem Savage kemst þó skammlaust frá. Það er greinilegt að þessi mynd er gerð af töluverðum metnaði og þörf fyrir að gera grein fyrir vanda- málum umheimsins. Hins vegar er myndin alls ekki nógu heildstæð til að geta talist merkilegt kvikmynda- verk. Sigurður Már Jónsson ★★★★ Frábær ★★★ Góö ★★ Miðlungs ★ Léleg 0 Afleit

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.