Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Blaðsíða 43
DV. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1986. 43 Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós jf Svolitið seinn fyrir. 'h ICY tríósins, Pálmi Gunnarsson, skundar inn. Beint af æfingu á Gleðibankanum: Þórir Baldursson tónlistarmaður (snýr baki í vélina), Helga Möller söngkona og Egill Eðvarðsson, Hugmynd. Auglýsingaliðið og gestir þeirra í Háskólabíói Alþjóðleg auglýsingakvikmynda- hátíð er árlegur viðburður á íslandi. Hefur svo verið síðastliðin 14 ár. Hér er um að ræða verðlauna- myndir frá alþjóðlegu auglýsinga- kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi, 130 talsins. Það er GBB auglýsingaþjónustan sem stendur fyrir þessu framtaki og býður til há- tíðarinnar viðskiptavinum sínum, auglýsingafólki, leikurum, forystu- mönnum úr viðskiptalífinu, nemend- um úr viðskipta- og félagsvísinda- deild Háskóla Islands og fleirum. Við sjáum hér nokkrar svipmyndir frá hátíðinni, sem haldin var fyrir skömmu í Háskólabíói, að viðstödd- um um 900 gestum. Ljósmyndimar hér á síðunni tók Amaldur Halldórsson. Greinilega mjög gaman i hléi hjá Jóni Á. Eggertssyni, framkvæmda- stjóra Kaupstefnunnar hf., og Þorkeli G. Guðmundssyni innanhússarki- tekt. Sveinbjörn I. Baldvinsson, sjónvarpsmaður og kvikmyndagagnrýnandi, Karl Óskarsson kvikmyndagerðarmaður og Valdis Óskarsdóttir, dag- skrárgerðarmaður á rás 2. Eirikur Hauksson, 'h ICY tríósins, á tali við Lindu Jónasdóttur, Helg- arpósti. Ingólfur Margeirsson, ritstjóri Helgarpóstsins, hnýtir skóþveng sinn. Asbjöm Magnússon, yfirmaður Tour Office á Keflavikurflugvelii, Halldór Guðmundsson, framkvæmdastjóri GBB auglýsingaþjónustunnar, og Þor- kell Þorkelsson, Bæjarleiðum. Björk Baldursdóttir, auglýsingateiknari ÓSA, Jón Kjartansson, kvik- myndagerðarmaður Saga Film, Sigrún Sætran, auglýsingateiknari Gylmi, Haraldur Hjartarson, framkvæmdastjóri MÁT hf., og Gísli Blöndal, fram- kvæmdastjóri ÓSA. Það þarf heilan starfshóp til þess að koma likani af heilli Hallgrímskirkju á laggirnar. Rey kj aví kurbor g - frá sjónarhóli yngstu kynslóðarinnar íbúar Reykjavíkurborgar standa allir á haus við undir- búning stórafmælisins nú í sumar enda ekki á hverjum degi sem borgin verður tveggja alda gömul. Krakk- arnir á leikskólanum Hlíða- borg létu ekki sitt eftir liggja, þau hafa meðal annars unnið stórt líkan af Hallgrímskirkju og Öskjuhlíðina eru þau líka með á einum deildarveggnum. Það voru Trölladeildar- krakkarnir sem settu allan sinn kraft í afmælisvinnuna, söfnuðu hinum ýmsu dásemd- um í Öskjuhlíðinni til nota síðar í veggmynd af staðnum og lögðu lykkju á leið sína til þess að virða fyrir sér Hall- grímskirkju af hinni mestu athygli. Afraksturinn af mik- illi vinnu sést á meðfylgjandi myndum og einnig Dreka- deildarliðið sem aðstoðaði við hönnun verkanna - í fjarveru Trölladeildarinnar - dags- partinn sem ljósmyndari DV leit við á Hlíðaborginni til þess að festa afrakstur þrot- lausrar vinnu yngstu kyn- slóðarinnar á filmu. Heiður úr Drekadeildinni náói réttum litbrigðum á turninn með hárfínni einbeitingu. öskjuhliðarverkefnið komlð á vegginn. Á vinstri væng má sjá rör sem táknar hitaveitustokkinn, efst sívalninga sem eru vatnstankarnir og neðarlega til hægri eru ýmsar gersemar svo sem gömul gleraugu og dýrmæt bréfasnlfsi. DV-myndir: KAE.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.