Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Blaðsíða 29
DV. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1986. 29 •v Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Hverju spáir þú um úrslit kosn- inganna hér á Suðureyri? Páll Helgi Pétursson ellilífeyrisþegi: Ég held að Framsókn nái í tvo og samemingarflokkurinn muni fá þrjá. Ágúst Þórðarson sjómaður: Það er erfitt að spá um þetta en ég vona að B-listinn fái þrjá menn. Grétar Þór Guðjónsson tækjamaður: Ég reikna með því að mótframboð Framsóknarflokksins, sameiginlegi listinn, fái þrjá menn kjörna. Ásdís Friðbertsdóttir húsmóðir: Ég vil náttúrlega að kvenfólkið komist að. Baráttan stendur um það hvort Framsókn fær einn eða tvo. Birna Skarphéðinsdóttir verslunar- maður: Ég held að blandaði listinn fái 60 prósent atkvæða og Framsókn- arflokkurinn hitt. Fríður Bára Valgeirsdóttir verka- kona: Ég held að óháðir verði ofan á. DV-myndir PK. Séð yfir Suðureyri frá fiugvellinum. Suðureyri við Súgandafjöið: Framsókn gegn öllum hinum Tveir listar eru boðnir fram á Suður- eyri við Súgandafjörð, listi framsókn- armanna og sameiginlegur listi Alþýðuflokks, Sjálfstæðisflokks, Al- þýðubandalags og óflokksbundinna kjósenda. í kosningunum fyrir fjórum árum gátu kjósendur valið á milli fjög- urra lista. Suðureyri, eins og allir þéttbýlis- staðir Vestfjarða, á líf sitt undir sjávarútvegi. Stutt er á gjöful miðin. Suðureyri stendur við mynni Súg- andafjarðar. Þar búa um 430 manns. Langstærsti atvinnurekandinn er Fiskiðjan Freyja. Erfiðleikar þess fyr- irtækis hafa á undanfömum árum verið fréttaefhi. Einn togari, Elín Þor- bjamardóttir, er gerður út frá Suður- eyri, einnig 200 tonna línubátur og margir smábátar. Jarðhiti er við fjörðinn. í hálfa öld hafa Súgffrðingar því haft sundlaug en jarðhitann nýta þeir einnig til upp- hitunar húsa. Súgfirðingar burfa að fara um 26 kílómetra langari veg en 516 metra háan til ísafjarðar. Leiðin getur því oft verið ófær á vetrum. í hlíðinni fyr- ir ofan þorpið er stutt flugbraut en flugsamgöngur hafa verið stöpular í vetur. -KMU Sameiginlegur listi: Vinna þarf að jarðgöngum - segir Halldór Bemódusson „Það sem mæðir mest á öllum eru samgöngumálin. Vinna þarf að jarð- gangagerð,“ sagði Halldór Bemódus- son, efeti maður á sameiginlegum lista Alþýðuflokks, Alþýðubandalags, Sjálfetæðisflokks og óflokksbundinna kjósenda á Suðureyri. „Samgönguleysi við ísafiörð er það sem fólk á erfiðast með að sætta sig við. Við þurfum í æ ríkari mæli að sækja þjónustu til ísafjarðar. Ennfremur þurfum við að fylgja því vel eftir að samgöngur í lofti verði í lagi. Hér innanbæjar er mest knýjandi að unnið verði að byggingu sundlaug- ar og í framhaldi af því byggingu íþróttahúss. Við höfum hér mun betri möguleika á að reka sundlaug en ná- grannabæir vegna þess að við höfum hér heitt vatn. Ömggari rekstrargrundvelli þarf að koma á Hitaveitu Suðureyrar. Með tilkomu nýrrar borholu lagast þetta væntanlega. Fjárhagur Hitaveitunnar er slæmur, aðallega vegna tíðra bilana á dælu borholunnar. Á allra næstu árum þyrfti að vinna að því að ljúka lagningu slitlags á allar götur,“ sagði Halldór Bemódus- son. -KMU Halldór Bemódusson skrifstofumaður. Eövarð Sturluson, oddviti Suðureyrarhrepps. Framsóknarmenn: íþróttahús og sundlaug - segir Eðvarð Sturluson „Bygging íþróttahúss og sundlaugar er það sem heitast brennur á okkur,“ sagði Eðvarð Sturluson, efeti maður á lista framsóknarmanna á Suðureyri við Súgandafjörð. „Gatnaframkvæmdum og hafriar- framkvæmdum þarf að ljúka. Það þarf að ljúka við barnaskólann og búa hann tækjum. Við erum að ljúka við hitaveituna, erum að virkja nýja holu sem bomð var í fyrra. Mjög brýnt er orðið að dýpka inn- siglingarleiðina inn í bátahöfnina þannig að togarinn þurfi ekki að sæta sjávarföllum. Það efni sem þannig kæmi upp myndi nýtast okkur til land- fyllingar. Það er náttúrlega aðalatriðið að geta búið við atvinnuöryggi. Það þarf að búa þannig að atvinnurekstrinum að hann geti staðið í skilum. Erfið- 'eikar hjá Fiskiðjunni Freyju hafa óbeint skaðað framkvæmdagetu sveit- ^ arfélagsins," sagði Eðvarð Sturluson. -KMU Suðureyri: Sameiginlegt framboð Sjálfetæðis flokksins, Al- þýðuflokksins, Alþýðu bandalags og óflokksbund- inna kjós enda. 1. Halldór Bemódusson skrifstofustjóri 2. Ama Skúladóttir hjúkmnarfræðingur 3. Sveinbjöm Jónsson form. Verkalfél. Súganda 4. Ingibjörg Sigfúsdóttir skrifetofumaður 5. Snorri Sturluson kennari 6. Jóhann Bjarnason verkstjóri 7. Guðni A. Einarsson skipstjóri 8. Sturla P. Sturluson bifreiðarstjóri 9. Þorvaldur H. ÞórðEirson bóndi 10. Kristín Ólafsdóttir húsmóðir. Listi Fram- sóknarflokksins á Suðureyri verður þannig skipaður: 1. Eðvarð Sturluson oddviti 2. Karl Guðmundsson bóndi 3. Amar Guðmundsson verkamaður 4. Ólöf Aðalbjömsdóttir húsmóðir 5. Ámi Friðþjófeson vinnuvélstjóri 6. María Guðbrandsd. húsmóðir 7. Grétar Schmidt verkstjóri 8. Sigurvin Magnússon sjómaður 9. Sigurður Jósefeson sjómaður 10. Páll Helgi Pétursson bóndi. Til sýslunefhdar: sameiginlegur listi, Gestur Kristinsson hreppsstjóri og Lárus Hagalínsson vél- gæslumaður. Úrslit 1982 Alþýðuflokkur 50 atkv., 1 fulitr. Framsóknarflokkur 93 atkv., 2 fulltr. Sjálfstæðisflokkur 76 atkv., 1 fulltr. Alþýðubandalag 41 atkv., 1 fulltr. I hreppsnefnd voru kjörnlr: Jóhann Bjarnason (A), Eðvarð Sturluson (B), Lárus Hagalínsson (B), Óskar Kristjánsson (D) og Gestur Kristinsson (G).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.