Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Blaðsíða 45
DV. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1986. 45 Sviðsljós Ólyginn sagði ... Fylgster meðöll- um helstu nýjung- um í sniði og litum. Sögur lesnar oglagið tekið Hann var þéttskipaður salurinn í félagsheimilinu á Húsavík 1. maí. Hátíða- höld í góðu lagi og allir í hátíðaskapi. Það var leik- félagið á Húsavík sem stóð að samkomunni, sögur voru lesnar og lagið tekið við góð gítargrip og út- þenslustefnu harmóníku. Á eftir var leikfélagið með kaffisölu sem gekk af- bragðsvel. Endabrosti budda gjaldkera leikfé- lagsins breitt. Sterkur leikur hjá leikfélaginu á Húsavík hátíðisdaginn 1. maí. -JGH Jóhannes G. Einarsson þykir ómissandi skemmtikraftur á Húsavík. Kappinn mætt- ur 1. mai og góður að vanda. Beisi, Haukur Árna og skórnir i kaupfélaginu fengu sinn skammt, það sleppur enginn undan Jóhann- esi. DV-myndir JGH Fyrsti maí á Húsavik og allir i hátiðaskapi í félagsheimilinu. Leikfélagið sá um samkomuna, sögur voru lesnar og lagið tekið. Böm Ulvaeus Abbalimur segir lífs síns stærstu krísu hafa verið skiln- aðinn við Agnethu Abba- drottningu og viðskilnaðurmn við bömin háfi ekki gert málið auðveldara viðfangs. Orsökin var ekki að annað þeirra eða bæði fyndu sér annan og betri maka heldur hvarf ástin eins og dögg fyrir sólu einn góðan veðurdag. Bjössi dreif í því að finna sér aðra Agnethu. Lena heitir hún og er hálfgerður tvifari forverans. Agnetha hef- ur farið hægar í sakimar og Xátið sér nægja að búa með Xiinum ýmsu eintökum karl- kynsins um lengri og skemmri tima. Skinnavara í sviðsljósinu Catherine Deneuve trúir ekki á eilífa ást milli karls og konu en segist hæstánægð með sambönd sín við karlmenn á meðan lukkan varir. Aðeins einu sinni tókst karlmanni að draga hana upp að altarinu og þar var á ferðinni hinn heimskunni íjós- myndari David Bailey. - Dauða- dæmt samband frá upphafi, sögðu vinir þeirra, einkum vegna þess hve úlíkan bakgrunn hjóna- kornln höfðu. Til hjónavígslunnar mætti Deneuve i glæsilegum svörtum kjól, háum I hálsinn, og alsett demöntum - Bailey hins vegar i gallabuxum og með nokk- urra daga skeggvöxt á andlitinu. Vinirnir reyndust sannspáir og hjónabandíð varð aldrei nema þriggja ára gamalt. Robin Borg stækkar og þroskast dag frá degi án þess að hafa iiugmynd um alla þá athygli og deilur sem til- koma hans í þennan heim hefur vakið. Sænsku blöðin hafa þó mestar áhyggjur af móður hans. Jannike lifir I hálfgerðri einangrun með syninum og hinn nýbakaði faðir, Björn Borg, virðist iítinn áhuga hafa á því að gera sambýl- iskonu sinni kleift að umgangast fólk utan fjögurra veggja heimilis- ins. Leðrið er ennþá ofarlega á blaði í fatahönnun dagsins í dag og á morg- un og iðnaðardeild Sambandsins er þar með á nótunum. Sýning á skinnavöru fyrirtækisins fór fram á Skálafelli í síðustu viku og gestum bent á að hálfunnið lambsskinn hef- ur fimmfaldast í verðmæti þegar það fer fullsútað í tískufatnað til útflutn- ings. Mokkafatnaður er einnig fyrirferðarmikill í framleiðslunni enda sígild vara með nokkuð stöðug- an markað. Meðfylgjandi DV-myndir tók GVA á fyrmefiidri tískusýningu Sambandsins. A Skálafelli svifu leðurklæddar sýnlngarstúlkur um salinn, hver einasta pjatla ættuð frá íðnaöardeild Sambandsins. Tilkynning til söluskattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því að gjald- dagi söluskatts fyrir aprílmánuð er 15. maí. Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið. Orðsending til kennara I Vestmannaeyjum starfa eftirtaldir skólar: Framhaldsskóli Vestmannaeyja, öldungadeiid, Stýri- mannaskóli Vestmannaeyja, Véiskóli Vestmannaeyja, Tónlistarskóli Vestmannaeyja, Grunnskóli Vestmanna- eyja (þrískiptur: barnaskóli Vestmannaeyja, Hamars- skóli og 9. bekkur). Alls eru nemendur þessara skóla um 1200 og fastráðn- ir kennarar 76. Eins og gengur eiga sér stað tilfærslur og breytingar. Því leita skólanefndir téðra skóla eftir vel menntuðu og farsælu fólki í kennarastétt til kenn- arastarfa. Á sviði íramhaldsmenntunar: í stærðfræði og raun- greinum, þýsku og dönsku. Á grunnskólastigi: almennri kennslu (5 stöður) hand- og myndmennt, stuðnings- og sérkennslu. Á tónlistarsviði: söng- og hljóðfærakennslu. Ef þú vilt þætast í hóp þeirra 70 kennara sem fyrir eru hafðu þá vinsamlegast samband sem fyrst við einhvern skólastjórann og kynntu þér málin. Margs konar aðstaða og fyrirgreiðsla er í boði, svo sem flutningur á búslóð til Eyja, fyrirgreiðsla varðandi íbúðir, barna- og leikskólaaðstöðu og ýmislegt fleira. Frekari upplýsingar veitir skólafulltrúi í síma 98-1088 alla virka daga kl. 9-12. U n Skólafulltrúi Vestmannaeyja. GOODYEAR á hagstœðu veréi Hvort sem er í þurru færi eða blautu í lausamöl eða á malbiki á hálku eða í snjó eru: MÝKT, GRIPFESTA OG GÓÐ ENDING aðalsmerki Goodyear-hjólbarðans LEIÐANDI í VERÖLD TÆKNIÞRÓUNNAR HJÓLBARÐA GOODfYEAR [hIheklahf Lauqaveq. 170-172 Sími 21240

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.