Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Blaðsíða 40
40 DV. MÁNUDA'GUR 12. MAÍ 1986. Andlát Ólöf Dagbjartsdóttir lést á sjúkra- húsi Patreksfjarðar 4. maí sl. Hún fæddist á Móbergi á Rauðasandi 3. ágúst 1894, dóttir hjónanna Sigur- bjargar Ketilsdóttur. og Dagbjarts Einarssonar. Ólöf fluttist að Holti á Barðaströnd 1921. Þar giftist hún manni sínum,, Þorvaldi Bjamasyni, og bjuggu þau þar til ársins 1954 er þau fluttu að Móbergi á Rauðasandi og þaðan að Gröf á Rauðasandi 1955 þar sem þau bjuggu þar til haustið 1979 er þau hættu búskap. Fluttust þau þá til dóttur sinnar Vigdísar og Braga ívarssonar að Melanesi á Rauðasandi. Þorvaldur andaðist árið 1979 en Ólöf fluttist með dóttur sinni til Patreksfjarðar árið 1981. Henni varð 10 barna auðið og eru fimm á lífi. Útför Ólafar verður gerð frá Hagakirkju á Barðaströnd í dag, mánudaginn 12. maí, kl. 14. Þórleifur Grönfeldt lést 5. maí sl. Hann fæddist á Beigalda í Borgar- hreppi 19. desember 1922, sonur hjónanna Þóru Þorleifsdóttur og Hans J. Grönfeldt. Á stríðsámnum' gegndi Þórleifur starfi túlks hjá breska og ameríska hemum. Árið 1947 hóf hann störf hjá Verslunarfé- laginu Borg og starfaði þar lengi sem fulltrúi eða þar til hann setti á stofn sitt eigið fyrirtæki, Verslunina ís- bjöminn & bókabúð Grönfeldts, sem hann rak með eiginkonu sinni, Erlu, til dauðadags. Þórleifur var tví- kvæntur. Fyrri kona hans var Sesselja Jóna Magnúsdóttir. Þau slitu samvistum eftir stutta sambúð. Eina dóttur eignuðust þau. Síðari kona Þórleifs er Erla Björk Daníels- dóttir. Þau hjónin eignuðust tvær dætur. Útfor Þórleifs verður gerð frá Borgameskirkju í dag kl. 15. Jón Eiríkur Jónsson, Skipasundi 75, verður jarðsunginn frá Dómkirkj- unni þriðjudaginn 13. maí kl. 15. Magdalena Björnsdóttir lést á heim- ili sínu á Blönduósi þann 6. maí síðastliðinn. Sigríður Sveinbjamardóttir, Ysta- skála, Vestur-Eyjafjöllum, andaðist á heimili sínu 6. maí. Björn Sigurðsson lést 1. maí sl. Hann fæddist 9. október 1926 að Hvammi í Skaftártungu. Hann nam trésmíði í Iðnskólanum í Reykjavík og hlaut meistararéttindi árið 1959. Hann sá' um byggingu ýmissa mannvirkja, m.a. Neskirkju. Árið 1980 réðst hann sem starfsmaður á trésmíðaverk- stæði Kópavogsbæjar og starfaði þar til ársins 1984 er hann réðst sem húsvörður að Hjallaskóla. Eftirlif- andi eiginkona hans er Unnur Tryggvadóttir. Þeim hjónum varð þriggja dætra auðið. Útför Bjöms verður gerð frá Kópavogskirkju í dag kl. 13.30. Einar Jón Karlsson, Gyðufelli 10, lést í Vífilsstaðaspítala 28. apríl sl. Jarð- arforin hefur farið fram í kyrrþey. Jóhanna Guðbjörg Kristófersdóttir, er lést á Hrafnistu, Reykjavík, 2. maí sl., verður jarðsungin frá Fossvogs- kapellu í dag, 12. maí, kl. 15. Karl Magnússon, Þórsgötu 13, verð- ur jarðsunginn frá Fossvogskirkju 13. maí kl. 13.30. Guðmundína Rannveig Ragúelsdótt- ir verður jarðsungin frá Hafnarfjarð- arkirkju þriðjudaginn 13. maí 1986 kl. 13.30. Ólafur Sigurðsson, Heiðvangi 20, Hafnarfirði, áður Vestmannabraut 3, Vestmannaeyjum, lést í St. Jós- efsspítala í Hafnarfirði 29. apríl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrr- þey að ósk hins látna. Tónlist Manuela Wiesler í Iðnó Mánudagskvöldið 12. maí kl. 20.30 mun Manuela Wiesler flautuleikari halda einleikstónleika í Iðnó á veg- um Musica Nova. Þar mun hún spila 5 verk, 3 skandinavísk sem hafa ver- ið samin fyrir hana á undanförnum árum og tvö japönsk eftir Kazuo Fukushima og Toru Takemitsu, frægustu nútímatónskáld þar eystra. Þetta er allt saman trúarleg tónlist - í víðum skilningi þess hugtaks - sem fjallar um ljós og myrkur, líf og dauða. Norrænu verkin eru eftir sænsku tónskáldin Anders Eliasson og Áke Hermannsson og Norðmann- inn Yngve Slettholm. Tónleikar Tónlistar- skólans í Reykjavík Tónlistarskólinn í Reykjavík heldur tónleika i Norræna húsinu miðviku- daginn 14. maí kl. 20.30. Björn Davíð Kristjánsson leikur á flautu verk eft- ir J.S.BACH, DEBUSSY, BRICC- IALSI, FRANK MARTIN og SCHUBERT. Stephen Yates leikur með á píanó. Þessir tónleikar eru fyrri hluti einleikaraprófs Bjöms Davíðs frá skólanum. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Ymislegt 200 ára afmælis Reykjavíkurborgar minnst í Æfingaskóla Kennarahá- skólans Nemendur og starfsfólk Æfingaskóla Kennaraháskólans minnast 200 ára afmælis Reykjavíkurborgar með sér- stakri afmælisviku dagana 12.-16. maí. Á dagskrá eru margvísleg verk- efni til fróðleiks og skemmtunar. Þar má nefna ferð í Viðey, skoðunarferð- ir um borgina, m.a. á söfn, útivistar- svæði og vinnustaði, og íþróttahátíð á Miklatúni. Miðvikudaginn 14. mai verður opið hús í skólanum kl. 16- 19. Þá verða til sýnis myndverk nem- enda og þættir úr skólastarfinu á myndböndum. Veitingar verða á boðstólum. Hátíðarvikunni lýkur með skemmtun í íþróttahúsi skólans föstudaginn 16. maí kl. 16-18. Kvenfélag Laugarnessóknar fer í heimsókn til kvenfélags Breið- holts þriðjudagskvöldið 13. maí. Farið verður í rútu frá Laugarnes- kirkju kl. 20.15 stundvíslega. SÍBS með ferð á ítölsku rívíeruna SÍBS býður félögum sínum og fjöl- skyldum þeirra í hagstæða ferð á itölsku rívíeruna í þrjár vikur, 26. maí. Þeir sem hafa áhuga á þátttöku hafi samband við skrifstofu SÍBS, Suðurgötu 10, sími 22150. Prentarinn Út er komið 2. tbl. 1986 af Prentaran- um, málgagni Félags bókagerðar- manna. Efni þessa blaðs er að mestu helgað innra starfi félagsins, enda kom það út fyrir aðalfund FBM, sem haldinn var 26. apríl sl. 1 blaðinu er að finna yfirlit yfir starfsemi félags- ins fyrir liðið starfsár, bæði í máli og myndum. Þá er í blaðinu minnst 80 ára sögu samtaka bókbindara, fjallað um deilu enskra prentara og fleira. Frjáls verslun, 3. tbl. 1986, er komin út Meðal efnis blaðsins er forsíðuviðtal við Markús Örn Antonsson útvarps- stjóra, birtar eru niðurstöður í skoðanakönnun um verðbólguvænt- ingar almennings, fjallað er um misræmi í tollskránni, viðtal við Þórð Friðjónsson, formann stjómun- arfélags lslands, birtur er listi yfir söluhæstu áfengistegundimar árið 1985, kynntur er búnaður til eld- varna fyrir fyrirtæki og samanburð- ur gerður á útlánakjörum bankanna. Útgefandi Frjálsrar verslunar er Frjálst Framtak hf. en ritstjóri blaðs- ins er Kjartan Stefánsson. Kennaranámskeið Umsóknarfrestur um kennaranám- skeið, sem haldin verða í sumar á vegum Kennaraháskóla íslands, er nú mnninn út. Að vanda hafa kenn- arar sýnt mikinn áhuga og eru mörg námskeið fullbókuð og meirá en það, en á önnur er ennþá hægt að bæta við nokkmm þátttakendum. Þar sem allir kennarar eru jafn- framt móðurmálskennarar var búist við mikilli aðsókn á námskeið í fs- lensku. Það eru því alls þrjú námskeið í boði og er hægt að bæta við á tvö þeirra, „Talmál í móður- málskennslu" og „Málfræðileg greining". Á námskeiði fyrir kennara í 7.-9. bekk á að leggja áherslu á að ræða þau vandamál sem kennarar og nem- endur unglingastigs standa and- spænis og leita leiða til úrbóta. Þetta er tvímælalaust áhugavert viðfangsefni og aðkallandi að velta fyrir sér hvaða námsefni og kennslu- aðferðir höfða best til unglinga og koma þeim að gagni í áframhaldandi námi og starfi. Ennþá er hægt að bæta við þátttakendum á þetta nám- skeið og líka á námskeiðin: „Fræðsla um þróunarlönd", sem ætlað er kennurum í 7.-9. bekk og á fram- haldsskólastigi, og „Náms- og starfs- fræðsla og ráðgjöf1?, ætlað kennurum í efstu bekkjum grunn- skólans. Flóamarkaður Mæðrastyrksnefndar verður að Garðastræti 3 í dag, 12. maí. Opið frá kl. 14-17. Gróður og trjárækt Almennur borgarafundur um gróður og trjárækt verður haldinn nk. mánudagskvöld, 12. maí, kl. 20.30 í Félagsmiðstöðinni við Frostaskjól (KR-heimilinu). Æskan og umhverfið er landsverk- efni JC-hreyfingarinnar á íslandi. f mars 1986 var gert samkomulag við Skógrækt rikisins um að skógræktin sæi um fræðsluerindi í aðildarfélög- um JCÍ. Svæðisstjórn JC-félaganna í Reykjavík hefur ákveðið að efna til borgarafundar með Reykvíkingum. Til liðs við sig hefur svæðisstjórn Reykjavíkur fengið Sigurð Blöndal skógræktarstjóra og Jóhann Páls- son, garðyrkjustjóra Reykjavíkur, til þess að flytja erindi og svara fyrir- spurnum. Sigurður mun fjalla um æskuna og umhverfið, skógrækt og ef til vill sitthvað fleira. Jóhann Pálsson ætlar að tala um gróður í vesturbænum í Reykjavík. Án efa verður fróðlegt að heyra hvað þessir sérfræðingar okkar hafa fram að færa. Allir eru velkomnir, sérstaklega hvetjum við ungt fólk til að mæta og fræðast. Upplýsingar um garðyrkjuáhöld og plöntur liggja frammi. Kaffiveiting- ar. Námskeið á vegum hár- greiðslu- meistarfélags íslands Dagana 11.-14. maí nk. mun enski hárgreiðslumeistarinn Dar vera með námskeið hér á landi á vegum Hár- greiðslumeistarafélags íslands. Sunnudaginn 11. maí verður sýni- kennsla á Hótel Borg. Ásamt Dar verður einnig sérfræðingur í KMS hársnyrtivörum og förðunarsérfræð- ingur sem vinnur fyrir tískublaðið Vogue. Dar er leiðandi hárgreiðslu- meistari í London og þekktur fyrir skapandi hárgreiðslur og klippingar. Hann hefur unniö að stórsýningum í Royal Albert Hall og Barbican í London ásamt því sem hann hefur haldið námskeið um alla Evrópu. Hárgreiðslunámskeið verður haldið sem hér segir: Hótel Borg, sunnudag 11. maí kl. 10-16. Sýnikennsla, mánu- daginn 12. maí og þriðjudaginn 13. maí. í sýnikennslu er unnið við eigin módel. Upplýsingar veittar í Permu (Arnfríður) i síma 27030 og í Papillu (Dorothea) í síma 17144 og 15137. Nemendur húsmæðra- skólans á Löngumýri í Skagafirði veturinn 76-77. Hafið samband við Diddý, s. 92-2637, Svövu, s. 91-71016 og Birnu, s. 91- 79637, fyrir 20. maí vegna 10 ára af- mælisins. Vélar og vagnar sf. Sumardaginn fyrsta var opnað nýtt fyrirtæki að Eyrarvegi 15 á Selfossi og heitir það Vélar og vagnar sf. Fyrirtækið er umboðsaðili Bílaborg- ar hf. í Reykjavík og býður upp á Mazda bifreiðar og Bridgestone hjól- barða. Einnig frá Bílaborg Lancia bifreiðar og Hino vörubíla. Þá eru Vélar og vagnar sf. umboðsaðili fyrir Globus hf. í Reykjavik með Zetor og Fiat dráttarvélar, New Holland hey- bindivélar og heyhleðsluvagna ásamt hvers konar heyvinnslutækj- um öðrum frá Globus hf. Einnig Tapað-Fundið Kvengullúr tapaðist Kvengullúr tapaðist á leiðinni frá Hagkaupi Laugavegi að Lindargötu 21. apríl sl. Upplýsingar i síma 12705. Myndavél tapaðist aðfaranótt laugardagsins 19. apríl. Vélin var i svörtu hulstri og tapaðist á leiðinni Broadway - vesturbær - Kópavogur. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 98-1514. Fundir Fundur um aðgerðarannsóknir í landbúnaði Miðvikudaginn 14. maí 1986 heldur Aðgerðarannsóknafélag íslands (ARFÍ) fund um ofangreint efni í húsi Rausvísindastofnunar Háskól- ans við Dunhaga 3 (kaffistofu á 2. hæð). Framsögumenn verða Páll Jens- son, forstöðumaður Reiknistofnunar Háskólans, og Ámi Möller frá svína- búinu Þóroddsstöðum. Páll mun kynna nokkur verkefni, þar sem að- gerðarannsóknum hefur verið beitt á viðfangsefni í íslenskum land- búnaði, þar á meðal er reiknilíkan af mjólkurframleiðslu kúabúa. Árni mun fjalla um framleiðslu- stjórnun á svínabúi sínu og um upplýsingaöflun og úrvinnslu gagna þar. Rætt verður um möguleika á notkun reiknilíkana í svínarækt. Aðgerðarannsóknafélag íslands er félag áhugamanna um notkun að- gerðarannsókna (aðgerðagreining- ar) á íslandi. ARFÍ var stofnað í janúar 1985 og telur nú u.þ.b. 50 fé- laga. Aðgerðarannsóknir eru í stuttu máli notkun stærðfræðilegra að- ferða í skipulagningu og rekstri. Sem dæmi má nefna verkefnið að finna ódýrustu fóðurblöndu sem upp- fyllir öll skilyrði sem sett eru um næringargildi, steinefni o.s.frv. Fundurinn hefst kl. 17.00 og eru allir sem áhuga hafa velkomnir. Kaffiveitingar verða á staðnum. Kvenfélag Breiðholts heldur fund þriðjudaginn 13. maí kl. 20.30 í safnaðarheimili Bústaða- kirkju. Kvenfélag Laugarnessóknar kemur í heimsókn. Fyrirlestrar Háskólafyrirlestur Peter Laslett, prófessor í sagnfræði við háskólann i Cambridge, flytur opinberan fyrirlestur í boði Kenn- araháskóla Islands, heimspekideild- ar og félagsvísindadeildar Háskóla fslands þriðjudaginn 13. maí 1986 kl. 17.15 í stofu 101 í Odda. Fyrirlestur- inn nefnist Britain/Iceland, be your age og fiallar um áhrif breyttrar fólksfiölda- og aldursgerðar á líf manna í í iðnvæddum löndum. Fyrir- lesturinn verður fluttur á ensku og er öllum opinn. Peter Laslett er með- al nafnkunnustu fræðimanna sem nú eru starfandi á sviði félags- og fiöl- skyldusögu. Eftir hann liggur fiöldi rita, þ.á m. The World Have Lost og Family and Illicit Love in Earlier Generations. útvegar fyrirtækið frá Globus hina þekktu Harvestor heymetisturna. Vélar og vagnar sf. er umboðsaðili Tryggingar hf. í bifreiðatryggingu og selur einnig Suzuki fiórhjóla- minkinn sem einnig fæst með fram- hjóladrifi. Þá fer fram bílasala hjá fyrirtækinu á notuðum bílum og landbúnaðarvélum, það býður upp á alhliða viðgerðarþjónustu fyrir ferðamenn og veitir einnig alla björgunaraðstoð í Ámes- og Rangár- vallasýslum. Símarnir eru 1504 og 1506. Framkvæmdastjóri Véla og vagna sf. er Júlíus Hólm Baldvins- son.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.