Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Blaðsíða 26
26
Iþróttir
Iþrottir
DV. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1986.
Iþróttir
Iþróttir
Valsstúlkumar Reykjavíkurmeistarar
í mfl. fjórða árið í röð
Valsstúlkumar urðu Reykjavíkur-
meistarar í m£L kvenna 1986, þegar
þær sigruðu Fram, 1-0, sl. fimmtudag
á gervigrasinu. Markið skoraði Ar-
ney Magnúsdóttir í fyrri hálfleik.
Valsstúlkumar unnu Reykjavík-
urmótið á mjög sannfærandi hátt,
sigruðu Ármann 28-0, KR 4-1 og
Fram 1-0. Markatalan 28-1.
Þetta er fjórða árið í röð sem þær
verða Reykjavíkurmeistarar.
Greinilegt er að þær munu koma
sterkar til leiks á íslandsmótið í
Myndin er al Reykjavíkurmeisturum Vals
1986. í fremrí röð frá vinstri: Sirrý Haralds-
dóttir, Védis Ármannsdóttir, Ragnheiöur
Víkingsdóttir, Ástvaldur Sigurðsson,
vemdari liðsins, Gunnhildur Gunnarsdótt-
ir, Margrét Bragadóttir, Hera Ármanns-
dóttir og Cora Barker. Aftari röð frá vinstri:
Róbert Jónsson þjálfari, Þóra Úlfarsdóttir,
Sólrún ÁstvaIdsdóttir, Margrét Óskars-
dóttir, Kristin Amþórsdóttir, Ema Lúðvíks-
dóttir, Ragnhildur Skúladóttir, Ragnhildur
Sigurðardóttir, Amey Magnúsdóttir og
Brynja Guðjónsdóttir. Markahæst Vals-
stúlknanna var Krístin Amþórsdóttir með
10 mörk. (DV-mynd HH)
Fyrsta ráðstefnan á íslandi fyrir eftirlitsdómara
haldin í Reykjavík sl. fímmtudag
- Akureyri og Austfírðir næst á dagskrá
Síðastliðinn fimmtudag var haldin
ráðstefna á vegum hæfnisnefiidar
KDSÍ í Risinu að Hverfisgötu 103 í
Reykjavik. Þetta mun vera í fyrsta
skipti sem slík ráðstefna fyrir eftirlits-
dómara er haldin hér á landi.
Fjöldi dómara af hinum ýmsu stöð-
um á suðvesturhominu sótti ráðstefn-
una. Steinn Guðmundsson, form.
hæfnisnefndar KDSÍ, og Einar Hjart-
arson sáu um fræðsluþættina.
Það sem einkum var til umfjöllunar
var náttúrlega hlutverk eftirlitsdóm-
ara, sem að mati manna er mjög
mikilvægt og aðkallandi verkefni.
Þegar DV kom á staðinn var Steinn
Guðmundsson að fara í gegnum hinn
þétta frumskóg laga og reglna er lýtur
að dómgæslu. Til dæmis benti Steinn
á hin mörgu tilfelli, þar sem reynir á
dómgreind og hæfiii manna til að
„meta stöðuna rétt, hveiju sinni“.
DV hafði samband við Stein Guð-
mundsson eftir ráðstefhuna og spurði
hvort hann væri ánægður með undir-
tektir og hvort slíkar ráðstefiiur yrðu
haldnar úti á landi. Steinn upplýsti
eftirfarandi:
„Ég er mjög ánægður með þessa
fyrstu ráðstefhu, sem haldin hefur ver-
ið með eftirlitsdómurum hér á landi,
og sannfærður um að árangurinn skil-
ar sér í samræmdari vinnubrögðum
en verið hefur. Þessi ráðstefha var
r
i
(
í
Þátttakendur i ráöstefnu hæfnisnefndar KDSI fimmtudaginn 8. mai sl. - I aftari röð frá vinstri: Karl Ottesen, Halldór Gunnlaugsson, Magnús Gislason, á sæti i stjórn KDSi og hæfn-
isnefndar, Aðalsteinn Sigurjónsson, Kjartan Tómasson, Amþór Óskarsson, Halldór B. Hafliðason, Kristján Jónsson, Sveinn Árm. Sigurösson, Hinrik Árnason, Garðar Guðmundsson,
Sigurður Hannesson, stjórnarmaður i KSÍ. - Fremri röð frá vinstri: Eirikur Helgason, Björn Björnsson, Ingi Jónsson, form. KDSÍ, Steinn Guðmundsson, form. hæfnisn. KDSÍ, Einar
Hjartarson, fræðslustjóri, KDSÍ og Jörundur Þorsteinsson. Á myndina vantar þá Magnús V. Pétursson og Inga Guðmundsson. (DV-mynd HH).
fyrir eftirlitsdómara á suðvesturhom-
inu, en mjög fljótlega munum við hitta
þá á Norðurlandi og Austfjörðum.
Það er og stefna dómarasamtakanna
að litið verði til með dómurum yngri
flokkanna og þeim leiðbeint. Eftirlits-
dómarar úti á landsbyggðinni munu
gegna þessu starfi og einnig verður
það gert hér í Reykjavík, en KDR
hefur fengið Hreiðar Jónsson og Am-
þór Óskarsson, báða fyrrum milliríkja-
dómara, til þess að sinna þessu starfi.
Að vera knattspymudómari er mjög
vandasamt og erfitt starf. Og einu
skulum við standa klárir á - að „það
er enginn leikur án dómara“, og mein-
ingin með þessu starfi er að gera
íslenska knattspymudómara hæfari til
að takast á við hið vandasama og
krefjandi starf sem dómgæslunni fylg-
ir. Ég vil því í lokin, fyrir hönd
hæfnisnefhdar KDSÍ, senda öllum
knattspymudómurum og eftirlits-
dómurum bestu sumarkveðjur og óska
þeim velfamaðar í mikilvægum störf-
um þeirra í sumar.1
-HH.
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Landsbyggðinni
ekki gleymt
Einar Hjartarson, fræðslustjóri
KDSÍ, var spurður hvort þetta I
starf hæfhisnefhdar myndi skila
sér.
„Ef fylgst er náið með þeim
dómurum, sem em að hefja sinn
feril, geftir það augaleið að það
hlýtur að stuðla að aukinni
hæfni,“ sagði Einar.
Amþór Óskarsson, fyrrverandi
milliríkjadómari, sagði að þetta
hefði verið besta ráðstefrian sem
hann hefði nokkum tímann tekið
þátt í.
Ingi Jónsson, form. KDSf,
kvaðst aðspurður leggja mikið upp
úr þessu starfi hæfhisnefndar - og
að landsbyggðinni yrði ekki
gleymt í þessu tilviki.
-HH.
L
J