Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Side 5
DV. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1986. 5 Fréttir Fréttir Fréttir Vatnasvæði Lýsu: „Stórar torfur af bleikjum“ - segir Símon Sigurmonsson í Görðum „í Hópinu eru stórar torfur af • bleikju og þetta er jöfii stærð af henni, um hálft pund,“ sagði Símon Sigurmonsson í Görðum er við leit- uðum frétta af vatnasvæði Lýsu, en veiðileyfi hafa verið í boði þar. „Helgi, bróðir minn, hefur veitt mik- ið og ég lagði í dag, fékk 30 bleikjur. Helgi fékk 60 bleikjur í einni lögn- inni nýlega. Bleikjan er komin um allt, mest þó í Hópinu, en þetta er ekki ný bleikja, því hún er dökk á hryggnum, en bragðgóð er hún, virð- ist vera nóg æti handa henni. Menn geta komið og veitt silung á stöng og fengið að prófa að leggja net líka. Gisting og veiðileyfi, ætli það séu ekki um 500 krónur dagurinn." Fyrst við erum að tala um veiði- svæði á Snæfellsnesi fréttum við af veiðimanni sem renndi íyrir gæsung í Staðará en veiddi ekki neitt. Sagð- ist hann hafa farið nokkrum sinnum til veiða í Staðará en veitt allt annað en þennan gæsung sem sumir vilja halda fram að sé þar um slóðir. All- ar fréttir um gæsunga eru vel þegnar. Leirá hefur gefið nokkra fiska og hafa veiðimenn séð eitthvað af fiski í henni. Veiðunaðurinn sem nýlega veiddi þar setti í fisk á stremer og Veiðivon Gunnar Bender stóð viðureignin yfir í 20 mínútur og kom þá í ljós að þetta var niður- göngulax sem barðist svona fyrir lífi sinu. Þessi langa barátta kostaði hann lífið. Laxá í Leirársveit virðist gefa best í Laxfossi og þar fá veiðimenn hann yfirleitt fyrst. 3 punda fallegur sjó- birtingur veiddist fyrir skömmu í fossinum í fyrsta kasti og svo ekkert meir. G. Bender Sjóbirtingurinn veiðist og veiðimennirnir þurfa að skola af honum á eftir, það fylgir veiðinni. Grenlækur opnaður: Silungurinn tekur illa Það var spennandi að renna austur í vikunni og sjá að sumarið er ekki langt undan, bændur í óða önn i vorverkunum, sauðburður byijaður og lóur, spóar og tjaldur í túnum og ungir veiðimenn að dorga í bæjar- lækjum. „Það hefur verið heldur treg veiði í byrjun - Grenlækur var opnaður 8. maí - það er heldur kalt núna,“ sagði Davíð Stefánsson á Fossum. „Veiðimenn hafa verið að fá 10-15 fiska á dag og þá niður frá, litið verið reynt ofar í læknum, þeir eru 5-6 punda þeir stærstu. Töluvert af fiski hefur verið að stökkva um allt en hann tekur illa. Þetta myndi glæðast ef það hlýnaði næstu daga,“ sagði Davíð í lokin. Vatnamótin gáfú 176 fiska og hann var 11 punda sá stærsti, Geirlandsá gaf 78 fiska og sá stærsti var 9 punda. Veiðin í Fossálum og Hörgsá hefúr verið lítil en eitthvað hefúr þó fengist. Eftir að hafa skoðað þetta svæði er ekkert skrítið að veiðimenn kalli þetta firægasta sjóbirtingssvæði landsins. Það verður aftur reynt í haust. Sprengisandur ogTrival Pursuit með glæsilega spumingakeppni í DV 1300 vinninqar að verðmæti 2 milliónir Það geta allir verið með! Keppnin stendur í 10 vikur - Benzinn dreginn út í iO.viku Upplýsingar um fyrirkomulag keppninnar: Keppnin stendur í 10 vikur og hefst laugardaginn 10. maí og lýkur 16. júlí. Nýr seðill birtist vikulega með 6 nýjum spurningum, nema 10. vikuna, þá verða spurningarnar 60. Spurningaseðlarnir birtast í DV á hverjum fimmtudegi og verða síðan endurbirtir á laugardögum og mánudögum. Allar spurningarnar í keppninni eru fengnar að láni úr „Trival Pursuit" spurningaleiknum vinsæla. Nýir vinningar dregnir út vikulega, á fimmtudögum. Vinningshafar fá send bréf með tilkynningu um vinninga. Allir geta verið með - það þarf ekkert að kaupa til að öðlast þátttökurétt. Það er ekki nauðsynlegt að svara öllum spurningunum á hverjum seðli, en sá sem svarar flestum hefur mesta möguleika. Hver og einn má senda fleiri en einn seðil með svörum. Svarseðlar þurfa að hafa borist til Sprengisands fyrir miðvikudagskvöld hverrar viku. Utanbæjaraðilar geta póstlagt sína seðla í siðasta lagi á þriðjudegi. VINNINGAR I 1. VIKU 1 Sólarlandaferð frá Pólaris 10 Trival Pursuit spil 10 Úttektir á Diet Coke/HiCi vörum 100 Máltíðir á Sprengisandi 121 vinningur vikulega Gazella 1100 Hljómtæki 100 M Ufcwifu Rpnz máltíðir Vídeó og Trival L/Ul IdL á 1 milljón! frá sjónvarp Pursuit Sprengisandi frá Hljómbæ spil Bílhlass af Diet Coke/HiCi vörum 6 ferða- vinningar frá Ferðaskrif- stofunni Pólaris KLIPP -V KLIPP v KLIPP x. KLIPP ^ KLIPP x KLIPP KLIPP < KLIPP < KLIPP -v KLIPP <■ Spurningaseðill 1-viku - svarið eins mörgum spurningum og þið getið SKILSÐ SEÐLINUM INN A SPRENGISAND FYRIR MIÐVIKUDAGSKVOLD14. MAI - NÝR SEÐILL BIRTIST í DV FIMMTUDAG 15. MAÍ. tt D Q Z .. ^ Q -Í OS Z u. UJ CL V) cn ^ ca O C CD C G3 O. c c ■S £

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.