Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Side 6
6
DV. MÁNUDAGUR 12. MAl 1986.
Peningamarkaðurinn
tnnlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn-
stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74
ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri
með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningamir eru
verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtiyggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem-fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
10% en 2% bætast við eftir hveija þrjá mán-
uði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á
óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13%
nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið-
réttingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 14,5% nafnvöxtum og
15% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3% vöxt-
um. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð. Á
hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk
1% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út
tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess
að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06.
og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun eða
ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára afmælisreikningur er verðtryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25%
og breytast ekki á meðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði 8,
50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6
mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir
18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir
og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 13%, eða ávöxtun 3ja mánaða
verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxtum
sé hún betri. Samanburður er gerður mánað-
arlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út
af reikningnum gilda almennir sparisjóðs-
vextir, 8%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. E>á ársfjórðunga, sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni, eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 12,9% eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung. Vextir færast fjórum sinnum á
ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf
lausir til útborgunar.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 12,5%, með
13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist
trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun
bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður
innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél-
stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði,
óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir
eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun er
því einnig 15,5%.
18 mánaða reikningar. Nokkrir stærri
sparisjóðanna eru með innstæðu bundna
óverðtryggða í 18 mánuði en á 14,5% nafn-
vöxtum og 15,2% ársávöxtun.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mesf 14 ára. Með
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða
óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum.
Þau eru seld með affollum og ársávöxtun er
almennt 12-16% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til
einstaklinga 782 þúsundum króna, 2-4 manna
fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 391 þúsund krónur til einstakl-
ings, annars mest 195 þúsund. 2-4 manna
Qölskylda fær mest 497 þúsund til fyrstu
kaupa, annars mest 248 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 580 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 290 þúsund. Láns-
tími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lifeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóðurákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150-1000 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15-42
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað-
ir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir
reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári
verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður
þá hærri en nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma-
bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því
10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu
dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún
getur jafnvel orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónumar inni í 6 + 6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft-
ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur
og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni
6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan
því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á
mánuði eða 27% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í maí 1986 er 1432 stig
en var í mars 1428 stig, í febrúar 1396 og jan-
úar 1364 stig. í apríl var hún 1425 stig. Miðað
er við grunninn 100 í júní 1979.
Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986
er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924
stig á grunni 100 frá 1975.
Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04.
en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi
vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar
sem við hana er miðað sérstaklega í samning-
um leigusala og leigjenda.
íslenska krónan hefur verið í tals-
verðu ölduróti gengisbreytinga helstu
mynta í heiminum. Meðalgengi henn-
ar gagnvart erlendum myntum hefur
þó lækkað minna en oft áður, um því
sem næst 3% frá áramótum.
Gengislækkun bandaríska dollarans
hefur orðið ennþá meiri. Gagnvart
krónunni okkar hefur dollarinn lækk-
að um 3,6% það sem af er árinu.
Myntir annarra helstu viðskiptaþjóða
okkar hafa þvert á móti hækkað.
Mest hefur japanska jenið hækkað,
um 16,3%. Þýska markið hefur hækk-
að um 8,3%, franski frankinn um 4,2%
og enska pundið um 3%. Þessar mynt-
ir ásamt dollamum mynda SDR-safh-
myntina. Hún hefur hækkað um 3,4%.
Breytingamar hafa meðal ann’ars í
för með sér að minna fæst fyrir vörur
sem seldar eru á dollaraverði en meira
fyrir vörur seldar á verði miðuðu við
aðra erlenda gjaldmiðla. Skuldir í
dollurum lækka, aðrar hækka.
HERB
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%)
01.-10.05. 1986
INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM
SJÁ sérlista
INNLÁN ÖVERÐTRYGGÐ
CmAN TIL FRAMLEIOSLU
SJANE0ANMALS1)
SPARISJÓÐSBÆKUR Úbundin innstæða 9.0 9.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 8.5 8.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 10.0 10.25 10.0 9.0 8.5 10.0 8.5 9.0 10,0 9.0
6mán. uppsogn 12,5 12.9 12.5 9.5 11.0 10,0 10.0 12.0 10.0
12mán.uppsögn 14,0 14,9 14,0 11.0 12.6 12,0
SPARNAÐUR - LANSRÉTTUR Sparað 3-5 mén. 13,0 13.0 8.5 10.0 8.0 9.0 10.0 9.0
Sp. 6 mán. og m. 13,0 13.0 9.0 11.0 10.0 10.0
TÉKKAREIKNINGAR Avisanareikningar 6.0 6.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
Hlaupareikningar 4.0 3.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
INNLÁN VERÐTRYGGÐ SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 6 mán.uppsögn 1,0 3.5 1.0 3.0 1.0 2.5 1.0 2.5 1.0 3.5 1.0 2.5 1.0 3.0 1.0 3.0 1.0 3.0
INNLÁN GENGiSTRYGGÐ GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 7.5 6.0 6.0 6.0 6.5 6.25 7.0 6.25
Sterlingspund 11.5 11.5 9.5 9.0 9.5 10.0 10.0 11.5 9.5
Vestur-þýsk mörk Danskar krónur 4.5 8,0 4.0 9.5 3.5 7.0 3.5 7.0 3.5 7.0 3.5 7.5 3.5 7.0 3.5 7.0 3.5 7.0
ÚTLÁN ÚVERÐTRYGGÐ ALMENNIR ViXLAR (forvextir) 15.25 15.25 15.25 15,25 15.25 15,25 15.25 15.25 15.25
VIÐSKIPTAVlXLAR 3) (forvextir) kge 19.5 kge 19.5 kge kge . kge kge
ALMENN SKULDABRÉF 2) 15,5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15,5 15.5 15.5
VIÐSKIPTASKU LDABRÉF 3) kge 20,0 kge 20,0 kge kge kge kge
HLAUPAREIKNINGAR yfirdrAttur 9.0 9.0 9.0 9.0 7.0 9.0 9.0 9.0 9.0
ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ SKULDABRÉF Aö 21/2 ári 4,0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Lengri en 21/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 b.O
MÍÍiiiilillil sí
1) Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn-
ings, í SDR 8%, í Bandaríkjadollurum 8,25%, í sterlingspundum 11,5%, í vestur-
þýskum mörkum 6%. 2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2%,
bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. 3) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskipta-
skuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá þeim
bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóðunum.
Viðskipti
Viðskipti
Viðskipti
„Farmgjöld hafa
hækkað allt að 40%
- segir Haraldur Haraldsson hjá Andra hf.
át
„Á síðustu mánuðum eftir að Haf-
skip fór á hausinn hafa flutnings-
gjöldin hækkað um 20-40%. Síðan
hafa rekstrargjöld lækkað á olíu um
50-75% en flutningsgjöldin hafa ekk-
ert lækkað," sagði Haraldur Har-
aldsson hjá Andra hf. en fyrirtækið
flytur út bæði fisk og fiskimjöl.
„Það er bara blekking að vera að
tala um að farmgjöldin hafi ekki
hækkað í erlendri mynt. Evrópu-
myntir hafa hækkað um 30%
gagnvart íslensku krónunni á síð-
asta ári. Loks hefúr olíuverð lækkað
en olían er 20-25% af rekstrarkostn-
aði flutningaskipa og þá er alveg
lágmark að flutningsgjöld lækki um
10-20%. I útflutningi er þetta 184
krónur á tonn. Ef við miðum við
ársframleiðsluna á fiskimjöli, sem er
um 200 þúsund tonn, en það er að-
eins brotabrot af því sem við flytjum
út, þá eru þetta 37 milljónir sem
munar þar.“
Haraldur sagði að hér við land
væru sjaldan laus erlend skip. Út-
flutningsaðilar væru því bundnir við
að kaupa þessa flutninga af íslensku
skipafélögunum. I sambandi við inn-
flutning væru engir aðrir möguleik-
ar og menn yrðu að gjöra svo vel
að borga það verð sem upp væri sett.
Haraldur tók sem dæmi um há
„Það er hrein blekking að segja að farmgjöld hafi ekki hækkað i erlendri mynt eins og
i auglýsingu nýlega," segir Haraldur Haraldsson.
flutningsgjöld hér á landi að það
kostaði 20-30 dollara á tonnið að
sigla með 2000 tonn af fiskimjöli frá
Chile til Bremen, sem er um 40 daga
sigling með erlendu skipafélagi, á
meðan flutningur á sams konar hrá-
efni frá íslandi á markað í Evrópu,
sem væri 4-5 daga sigling, kostaði
30-36 dollara á tonnið.
-EH
Eifiðara að ná hag-
kvæmum viðskiptum
„Við erum í viðræðum við skipafé-
lögin um þetta. Málið er á mjög
viðkvæmu stigi og ég vil sem minnst
ræða um það,“ sagði Georg Ólafeson
verðlagsstjóri varðandi kvartanir
þær sem Verðlagsstofhun hefur bo-
rist fió ýmsum aðilum í inn- og
útflutningi varðandi flutningsgjöld
íslensku skipafélaganna. Haft var
eftir Georg í blaðaviðtali að menn
kvörtuðu yfir því að aukin harka
hefði færst í verðlagningu á flutn-
ingum til landsins eftir gjaldþrot
Hafekips. Kæmi þetta meðal annars
fram í stórlega rýrum afelætti hjá
skipafélögunum.
Ami Reynisson hjá Félagi stór-
kaupmanna sagði í samtali við DV
að menn teldu sig finna mun á að-
stöðu til að gera hagkvæm viðskipti
við skipafélögin eftir að Hafekip leið.
Nokkrir þeir aðilar sem DV ræddi
við höfðu ýmislegt út á íslensku
skipafélögin að setja en vildu alls
ekki að neitt væri eftir þeim haft.
Sögðust þeir vera hálfþartinn undir
hælnum á skipafélögunum og við-
skiptahagsmunir í húfi. Eða eins og
einn innflytjandi sagði, að það væri
of kostnaðarsamt að styggja skipafé-
lögin því menn gætu átt von á því
að þjónustan versnaði skyndilega.
-EH
Ávísanir teknar í Áfengisversluninni
Frá og með deginum í dag, 12. maí,
mun Áfengis- og tóbaksverslun ríkis-
ins taka við ávísunum undir 3. 000
krónum sem er sú upphæð sem banka-
ábyrgð takmarkast við.
Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR,
sagði í viðtali við DV að hingað til
hefði það ekki verið áfengisverslunin
sem hafhað hefði ávísunum heldur
útibússtjórar á hverjum stað því hing-
að til hefðu þeir þurft að bera ábyrgð
á tékkunum. „Eina óvissuatriðið er
hvort bankamir bera ábyrgð á ávísun-
um sem gefnar eru út í röð, ef fyrri
ávísunin hljóðar upp á hámarksupp-
hæð, þannig að þeir muni ekki bera
ábyrgð á seinni ávísuninni. Þetta er
ennþá óvissuatriði en til að byrja með
mun fyrirtækið þá taka á sig ábyrgð-
ina gagnvart útsölustjórunum," sagði
Höskuldur að lokum.
Helgi Steingrímsson, deildarstjóri
tæknisviðs Landsbankans, sagði að
samkvæmt reglunum um bankaábyrgð
næði hún ekki til ávísana sem gefhar
eru út í röð á sama móttakanda. Ef
keypt væri fyrir 6.000 krónur og gefh-
ar út tvær ávísanir, hvor upp á 3.000
kr., næði bankaábyrgðin strangt 1
tekið ekki til seinni tékkans. „Þí
getur orðið talsvert erfitt að fylg
þessum reglum eftir nema komi 1
lokunar á reikningi og yfirferð leiði
ljós að reikningshafi hefur vísvitan
reynt að fara í kringum ákvæði u
hámarksupphæð," sagði Helgi Steii
grímsson.
Enn er því óljóst hvemig fer m«
tékkaviðskipti í Áfengisversluninni c
hvort fyrirtækið er reiðubúið til e
ganga í ábyrgð fyrir þeim ávísunui
sem bankamir tryggja ekki. S.Kor
Dollarinn niður um 3,6% en jenið upp um 16,3%:
Meðalgengið hefur lækkað um 3%