Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Page 9
DV. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1986.
9
Útlönd Útlönd
Japanir undirrituðu skilyrðislausa uppgjöf sína fyrir bandamönnum á dekki orrustuskipsins
Missouri þann 2. september 1945. Eftir 30 ár sem sjóminjasafn og i mikilli niðumislu hefur
orrustuskipið nú aftur verið tekið i notkun í bandariska flotanum.
Orrustuskipið
Missouri
aftur í gagnið
Bandaríska orrustuskipið Missouri
var formlega tekið í notkun á ný
bandaríska sjóhemum á laugardag,
eftir áralanga endumýjun.
Missouri tók þátt í átökum Banda-
ríkjamanna og Japan á Kyrrahafi á
árum síðari heimsstyrjaldar og ávann
sér frægð fyrir að vera vettvangur
skilyrðislausrar uppgjafar japanska
keisaradæmisins undan ströndum
Japan þann 2. september 1945.
„Endurfæðing flotans"
„Endurkoma Missouri er hluti af
endurfæðingu bandaríska flotans og
auknum styrkleika eftir áralangt
skilningsleysi ráðamanna á mikilvægi
sterks flotasagði Weinberger vam-
armálaráðherra er orrustuskipið var
formlega vígt til flotastarfa á ný.
Alls kostuðu endurbætumar í
Missouri 475 milljónir dollara og hafa
margir orðið til að gagnrýna þær gíf-
urlegu upphæðir er Reagan stjómin
hefur lagt fram til endurbóta gamalla
skipa, en Missouri er fjórða banda-
ríska herskipið frá dögum síðari
heimsstyrjaldar er gert hefur verið upp
frá því Reagan tók við völdum.
Diane Feinstein, borgarstjóri San
Fransiskó, heimahafiiar Missouri, hef-
ur lýst yfir áhyggjum sínum yfir því
að borgin skuli vera heimahöfii orr-
ustuskipsins og telur það auka líkum-
ar á því að hún verði skotmark í
stórveldaátökum.
Mestu flóð
í 500 ár
Farþegum á leið til flugvallarins í
Bangkok á Thailandi var ráðlagt að
gera ráð fyrir að hin venjulega greið-
færa 30 kílómetra leið á alþjóðaflug-
völlinn gæti tekið að minnsta kosti
fjóra klukkutíma að fara vegna gífur-
legs úrfellis og flóða í Thailandi um
helgina.
Veðurfræðingar segja að mesta rign-
ingarveður í 500 ár hafi gengið yfir
landið um helgina.
Yfir 90 prósent höfuðborgarinnar
Bangkok vom í gær umflotin vatni
eftir rigningarskúr aðfaranótt föstu-
dags og á laugardag þar sem úrkoman
var yfir 381 millímetrar á einum sólar-
hring.
Þegar er vitað um fjögur dauðsföll
í Thailandi vegna úrkomunnar og ljóst
að fjölmargir hafa misst heimili sín
vegna flóða.
Svissnesk lyf
til Chernobyl
Töluverðu magni svissneskra lyfja var
flogið til svæða í nánd við Chemobyl
kjamorkuverið í Úkraínu um helgina.
Að sögn svissneskra yfirvalda em
lyfin sérstaklega ætluð fómarlömbum
geislunar. Sumum fómarlömbum
geislunar má hjálpa með því áð skipta
um beinmerg með skurðaðgerð.
I lok síðustu viku hafði bandarískum
og sovéskum beinasérfræðingum tek-
ist að framkvæma slíkar skurðaðgerð-
ir á 10 af 33 sovéskum borgurum er
þurfa að gangast undir mergskipti-
aðgerð vegna Chemobyl kjamorku-
slyssins.