Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Blaðsíða 10
10
DV. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1986.
Útlönd Utlönd Útlönd Útlönd
í algleymingi
Þar er ötbiigðin
Austantjaldsríki kúga fólk
til njósna með hótunum
Jón Ormur Halldórsson, fréttaritari
DV í Haag:
Þriðju kosningamar í 15 ára sögu
Bangladesh hafa endað í ólgu og
yfirvofandi upplausn.
Fréttamenn og hlutlausir aðilar
telja að flokkar, hliðhollir ríkisstjóm
Ershads hershöfðingja, hafi með að-
stoð hersins staðið íyrir stórfelldum
kosningasvikum og ofbeldi.
Þrátt fyrir þetta virðast stjómar-
andstöðuflokkamir hafa fengið lítið
færri atkvæði en flokkabandalagið
í kringum ríkisstjómina.
Heldur uppi merki föðurins
Fjöldi stjómmálaflokka tók ekki
þátt í kosningunum og hvatti fólk
til að sitja heima, en Awalibandalag-
ið, er leiddi Bengali til sjálfstæðis frá
Pakistan fyrir 15 árum, leiddi sam-
steypu flokka, sem tóku þátt í
þessum kosningum en herinn hefur
stjómað landinu mest í stuttri sögu
þess.
Leiðtogi Awalibandalagsins er
Hazina Wajed, dóttir Mujibur Rah-
man, sem leiddi landið til sjálfetæðis
með aðstoð Indverja árið 1971. Hann
var myrtur fjórum árum síðar og
eftirmaður hans á valdastóli var
einnig myrtur efitir álíka langa setu
við stjómvölinn.
Vandamálin gífurieg
Óhugsandi er að nota hugtök á
borð við hægri og vinstri til þess að
útskýra bengölsk stjómmál, en Aw-
alibandalagið myndi af flestum
mannfallið á ári varla minna en í
verstu hungursneyðum Afríku.
Þrátt fyrir þessar staðreyndir er
sjaldgæft að sjá fréttir frá Bangla-
desh í vestrænum fjölmiðlum.
Fæstir vilja af því vita
Sérffæðingur í málefhum Bangla-
desh skýrði þetta fyrir fréttaritara
DV með því að ástandið væri svo
óhugnanlegt og svo vonlaust að
fæstir vildu af þvi vita, en fátækt
þessara 100 milljóna manna er slík
að hvomgt stórveldanna hefur
nokkum áhuga á landinu.
Sérfræðingurinn spáði hins vegar
stórfelldri hungursneyð á næstu
misserum og kvað áhuga manna þá
mundu vakna um stund.
Stórfelld þróunaraðstoð og mat-
vælaaðstoð við landið á siðustu
árum er hins vegar sennilega ein
mikilvægasta skýringin á þvi hvem-
ig komið er, þar sem aðstoð frá
útlöndum hefúr gert valdastétt
landsins mögulegt að stjóma og það
á kostnað matvælaframleiðslu án
þess að til algerrar hungursneyðar
hafi komið.
Erlend afskipti til bölvunar
Þrátt fyrir gífurlegt þéttbýli í
landinu em möguleikar til þess að
fæða alla landsmenn bara sæmilegir.
Afekipti erlendra aðila af þróun
landsins hafa sennilega flest orðið
því til bölvunar með því að auka
ójöfhuð og spillingu og lama inn-
lendan landbúnað.
Gunnlaugur A. Jónsson, fréttaritari
DV í Lundi:
„Fólk, er á ættingja austan jám-
tjalds, skyldi forðast störf innan
„viðkvæmra" greina iðnaðarins,"
segir Rolf Dolk, öryggisgæslusfjóri
hjá sænska fyrirtækinu Saab-Scania,
í blaðaviðtali í kjölfar nýjasta
njósnamálsins í Svíþjóð er fimm
tékkneskum sendiráðsstarfemönn-
um var í síðastliðinni viku vísað úr
landi fyrir meinta njósnastarfeemi.
Þrýstingur að austan
Dolk segir að fólk, sem á ættingja
í austri, eigi á hættu að vera beitt
slíkum þrýstingi að austan að það
eigi nánast engra kosta völ annarra
en gerast iðnaðamjósnarar.
Þeir tékknesku stjómarerindrek-
ar, er nú hefur verið vísað úr landi,
höfðu meðal annars samið mjög ítar-
lega tölvuskrár yfir Svía og land-
flótta Tékka í Svíþjóð.
Sovétríkin dregist aftur úr
Upplýsingar um sænskan iðnað
em mjög mikils virði austan jámtj-
alds, ekki síst þar sem Sovétríkin og
aðrar Austur-Evrópuþjóðir hafa
dregist mjög aftur úr í tölvuþróun-
inni vegna banns Bandaríkjanna við
útflutningi á háþróaðri tækni til
Austur-Evrópu.
Sænsku öryggislögreglunni tókst
að upplýsa tékkneska njósnamálið
með því að nota gagnnjósnara.
Sænska öryggislögreglan hvatti
fólk, er skýrt hafði frá því að það
hefði verið beitt þiýstingi að austan,
til þess að halda sambandinu áfram
og skýra síðan sænsku lögreglunni
frá gangi mála.
Sænska öryggislögreglan hefur
meðal annars varað sænsku fyrir-
tækin í rannsóknarbænum Ideon í
Lundi, þar sem starfa fyrirtæki í
samvinnu við háskólana hér er
vinna að margs konar vísindarann-
Umsjón:
Hannes
Heimisson
sóknum, við hættunni á að útlend-
ingar notfæri sér þessa opnu
starfeemi. „Það getur verið erfitt fyr-
ir minni fyrirtæki með litla reynslu
að gera sér grein fyrir tilraunum til
iðnaðamjósna. Við erum nú að und-
irbúa menntun í öryggisgæslu fyrir
þessi fyrirtæki. Stærri fyrirtæki gera
sér yfirleitt betur grein fyrir hæt-
tunni,“ sagði Dolk ennfremur.
Ahugi á tölvuiðnaði
Tékkamir fimm, er vísað var úr
landi, höíðu einkum sýnt áhuga á
sænskum tölvuiðnaði og tölvunotk-
un í ýmsum af þekktustu fyrirtækj-
um Svía, svo sem Saab-Scania,
Ericsson og Bofors.
Hinn hemaðarlegi þáttur njósn-
anna var þó ekki talinn mjög
alvarlegur.
„Fólk, er á ættingja austan jámtjalds, skyldi forðast störf innan „viðkvæmra'1 greina iðnaðarins," segir Roff Dolk,
öryggisgæslustjóri hjá sænska stórfyrirtækinu Saab-Scania, en þar er þessi mynd tekin.
Hazina Wajed, dóttir Mujibur Rahmans, fyrrum þjóðarleiðtoga Bangladesh, á kosningafundi í höfuðborginni Dakar fyrir skömmu.
Hazina er leiðtogi Awalibandalagsins sem er í stjómarandstöðu og átti miklu fylgi að fagna í kosningunum.
teljast til vinstri við núverandi her-
stjóm sem er hliðholl Bandaríkjun-
um frekar en Sovétríkjunum.
Vandamál Bangladesh em svo gíf-
urleg að flestir er til þekkja em
vonlausir um sæmilega tíð þar í
landi í nánustu framtíð. Ibúafjöldi
landsins er kominn yfir 100 milljónir
og landið er aðeins 140 þúsund fer-
kílómetrar, eða um þriðjungi stærra
en ísland.
Ein samfelld byggð
En landið er í rauninni ein sam-
felld keðja af einum 65 þúsund
þorpum sem flest em ó stærð við
íslenska kaupstaði. Hungur er meira
í landinu en nokkurs staðar annars
staðar í veröldinni, talið er að um
70 milljónir manna búi þar við nær-
ingarskort af einhverju tagi.
Á þessu ári munu fæðast meira en
fjórar milljónir bama á þessum litla
landskika og að minnsta kosti 700
þúsund böm munu deyja vegna af-
leiðingar fátæktar.
Á venjulegu ári í Bangladesh er