Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Síða 11
DV. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1986. 11 Fangelsismál á íslandi í ólestri: ?;Viljum koma í veg fyrir að dvölin skaði vistmenn“ - segir Bjami Sigurjónsson, trúnaðarmaður á LHIa-Hrauni Vinnuhæliö að Litla-Hrauni: lélegur aðbúnaöur segja fangaverðir. Fangelsismál á Islandi eru í miklum ólestri eins og hefur komið fram í DV að undanfömu. Fangelsi eru fá og aðbúnaður í þeim er vægast sagt léleg- ur, bæði fyrir vistmenn og starfsmenn. Vinnuhælið að Litla-Hrauni er á opnu svæði þannig að greiður aðgang- ur er til að smygla þangað inn fíkni- efnum. „Það heftir færst í aukana að menn, sem hafa fengið fíkniefnadóm, séu settir í varðhald. Ég tel þó fullmik- ið gert úr fíkniefhavandamálum hér á Litla-Hrauni. Meirihluti fanganna hér em menn sem vilja hafa hlutina í lagi,“ sagði Bjami Siguijónsson, trún- aðarmaður stariknanna á Litla-Hrauni. Bjami sagði að aðstæður væm þó þannig að starfsmenn gætu lítið gert fyrr en mál væm komin í óefni. „Það þarf auðvitað að gera fyrirbyggjandi aðgerðir þannig að ekki sé möguleiki á að fíkniefni streymi inn. Við höftun leitað á gestum en það er mjög við- kvæmt mál. Flestir gestir sem koma hingað bera ekki inn fíknieíhi,“ sagði Bjami. „Þær hugmyndir hafa verið í gangi að deildaskiptingu verði komið á hér að Litla-Hrauni þannig að fangar hafi eitthvað til að keppa að, fái betri að- stöðu fyrir góða hegðun. Þeir fangar, sem fara eftir settum reglum, eiga heimtingu á því. Það er ekki hægt að láta örfáa fanga skemma fyrir þeim. Aðstæður hér em á margan hátt vægast sagt mjög daprar. Það er átak- anlegt að horfa upp á 56 fanga búa hér við þrengsh. Hér em saman komn- ar ýmsar manngerðir sem eiga ekki samleið. Það er oft erfitt að horfa upp á menn þurfa að líða fyrir agabrot sem 1-2 fangar hafa framið," sagði Bjami. Fangaverðir og fangar hafa verið óhressir með að mönnum í mjög slæmu ástandi hefur verið komið fyrir á Litla-Hrauni. Nú er einn geðveikur maður þar sem erfitt hefur verið að sinna. Maðurinn hefur sýnt ofbeldi og skapað spennu í kringum sig. Þessi maður ætti að mati fangavarða frekar að vera undir læknishendi heldur en á Litla-Hrauni. Efla þarf íþróttir og útivist Bjami sagði að vinna heföi farið minnkandi hjá vistmönnum á Litla- Hrauni. „Undanfarin ár hefúr verið hér hellusteypa. Samkeppnin er orðin hörð í hellugerð þannig að erfitt hefur reynst að útvega öllum vistmönnum vinnu. Við þetta hefúr dauðum timum fjölgað hjá föngum sem hafa lítið fyrir stafrii annað en að horfa á myndbönd. í kringum 1980 var hér mikill íþróttaá- hugi og vom þá t.d. reglulega háðir kappleikir í knattspymu við lið frá Selfossi og Þorlákshöfn. Á þessum árum urðu agabrotin hér færri. Það er því æskilegt að skapa vistmönnum aðstöðu til að stunda íþróttir og úti- vist,“ sagði Bjami. Hann sagði einnig að þar sem Litla- Hraun væri í fjársvelti á svo mörgum sviðum væri lítið hægt að aðhafast þó að vilji væri fyrir hendi. „Gústaf Lálli- endahl forstjóri hefur komið með margar góðar hugmyndir en peninga hefur vantað til að framkvæma. Það hafa ekki fengist peningar fyrir við- haldi hvað þá öðm.“ Stefnumörkun vantar „Það sem vantar er samrinna á milli aðila til að gera hlutina betri. Það hefur verið erfitt að fá málefnalegar umræður um fangelsismál. Ástæðan fyrir því er eflaust sú að við höfum fengið hrokafull svör frá þeim mönn- um sem sjá um málin í dómsmálaráðu- neytinu en þeir em lagnir við að halda málum niðri. Fyrir nokkrum árum var komið á sérstakri fangelsismálanefhd sem alþingismenn eiga sæti í. Það hefur lítið heyrst frá nefhdinni og það sem meira er: Hún hefur ekki séð ástæðu til að ræða eitt einasta orð við starfsmenn eða forstöðumann Litla- Hrauns,“ sagði Bjami. uBjami sagði að besta dæmið um stefhuleysið væri að fyrir nokkrum árum heföi verið settur upp skóh að Litla-Hrauni, í tið Helga Gunnarsson- ar. Skólinn er starfræktur í hænsna- húsi sem fékkst gefins frá Hveragerði. Sveinn Ágústsson hefði stjómað skól- anum af miklum myndarskap. „Við sáum fanga gjörbreytast þegar þeir kveiktu á perunni, að þeir gátu lært og fengu aðstöðu til þess. Þessi litli vísir að skóla er enn í hænsnahúsinu. Um hann heyrðist aldrei frá dóms- málaráðuneytinu fyrr en vel fór að ganga og skólinn vakti athygli. En ráðuneytið hefur þó ekki séð ástæðu til að bæta aðstöðuna í sambandi við þennan skóla,“ sagði Bjami. „Við erum ekki að fara fram á neina höll hér að Litla-Hrauni heldur viljum við að sem best fari um vistmenn. Nú er tíu vistmönnum of margt hér miðað við húsnæði og starfskraft. Takmarkið hjá okkur starfsmönnum er að vist- menn fari héðan út betri þjóðfélags- þegnar heldur en þeir vom þegar þeir komu inn. Við viljum koma í veg fyrir að dvölin hér skaði vistmenn. Okkur er fyllilega ljóst að það þarf fljótlega að gera stórátak í fangelsismálum. Það er ekki lengur hægt að loka aug- unum fyrir frekar lélegum aðbúnaði í íslenskum fangelsum," sagði Bjami. -sos Viðtalið Viðtalið Viðtalið Viðtalið Reynir Kristinsson, aðstoðarmaður menntamálaráðherra: Margt bundið við fimm ár Reynir Kristinsson, nýráðinn að- stoðarráðherra Sverris Hermanns- sonar menntamálaráðherra, er fæddur og uppalinn í Haftiarfirði. Hann segist ekki hafa þurft að gjalda þess að vera Hafrifirðingur. „Það var ekki byijað að gera grín að Hafh- firðingum þá,“ sagði Reynir, sem er 39 ára. „Ég fluttist tvítugur til Reykjavík- ur, hóf búskap með konunni minni, Lilju Guðmundsdóttur, og nám í Tækniskólanum." í Tækniskólanum var Reynir í þijú ár og flaug þá til Danmerkur í framhaldsnám í bygg- ingartæknifræði. „Konan mín tók það að sér að framfæra mig á náms- árunum. Þá var ekki til lánasjóður til að byggja afkomu sína á.“ Gátu keypt hús Reynir bjó í Óðinsvéum í Dan- mörku í fímm ár, kláraði bygginga- tæknifræðina eftir tvö ár og hóf þá störf hjá ráðgjafarfyrirtæki við stjómun verkefna. Með vinnunni byrjaði hann siðan aftur í námi, tók enn eina viðbót við tæknifræðina, eða nám í stjómunarstörfum. „Þetta var skemmtilegur tími fyrir mig en erfíður fyrir tjölskylduna. Að vísu höföum við það gott, þetta var áður en olíukreppan hófst, og í Danmörku ríkti góðæri. Um leið og ég fór að vinna þarna úti gátum við keypt okkur hús.“ Kippt inn fyrir borð Árið 1975 kom Reynir heim og fékk strax vinnu á Akranesi, við að byggja upp og stjóma tæknideild bæjarins. „Á Akranesi bjó ég í fimm ár og líkaði vel, það var mikill upp- gangur á Akranesi á þeim tíma. En ég vildi breyta til og byijaði að líta í kringum um mig eftir annarri vinnu. Ég leitaði til ráðningarþjón- ustu Hagvangs og af einhverjum ástæðum kipptu þeir mér inn fyrir borð og ég hóf störf sem ráðgjafi hjá Hagvangi. Ég vann mest sem ráð- gjafi fyrir sveitarfélögin. Það er svo margt fimm ára bundið hjá mér. Ég var fimm ár í Dan- mörku, fimm ár á Akranesi og starfaði i fimm ár sem starfsmaður hjá Hagvangi, en er nú orðin einn af eigendum Hagvangs." Kom fiatt upp á mig „Ég kynntist Sverri Hermanns- svni, er hann var iðnaðarráðherra. Ég var þá að vinna að heildarskoðun á Rafmagnsveitum Reykjavíkur, sem iðnaðarráðuneytið fól Hagvangi að framkvæma. Mér hefur líkað vel að vinna með Sverri. En það kom mjög flatt upp á mig er hann haföi sam- band og bað mig að verða sinn aðstoðarmaður. Eg tók mér um- hugsunarffest, því ég varð að vega það og meta hvaða áhrif þetta starf heföi á fyrirtækið sem ég var að kaupa. Það varð síðan ofan á að ég tæki starfið að mér hálfan daginn.“ Heimilisstörfin Reynir býr nú ásamt konu sinni og fjórum bömum að Fljótaseli 4 í Breiðholti. „Konan mín vinnur heima, hugsar um bömin og sinnir öllum störfum heimilisins. Ég get víst ekki hælt mér af þátttöku í heimilisstörfum. Þegar ég á frí reyn- um við að fara saman á skíði og við erum þegar búin að setja skíðin und- ir 2ja ára son okkar. Á sumrin ferðumst við gjaman til útlanda. I sumar förum við sennilega öll saman til Kölnar í Þýskalandi." -KB Reynir Krislinsson, aðstoðarmaður menntamálaráðherra, getur i heimilisstörfum. DV-mynd KAE

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.