Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Síða 13
DV. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1986.
13
feytendur Neytendur Neytendur
Verðmiðinn yfir útninna dagstimplun
„Mér finnst ákaflega hvimleitt,
svo ekki sé meira sagt, hvemig
verðmiðamir em límdir yfir dagst-
implunina sem oft er gengin úr
gildi. Það er engu líkara en að það
sé verið vísvitandi að fela að oft ó
tíðum er þessi dagsetning gengin
úr gildi,“ sagði ung kona í samtali
við neytendasíðuna.
„Það var eiginlega fyrir tilviljun
að ég tók eftir þessu. Ég var stödd
í verslun og þar var öskureið kona
að kvarta yfir þessu. Hún reif hvern
miðann eftir annan af bamamat-
arglösunum og lét óánægju sína í
ljós bæði hátt og skýrt.
Þessi bamamatur var dagstimpl-
aður 30. nóv. sl.
Ég hafði samband við heildsölu-
fyrirtækið sem lofaði að athuga
málið og ræða við búðareigandann.
En ég er viss um að þetta er ekki
eina búðin sem selur barnamat með
útmnninni dagstimplun. Þetta er
svona í fleiri verslunum.
Ég vil bara hvetja fólk til þess
að athuga gaumgæfilega dagst-
implun á þeim mat sem það
kaupir," sagði konan.
Við tökum undir það. Gefið gaum
að dagsetningunni. Við höfum t.d.
tekið eftir því að mikill munur er
á hrökkbrauði sem komið er frarn
yfir síðasta söludag, jafnvel þótt
það sé ekki nema „best before“
dagsetning. Við vekjum athygli á
að bannað er að selja vöm, jafhvel
á niðursettu verði, ef hún er komin
fram yfir dagsetninguna. Hins veg-
ar er ekkert sem mælir á móti því
að verðið sé lækkað skömmu áður
en dagsetningin rennur úr gildi en
jafnframt sé vakin athygli ó dag-
setningunni.
-A.Bj.
Raddir neytenda Raddir neytenda
„Ég versla aldrei aftur í
Skíðaskálanum í Hveradölum"
Regin hringdi
og sagði sínar farir ekki sléttar af
helgarheimsókn í Skíðaskálann i
Hveradölum:.
„Við skmppum austur í Hveragerði
um daginn og á bakaleiðinni komum
við við í Skíðaskálanum í Hveradölum
og ætluðum að fá okkur hressingu.
Við vorum sex, við hjónin og fjögur
böm. Það fyrsta sem ég tek eftir er
að hvergi sést verðmerking á nokkrum
hlut, en þama er sjálfsafgreiðsla úr
borði. Við keyptum okkur þó kakó,
gos, brauð og kökur. Þegar upp var
staðið og ég ætlaði að fara að borga
brá mér illilega því reikningurinn
hljóðaði upp á 1.070,- krónur fyrir
hressinguna. Ég spurði afgreiðsl-
ustúlkuna hvemig stæði á þessu háa
verði, en hún gat engin svör gefið,
sagðist hins vegar oft skammast sín
gagnvart viðskiptavinunum fyrir
verðlagið. Nákvæmlega hljóðaði
reikningurinn upp á:
2 kakó 180,-
3 súkkulaðikökur 270,-
1 jólakökusneið 70,-
1 rækjubrauðsneið 250,-
4 gosglös 300,-
samtals: 1.070,-
Ég hef athugað þetta á öðrum kaffi-
hiisum og sambærilegur viðurgjöm-
ingur kostar að meðaltali um 600,- kr.
Það er enginn vandi að selja manni
svona einu sinni, en maður kemur
aldrei aftur," sagði Regin að lokum.
-S.Konn.
BORGARAFUNDUR
Fræðslufundur verður haldinn í félagsmiðstöðinni Frosta-
skjóli mánudaginn 12. maí klukkan 20.30.
ERINDI FLYTJA:
- Sigurður Blöndal, skógræktarstjóri ríkisins, um skógrækt,
æskuna og umhverfið.
- Jóhann Pálsson, garðyrkjustjóri Reykjavíkur, um vestur-
bæinn og gróðurinn.
Fyrirspurnir og kaffiveitingar.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16, 108 Reykjavlk -
nUIMMI
Ánanaustum
Simi 28855
BMVALLÁ'
SKÓGRÆKTARFÉLAG
REYKJAVIKUR
M
R
MJÚLKURFÉLAG
REYKJAVlKUR
LAUGAVEGI 164
PÖSTHÓLF 5236. 125 REYKJAVlK
REYKJANESBRAUT 6
REYKJAVÍK
I C E L A N O
JC-félögin
í Reykjavík.
ALLT í RÖÐ OG REGLU!
Lausar stöður
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar kennarastöður við
Tækniskóla (slands:
1. í eðlisfræði, kennsla einkum í frumgreinadeild.
2. í stærðfræði, kennsla einkum í frumgreinadeild.
3. í tölvu- og viðskiptagreinum í rekstrardeild.
4. í lögnum og veitukerfum í byggingadeild.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum um náms-
feril og störf, sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6, 150 Reykjavík, fyrir 3. júní nk.
7. maí 1986,
menntamálaráðuneytið.
Duni er ódýrasti barinn í bænum
Duni kaffibarinn sparar bæði tíma og pláss.
Hann getur staðið á borði eða hangið á vegg.
- hann kostar aðeins Kr. 3.982,-
(Innifalið í verði: Málmstandur, 2000 mál, tíu höldur og 1000
teskeiðar.)
STANDBERG HF.
Soaavegi 108
- kaffistofa í hverjum krók! símar 35240 og 35242
LAUGAVEGI97 - DRAFNARFELL112
Póstkröfusími: 17015.
Hjólaskautar
nýkomnir
2.965,
verð
Ef þú ert þreytt(ur) á óreiðunni
og uppvaskinu í kaffistofunni
þá er Duni kaffibarinn lausn á vandanum.