Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Page 16
16
DV. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1986.
Spurningin
Er verðlag að lækka?
..
Ragnheií-'jr Helga kennari: Ekkil
verð ég vör við það þegar ég fer að
versla. Það getur samt vel verið.
Ásta Hjördís Hjörleifsdóttir, vinnur
hjá Pósti og GÍma: Ekkifinns! mér
það. Ég sé ekki betur en að þetta
þokist allt upp á við.
Já, mér finnst verðlag heldur fara
lækkandi. Ég finn það þegar ég kaupi
inn.
Ólafur Ásmundsson, tyrrum húsa-
smiður: Ég tek ekki eftir því. Ég
kaupi bara þetta nauðsynlegasta og
það fer ekki lækkandi.
Guðrún Halldórsdóttir húsmóðir: Ég
hef ekki orðið vör við það en það er
betra að fylgjast með vöruverði nú
en áður.
Aðalsteinn Jakobsson nemi: Já, í ein-
staka tilvikum en það er annað sem
hækkar á móti.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Reglunum ekkl
breytt hjá
Happdrætti SÁÁ
Einhildur Einarsdóttir hringdi:
Ég er óánægð með hvemig SÁÁ
stendur að happdrættinu sínu. Þeir
auglýsa glæsilega vinninga sem þeir
fá svo flestalla sjálfír. Ég tel það
ekki rétt gagnvart þeim sem vilja
styrkja SÁÁ með því að kaupa happ-
drættismiða þegar dregið er úr öllum
útgefiium miðum. Árangurinn af því
er að langflestir vinninganna koma
í hlut happdrættisins.
Ég hef ekkert á mót því að styrkja
SÁA og sé ekki eftir að gefa þeim
andvirði happdrættismiðanna. En
það er ekki heiðarlegt af SÁÁ að
vekja vonir um vinninga sem sára-
litlar líkur eru á að komi í hlut
þeirra sem kaupa miðana. Þetta
kemur sér líka illa fyrir SÁÁ því
fólk bregst við með því að rífa mið-
ana. Það væri miklu heiðarlegra að
draga aðeins úr seldum miðum og
hafa vinningana þá ódýrari. Ég er
viss um að allir tækju því vel.
Núna er SÁÁ að hefja nýja lotu í
sölu happdrættismiða. Ég vil beina
þeirri fýrirspum til SÁÁ hvort ekki
standi til að breyta til og draga nú
aðeins úr seldum miðum?
Þessi svör fengust hjá SÁÁ:
Við stöndum áfram eins að happ-
drættinu. Dregið verður úr þeim
miðum sem sendir eru út enda getum
ið ekki fylgst með hve margir þeirra
hafa verið greiddir. Hins vegar höf-
um við minnkað upplagið um 30.000
miða. Núna verða gefrdr út 195.000
miðar en voru 225.000 síðast.
Bréfrilari er ósáttur við hvemig SÁÁ stendur að happdrætti sínu.
i-ielga telur að nóg sé komið af söngnum um hollustu mjólkur.
Auðvitað er
Helga Kristinsdóttir skrifar:
Ég er búin að fa nóg af þessum ei-
lífa söng daginn út og inn í dagblöðun-
um, útvarpinu og sjónvarpinu um
hvað mjólkin .sé holl og góð. Þetta er
að gera út af við mig.
Ég hef alla mína tíð drukkið mjólk
á hverjum degi, einfaldlega vegna þess
að mér hefúr fúndist hún góð. En nú
fer að keyra um þverbak. Við það að
heyra mjólkurauglýsingamar daginn
út og inn liggur við að ég snúi baki
við mjólkinni. En ég skal ekki gera
mjólkurdagsnefhdinni það til geðs að
hætta að drekka mjólk. Aldrei!
201UN
Tunglið er
geimskip
Páll Danielsson, 7000-3392, skrifar:
Mér er bæð ljúft og skylt að verða
við ósk Góu (4186-8015) og bæta við
grein mína um tunglið sem birtist
25.4. sl.
Flestir hafa séð nærmyndir af
tunglinu sem birst hafa í fræðslu-
bókum, timaritum, dagblöðum og
sjónvarpi, teknar iir geimförum eða
sterkum kíkjum. Þær sýna vel gíg-
ana sem þekja mestallt yfirborðið,
jafhvel gíga innan í gígum. „Verks-
ummerki eftir loftsteina“ eins og
kenningin segir. Sumir mörg himdr-
uð kílómetrar í þvermál.
En hafið þið tekið eftir þvf hvað
þessir gígar eru allir grunnir? Það
stafar af því hversu hart yfirborð
tunglsins er. Jafhvel hörðustu borar
geimfaranna mörkuðu bara far í
grjótharða skel geimskipsmánans.
„Þetta er eins og málmsvarf,“ var
umsögn bandarísks sjónvarpsmanns
sem lýsti beinni útsendingu frá
fyrsta tunglleiðangrinum. Þá var
Armstrong búinn að vera að bora
tímunum saman.
Síðar voru öll fjarskipti brengluð
og þannig komið í veg fyrir að al-
menningur fylltist skelfíngu yfir þvi
sem raunverulega var að gerast.
„Ó.F.H. fylgdust með okkur allan
tímann," sagði einn geimfarinn.
„Enginn sannar nýja kenningu,"
sagði merkur vísindamaður, „þeir
deyja bara smám saman sem and-
mæla henni.“ Þannig er fólk nútil-
dags alið upp við ógiynni kenninga,
staðreynda og upplýsinga sem gamla
fólkiö dreymdi ekki einu sinni um.
Við vitum kannski of mikið. Ekki
útiloka ég það. En hins vegar eru
stjómvöld komin út i svo mikið
kjaftæði á sumum sviðum að ekkert
nema nýtt stjómmálaafl getur bjarg-
að þvi sem bjarga þarf í þjóðfélögun-
um á plánetunni Jörð.