Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Síða 20
20 DV. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1986. Umboðsmann vantar á Vopnafjörð. Upplýsingar gefur Laufey í síma 3195 og afgreiðsla DV í síma 91-27022. SMÁAUGLÝSINGAR DV MARKAÐSTORG TÆKIFÆRANNA Þú átt kost á aö kaupa og selja allt sem gengur kaupum og sölum. Bara aö nefna þaö í smáauglýsingum DV, hinu ótrúlega markaöstorgi tækifæranna. Markaöstorgiö teygir sig víöa, Þaö er sunnanlands sem noröan, vestan sem austan, í bátum sem flug- vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV lesiö. Einkamál. Já, þaö er margt í gangi á markaöstorginu, en um hvaö er samiö er auövitað einkamál hvers og eins. Sumir borga meö fínpressuöum seölum. Menn nýkomnir úr banka? Þarf alls ekki áö vera. Gætu hafa keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur. Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikinn mátt. Þar er allt sneisafullt af tækifærum. Þaö er bara aö grípa þau. Þú hringir...27022 Við birtum... Þad ber árangur! Smáauglýsingadeildin er í Þverholti 11. Opið: Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00 a ER SMÁAUGLÝSINGABLADHD Nauðungaruppboð sem auglýst var í 105. tbl. Lögbirtingablaðsins 1984 og 10. og 13. tölu- blaði þess 1985 á eigninni Miðvangi 110, Hafnarfirði, þingl. eign Péturs Hanssonar, fer fram eftir kröfu Guðjóns Steingrímssonar hdl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 15. maí 1986 kl. 14.00. Bæjarfógetinn i Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 1., 7. og 10. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eign- inni Sólbrekku, landspildu úr Hraunsholti, Garðakaupstað, þingl. eign Nönnu Snorradóttur, fer fram eftir kröfu innheimtu ríkissjóðs og Útvegsbanka Islands á eigninni sjálfri fimmtudaginn 15. maí 1986 kl. 15.30. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Lyngmóum 1, 3.h.t.h„ Garðakaupstað, þingl. eign Sigurðar M. Sigurðssonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 15. maí 1986 kl. 16.30. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 105. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 og 10. og 13. tölublaði þess 1985 á eigninni Melási 3, Garðakaupstað, þingl. eign Gunn- ars Amar Ólasonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Garðakaupstað og Guðjóns Steingrimssonar hrl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 15. maí 1986 kl. 17.00. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nýjar vonir - spamaður og stjómmál Á haustdögum 1985 voru niður- stöður skoðanakönnunar um við- horf íslendinga til stjómmálamanna sinna gerðar heyrumkunnar. Reynd- ar kom ekki sérlega á óvart að flestum þætti stjómmálamenn nokk- uð stóryrtir, jafnvel lygnir og ómerkilegir og á allt of háu kaupi í þokkabót! Eftir þessari skoðana- könnun að dæma virðist fólk bera meira traust til stjómmálamanna eftir því sem aldurinn færist yfir. Um stjómmálamenn má vissulega margt og misjafnt ræða eins og geng- ur. Hitt er svo artnað mál að sjaldan er minnst á það sem vel er gert með góðum vilja. Þingið 1984-5 varð það lengsta sem háð hefir verið frá upp- hafi. Mörg merk mál komu fyrir þingið svo sem oft er, þó allt of fátt nái fram að ganga. Þrátt fyrir mikið tímaleysi undir þinglok vom sam- þykkt lög um húsnæðisspamaðar- reikninga, sem eiga að geta skipt sköpum fyrir þá sem fæddir em eftir 1970. Þessi lög, sem bera númerið 49/1985, virka sem dálítil skíma gegnum það myrkur mannlífs þar sem baktjaldamakk, svik og önnur óheilindi virðast vera allsráðandi. Megintilgangur laga þessara er að hvetja íslendinga 16 ára og eldri til reglubundins spamaðar. Því miður hefir ráðdeildarsemi og spamaður ekki borgað sig sem skyldi í íslensku þjóðlífi undanfama hálfa öld, því dýrtíðin hefir brotið stór skörð í þá viðleitni fólks. Af þeim sökum hafa allt of margir alist upp við hóflausa eyðslu og óreiðu, endalaust vinnu- brjálæði og jafnvel sviksamlegar athafhir. Lögin um húsnæðisspamaðar- reikninga heita þeim sem leggja vilja til hliðar hluta af sjálfsaflafé sínu ríflegum skattafslætti eftir ákveðn- um reglum: Gera skal sérstakan samning við innlendan viðskipta- banka eða sparisjóð, þar sem innlegg skuli vera minnst 12.000 krónur en mest 120.000 á ári hveiju. Tölur þess- ar skulu breytast eftir byggingarvísi- tölu. Nokkur skilyrði fylgja sem telja verður eðlileg. Þannig á t.d. að koma í veg fyrir málamyndaspamað sem hugsaður er til að framkalla sýndar- skattafslátt. Innstæður skulu vera bundnar um 10 ára skeið en ef eig- andi kaupir eða byggir húsnæði verður innstæða laus eiganda til frjálsrar ráðstöfunar. Innstæður eiga að njóta bestu ávöxtunarkjara almennra innláns- reikninga (4. gr.). Þær verða ekki framseldar, veðsettar né standa til fullnustu skulda eiganda innstæð- unnar, því hún á að vera undanþegin aðfór skuldheimtumanna (6. gr.). Binding þessi fellur undir slíkum kringumstæðum aðeins niður við gjaldþrot. í umræðum varðandi málefhi þetta kom fram einlægur vilji allra þing- manna, hvort sem þeir vom með eða móti stjóminni, að frumvarpið mætti ná fram að ganga. Telja má það sögulegt að 13. júní 1985 samþykkti neðri deild frumvarpið sem var þá án tafar sent efri deild svo málefrii sem þetta, þarft og nauðsynlegt, mætti öðlast lagagildi sem fyrst. Þess má vænta að lögin um hús- næðisspamaðarreikninga geti orðið einn besti og traustasti homsteinn íslenskrar æsku fyrir fjárhagslegu öryggi framtíðarinnar. Ungt fólk á Guðjón Jensson starfsmaður Pósts og Síma oft í verstu vandræðum þegar til kemur að stofha heimili, þvi sjálfs- aflaféð hefur að vemlegu leyti gengið til kaupa á ýmsum gæðum sem ekki em brýn svo sem trskut- uskur, bílar, vídeo og þess háttar auðvirðilegir hlutir. Svo þegar stóra stundin rennur upp er lítill eða eng- inn sjóður til ráðstöfunar. Fram til skamms trma var þeim beinlínis refe- að sem sýna vildu fyrirhyggju. Um miðjan 6. áratuginn var lögbundinn skylduspamaður sem snúinn var í framkvæmd niður í lágkúm og lé- lega stjóm á fjármunum þorra æskunnar. Æskan á heimtingu á að spamaður borgi sig. Vonandi verður ekkert til að spilla þeim góða ásetningi sem kemur fram í þessum merku lögum. Guðjón Jensson „Þess má vænta að lögin um húsnæðis- sparnaðarreikninga geti orðið einn besti og traustasti homsteinn íslenskrar æsku fyrir íjárhagslegu öryggi framtíðarinnar.“ „Lögin um húsnæðissparnaðarreikninga heita þeim sem leggja vilja til hliðar hluta afsjálfsaflafé sínu riflegum skattaafslætti eftir ákveðnum reglum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.