Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Page 22
22
DV. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1986.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Hansen og D. Speedie
ekki í HM—liði Skota
- deilur vegna vals Alex Ferguson
Nú er ljóst að þeir Steve Archibald,
Barcelona, Allan Hansen, Liverpool,
og David Speedie, Chelsea, verða ekki
í skoska landsliðinu sem keppir í
heimsmeistarakeppninni í Mexikó.
Sú ákvörðun Alex Ferguson, þjálf-
ara skoska liðsins, að velja þessa menr
ekki í hópinn hefur vakið miklar deil-
ur. Archibald er að vísu ekki enn
búinn að ná sér af meiðslum og
frammistaða hans í úrslitaleiknum á
móti Steaua Búkarest í Evrópubikam-
um var ekki sannfærandi. En öðru
máli gegnir með þá Speedie og Hans-
en. Þeir hafa báðir leikið vel í vetur
og er ákvörðun Fergusons að nota þá
ekki mjög umdeilanleg. „Ég er niður-
brotinn maður,“ sagði Speedie þegar
hann frétti að hann væri ekki í liðinu
en hann sýndi góðan leik á móti Eng-
landi nýlega.
„Þetta er erfiðasta ákvörðun sem ég
hef tekið í mínu lífi og mér h'ður hræði-
lega út af þvi að þurfa að taka þessa
menn út úr hópnum,“ sagði Ferguson.
22ja manna hópur Skota lítur svona
út:
Markmenn: Jim Leighton, Allan
Rough og Andy Goram.
Vamarmenn: Richard Gough, Steve
Nicol, Maurice Malpas, Alex
McLeish, Willie Miller, David Narey
og Arthur Albiston.
Miðvallarleikmenn: Graeme Sou-
ness, Gordon Strachan, Paul McStay,
Jim Bett, Roy Aitken og Eamonn
Bannon.
Sóknarmenn: Frank McAvennie,
Charlie Nicholas, Graeme Sharp, Paul
Sturrock, David Cooper og Kenny
Dalglish.
Dalglish er aldursforseti hópsins, 35
ára að aldri. Hann tekur nú þátt í sinni
fjórðu heimsmeistarakeppni. Þá á
hann einnig markamet skoskra lands-
liðsmanna, reyndar ásamt Dennis
Law. Báðir með 30 mörk í landsleikj-
um. -SMJ
Joe Jordan á sölulista
„Joe Jordan er sá leikmaður okkar
sem er í hvað bestri æfingu og hann á
nokkur ár eftir í knattspymunni. Hins
vegar þarf hann nú að breyta til,“
sagði Chris Nicholl, stjóri Southamp-
ton, þegar hann skýrði frá þvi í gær
að Jordan væri á sölulista. Jordan hef-
ur leikið 52 landsleiki fyrir Skotland,
34 ára. Lék á Ítalíu um tíma, áður með
Man. Utd og Leeds. Þá hefur Alan
€>aitis, landsliðsmaður hjá Wales,
fengið „fijálsa sölu“ hjá Southampton.
RÉTTARHAIS2
og flytjum verslun okkar í nýtt og glæsilegt húsnæði, með
ýmsum nýjungum sem ekki hafa áður sést hér á landi.
Nýjung
Verslunin er nánast einn sýningarsalur, þar sem sýnd verða 22
tilbúin baðherbergi.
Samræmdir litir — fagur heildarsvipur
Öll hreinlætistæki, blöndunartæki, vegg- og gólfflísar eru frá hinum viðurkenndu
fyrirtækjum Ideal Standard í V-Þýskalandi og Royal Sphinx í Hollandi og hafa
framleiðendur samræmt liti á hreinlætistækjum og flísum, svo að heildarsvipur bað-
herbergjanna er mjög fallegur. Einnig eru á boðstólum allir aukahlutir fyrir baðher-
bergi og sturtuklefa s.s. hengi, mottur, sápuskálar, handklæðahengi, speglar, Ijós o.fl.
Þýöingarmesta herbergiö
Baðherbergið er eitt þýðingarmesta herbergi hússins og mikið í húfi að vel lakist til um val
á litum og tækjum. Við gerum viðskiptavinum okkar þetta eins létt og hugsast getur, með
því að gefa þeim kost á að velja milli 22. uppsettra baðherbergja, sem við getum síðan séð
um að koma upp, ef óskað er.
70 ára reynsla
J. Þorláksson & Norðmann var stofnað 1917 og er því 70 ára á næsta ári. Það er eitt elsta og
reyndasta fyrirtæki sinnar tegundar hér á landi, og hefur ávallt kappkostað að veita
viðskiptavinum sínum sem besta þjónustu.
Altt á einum staö
Nú þarft þú ekki að leita lengur, við erum með allt í baðherbergið á sama stað.
Líttu inn með fjölskylduna og fáðu þér kaffisopa.
Sýningarsalurinn verður framvegis opinn um helgar.
AlltJ baðherbergið á einum stað.
J.Þ0RLÁKSS0N OC NORÐMANN H.F
Réttarhálsi 2 — Sími 83833
Alain Prost ók McLaren bíl sinum til sigurs i Monte Carlo í gær.
Prost ók hraðast
í Monte Carlo
Franski heimsmeistarinn i kapp-
akstri, Alain Prost, Frakklandi, varð
sigurvegari í einum frægasta kapp-
akstri heims í gær, Grand Prix
keppninni í Monte Carlo. Gífurlegur
fjöldi áhorfenda fylgdist með keppn-
inni á götum Monte Carlo auk þess
sem hún var sýnd beint í sjónvarpi
víða um heim.
Keppnin var mikill sigur fyrir
McLaren bílana. Prost ekur einum
slíkum og Finninn Keke Rosberg
einnig. Hann varð í öðru sæti í gær.
Þriðji varð Brasilíumaðurinn Ayrton
Senna á Lotus. Fjórði Bretinn Nigel
Mansell á Williams og síðan komu
Frakkamir Rene Amoux og Jacques
Laffite, báðir á Ligier.
Við sigurinn komst Alian Prost í
efsta sætið í stigakeppninni. Hann
hefur hlotið 22 stig. Senna er annar
með 19 stig, þá landi hans Nelson
Piquet með 15 stig og Rosberg fjórði
með 11 stig. f fimmta sæti er Mansell
með 9 stig.
Jafnaði íslands-
met í skotkeppni
Gissur Skarphéðinsson jafnaði ís-
landsmet Karls Eiríkssonar á íslands-
mótinu í skotkeppni um helgina þegar
hann fékk 5% stig af 600 mögulegum
í keppni með rifflum. Snjall árangur
það. Karl Eiríksson varð í öðru sæti
með 589 stig.
Hins vegar sigraði Karl með miklum
yfirburðum í keppni með skammbyss-
um, hlaut þar 537 stig og varð 18 stigum
á undan næsta keppanda. Hannes Har-
aldsson varð annar með 519 stig.
Þriðji júdó-titillinn
Austurríski júdómaðurinn kunni,
Peter Seisenbacher, gerir það ekki
endasleppt í millivigtinni. Á Iaugardag
varð hann meistari á Evrópumótinu í
Belgrad í Júgóslavíu og náði þar með
takmarki sínu. Ber nú þrjá meistarat-
itla sem Evrópu-, heims- og ólympíu-
meistari. I úrslitum í Belgrad sigraði
hann Ben Spijkers, Hollandi. Bjami
Friðriksson var meðal keppenda i
Belgrad. Varð í áttunda sæti í sínum
flokki.
Vormót ÍR
Vormót ÍR i frjálsum íþróttum,
fyrsta stórmót sumarsins, fer fram i
Laugardal 15. mai og hefst kl. 18.30.
Keppt verður í 19 greinum, tiu í karla-
flokki, niu i kvennaflokki. Meðal
þeirra er Kaldals-hlaupið, 3000 metrar,
og verða þar nær allir bestu lang-
hlauparar landsliðsins meðal kepp-
enda. Þátttökutilkynningar þiufa að
berast til Jóhanns Björgvinssonar,
simi 71023, fyrir 13. mai.