Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Síða 23
DV. MÁNUDAGUR 12. MAl 1986.
23
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
„Draumurinn rættist en
égtrúi þessu varia enn“
- sagði Kenny Dalglish eftir bikarsigur Liverpool á laugardag.
- Aberdeen bikarmeistari Skotlands
Aberdeen varð bikarmeistari Skot-
lands á laugardag i fjórða skiptið
siðustu fimm árin. Vann Hearts, 3-0,
í úrslitaleiknum á Hampden Park þar
sem áhorfendur voru 62.841. Þvi al-
gjört hrun hjá Edinborgarliðinu í lok
keppnistimabilsins. Eftir 30 leiki án
taps tapaði Hearts tveimur siðustu
leikjunum. Missti af skoska meistara-
titlinum til Celtic á jafiiri stigatölu
fyrra laugardag eftir tap í Dundee og
á laugardag af bikarnum.
Gífurleg reynsla leikmanna Aberde-
en í stórleikjum síðustu árin sagði til
sín á laugardag. Þeir höfðu mikla yfir-
burði eftir að Hearts hafði byijað með
látum fyrstu mínútumar. En John
Hewitt skoraði á fimmtu mín. í raun-
verulega fyrsta upphlaupi Aberdeen
og eftir það var lítil spuming um hvort
liðið mundi sigra. Hewitt skoraði ann-
að mark Aberdeen á 48. mín. og Billy
Stark það þriðja á 74. mín., skallaði í
mark eftir aukaspymu en hann hafði
nokkm áður komið inn sem varamað-
ur.
Algjört hran Hearts
Fyrirliði Hearts, Walter Kidd, var
rekinn af velli ellefu mínútum fyrir
leikslok eftir átök við fyrirliða
Aberdeen, Willie Miller, þar sem bolt-
inn var víðs fjarri. Þrír aðrir leikmenn
Hearts vom bókaðir. Alex Ferguson
er stjóri Aberdeen og liðið hefin- náð
frábærum árangri undir hans stjóm,
þrisvar orðið Skotlandsmeistari, fjór-
um sinnum bikarmeistari og staðið sig
vel í Evrópukeppni. Hann stjómar
skoska landsliðinu á HM í Mexíkó.
hsím
Frá Sigurbimi Aðalsteinssyni,
fréttamanni DV á Englandi.
„Ef fólk hefur ekki haft gaman af
þessum leik þá veit ég ekki hvað er
hægt að bjóða því upp á. Ég hélt alltaf
í vonina mn sigur eftír leikhléið og ég
veit að þegar Ian Rush er með er alltaf
möguleiki. Draumurinn rættist en ég
trúi þessu varla enn. Verð að klípa
mig til að trúa hvað virkilega skeði.
En ég er heppinn að hafa að baki mér
besta hóp leikmanna og sfjómenda á
Bretlandi,“ sagði Kenny Dalglish,
framkvæmdasfjóri og leikmaður Li-
verpool, eftir að lið hans hafði sigrað
Everton, 3-1, í úrslitaleik ensku bikar-
keppninnar að viðstöddum 98 þúsund
áhorfendum á Wembley-leikvangin-
um í Lundúnum á laugardag.
Með sigrinum á laugardag vann Li-
verpool tvöfalt í ár, sigur í deild og
bikar, og það er aðeins í þriðja skipti
á þessari öld sem lið sigrar tvöfalt í
ensku knattspymunni. Tottenham og
Arsenal áður og aðeins í fimmta skipti
sem lið sigrar tvöfalt. Eitt Lancashire-
lið áður, Preston, 1889. Stórkostlegur
árangur hjá Liverpool á leiktimabil-
inu, einkum lokakafla þess en framan
af leiktímabilinu virtist ekki stefiia í
það að Kenneth Dalglish, sem kjörinn
hefur verið framkvæmdastjóri ársins,
mundi ná þessum frábæra árangri með
lið sitt á fyrsta ári sínu sem stjóri. Það
hefur aldrei skeð áður að lið undir
stjóm leikmanns/stjóra verði Eng-
landsmeistari og auk þess bikarmeist-
ari. í framtíðinni mun Kenneth, sem
er 35 ára, einbeita sér að stjómuninni.
„Leikmenn mínir hafa verið stór-
kostlegir allt keppnistímabilið og þeir
ásamt leikmönnum Everton vom
Meyseyside til mikils sóma í dag. Eftir
að við höfðum jafiiað var ég nokkuð
viss um að við mundum sigra. Ég verð
þó að viðurkenna að hjarta mitt stöð-
vaðist næstum þegar Graeme Sharp
átti góðan skalla á mark okkar en
Bmce Grobbelaar tókst að slá knött-
inn yfir þverslána," sagði Dalglish. í
gær héldu leikmenn Liverpool og
Everton frá Lundúnum í sama vagni
til Liverpool, sem er mjög óvenjulegt.
Var fagnað sem hetjum við komuna
þangað. í fyrsta skipti sem Liverpool-
liðin leika til úrslita saman í FA-
bikarkeppninni. Þriðji sigur Liverpool
í keppninni, áður 1965 og 1974. Hins
vegar 31 stórsigur Liverpool á knatt-
spymusviðinu síðustu 23 árin og þar
er varla hægt að finna samjöfnuð í
Evrópu.
Ian Rush var kjörinn leikmaður úr-'
slitaleiksins á laugardag. Skoraði
tvívegis og litlu munaði að hann skor-
aði fleiri mörk í leiknum. Hann sagði:
„Fyrir nokkrum mánuðum réðst fólk
á mig, beinlínis afskrifaði mig, en ég
verð að þakka því fyrir að hafa komið
mér af stað aftur.“
„Áttum að fá vítaspyrnu"
„Þetta var frábær fyrirgjöf og Sharp
átti að geta skallað knöttinn. Hann
Kenneth Dalglish, tvöfalt á fyrsta ári.
kom hins vegar ekki við hann. Þar
var um að ræða gróft brot hjá Steve
Nicol á Sharp og dómarinn átti að
dæma vítaspymu. Ég er viss um að
ég hef rétt fyrir mér þegar við sjáum
myndband af leiknum. Þá fannst mér
um rangstæðu að ræða þegar Liverpo-
ol jafnaði. Ég veit að þetta hljómar
sem sárindi hjá mér og vissulega óska
ég Liverpool til hamningju með að
hafa sigrað tvöfalt. En það em þessi
atriði sem gera oft gæfumuninn og því
minnist ég á þau,“ sagði Howard
Kendall, stjóri Éverton, eftir úrslita-
leikinn. Það voru 20 mín. af leik þegar
Nicol braut á Sharp innan vítateigs.
1 blöðum er almennt skrifað um að
Everton hefði átt að fá viti - verið
óheppið að fá ekki vítaspymu. Einnig
bent á að sami dómari hafi dæmt úr-
slitaleik Liverpool og Everton í
Mjólkurbikamum á Wembley 1984.
Þá var ekki dæmt víti á Liverpool
þegar Allan Hansen sló knöttinn inn-
an vítateigs. Jafntefli, 0-0, en Liverpo-
ol sigraði síðan 1-0 í öðrum leik
liðanna á Maine Road.
„Við endum leiktímabilið með ekk-
ert í höndunum, engan sigur, en samt
hefur leiktímabilið verið mjög gott hjá
okkur. En það er vont að hugsa til
þess hvaða lið vann tvöfalt,“ sagði
Kendall ennfremur. Lið hans varð
Englandsmeistari 1985 og Everton lék
nú þriðja árið í röð til úrslita i bikar-
keppninni. Hins vegar aðeins einn
sigur - gegn Watford 1984. Tap fyrir
Man. Utd 1985 og Liverpool nú. Ever-
ton hefur Ijórum sinnum sigrað í
bikarkeppninni. Tíu sinnum leikið til
úrslita.
Skemmtilegur leikur.
Úrslitaleikur Liverpool-liðanna á
laugardag er með skemmtilegri úr-
slitaleikjum í keppninni. Allir em á
því. Liverpool byijaði aðeins betur, lék
undan sterkum vindi en síðan náðu
leikmenn Everton góðum tökum á
leiknum. Gary Lineker skoraði fyrsta
markið fyrir Everton á 27. mín. Fékk
frábæra sendingu fram völlinn frá
Peter Reid, átti létt með að sigra Hans-
en á sprettinum. Komst frír inn í
vítateiginn. Grobbelaar varði skot
hans en hélt ekki knettinum. Lineker
náði honum aftur og spymti í markið
en Grobbi kom aftur við knöttinn.
Heldur óheppinn að veija ekki. Eftir
markið var Éverton mun betra liðið,
vöm Liverpool allt annað en sann-
færandi. Grobbi hafði mikið að gera.
Á stundum vom úthlaup hans glæfra-
leg en hann var þó maðurinn sem
hélt Liverpool á floti. Varði tvívegis
hreint frábærlega. Fyrst frá Steven,
síðan Sharp. Það hefði verið erfitt fyr-
ir Liverpool ef Everton hefði skorað
annað mark eins og liðið átti skilið.
Hins vegar afskrifar enginn Liverpool
fyrr en flauta dómarans hljómar í
leikslok.
Það tók leikmenn Liverpool langan
tima að komast á skrið aftur. Þá varð
mikil breyting á stuttum tíma, sem
Daninn Jan Mölby átti mestan heiður-
inn af. Frábær leikmaður. Á 57. mín.
átti hann snilldarsendingu inn fyrir
vöm Everton og Ian Rush komst frír
að markinu. Lék á Mimms markvörð
áður en hann renndi knettinum í
markið. Rangstaða ekki til í dæminu.
Sex mínútum síðar var Daninn aftur
á ferðinni, lék gegnum þéttskipaða
vöm Everton. Gaf síðan á Craig Jo-
hnston sem skoraði. Snjallir Liverpo-
ol-taktar í sex mínútur og það nægði.
Úrslit vora raunverulega 'ráðin.
Kendall „gamblaði á“ að taka bak-
vörðinn Gary Stevens út af á 71. mín.
og sendi sóknarmanninn Adrian He-
ath inn á. Það heppnaðist ekki og
Rush skoraði þriðja mark Liverpool á
84. mín. eftir snjallt upphlaup þar sem
vöm Everton var þunnskipuð. Mimms
kom ekki við neinum vömum en
skömmu síðan varði hann snilldarlega
frá Rush. Liðin voru þannig skipuð:
Liverpool. Grobbelaar, Nicol, Beglin,
Lawrenson, Hansen, Dalglish, Mölby,
Rush, Johnston , og MacDonald.
McMahon varamaður en kom ekki
inn á. Gary Gillespie missti af úrslita-
leiknum vegna lasleika. Everton.
Mimms, Stevens (Heath), Hauwe,
Ratclifle, Mountfield, Reid, Steven,
Bracewell, Sharp, Lineker og Sheedy.
Talsvert kom á óvart að Reid lék þvi
hann hefur átt við erfið meiðsli að
striða.
hsim
Ian Rush, tvö mörk.
25 keppa í
Danmörku
- á frjálsíþróttamóti
25 manna úrvalshópur íslenskra
fijálsíþróttamanna í karla- og kvenna-
flokki mun taka þátt í alþjóðlegu
ftjálsíþróttamóti í Danmörku dagana
20.-21. júli í sumar - nánar tiltekið á
„Stjeme-stevnet" í Lyngby, útborg
Kaupmannahafiiar. Þátttakendur
verða frá mörgum þjóðum m.a. öllum
Norðurlöndimum. Éftír mótið stendur
þátttakendum til boða keppnisferð til
Sviþjóðar. Möguleiki er á keppni á 6-8
mótum þar fram til 6. ágúst.
Engin landskeppni verður í sumar
eins og til stóð. Hins vegar er keppt
við úrvalslið Skánar, suðurhluta Sví-
þjóðar, með landskeppnisfyrirkomu-
lagi hér á landi 16.-17. júlí. Þar getur
orðið um skemmtilega keppni að ræða
enda margt af besta fijálsiþróttafólki
Svia frá þessum landshluta.
ÓU/hsím.
Enskir áfram
í Evrópubanni
Knattspymusamband Evrópu,
UEFA, áikvað á fundi sínum í Zurich
á föstudag að útiloka ensk lið frá Ev-
rópumótunum þremur á næsta
keppnistímabili. Bann á ensk lið var
sett eftir atburðina hörmulegu í
Brússel á úrslitaleik Juventus og Liv-
erpool í Evrópubikamum 1985 þegar
39 áhorfendur létu lifið. UEFA sagði
að bann á ensk lið yrði tekið til endur-
skoðunar á ný þegar keppnistimabil-
inu lýkur 1987. Þegar bannið á ensk lið
verður upphafið verður þó Liverpool
áfram í banni frá Evrópumótum í þrjú
ár. Bann UEFA nær ekki til liða frá
Skotlandi, írlandi og Wales.
hsim
og
trimmgallar
til æfinga og
keppni.
íþróttatöskur í mörgum
stærðum og gerðum.
ÁRMÚLA 36 REYKJAVlK,
SlMI 82168 OG 83830.