Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Page 24
24 DV. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1986. íþróttir • Teitur Þórðarson. Teftur slasaðist Teitur Þórðarson knattspyrnumað- ur, sem leikur með Öster í Sviþjóð, slasaðist um helgina á hendi er hann fór með hðndina í vélsög. Reiknað er með að Teitur verði frá keppní í tsepa tvo mánuði og er þetta mikið áfall fyr- ir Öster. Liðið lék um helgina gegn Malmö FF á heimavelli sinum og mátti þola stórt tap, 1-4. Lið Eggerts Guðmunds-' sonar, Halmstad, tapaði einnig stórt, fyrir Hammarby, 0-3. -SK. Raty kast- aði 81,72 m Best í spjótf í ár Finnski spjótkastarinn, Seppo Raty, náði besta árangri í heiminum i ár i spjótkasti er hann kastaði 81,72 metra á frjálsiþróttamóti í Helsinki i Finn- landi í gær. Þetta er lengsta kast hingað til með nýju gerðinni af spjót- inu en því var breytt fyrir þetta keppnistímabil enda spjótkastarar famir að kasta spjótinu hættulega langt. -SK ítafíavannKína ítalir, núverandi heimsmeistarar i knattspymu, unnu ömggan sigur á Kínveijum í vináttulandsleik sem fram fór í Napóli í gærkvöldi. ítalir sig- urðu með tveimur mörkum gegn engu. Mörkin skomðu þeir Di Gennaro og Altobelli. Þrátt fyrir þennan sigur em margir sem spá ítölum lélegu gengi í Mexíkó og litlar sem engar lík- ur taldar á að þeir haldi heimsmeist- aratitilinum. -SK Raggisetti vallarmet - á Húsatóftavelli Ragnar Ólafeson, kylíingur í Golf- klúbbi Reykjavíkur, jafnaði vallarmet- ið á Húsatófitavelli við Grindavík er hann sigraði i Atlantic-mótinu sem þar fór fram um siðustu helgi. Ragnar sigraði í keppninni án forgjafar og lék á 71 höggi. Sigurður Hafsteinsson, GR, varð annar á 76 höggum og Siguijón R. Gíslason, GK, þriðji á 78 höggum. Á sama höggafjölda var Magnús Jóns- son, GS. í keppni með forgjöf sigraði Gunn- laugur Sævarsson, GG, á 65 höggum. Annar varð Leifur Bjamason, GR, á 67 höggum og þriðji Jakob Eyíjörð, GG, sem einnig lék á 67 höggum. Jón- as Ragnarsson, GR, fékk aukaverð- laun fyrir að vera næstur holu á 9. braut. Enginn fór þar holu i höggi en sá er það hefði gert hefði orðið 230 þúsundum ríkari. Um 100 kylfingar tóku þátt í móti þessu sem fór í alla staði mjög vel fram. -SK íþróttir íþróttir íþróttir\þri Sogulegasta NM í blaki frá upphafi Svíar hirtu tvtilinn af Finnum Norðurlandamótið í blaki karla var ekki aðeins það fyrsta hérlendis heldur reyndist hið sögulegasta frá upphafi. I fyrsta sinn urðu Finnar ekki Norð- urlandameistarar. Sviar hirtu titilinn af Finnum í æsispennandi úrslitaleik sem lengi verður í minnum hafður. Norðmenn, undir stjóm íslendings- ins Tómasar Jónssonar, hafa aldrei fyrr náð eins langt í blaki. Lögðu þeir Dani í úrslitaleik um þriðja sæti. íslendingum tókst með naumindum að bjarga sér frá botnsætinu er þeir í lokahrinu seinni leiks um fimmta sæti komust upp fyrir Færeyinga. Sviar hófu úrslitaleikinn gegn Finn- um af krafti og tóku fyrstu hrinu, 15-5. Finnar svömðu með 15-12 sigri i 36 mínútna langri hrinu. Þriðja hrina féll Svium í skaut, 15-11. Staðan orðin 2-1 fyrir Svium. Lokakafli fjórðu hrinu gleymist þeim seint sem sáu hann. Finnar komust í 14-10. Vantaði aðeins eitt stig í það fimmtánda til að fá úrslitahrinu. En Svíar jöfnuðu, 14-14, og komust svo í 15-14. Finnar vom ekki af baki dottnir, jöfnuðu og sigu framúr, staðan 16-15 fyrir Finna. Svíar jöfiiuðu og skomðu næstu tvö stig eftir mikinn barning. Lokatölumar 18-16 og sænsku leik- mennirnir stigu trylltan stríðsdans við mikinn fögnuð áhorfenda eftir stór- kostlegasta blakleik sem sést hefur hérlendis. Tómas Jónsson leiddi Norðmenn upp í þriðja sæti. Þeir sigmðu Dani, 3-1, í leiknum um þriðja sætið; 15-8, 10-15,15-10 og 15-9. Fyrri leiknum um fimmta sæti gegn Færeyingum töpuðu íslendingar, 2-3, lokahrinunni, 10-15, eftir að hafa haft yfir, 10-2. Upphaf síðari leiksins benti ekki til góðs. íslensku leikmennimir vöknuðu fyrst í fjórðu hrinu, drifnir áfram af krafti Kjartans Busk, sem ásamt Leifi Harðarsyni stóð sig best. Hrinur fóm 9-15,15-11,9-15,15-3 og í lokahrinunni vom þeir færeysku burstaðir, 15-1. -KMU Ni Fenggou kemur aftur Blakdeild HK hefur ráðið Kinveijann Ni Fenggou sem þjálfara næsta keppn- istímabil. Mun Ni Fenggou, sem á að baki fjölmarga landsleiki, þjálfa flesta fiokka félagsins og jafnvel einn flokk hjá Breiðabliki. Ni Fenggou er íslenskum blakmönn- um að góðu kunnur. Hann þjálfaði Víkinga fyrir nokkrum árum. Fleiri félög fengu hann lánaðan svo og landsliðið. Vonast menn til að hann reynist aftur sú vítamínsprauta sem koma hans var á sínum tíma fyrir ís- lenskt blak. Svo kann að fara að kínversku blak- þjálfaramir verði tveir næsta vetur. Víkingar em nefhilega einnig að leita fyrir sér. -KMU • Guðmundur Steinsson, fyrirliði Fram, hampar hér hinum glæsilega bikar sem um er keppt i í fyrra endurtekiö. Finnsku sóknarleikmennimir koma á fullu inn i smass. Sænsku varnarleikmennirnir reyna að sjá hver fær boltann. DV-mynd Brynjar Gauti. Samas Framarar meisfc Framarar endurtóku það afrek sitt frá í fyrra að vinna Reykjavíkurmótið og meistarakeppni KSÍ. 1 gærkvöldi léku íslandsmeistarar Vals og bikar- meistarar Fram á ónýtum Kópavogs- velli og sigraði Fram, 2-1, eftir að hafa haft yfir í leikhléi, 1-0. Nokkur nepja var í Kópavoginum í gærkvöldi og leikurinn ekki mikið augnayndi. Hinn smái en knái Am- ljótur Davíðsson skoraði fyrra mark Fram með góðu skoti úr vítateig í fyrri hálfleik. I síðari hálfleik skoraði Guð- mundur Steinsson stórfurðulegt mark og langt síðan að maður hefur orðið vitni að slíku marki. Guðmundur skallaði knöttinn í átt að Valsmarkinu nokkuð fyrir utan vítateig og Stefán Amaldsson, markvörður Vals, virtist ekki eiga í miklum erfiðleikum með að góma knöttinn sem kom skoppandi til hans. En allt í einu lenti knötturinn á „dauðum" bletti á vellinum, hoppaði ekki upp og fór rakleitt í gegnum klof- ið á Stefáni og fyrr en varði fögnuðu Framarar furðulegu marki. Valsmenn náðu síðan að minnka muninn þegar um tíu mínútur vom til leiksloka og var það Guðni Bergsson sem skoraði markið. Sama sagan og i fyrra Framarar endurtóku sem sagt sigur- inn fiá í fyrra en nú er Islandsmótið framundan og fróðlegt að sjá hvort liðinu tekst loks að hrista af sér slenið og vinna íslandsmeistaratitilinn. Framliðið hefur alla burði til þess og ljóst að liðið verður í fremstu röð nema eitthvað sérstakt komi til. í gærkvöldi vom Framarar mun betri aðilinn en léku þó ekki eins vel og í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins á dögunum. Valsmenn vom frekar daprir og verða að taka sig saman í andlitinu fyrir Islandsmótið. Liðið lék ekki vel í gærkvöldi og varla hægt að krefjast góðrar knattspymu af leikmönnum liðanna á handónýtum vellinum í Kópavogi sem er furðumál út af fyrir sig. Það má segja að völlurinn hafi skorað sigurmark Fram í gær, a. m. k. hafði hann mikið að segja. Um 900 áhorfendur sáu leikinn sem Óli Ólsen dæmdi. -SK.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.