Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Page 28
28
DV. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1986.
Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál
Spurt í Vestmannaeyjum
Hwer heldur þú að verði úrslit bæjar-
stjórnarkosninganna i Vesbnanna-
eyjum?
Gísli Valtýsson, útgefandi vikublaðs-
ins Frétta: „Ég spái því að sjálfstæð-
ismenn missi einn mann. Alþýðu-
bandalagið fær tvo, Alþýðuflokkur-
inn einn og Framsókn einn, en
óháðir fá engan mann inn.“
Friðrikka Svavarsdóttir fiskvinnslu-
kona: „Ég held að Sjálfstæðisflokk-
urinn tapi, en ég þori ekki að segja
hve mikið. Ég vona það allavega að
það komist nýir að.“
Sigursteinn Óskarsson verslunar-
maður: „Það er spurning eftir að
óháði listinn kom fram. Ég held að
það framboð geti breytt ýmsu. Það
er þó plús fyrir Sjálfstæðisflokkinn,
tekur fylgi frá hinum, spái ég.“
Sigurður Georgsso, vörubílsstjóri:
„Eg veit það ekki. Ég held það verði
litlar breytingar. Ég er hraeddur um
að sjálfetæðismenn haldi meirihlut-
anum.“
Emilia Guðgeirsdóttir hárgreiðslu-
kona: „Það hef ég ekki hugmynd um.
Ég fylgist ekkert með þessu.“
Ófeig»ir Hallgrímsson, smiður og
diskótekari: „Sjálfetæðisflokkurinn
heldur meirihlutanum. Það er ég al-
veg handviss um.“
Vestmannaeyjar:
Fimm listar
í framboði
Gosið í Heimaey árið 1973 er líklega
það sem mönnum dettur íyrst í hug
þegar minnst er á Vestmannaeyjar.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað í
Vestmannaeyjum eftir gos, og segja
margir eyjamar jafavel betri stað eftir
gosið en áður. Til dæmis er hafnarað-
staðan betri og reyndar óviða að finna
betri höfn en í Eyjum. íbúar í Vest-
mannaeyjum eru nú 4.792, sem er um
þúsund manns færra en fyrir gos. Á
kjörskrá í vor eru 3.250.
Sjálfstæðismenn eru í meirihluta í
bæjarstjóm Vestmannaeyja, eftir stór-
an sigur í síðustu sveitarstjómarkosn-
ingum. Þeir hafa sex menn en
Framsóknarflokkur, Alþýðuflokkur
og Alþýðubandalag einn mann hver
fyrir sig .
Listi óháðra býður nú fram í fyrsta
skipti og hugsanlega mun það framboð
riðla fylgi flokkanna eitthvað. Líklegt
þykir að framboð óháðra muni fyrst
og fremst taka fylgi frá núverandi
minnihlutaflokkum og koma meiri-
hluta Sjálfetæðisflokksins til góða.
-VAJ
Vestmannaeyjar. DV-myndir GVA
A-listinn
Fjármálin númer eitt
- segir Guðmundur Þ.B. Ólafsson
„Númer eitt er að koma fjármálum
bæjarins í lag. Staða bæjarsjóðs er
hrikaleg,“ sagði Guðmundur Þ.B. Ól-
afeson, íþrótta- og tómstundafulltrúi
og efeti maður á lista Alþýðuflokksins
í Vestmannaeyjum.
„Það er slíkt ófremdarástand í fjár-
málum að ekki verður lengur við það
unað. Útlitið er ekki gott eftir fjögurra
ára stjómartímabil íhaldsins. Það hef-
ur aukið skuldir bæjarsjóðs um 624
milljónir á þessum fjórum árum, svo
nú nema skuldimar 160 þúsund krón-
um á hvem einasta bæjarbúa eða 640
þúsund á hveija fjölskyldu.
Þannig að mál númer eitt, tvö og
þijú er að koma fjármálunum í lag.
Ónnur mál em síðan þessi venjulegu
mál, atvinnumál, skólamál og heil-
brigðismál. En það þýðir ekkert að
vera að slá um sig með alls kyns fram-
kvæmdum þegar taka þarf lán fyrir
öllu,“ sagði Guðmundur Þ.B. Ólafeson.
-VAJ
B-lístinn
Þurfum samhug fólksins
- segir Andrés Sigmundsson
„Atvinnumálin em náttúrlega hlut-
ur sem við hljótum að þurfa að beina
kröftum okkar að en höfuðmálið em
fjármál bæjarins. Staðan er þannig í
dag að hver einasta króna bæjarins
fer í reksturinn og það er mikil breyt-
ing til híns verra,“ sagði Andrés
Sigmundsson bakarameistari sem
skipar efeta sætið á hsta Framsóknar-
flokksins í Vestmannaeyjum.
Við erum ekkert að skrökva að fólki
heldur drögum fram staðreyndir um
fjármál bæjarins. Það er alveg ljóst,
hver sem stjómar eftir kosningar, að
það verður erfitt kjörtímabil. Og við
þurfum samhug fólksins. Hugarfarið í
bænum verður að breytast.
Til þess að það verði einhverjar
breytingar þá þarf B-listinn að fá að
minnsta kosti tvo menn inn í bæjar-
stjóm og ég bið fólk bara að gera sér
grein fyrir þessu,“ sagði Anclrés Sig-
mundsson.
-VAJ
Listi óháðra
Viljum úttekt
á fjármálunum
- segir Bjami Jónsson
„Við viljum koma á lýðræðislegri
afgreiðslu hjá stofiiunum bæjarins en
við teljum ýmsu vera ábótavant í þeim
efnum. Við teljum líka að málefiium
hópa eins og fatlaðra hafi verið of lít-
ið sinnt af sveitarfélaginu," sagði
Bjami Jónsson framkvæmdastjóri sem
skipar fyrsta sætið á lista óháðra í
Vestmannaeyjum en sá listi býður nú
fram í fyrsta skipti.
„Það fyrsta sem þarf að gera er að
láta fara fram úttekt á fjármálum
bæjarins. Og ef um veruleg vandræði
er að ræða, eins og talað er um, þá
viljum við láta semja áætlun um
hvemig bregðast eigi við þeim vanda.
Annað, sem við leggjum áherslu á,
er að nýta húsnæðislánakerfið til
bygginga íbúða fyrir efnalítið fólk. Þá
leggjum við áherslu á að hlúð verði
að þeim sem eiga og reka smáfyrir-
tæki, en h'till áhugi hefur verið fyrir
því að örva smáiðnað," sagði Bjami
Jónsson. -VAJ
D-listinn
Farsættstarf
meirihlutans
- segir Sigurður pnarsson
„Valið stendur annars vegar á milli
sterks meirihluta Sjálfetæðisflokksins
og hins vegar margra lítilla flokka,
sem þurfa að vera með málamiðlanir
í öllum málum,“ sagði Sigurður Ein-
arsson útgerðarmaður sem er í fyrsta
sæti á framboðslista Sjálfetæðisflokks-
ins í Vestmannaeyjum.
„Á síðasta kjörtímahili átti sér stað
mikil uppbygging í skólamálum hér
og það verður haldið áfram á þeirri
braut. Einnig á að ljúka við að leggja
bundið slitlag á alla vegi hér en það
verk er langt komið. Siðan er það
mjög mikilvægt að fá fleira fólk til að
setjast hér að. En til þess að það sé
hægt verðum við að geta boðið upp á
sambærilega þjónustu í félagsmálum
og í Reykjavík. Það er dýrt fyrir lands-
byggðina en á það verður að leggja
áherslu.
Auðvitað er alltaf hægt að gera bet-
ur en í það heila tekið held ég að starf
meixihlutans hafi verið farsælt," sagði
Sigurður Einarsson. -VAJ
G-listinn
Áhersla á atvinnu-
og húsnæðismálin
■segir Ragnar Óskarsson
„Höfuðmálin eru atvinnumál og svo
húsnæðismál. Og vegna stöðu bæjar-
sjóðs verður að taka töluverðan tíma
á næsta kjörtímabili í að laga þau
mál,“ sagði Ragnar Óskarsson yfir-
kennari en hann skipar efeta sætið á
lista Alþýðubandalagsins í Vest-
mannaeyjum.
„í atvinnumálum höfum við lagt
áherslu á að bærinn hafi frumkvæði
að stofhun nýrra atvinnugreina, sér-
staklega í iðnaði. Má þar nefiia til
dæmis fullvinnslu sjávarafurða sem
lítið hefur verið sinnt. Bærinn getur
örvað slíka starfeemi á ýmsan hátt.
Það hefur verið vanrækt á síðustu
árum af bænum að nýta verkamanna-
bústaðakerfið og því viljum við breyta.
íbúðir bæjarins eru orðnar lélegar og
við viljum byggja basði leigu- og sölu-
íbúðir í gegnum verkamannabústað-
ina. Við höfum einnig sett fram
hugmyndir um sérstakt átak í bygg-
ingu íbúða fyrir imgt fólk,“ sagði
Ragnar Óskarsson. -VAJ
Þau eru í framboði
Framboðslisti Alþýðuflokksins
1. Guðmundur Þ.B. Ólafsson
2. Þorbjörn Pálsson
3. Sólveig Adolfsdóttir
4. Ágúst Bergsson
5. Kristjana Þorfinnsdóttir
6. Bergvin Oddsson
7. Birgir Guðjónsson
8. Stefán Jónsson
9. Eygló Ingólfedóttir
10. Ágústína Jónsdóttir
11. Heimir Hallgrímsson
12. Vilhjálmur Vilhjálmsson
13. Ebeneser Guðmundsson
14. Guðný Ragnarsdóttir
15. Ævar Þórisson
16. Jóhann ólafsson
17. Tryggvi Jónasson
18. Magnús H. Magnússon
Framboðslisti Framsóknar-
flokksins
1. Andrés Sigmundsson
2. Guðmundur Búason
3. Skæringur Georgsson
4. Svanhildur Georgsdóttú”
5. Guðbjörg Sigurgeirsdóttir
6. Ingveldur Gísladóttir
7. Jónas Guðmundsson
8. Ingi Steinn Ólafsson
9. Bima Þórhallsdóttir
10. Páll Amar Georgsson
11. Hafdís Eggertsdóttir
12. Hilmar Rósmundsson
13. Auðberg Óli Valtýsson
14. Logi Snædal Jónsson
15. Einar Steingrímsson
16. Hilmar Jónasson
17. Jóhann Björnsson
18. Sigurgeir Kristjánsson
Framboðslisti Sjálfstæðis-
flokksins
1. Sigurður Einarsson
2. Sigurður Jónsson
3. Bragi I. Ólafeson
4. Helga Jónsdóttir
5. Arnar Sigurmundsson
6. Ólafur Lámsson
7. Ómar Garðarsson
8. Unnur Tómasdóttir
9. Stefán Runólfeson
10. Grímur Gíslason
11. Friðþór Guðlaugsson
12. Þómnn Gísladóttir
13. Gísli Ásmundsson
14. Oktavía Andersen
15. Hafliði Albertsson
16. Guðmundur Rúnar Lúðvíksson
17. Sigurbjörg Axelsdóttir
18. Sigurgeir Ólafsson
Framboðslisti Alþýðubanda-
lagsins
1. Ragnar Óskarsson
2. Guðmunda Steingrímsdóttir
3. Elías Björnsson
4. Jóhanna Friðriksdóttir
5. Jón Kjartansson
6. Svava Hafsteinsdóttir
7. þorsteinn Gimnarsson
8. Matthildur Sigurðardóttir
9. Ástþór Jónssson
10. Aðalheiður Sveinsdóttir
11. Sævar Halldórsson
12. Edda Tegeder
13. Ármann Bjamfreðsson
14. Gunnlaug Einarsdóttir
15. Hörður Þórðarson
16. Ólöf M. Magnúsdóttir
17. Dagmey Einarsdóttir
18. Hermann Jónsson
Framboðslisti óháðra
1. Bjarni Jónasson
2. Svanur Gísli Þorkelsson
3. Helga Sigurðardóttir
4. Guðmundur E. Sæmundsson
5. Gunnar M. Sveinbjömsson
6. Hannes Ingvarsson
7. Kristín Guðmundsdóttir
8. Jónas Bjarnason
9. Gísli M. Sigmarsson
Úrslit1982
Úrslit bæjarstjórnarkosninganna í
Vestmannaeyjum 1982 urðu þessi:
Alþýðuflokkur(A) 1 mann
Framsóknarflokkur(B) 1 mann
Sjálfstæðisflokkur(D) 6 menn
Alþýðubandalag(G) 1 mann
Á kjörskrá vom 2897. Alls greiddu
atkvæði 2529 eða 87,3%.