Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Qupperneq 48
68*78*58
Hafiz þú ábendingu eða vitn-
eskju um frétt - hringdu þá í
síma 687858.
Fyxir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.000 krénur.
Fyrir besta firéttaskotið i
hverri viku greiðast 3.000
kxénur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allaw sólarhringinn.
MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1986.
Pan-hópurinn:
Þrjár thai-
lenskar stúlkur
á leiðinni
„Við erum að semja um að fá þrjár
thailenskar stúlkur hingað í sumar til
að sýna með hópnum,“ sagði Haukur
Haraldsson hjá Pan-hópnum, í samtali
við DV.
„Það er nóg framboð af þessum
stúlkum í Evrópu. Þessar sem við höf-
um verið í sambandi við starfa nú við
sýningar í Þýskalandi. Það er ekkert
mál að fá þær til að koma hingað.
Vandinn er bara sá að við komumst
ekki yfir að anna öllum þeim beiðnum
úm sýningar sem við fáum. Því er enn
óráðið hvenær þær thailensku koma,“
sagði Haukur.
Haukur sagði að framan af sumri
yrði Pan-hópurinn trúlega á ferð um
j^gjandið. Eftir það stæði til að fara til
Evrópu og sýna á vegum Pan-hópa
þar. Haukur taldi líklegast að Pan-
hópurinn yrði styrktur með thailensku
stúlkunum þremur eftir að þessum
verkefiium væri lokið. -GK
Vestmannaeyjar:
Sjúkralið-
amir aftur
til starfa?
Sjúkraliðar i Vestmannaeyjum, sem
hættu störfum 1. maí, hafa krafist þess
að launahækkanir nái einnig til þeirra
sjúkraliða sem ekki ætla að snúa aftur
til starfa.
í gærkvöldi kom nýtt tilboð frá bæj-
arráði. Það hljóðar upp á að laun
sjúkraliða hækki um einn launaflokk
1. september nk. Áður hefúr verið boð-
in eins launaflokks afturvirk hækkun
frá 1. september síðstliðnum.
Sigurleif Guðfinnsdóttir, sjúkraliði í
Vestmannaeyjum, sagðist búast við að
flestir sjúkraliðanna myndu hefja störf
"aö nýju á þessum kjörum. Hins vegar
hefðu þrír sjúkraliðar þegar ákveðið
að he§a ekki störf að nýju. Krafan
væri að þeir fengju þær afturvirku
launahækkanir sem í boði væru. Enn
hefur ekkert svar borist frá bæjaryfir-
völdum um þessa kröfu. -APH
Geriö uerösamanburö
og pantiö
Simi: 52866
LOKI
Þetta er auðvitað
H-alvarlegt mál
Sigurður Líndal iagaprófessor um yfiwinnubann sjómanna:
Vafalítið ólögmætt
„Það þarf varla prófessor til þess
að svara til um þetta. Það nægir að
kunna að lesa og skilja íslenskt
mál. Allar aðgerðir til þess að knýja
fram aðra skipan kjaramála sjó-
manna en segir til um í bráðabirgða-
lögunum eru bcmnaðar. Yfirvinnu-
bann sjómanna í framhaldi af þeim
lögum er þess eðlis og vafalítið ólög-
mætt, svo ekki sé sterkara að orði
kveðið," segir Sigurður Líndal laga-
prófessor.
Ríkisstjómin setti bráðabirgðalög
á föstudaginn um stöðvun verkfalla
farmanna á kaupskipaflotanum. Á
gerðardómur að ákveða kjör þeirra.
Strax á föstudagskvöld samþykkti
fúndur farmanna í Sjómannafélági
Reykjavíkur yfirvinnubann frá og
með 19. maí og verkfall frá síðasta
degi ársins. Yfirvinnubannið tekur
til háseta og aðstoðarmanna í vélar-
rúmi og nær til að byrja með yfir
hafhir við Faxaflóa, nema Akranes
og Grundartanga.
Komi bannið til framkvæmda
munu skip ekki geta látið úr höfn
frá því klukkan 17 til klukkan 8 að
morgni og ekki um helgar. Því var
lýst yfir að yfirvinnubannið væri
sett á til þess að mótmæla bráða-
birgðalögunum. Málið fer nú vafa-
laust fyrir félagsdóm og má vænta
þess að hann nái að afgreiða það
áður en yfirvinnubannið gengur í
gildi- HERB
Eliefu þúsund um helgina
Um ellefu þúsund manns heimsóttu matarsýninguna í Laugardalshöllinni um helgina. Meðal gesta var Geir Hallgríms-
son, fyrrverandi utanrikisráðherra, og kona hans, Ema Finnsdóttir. Þau eru þama að bragða á gómsætum smáréttum
frá Isfugli. Lambakjöt var glóðað undir berum himni og vakti það sérstaka athygli. Einnig vakti mikla athygli danski
kökugerðarmeistarinn John Krogh, en hann býr til listaverk úr marsipani og fleira góðgæti. Hann verður á sýning-
unni fram á fimmtudag. -A.Bj.
Stunginn með hnífi í læri
Erilsamt var hjá lögreglunni víðs
vegar um land um helgina. Ölvun
var þó nokkur en engin stórvægileg
óhöpp urðu.
Lögreglan í Reykjavík var kölluð
að Hlemmi kl. 9.30 í gærkvöldi þar
sem til átaka kom. Ráðist var að
manni og hann stunginn í læri með
hnífi.
Stungan var ekki það djúp að
maðurinn skaðaðist alvarlega. Hann
hlaut minniháttar skrámu. Hnífst-
ungumaðurinn náðist fljótlega.
-sos
Veðrið á morgun:
Bjartáfram
sunnaii'
lands
Á morgun verður áfram bjart veð-
ur sunnanlands, e.t.v. skúrir við
suðurströndina. Skýjað verður á
annesjum og gengur á með éljum.
Hiti verður á bilinu 6-7 stig á
sunnanverðu landinu. Fyrir norðan
og austan land verður hitastig mun
lægra. Eins stigs hiti á Vestfjörðum
og við frostmark á Austfjörðum.
-ÞJV
Rifist um H
á Blönduósi
i
í
i
i
i
Félagsmálaráðherra staðfesti í
morgun úrskurð yfirkjörstjómar í
Austur-Húnavatnssýslu um merkingu
framboðslista á Blönduósi. Þar kom
upp ágreiningur um listabókstafinn
H. Framsóknarmenn og óháðir halda
háinu en Alþýðubandalagsmenn og
óháðir gerðu tilkall til þess.
Undanfarið hafa vinstri menn á
Blönduósi borið fram einn lista og
haft bókstafinn H gegn D-lista sjálf-
stæðismanna. Samstarf vinstri manna,
en þeir fengu meirihluta í síðustu
kosningum, er ekki lengur fyrir hendi.
í kosningunum nú bera þeir fram tvo
lista.
Alþýðubandalagsmenn og óháðir
lögðu fyrr fram sinn lista og báðu um
listabókstafinn H en K til vara. En
framsóknarmenú og óháðir, sem lögðu
fram sinn lista síðar, báðu líka um H
og fengu þann bókstaf. Þetta kærðu
Alþýðubandalagsmenn og óháðir.
Yfírkjörstjóm ákvað að standa við
fyrri úthlutun listabókstafa og ráð-
herra að standa að baki yfirkjörstjóm.
Hann vísar til lagaákvæða um að yfir-
kjörstjóm hafi það hlutverk að
úthluta listabókstöfum. HERB
t
t
i
Omar i
vand-
ræðum
Hinn kunni fréttamaður Ómar
Ragnarsson lenti í vandræðum á
Reykjavíkurflugvelli er hann þurfti
snögglega að skipta um lendingar-
braut í aðflugi með dautt á vél, á
TF-FRÚ.
„Ég var í æfingarflugi, að æfa að
koma dautt inn á braut. Upphaflega
hafði ég fengið heimild til að lenda á
braut 07 en þegar ég kom í aðflugið
sá ég að umferð var enn á brautinni
og varð ég þá að skipta um braut í
aðfluginu,“ sagði Ómar Ragnarsson í
samtali við DV.
Ástæðuna fyrir þessum mistökum
segir Ómar þá að flugumferðarstjóri
sá er hann fékk heimild hjá sá ekki
um hann í aðfluginu.
„Við lærum af þessu að æfingarleyfi
skuli vera skriflegt þegar mikil umferð
er á vellinum," sagði Ómar. Uppá-
koma þessi vakti mikla athygli á
Valsvellinum á afmælishátíð þess fé-
lags og taldi þulurinn þar að Ómar
hefði þurft að nauðlenda. „Þetta var
alls ekki nauðlending," voru lokaorð A
Ómars. -FRI |