Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1986, Qupperneq 6
6
DV. MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 1986.
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn-
stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74
ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri
með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru
verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn-
vextir eru 15% og ársávöxtun 15%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
10*%, en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði
án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu er 13,64% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gúllbókin, er óbundin með 13%
nafnvöxtum og 13,6% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið-
réttingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 14,5% nafnvöxtum og
15% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða
verðtryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5%
vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvem mánuð.
Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging
auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka
má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án
þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir
30.06. og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
13% jiafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun eða
ávöxtun 6ja mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
0.7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára afmælisreikningur er verðryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25%
og breytast ekki á meðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fvrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði
8.50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir
6 mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir
18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3j’a eða 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir
og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti-
Útvegsbankinn: Ábót bér annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 12,4%, eða ávöxcun 3ja mán-
aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt-
um sé hún betri. Samanburður er gerður
mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé
tekið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 8%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársíjórðunga sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 12,9% eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung. Vextir færast fjórum sinnum á
ári og leggjast við höfuðstóí. Þeir eru alltaf
lausir til útborgunar.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, \2,5%, með
13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp-
vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt
á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn-
an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél-
stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði,
óverötryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir
eru færðir eirtu sinni á ári og ársávöxtun er
því einnig 15,5%.
18 mánaða reikningar 5 sparisjóða eru
með innstæðu bundna óverðtryggða í 18
mánuði en á 14.5% nafnvöxtum og 15,2%
ársávöxtun. Sparisjóðimir í Keflavík, Hafn-
arfírði, Kópavogi, Borgamesi og Sparisjóður
Reykjavíkur bjóða þessa reikninga.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands em seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau em almennt tryggð með
veði undir 60% af bmnabótamati fasteign-
anna. Bréfin em ýmist verðtryggð eða óverð-
tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau
em seld með afföllum og ársávöxtun er al-
mennt 12 16% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til
einstaklinga 782 þúsundum króna, 2 4 manna
fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.341 þúsundum. Lánin em til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 391 þúsund krónur til einstaklings,
annars mest 195 þúsund. 2-4 manna fjölskylda
fær mest 497 þúsund til fyrstu kaupa, annars
mest 248 þúsund. 5 manna fjölskylda eða
stærri fær mest 580 þúsundir til fyrstu kaupa,
annars mest 290 þúsund. Lánstími er 21 ár.
Húsnæðislánin em verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir em í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns-
rétti er 30 £0 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán em á bilinu 150-1000 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin em verð-
tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15-42
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir em vextir í heilt ár og reiknaðir
í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir
og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til
vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri
en nafnvextimir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok
tímabilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður
því 10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verð-
bólgu dregur úr raunávöxtun sem því nemur
og hún getur jafnvel orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eftir
6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur
og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni
6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan
því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir em frá 01.04.1986 2,25% á
mánuði eða 27% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í apríl 1986 er 1425 stig
en var í mars 1428 stig og í febrúar 1396 og
janúar 1364 stig. Miðað er við gmnninn 100
í júní 1079.
Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986
er 265 stig á gmnninum 100 frá 1983 en 3924
stig á gmnni 100 frá 1975.
Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04.
en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi
vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar
sem við hana er miðað sérstaklega í samning-
um leigusala og leigjenda.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%)
21.-31.05 1986
INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM
SJÁ SÉRLISTA
lliiiill 1
INNLAN OVERÐTRYGGÐ
SPARISJÓÐSBÆKUR
SPARIREIKNINGAR
TÉKKAREIKNINGAR
innlAn VERÐTRYGGÐ
SPARIREIKNINGAR
INNLÁN GENGISTRYGGÐ
útlAn ÓVERDTRYGGÐ
ALMENNIR VlXLAR
VIÐSKlPTAVlXLAR 3)
ALMENN SKULDABRÉF 2)
VIÐSKIPTASKULDABRÉF3)
HLAUPAREIKNINGAR
ÚTLÁNVERÐTRYGGÐ
SKULDABRÉF
útlAntilframleiðslu
SJÁNEDANMALS1)
Öbundin innstæða 9.0 9.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 8.5 8,0
3ja mán. uppsögn 10,0 10,25 10,0 9.0 8.5 10,0 8.5 9.0 10.0 9.0
6 mán. uppsögn 12.5 12.9 12.5 9.5 11.0 10.0 10.0 12.0 10,0
12mán. uppsögn 14.0 14,9 14,0 11.0 12.6 12,0
Sparað 3-5 mán. 13,0 13.0 8.5 10,0 8.0 9.0 10.0 9.0
Sp. 6mán.ogm. 13.0 13.0 9.0 11.0 10.0 10.0
Avisanareikningar 6.0 6.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
Hlaupareikningar 4.0 3.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
3ja mán. uppsögn 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0
6 mán.uppsogn 3.5 3.0 2.5 2.5 3.5 2.5 3.0 3.0 3.0
Bandarikjadollarar 7.0 7.5 6.0 6.0 6.0 6.5 6.25 6.5 6.25
Stcrlingspund 11.5 10.5 9.5 9.0 9.5 10.5 10,5 11.5 9.5
Vestur-þýsk mörk 4.0 4.0 3.5 3,5 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5
Danskar krónur 7.5 7.5 7.0 7.0 7.0 7.5 7.0 7.0 7.0
(forvextir) 15.25 15.25 15.25 15.25 15,25 15.25 15.25 15.25 15,25
(forvextir) kge 19.5 kge 19.5 kfl« kge kge kge
15.5 15,5 15.5 15,5 15.5 15.5 15.5 15,5 15.5
kge 20.0 kge 20,0 kge kge kge kge
YFIRDRATTUR 9.0 9.0 9.0 9.0 7.0 9.0 9.0 9.0 9.0
Að 21/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Lengrien21/2ár 5.0 5,0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
1) Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn-
ings, í SDR 8%, í Bandaríkjadollurum 8,5%, í sterlingspundum 11,75%, í vestur-
þýskum mörkum 6,25%. 2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er
2%, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. 3)Við kaup á viðskiptavíxlum og
viðskiptaskuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá
þeimbönkum sem.banniíí er-merki..við.einoig.bjá flesturo st.neratu sparisióðuuum.
Viðskipti Viðskipti Viðskipti
" Bjöm Þorsteinsson, 19 ára:
Selur íslenska knatt-
spymu um allan heim
„Þetta byrjaði með því að pennavin-
ur minn bað mig um upplýsingar um
íslenska knattspymu. Ég tók upplýs-
ingamar saman og vandaði mig
töluvert, mest í gamni,“ sagði Bjöm
Þorsteinsson, 19 ára menntaskólapilt-
ur, sem undanfarin ár hefur gefið út
öll úrslit í íslenskum knattspymu-
leikjum á bók. Allt er á ensku og ber
yfirskriftina: The Icelandic Football
Yearbook, haganlega tölvusett og frá-
gangur til fyrirmyndar. Þrjár bækur
hafa þegar komið út, 1983, 1984 og
1985, og selst í um 600 eintökum.
„Ég hef selt bækumar í öllum heim-
sálfum nema á Suðurskautslandinu,"
sagði Bjöm í samtali við DV en hann
er bróðir Vilhjálms Þorsteinssonar,
tölvusérfræðings og varaformanns í
Bandalagi jafiiaðarmanna. „Ég aug-
lýsti ritin í tímaritinu World Soccer
og seldi strax um 180 eintök. Þá hef
ég fengið ítarlega umljöllun í þýska
knattspymuritinu Kicker."
Bjöm ætlar nú að hætta útgáfunni.
Aðalástæða þess er sú að það rignir
þvílíku magni af bréfum yfir hann er-
lendis frá að hann er að kikna: „Menn
vilja fá að vita hvemig íslenski lands-
liðsbúningurinn sé á litinn, prógrömm
einstakra leikja og þar fram eftir göt>
unum. Ég hef einfaldlega ekki tíma til
að svara þessu öllu. Bréfritarar segjast
hafa snúið sér til KSÍ en ekki fengið
nein svör í þeim herbúðum."
Bjöm Þorsteinsson stefriir að því að
ljúka stúdentsprófi um næstu jól og
framtíðin er óráðin. Hann segist ekki
ætla að feta í fótspor bróður síns,
hvorki á tölvusviðinu né í heimi
stjómmálanna. Næsta verkefni er að
selja þau fáu eintök er eftir em af The
Icelandic Football Yearbook, einstöku
riti í sinni röð. Það verður til sölu í
bókaverslun Máls og menningar á
næstunni.
-EIR
Bjöm Þorsteinsson með afurðir sinar: - Selt í öllum heimsálfum nema á Suður-
skautslandinu. DV-mynd PK.
Sex Fokketvélar í
innanlandsflugi
- sjö prósent farþegaaukning frá áramótum
í metár stefhir hjá innanlandsflugi
Flugleiða. Frá áramótum til 17. maí
flutti félagið 89 þúsund farþega sem
er 6,6 prósent aukning frá sama tíma
í fyma, samkvæmt upplýsingum frá
blaðafulltrúa Flugleiða, Sæmundi
Guðvinssyni.
Flugleiðir settu reyndar met í fyrra
er félagið flutti 244 þúsund farþega á
innanlandsleiðum. Vom það fleiri far-
raiGUtnm
Pokkervélar Pluoleiða hafa nóa að oera í sumar
þegar en sem nemur fjölda Islendinga.
Nú stefhir í að farþegafjöldinn fari upp
í 260 þúsund.
Til að flytja allan þennan fjölda nota
Flugleiðir nú sex Fokker-vélar. Hafa
þær aldrei verið fleiri í innanlands-
fluginu.
Þrjár vélar hafa bæst við eftir að
Árfari lauk flugtakstilraun stór-
skemmdur á Suðurgötunni. Það em
tvær leiguvélar, frá Landhelgisgæsl-
unni og Air UK, og 22 ára gömul vél
sem Flugleiðir hafa keypt frá Finnair.
Þá vél keypti Finnair reyndar af Flug-
leiðum á sínum tíma.
Bresku leiguvélinni verður væntan-
lega skilað í næsta mánuði. Vél
Landhelgisgæslunnar verður notuð
eftir þörf að vissu marki í sumar. I
desember kemur Árfari svo aftur úr
viðgerð.
Fokker-vélamar sinna í auknum
mæli millilandaflugi í sumar. Nýlega
er hafið flug til Glasgow um Færeyjar
einu sinni í viku. Um miðjan júní hefst
Fokkerflug til Kulusuk sem verður
fjórum sinnum í viku.
-KMU