Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1986, Qupperneq 9
DV. MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 1986.
9
Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd
Lögreglumaður var um helgina grafinn lifandi i Suður-Afriku. Óöldin
þar virðist fara versnandi með degi hverjum. Reiði blökkumanna bein-
ist nú í æ ríkari mæli gegn svertingjum, sem starfa fyrir stjórnina, og
þá aðallega lögreglumönnum.
Lögreglu-
maður
grafinn
lifandi
Átökin í Suður-Afríku verða æ
óhugnanlegri. Um helgina var ráðist
á svartan lögreglumann er hann
fylgdi vini sínum til grafar, honum
varpað í opna gröf og hann grafinn
lifandi, að þvi er haft var eftir lög-
reglu.
Lögregluþjónninn, S.H. Mandlazi,
sem var klæddur í borgaraleg fót,
var meðal þrjú hundruð syrgjenda
við jarðarför vinar síns í Ackerville
í austurhluta Transvaal.
Klukkutíma síðar opnaði lögregl-
an gröfina og fann lík Mandlazis í
sitjandi stöðu.
Svartir lögreglumenn, sem em með
hæst launuðu svertingjum í þjónustu
ríkisins, eru helstu skotmörk rót-
tækra andstæðinga kynþáttaað-
skilnaðarstefhunnar sem hafa heitið
því að skeggöld skuli ríkja þar til
ríkisstjórnin viðurkenni meirihluta
svertingja við stjóm landsins.
Lögreglan segist ekki hafa hand-
tekið neinn vegna morðsins á
Mandlazi. Hann er þrítugasti og
níundi lögreghmiaðurinn sem lætur
lífið í óeirðunum sem staðið hafa
síðan í febrúar 1984. Allir lögreglu-
mennimir, nema fjórir, hafa verið
svartir.
Hægrimenn
tapa
í Ecuador
Allar líkur bentu til þess í morgun
að hægristjórn Cordero, forseta Ecu-
ador, biði mikinn ósigur í þingkosn-
ingum er fram fóm þar um helgina.
Eftir að íjórðungur atkvæða hafði
verið talinn voru flokkar vinstri-
manna og marxista komnir með yfir
53 prósent atkvæða, miðflokkar með
um 5 prósent og ríkisstjórnarflokkur
Cordero aðeins með nim 37 prósent
atkvæða.
Ósigur í þingkosningum á miðju
kjörtímabili Cordero er talinn geta
leitt til aukinnar stjómmálalegrar og
efnahagslegrar upplausnar í Ecuador
en landið á nú við vaxandi efnahags-
örðugleika að etja vegna lækkandi
olíuverðs á heimsmarkaði, en olíuiðn-
aðurinn hefur fram að þessu verið einn
mikilvægasti útflutningsiðnaður
landsins.
Kyrkti
sig sjálfur
Maður, sem játað hafði á sig fjörutíu
morð, flest þeirra á ungum stúlkum,
sem hann kyrkti með hvítum vír,
hengdi sig í fangaklefa sínum á föstu-
daginn.
Hinn þijátíu og þriggja ára gamli
Majid Salek Mahmoudi, sem nefndur
var „kyrkjarinn í Teheran“, notaði
ræmu af rúmteppi til að svipta sig lífi
í fangelsinu síðastliðinn föstudag.
Hann var handtekinn í febrúar og
játaði smám saman á sig 40 morð í
Teheran og fimm öðrum borgum í íran
á síðustu fjórum árum.
Lögreglan segir hann hafa framið
morðin af kynferðislegum ástæðum,
vegna ánægjunnar og til að stela af
fómarlömbum sínum.
Saksóknarinn í Teheran hefur fyrir-
skipað rannsókn á dauða Mahmoudis.
SMRKOMADC
Verð frá aðeins 3.750 kr.
Einnig mikið úrval af hátölurum í bíla
ísetning á staðnum.
Vanir menn
I • l
ÍXdQIO
Ármúla 38 og Garðatorgi 1.
Símar 31133 - 83177 - 651811.
,pös^oW'
Vorum að fá mikið úrval af vönduðum bíltækjum
með 2 og 3 bylgjum, FM, stereo og kassettu.
Enn einu sinni hefur C ASIO
tekist aö framleida tækninýjungar á gjaf-
Ji^^^verði. Með hljómborðinu PT-82 getur þú lært að
spila þelckt lög og búa til þín eigin. PT-82 sýnir með ljósi
á hvaða takka þú átt að styðja.
Alls konar hljómar, taktar og undirspil.
Mikið úrval hljómborða frá kr. 2.800,-
UMBOÐIÐ, BANKASTRÆTI, SIMI 27510