Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1986, Qupperneq 10
10
DV. MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 1986.
Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd
Hneyksli skekur
Wall Street
Dennis Levine var einn efhilegasti
bankamaðurinn í Wall Street. Hann
var framkvæmdastjóri hjá virðulegu
fyrirtæki, þrjátíu og þriggja ára
gamall, myndarlegur og hafði sér-
stakt lag á að vekja áhuga viðskipta-
vina. Að auki hafði hann hæfileika
til að verða sér úti um upplýsingar
um tilvonandi yfirtöku fyrirtækja,
þ.e. þegar stórt fýrirtæki leggur und-
ir sig minna fyrirtæki til að auka
markaðshlutdeild sína, losna við
samkeppni og svo fram eftir götun-
um. Hann fékk síðan fómarlömbin
til að ráða hans fyrirtæki til að ann-
ast vamir í málunum. Að sögn
lögreglunnar notaði Levine sér-
fræðiþekkingu sína einnig til að
kaupa hlutabréf í fyrirtækjum, sem
hann vissi að áttu von á tilboði um
yfirtöku. Síðari seldi hann bréfin
þegar verð þeirra hækkaði í kjölfar
tOboða um yfirtöku.
Stærsta mál sinnar tegundar
Þetta er hins végar ólöglegt og í
síðustu viku komst upp um Levine.
Sérstök rannsóknamefnd, sem hefur
eftirlit með verðbréfamarkaðnum í
Wall Street, kærði hann fyrir 54 brot
á lögum um verðbréfaviðskipti. Not-
aði hann gervifyrirtæki sem skráð
voru í Panama og á Bahamaeyjum
og víðar. Stuttu seinna var hann
handtekínn í Manhattan. Ef Levine
verður dæmdur sekur af þessum
ákærum gæti hann orðið að endur-
greiða 7,6 milljónir dollara af ólög-
legum gróða og borga 22,8 milljóna
dollara sekt. Hann á einnigyfirhöfði
sér allt að fimm ára fangelsi.
Þetta mál er hið stærsta af þessu
tagi sem rannsóknamefhdin hefur
nokkum tfma haft afskipti af og
hefur það skapað nokkum ugg með-
al manna í Wall Street. Levine hafði
ólöglega grætt 12,6 milljónir dollara
á síðustu 5 árum. Svona mál koma
alltaf upp á yfirborðið öðru hvoru,
en aldrei áður hefur svona háttsettur
maður verið sakaður um að hafa,
með ólöglegum hætti, komist yfir
jafrimikið fé í jafrilangan tíma. Er
það mál manna að Levine hljóti að
hafa skipst á upplýsingum við fjölda
fjármálamanna og óttast menn mjög
að handtaka hans sé aðeins byrjunin
á því sem geti reynst stórkostlegt
hneykslismál fyrir Wall Street. Sér-
staklega em menn uggandi um að
hann og samstarfsmenn hans gefi
upplýsingar um samverkamenn
gegn vægari dómi. Heimildir innan
embættismannakerfisins herma að á
næstunni megi búast við ákærum
gegn háttsettum, virðulegum mönn-
um fyrir sömu sakir. Er nú talað um
„Watergate" í Wall Street.
Víðtækt samsæri
Ólögleg verðbréfaviðskipti af
þessu tagi geta tekið á sig ýmsar
myndir. Fyrirframvitneskja um að
fyrirtæki muni setja á markaðinn
nýja vöru, gefa út skýrslu um mikinn
gróða fyrirtækisins eða eitthvað f
þá veruna getur auðveldað spákaup-
mönnum að verða sér úti um skjót-
tekinn gróða. Samt eru það
upplýsingar um væntanleg yfirtöku-
tilboð sem eru ær og kýr þessara
viðskipta.
Levine var sérfræðingur í samein-
ingu fyrirtækja og starfaði sem
slíkur, og hafði því aðgang að dýr-
mætum. leynilegum upplýsingum
daginn út og inn. Það vekur athygli
að í 35 af þeim 54 málum, sem Le-
vine er ákærður fyrir, kemur fjár-
festingabanki sá er hann vinnur hjá
ekki við sögu. Þetta bendir til þess
að hann hafi skipst á upplýsingum
við menn hjá öðrum sambærilegum
bönkum.
Talið er hugsanlegt að Levine hafi
unnið með hópi af verðbréfabröskur-
um. Braskaramir kaupa venjulega
hlutabréf f fynrtækjum eftir að til-
kynnt hefur verið um yfirtökutilboð.
Vonast þeir eftir skjótfengnum
gróða er keppinautar þeirra fara að
bjóða í hlutabréf, sem svo hækka í
kjölfarið. Sumir braskarar virðast
vita um tilboðin áður en þau eru
tilkynnt.
Notaði banka á Bahamaeyj-
um og gervifyrirtæki í
Panama
En hver sem skiptist á upplýsing-
um við Levine - þá virðist Ijóst að
viðskipti hans fóru í gegnum Bem-
ard Meier, þijátíu og fimm ára
gamlan bankastjóra útibús Leu-
bankans svissneska á Bahamaeyj-
um. Bankinn hefur höfuðstöðvar í
Zurich. Meier, sem er sakaður um
að hafa þegið 152.000 dollara fyrir
þessi viðskipti, var í síðustu viku
ákærður fyrir að vera meðsekur í
málinu. Fyrstu viðskipti þeirra áttu
sér stað i maf 1980, er Levine keypti
1.500 hlutabréf í Dart-fyrirtækinu en
seldi þau innan við tveimur vikum
seinna með 4.000 dollara hagnaði
þegar Dart tilkynnti að það væri að
sameinast Kraft-fyrirtækinu.
Eftir' þessa ákjósanlegu byrjun
notaði Levine sambönd sín á Ba-
hamaeyjum hvað eftir annað. Hann
hringdi „collect" í Meier úr almenn-
ingssímaklefum í hádegisverðartím-
um sínum og notaði nafnið „Mr.
, Diamond". Eigendur hlutabréfa
hans vom skráðir „Intemational
Gold inc.“ og „Diamond Holdings
S.A.“, gervifyrirtæki sem Levine
hafði sett á laggimar í Panama.
Þegar hann þurfti að hitta Meier
sjálfur flaug hann til Bahamaeyja
undir fölsku naini og borgaði ferð-
imar með Veiðufé. Til að vekja ekki
grunsemdir konu sirrnar minntist
hann aldrei á þessar ferðir sínar og
passaði að vera aldrei yfir nótt á
Bahamaeyjum.
Græddi 2,7 milljónir dollara á
þremur vikum
Eftir því sem tíminn leið urðu fjár-
festingar Levines og um leið hagnað-
ur stærri og meiri. I nóvember 1982
keypti hann 50.000 hlutabréf í Itek-
Umsjón:
Ólafur Arnarson
fyrirtækinu. Hann seldi þau tveimur
mánuðum seinna, er Litton-fyrir-
tækið hafði yfirtekið Itek, og græddi
805.000 dollara. í maí síðastliðnum
keypti hann 150.000 hlutabréf í hinu
fræga Nabisco-fyrirtæki. Þremur
vikum seinna, er vangaveltur um
hugsanlega sameiningu Nabisco við
Reynolds gengu fjöllum hærra, seldi
hann bréf sín með 2,7 milljóna hagn-
aði.
Þetta voru greinilega of miklir
peningar fyrir mann sem var alinn
upp í miðstéttarfjölskyldu í Queens
í New Yorkríki og lauk prófi frá
Baruch College, sem er einn af há-
Dennis Levine hagnaðist vel á ólöglegum verðbréfaviðskiptum. Handtaka
hans hefur valdið miklum ugg meðal braskara í Wall Street.
skólum New Yorkborgar. Meðan
Levine stóð í þessum ólöglegu við-
skiptum keypti hann íbúð á Park
Avenue á Manhattan, sumarhús á
Long Island, rauðan Ferrari sportbíl
og verðmæt listaverk og skartgripi.
Bankareikningar frystir
Meðan á öllu þessu stóð var fyrr-
nefnd rannsóknamefnd komin á
sporið á eftir honum, undir stjóm
Gary Lynch. Eftir að hafa rakið
mikinn Qölda ólöglegra viðskipta til
Leu-bankans fékk nefndin þær upp-
lýsingar frá ónafngreindum heimild-
um að Levine stæði á bak við allt
saman. Með þessar upplýsingar að
vopni fengu bandarískir embættis-
menn bankann til að veita þeim
fullar upplýsingar um ólögleg við-
skipti Levines. Er Levine frétti af
rannsókn nefndarinnar skipaði
hann Meier að losa sig við vegabréf
sitt og önnur skjöl í bankanum. Hinn
9. maí reyndi Levine að flytja 10
milljónir dollara úr bankanum á
Bahamaeyjum yfir á bankareikning
á Cayman-eyjum. Þá frystu embætt-
ismenn bankareikninga hans og
lögðu fram ákæm gegn honum á
Manhattan. „Þetta sýnir að þvi fólki
skjátlast, sem heldur að það komist
upp með glæpi með því að nota er-
lenda bankareikninga," sagði
Lynch.
Ekki eina málið
Handtakan kemur í kjölfar margra
annarra í stríði rannsóknamefndar-
innar gegn ólöglegum verðbréfavið-
skiptum. Stríð þetta hefur staðið frá
1981 er John Shad tók við for-
mennsku í nefhdinni. Hann lofaði
þá að hafa hendur í hári lögbijóta.
Við það hefur hann staðið. Síðastlið-
in fjögur ár hafa verið lagðar fram
77 ákæmr vegna ólöglegra verð-
bréfaviðskipta og em það fleiri en
næstu þrjátíu og tvö árin á undan.
I fyrra var R. Foster Winans, fyrr-
verandi blaðamaður á Wall Street
Journal, dæmdur í 18 mánaða fang-
elsi fyrir að versla sjálfur með
hlutabréf sem hann hafði ætlað að
auglýsa í blaðinu. Fleiri dæmi mætti
hér nefna.
Þrátt fyrir aukið eftirlit rannsókn-
amefhdarinnar er það álit margra í
Wall Street að ólögleg viðskipti
komi áfram til með að þrífast.
Fréttin í síðustu viku var eins mik-
ið áfall fyrir Wall Street og ef
hlutabréf í Dow Jones stórfyrirtæk-
inu hefðu fallið um 100 stig. Spá-
kaupmenn velta því nú fyrir sér
hvert sé næsta fómarlamb nefndar-
innar. „Allir hafa einhvem tíma gert
ólögleg viðskipti," segir einn spá-
kaupmaður og annar segir: „Hér
áður fyrr gerðu menn að gamni sínu
um ólögleg verðbréfaviðskipti en nú
þykir það mikið smekkleysi að
glensast með slíkt." Eitt er alveg
víst. Dennis Levine og samstarfs-
mönnum hans stekkur ekki bros
þessa dagana.
(Heimild: Time.)
Gary Lynch stjórnaði rannsókninni
á Levine.